Morgunblaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hve langt myndir þú ganga?
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Stranglega bönnuð innan 18 ára!
eee
EMIPIRE
Þeir heppnu
deyja hratt
Next kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
Shooter kl. 8 og 10:15 B.i. 16 ára
Perfect Stranger kl. 6 B.i. 16 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 4 - 450 kr.
TMNT m/ísl. tali kl. 4 - 450 kr.
Next kl. 3.30, 5.45, 8, og 10.15 B.i. 14 ára
Next LÚXUS kl. 3.30, 5.45, 8, og 10.15
Pathfinder kl. 3.30, 5.45, 8, og 10.15 B.i. 16 ára
The Hills Have Eyes 2 kl. 8, og 10.10 B.i. 18 ára
Perfect Stranger kl. 8, og 10.30 B.i. 16 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 2 og 4
Sunshine kl. 5.50 B.i. 16 ára
TMNT kl. 2, 4 og 6 B.i. 7 ára
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
- Kauptu bíómiðann á netinu
HEIMSFRUMSÝNING
NICOLAS CAGE - JULIANNE MOORE - JESSICA BIEL
SÁ SEM SÉR FRAMTÍÐINA GETUR BJARGAÐ HENNI
EFTIR HÖFUND MINORITY REPORT OG BLADE RUNNER
GOÐSÖGNIN UM ÍSLENSKU VÍKINGANA LIFIR GÓÐU
LÍFI Í ÞESSARI KYNGIMÖGNUÐU HASARMYND!
Í KJÖLFAR 300 KEMUR PATHFINDER
TVEIR HEIMAR
LOKAORUSTAN
EITT STRÍÐ
ER HAFIN!
Auglýsingar ætti síst að van-meta. Þær geta veriðspegill fyrirtækja og kom-
ið því á framfæri sem auglýsandi
vill láta minnast sín fyrir.
Því varð ég hálfdöpur fyrir
hönd nýja Esso, N1, þegar ég sá
heilsíðu blaðaauglýsingu frá því á
dögunum.
Þar stendur karlmaður og sker
niður papriku í mesta sakleysi
íklæddur svuntu. Á henni stendur
hin sniðuga áletrun: „Ég má fara í
golf þegar ég er búinn að grilla.“
Segir hver? hugsaði ég fyrst ogsamstundis rann upp fyrir
mér hvers konar auglýsing þetta
var. Þarna er á ferðinni enn ein
birtingarmyndin af einni þreytt-
ustu og ófyndnustu mýtu samtím-
ans; að karlar séu beygðir undir
hundfúla eiginkonu, þeir vilji
ekkert frekar en að vera í golfi
með strákunum og að eiginkonan
megi ekki heyra slíka iðju nefnda.
Ég skil ekki fyrir hvern þessi
auglýsing er ætluð. Ætlunin var
að auglýsa grill. Fyrir hvern?
Kúgaða eiginmanninn eða fúlu
eiginkonuna?
Það telst varla góð auglýsing
fyrir grill ef grillarinn vill helst
vera einhverstaðar allt annars-
staðar og grillar eingöngu til að
fá að gera eitthvað annað.
Kannski ætlaði fyrirtækið að
tryggja sér ókeypis auglýsinga-
herferð í kjölfarið, líkt og varð
með Coke Zero. Það var um fátt
annað rætt á bloggsíðum lands-
manna um tíma en púkalegu
auglýsingaherferðina fyrir gos-
drykkinn sem einnig gengur út
frá því að karlmenn séu fífl og
konur séu fúlar.
Þessi lenska fyrirfinnst í fjöldaamerískra gamanþátta. Þar
er fjölskyldufaðirinn barnaleg
smásál sem vill ekkert frekar en
að hanga við snakkát, bjór-
drykkju og sjónvarpsgláp … já,
eða Guð forði okkur, golfiðkun!
Eiginkonan er að sjálfsögðu á
móti allri slíkri skemmtun, má
hvorki heyra né sjá manninn
skemmta sér og tekur að sjálf-
sögðu ekki þátt í fjörinu. Maður-
inn beitir því öllum tiltækum ráð-
um til að sleppa við uppvask,
rómantískar stundir (nema að
sjálfsögðu kynlíf) og skólaleikrit
barnanna til þess eins að geta
skemmt sér svolítið. Konan bíður
svo brúnaþung með hendur á
mjöðm ef upp kemst um kauða.
Þetta er svo agalega þreytt að
það nær ekki nokkurri átt.
Ég sé fyrir mér Raymond (úr
bandaríska gamanþættinum
Everybody Loves Raymond) með
svuntuna góðu. En Raymond býr
ekki á Íslandi … og ekki í raun-
veruleikanum ef út í það er farið.
Í lokin getur maður svo velt fyr-ir sér hvort auglýsingin hafi
einfaldlega verið fyrir svuntur
með þessari mjög svo skondnu
áletrun. Ég get ekki fullyrt um
það þar sem ég hef sniðgengið
verslanir N1 með aumum mætti
eins neytanda síðan ég sá um-
rædda auglýsingu.
Bannað að fara í golf!
Morgunblaðið/Kristinn
Mýta „Þarna er á ferðinni enn ein birtingarmyndin af einni þreyttustu og ófyndnustu mýtu samtímans.“
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
»En Raymond býrekki á Íslandi … og
ekki í raunveruleikan-
um ef út í það er farið.
birta@mbl.is
ÞESSI plata Skátanna er langþráð, því það
eru nokkur ár síðan fyrst fór að sjást til
þeirra á tónleikum. Hljómsveitin hefur not-
að tímann vel og á ein-
hvern undraverðan hátt
slípast án þess að glata
hráleikanum. Tónlistin
sem þeir bjóða upp á á
þessari annarri geisla-
plötu sinni er um margt
ruglingsleg, og fyrstu hlustanir eru eins og
að stinga hausnum inn í steypuhrærivél, svo
ruglaður er maður í ríminu. Þegar línurnar
fara að skýrast fer maður að heyra smá So-
nic Youth (t.d. í gítarspili) en svo eru áhrif
frá finnskri nýbylgju, íslensku pönki og pro-
grokki ásamt auðvitað fullt af einhverju óút-
skýranlegu sem er bara hjá Skátunum.
Skátar eru band sem nýtur þess að reyna
að koma hlustendum á óvart og það er eins
og gleðin ráði úrslitum hvort einhver hug-
mynd fær að halda sér eða ekki. Því eru alls
kyns stopp og taktbreytingar í sumum lög-
um, sem ég ætla að leyfa mér að fullyrða að
myndu fara í taugarnar á mér hjá einhverri
annarri hljómsveit, en virka bara alveg
prýðilega hjá Skátum. Þetta er líklega bara
allt spurning um samhengi og að ná því að
gera ekki of mikið heldur bara mátulega, og
þessu ná Skátar alveg.
Þá eru þó nokkur lög sem eru vel til þess
fallin að heyrast í útvarpi, þrátt fyrir
skringilegheitin, og vitnar það um hve mikil
breidd er í tónlist Skáta. Að lokum má geta
þess að platan fer verr af stað en hún endar,
sem er nokkuð sjaldgæft, en á móti virkar
það mjög vel ef maður rennir plötunni allri í
gegn. Þá verður hún betri og betri og endar
í gullmolanum „Taco N’Surf a Prayer“.
Áfram Skátar!
Alveg
mátulega
ruglingslegt
TÓNLIST
Skátar – Ghost of the Bollocks to come
Ragnheiður Eiríksdóttir