Morgunblaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 49
Krossgáta
Lárétt | 1 hvöss, 4 þraut-
um, 7 smákvikindi, 8
skerandi hljóð, 9 blóm,
11 tölu, 13 fornafn,
14 skilja eftir, 15 heil-
næm, 17 söngflokks,
20 ben, 22 fatnaðurinn,
23 Evrópubúi, 24 vísa,
25 bogna.
Lóðrétt | 1 kústur, 2 látin,
3 blæs, 4 svín, 5 hnappa,
6 stúlkan, 10 mynnið,
12 hár, 13 agnúi, 15 karl-
dýrs, 16 krumla, 18 logið,
19 þolna, 20 elska,
21 blettur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 renningur, 8 sægur, 9 látin, 10 afl, 11 aflar,
13 innar, 15 hress, 18 ófeig, 21 tól, 22 lygnu, 23 ylgja,
24 hafurtask.
Lóðrétt: 2 engil, 3 nárar, 4 núlli, 5 urtan, 6 espa, 7 knár,
12 als, 14 nef, 15 hæla, 16 eigra, 17 stunu, 18 ólykt,
19 engis, 20 gras.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Hrútur Þú þarfnast tímapressu. Annars
dregst verkið von úr viti. Fjárhagsleg
endurskoðun er það sem gerir gæfumun-
inn í framkvæmdum þínum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Vinir þínir taka þér opnum örmum.
Stundum viltu engin faðmlög en þú
þarfnast samt vina þinna þótt þú viljir
ekki heyra álit þeirra strax. Þeir vilja
bara hjálpa.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert í hringekju ástarinnar,
og ætlar að opinbera tilfinningar þínar
þótt snemma sé. En þetta er ekkert
leyndarmál. Það vita allir hvað er í gangi.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér gengur best þegar þú sneiðir
hjá öllu innihaldslausu hjali og færir þig
nær alvöruafli sem hefur áhrif. Vog og
fiski tekst að gera þig ánægðan.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er alls ekki satt að allt gott taki
enda. Góðir hlutir geta líka verið enda-
lausir. Takmarkanirnar sem við setjum
okkur og öðrum eru oft hugmynda-
skortur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú munt hitta manneskju sem
talar út í eitt svo enginn annar kemst að.
Týpan sem gerir alla vitlausa með yfir-
gangi og dónaskap. Þú gerir öðrum
greiða með að hlusta líka og þegja.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú getur tamið óþægðina í þér með
því að gefa þér rými til að sinna sjálfum
þér. Það sama gildir um maka þinn. Það
er betra en að reyna að stjórna.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú vinnur kannski ekki vin-
sældakosningu með því að segja ein-
hverjum hvað þér finnst í alvöru, en það
er allt í lagi. Þú hefur unnið í þinni eigin
vinsældakosningu og það er miklu betra.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Stundum gerast hlutirnir svo
snögglega að þú færð ekki ráðið við
neitt. Það hefur kosti og galli. Í kvöld
verður þér ljóst að það verður ekki aftur
snúið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er viss kraftur í umróti,
hvort sem þú ert að færa húsgögn eða
stjórna þínum eigin heimilisher. Það er
yndislegt að festast í ringulreið lífsins.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert meistari dægrastytt-
ingarinnar sem er frábært þegar þér
leiðist (þótt sjaldan sé). Minna frábært
þegar þú verður háður henni. Ekki forð-
ast það sem þú græðir á að taka á.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur unnið þér inn réttinn til
að ráða ferðinni. Í stað þess að berjast á
móti ímynduðum óvinum skaltu nota
skyn þitt á frelsi til að taka á málum.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 b6 4. g3 Ba6 5.
b3 Bb4+ 6. Bd2 Be7 7. Bg2 d5 8. Re5
O-O 9. O-O Bb7 10. Rc3 a5 11. Dc2 Ra6
12. Had1 Bb4 13. Bg5 Bxc3 14. Dxc3
Re4 15. Bxe4 Dxg5 16. Bg2 Hac8 17.
Hfe1 Hfd8 18. Rd3 c5 19. cxd5 Bxd5 20.
Bxd5 Dxd5 21. dxc5 Rxc5 22. Rxc5
Dxd1 23. Hxd1 Hxd1+ 24. Kg2 Hxc5
25. Df3 Hdd5 26. Df4 e5 27. Da4 g6 28.
De8+ Kg7 29. Db8 Hd2 30. Dxb6 Hcc2
31. Dxa5 Hxe2 32. Kh3 Hxa2 33. Dc5
h5 34. Kh4 Hxf2 35. Dxe5+ Hf6 36. h3
Haf2 37. g4 hxg4 38. hxg4 Kh7 39. b4
H6f3 40. Dc7 Hb3 41. Dc4
Staðan kom upp á alþjóðlegu minn-
ingarmóti Þráins Guðmundssonar sem
er nýlokið í Skákhöllinni í Faxafeni 12.
Guðmundur Kjartansson (2279)
hafði svart gegn Ingvari Ásbjörnssyni
(2016). 41… g5+! og hvítur gafst upp
þar sem hann er óverjandi mát.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Upp úr krafsinu.
Norður
♠873
♥D102
♦Á52
♣K543
Vestur Austur
♠ÁKG104 ♠D2
♥975 ♥63
♦D73 ♦10964
♣D6 ♣G10987
Suður
♠965
♥ÁKG84
♦KG8
♣Á2
Suður spilar 4♥
Vestur gaf og vakti á einum spaða,
en hefur svo vörnina gegn fjórum
hjörtum með því að taka bókina á
ÁKG í spaða. Austur hendir laufgosa í
þriðja spaðann og vestur kemur þá
með drottninguna í laufi í fjórða slag.
Sagnhafi tekur slaginn heima og klór-
ar sér kollinum. Upp úr því krafsi
koma tvær rökréttar ályktanir: tígul-
drottningin hlýtur að vera í vestur og
austur virðist eiga fimmlit í laufi.
Sagnhafi tekur þrjú tromp og þegar
austur hendir tígli má skiptingin
heita fullsönnuð. Vinningsvonin ligg-
ur í því að austur sé með 109 í tígli til
hliðar við laufvaldið. Suður tekur
fjórða trompið og hendir tígli úr
borði. Austur gerir það líka og er þá
kominn niður á 109 blankt - gosinn út
og ÁTTAN heima verður lykilslagur-
inn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Framkvæmdir við 19 hæða og 70 metra háa bygg-ingu í borginni var kynnt á fimmtudag. Hvað er svæð-
ið kallað þar sem byggingin á að rísa?
2 Í Bílablaði Morgunblaðsins á föstudag var sagt frábílasýningu og sókn bíla frá Kína inn á markaðinn.
Hvar var þessi bílasýning haldin?
3 Íslenskur myndlistarmaður tekur þátt í að hannasumarskála Serpentine. Hver er maðurinn?
4 Þrjú spænsk knattspyrnulið leika í undanúrslitumUEFA-keppninnar. Hvaða lið eru þetta?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Hver málaði altaristöfluna í Húsa-
víkurkirkju, sem mynd birtist af í
Morgunblaðinu í gær? Svar: Sveinn
Þórarinsson listmálari. 2. Hvað
nefnist kolefnissjóðurinn sem
stofnaður var á síðasta ári að frum-
kvæði Skógræktarfélags Íslands og
Landverndar? Svar: Sjóðurinn kall-
ast Kolviður. 3. Skipulagsmál í
Kópavogi hafa verið í brennidepli
síðustu daga. Hvað kallast svæðið
sem deilur snúast um? Svar: Glað-
heimar eða Gustssvæðið. 4. Hverjir
urðu Íslandsmeistarar karla í ísk-
nattleikleik? Svar: Skautafélag
Reykjavíkur.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
2 fyrir 1 til
Barcelona
3. maí
frá kr. 19.990
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Barcelona er einstök perla sem íslendingar hafa tekið ástfóstri við.
Heimsferðir bjóða þér nú tækifæri til að njóta vorsins í þriggja nátta
helgarferð í þessari einstöku borg á frábærum kjörum. Þú kaupir 2
flugsæti en greiðir aðeins fyrir eitt. Aðeins örfá sæti í boði.
Verð kr.19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v. 2 fyrir 1
tilboð, 3. maí. Takmarkaður sætafjöldi í boði.
Síðustu sætin
UNDANFARIN ár hefur borið á
kappakstri á götum og vegum og er
skortur á öruggu akstursíþrótta-
svæði talið eiga þátt í því.
Í tilefni af alþjóðlegu umferðar-
öryggisvikunni hefur Umferðar-
stofa fengið leyfi frá Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar til að setja
upp æfingasvæði á gamla varnar-
svæðinu og mun fyrsta æfingin
verða 28. apríl. Nánari upplýsingar
um eru á heimasíðum live2cruize,
bmwkrafts og LÍA. Mæting fyrir
þátttakendur er kl. 10 en brautin
verður opnuð fyrir akstur kl. 12
Akstursæfingar
á varnarsvæðinu
UNNENDUR Þjórsár og Sól á
Suðurlandi efna í dag, laugardag,
til fundar undir yfirskriftinni Virkj-
anir í Þjórsá – Er ekki komið nóg!
Fundurinn verður í Þingborg og
hefst kl. 14. Fundarstjóri Ólafur
Sigurjónsson í Forsæti. Í pallborði
sitja oddvitar allra stjórnmála-
flokka á Suðurlandi.
Ræða virkjanir í
Þjórsá í Þingborg
HEKLA frumsýnir í dag, laugar-
dag, tvær nýjar gerðir Volkswag-
en-bíla. Nýjan Volkswagen Toua-
reg jeppa og 30 ára afmælisútgáfu
af Volkswagen Golf GTI. Sýningin
fer fram hjá Heklu á Laugavegi
172–174. Opið frá kl. 12 til 16.
Eftir að framleiddir hafa verið
u.þ.b. 300.000 Touareg-jeppar kem-
ur á markað ný útfærsla af bílnum,
segir m.a. í fréttatilkynningu. Nýr
Touareg er auðþekkjanlegur á nýj-
um framenda. Þetta er fyrsti jepp-
inn með nýtt læsivarið hemlakerfi
(ABSplus) sem staðalbúnað en kerf-
ið styttir hemlunarvegalengd í
akstri utan malbiks um allt að 20%.
Grunnverð VW Touareg er
5.990.000 krónur.
Í tilefni af 30 ára afmæli GTI býð-
ur Volkswagen nú sérstaka afmæl-
isútgáfu af bílnum, Golf GTI Edi-
tion 30. Auk ýmissa útlitsatriða sem
gera bílinn frábrugðinn hefðbundn-
um GTI-bílum hefur einu hestafli
verið bætt við fyrir hvert ár í 30 ára
sögu bílsins, segir í tilkynningunni.
Grunnverð á afmælisútgáfu VW
Golf GTI er 3.990.000 krónur.
Hekla frumsýnir
Volkswagenbíla