Morgunblaðið - 28.04.2007, Side 47

Morgunblaðið - 28.04.2007, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 47 Skartgripir Fjallkonunnar Reynomatic Café Mílanó TONO.IS Innritun 2007–2008 í Tónlistarskólann í Reykjavík árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | 5. og 6. maí n.k., kl. 13–17 verður sýning á munum þátttakenda í félagsstarfinu. Kaffi- sala, heimabakar kökur og smurt brauð. Ingvar Hólmgeirsson verður með nikkuna báða dagana. 5. maí kl. 14.30 sýna dömur föt frá tískuversl. Smart og 6. maí sýnir danshópur línudans ásamt börnum úr Hlíðaskjóli. Félag eldri borgara í Kópavogi | Opið hús í félags- heimilinu Gullsmára laugardaginn 28. apríl kl. 14. Samkór Kópavogs syngur. Stjórnandi Björn Thor- arensen. Upplestur: Ólafur Jens Pétursson. Þráinn kynnir ferðir FEBK í sumar. Tískusýning. Fatnaður frá Dalakofanum í Hafnarfirði og Dressmann í Smára- lind. Veitingar. Félag eldri borgara, Reykjavík | Eldri borgarar, tök- um höndum saman við Reykjavíkurtjörn í dag kl. 13- 15. Gangan hefst kl. 14. Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 10 ganga, kl. 14 opið hús hjá Félagi eldri borgara, Kópavogi. Allir eldri borgarar velkomnir. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Garðakórinn, kór eldri borgara í Garðabæ tekur þátt í vortónleikum ásamt Söngvinum í Digraneskirkju í Kópavogi kl. 17 í dag. Fjölbreytt efnisskrá, allir velkomnir. Ferð í Borg- arleikhúsið á söngleikinn Ást kl. 20, rúta fer frá Garðabergi kl. 19. Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga kl. 9–16.30 fjölbreytt dagskrá, m.a. opnar vinnustofur og spila- salur. Sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug má- nud. kl. 9.50 og miðvikud. kl. 9.10. Þriðjud.og föstud. kl.10.30 létt ganga um nágrennið. Allar uppl.á staðn- um og s. 575–7720. Hæðargarður 31 | Síðasti fundur Bókmenntahóps í vetur er miðvikudaginn 2. maí kl. 20. Hann er helg- aður förinni að Hala í Suðursveit. Myndir og vídeó. Óvænt uppákoma. Ást sunnudag 6. maí kl. 20. Fastir liðir eins og venjulega. S. 568-3132, asdis.skuladott- ir@reykjavik.is. Kvenfélag Garðabæjar | Maífundur verður haldinn föstud. 4.maí, nú sameinaður vorferð áleiðis að Hót- eli Glym í Hvalfirði en þar verður snæddur kvöld- verður. Mæting stundvísl. kl. 17.45 við Tónlistarskóla Garðabæjar. Skráning fyrir 1. maí, sjá tövupóst/bréf frá stjórninni. Þema: Fjaðrafok. www.kvengb.is. Kvenfélag Kópavogs | Kvenfélag Kópavogs: Óvissu- ferð verður farin 9. maí nk. Lagt verður af stað kl. 18 frá Hamraborg 10/sunnan megin. Láta vita um þátt- töku í síðasta lagi 2. júní. Upplýsingar hjá Helgu Skú- lad. s. 554-4382, Helgu Jóhannsd. s. 554-1544 og Elísabetu Magnúsd. s: 553-5858. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Leikfimi kl. 11.30. Tréskurður kl. 13. Brids kl. 13. Boccia kl. 13.30. Kirkjustarf Grafarholtssókn | Fermingarmessa Grafarholts- safnaðar í Árbæjarkirkju 29. apríl kl. 13.30. Prestar: sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og sr. Sigríður Guð- marsdóttir, organisti: Hrönn Helgadóttir, kirkjukórar Árbæjar- og Grafarholtssókna leiða sönginn. Sjá nöfn fermingarbarna á öðrum stað í blaðinu. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira les- endum sínum að kostn- aðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda til- kynningu og mynd á net- fangið ritstjorn@mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja lið- inn „Senda inn efni“. Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. dagbók Í dag er laugardagur 28. apríl, 118. dagur ársins 2007 Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrnirunni. (Lúkas 6, 44.) Ámorgun sunnudag haldaEinstök börn 10 áraafmælishátíð í Gerplusaln-um við Salaveg í Kópavogi. Sædís Björk Þórðardóttir er for- maður félagsins: „Félagsskapurinn Einstök börn var stofnaður árið 1997 fyrir fjölskyldur barna með sjaldgæfa alvarlega sjúkdóma. Í upphafi stóðu 13 fjölskyldur að myndun félagsins, en nú taka 137 fjölskyldur þátt í starfinu,“ segir Sædís. „Við ætlum að gera okkur glaðan dag á sunnudag og fáum meðal annars til okkar Bríeti Sunnu og Íþróttaálfinn. Hoppkastalar verða á staðnum, andlitsmálun, grill- aðar pylsur og afmælisterta, happ- drætti og alls kyns óvæntar uppá- komur.“ Mikilvægur stuðningur Sædís segir mikla þörf fyrir Ein- stök börn: „Það veitir fjölskyldum ómetanlega hjálp þegar barn greinist með erfiðan sjúkdóm að geta leitað til annarra sem gengið hafa í gegnum það sama,“ segir Sædís. „Tilgangur félagsins er að fræða og styðja þá for- eldra sem standa í þeim erfiðu spor- um að eiga barn sem veikist af sjald- gæfum sjúkdómi. Félagsmenn eru duglegir að sækja fjölskylduráð- stefnur erlendis og deila sín á milli upplýsingum og miðla reynslu.“ Félagið heldur fræðslufundi að jafnaði mánaðarlega, stendur á hverju ári fyrir fundi fyrir aðstandendur, og vinnur að söfnun upplýsinga á að- gengilega heimasíðu: „Við lífgum líka upp á hversdaginn endrum og sinnum með skemmtilegum uppákomum fyrir börnin og fjölskyldur þeirra.“ Nýr unglingahópur Einstök börn vinna nú að því að koma á laggirnar unglingastarfi sem Freyja Haraldsdóttir stýrir: „Ung- lingahópurinn er stranglega bannaður foreldrum. Þar er vettvangur fyrir unglingana til að spjalla við jafningja sína og gera skemmtilega hluti.“ Finna má nánari upplýsingar á slóðinni www.einstokborn.is. Afmælishátíð sunnudagsins er frá kl. 13 til 16, eins og fyrr segir í Gerplusalnum við Salaveg, Kópavogi. Eru félagsmenn og allir velunnarar boðnir velkomnir. Heilsa | Samtökin Einstök börn hafa stutt fjölskyldur veikra barna í 10 ár Einstök börn halda hátíð  Sædís Björk Þórðardóttir fædd- ist í Stykkishólmi 1968 Hún lauk sveinsprófi í mat- reiðslu frá Hótel- og veitingaskól- anum 1990. Sædís starfaði á Hótel Stykkishólmi og Hótel Borgarnesi og síðar Framköll- unarþjónustunni Borgarnesi. Hún hef- ur kennt heimilisfræði við Grunnskól- ann í Borgarnesi frá árinu 2001. Sædís er gift Jóni Heiðarssyni vélvirkja og eiga þau þrjá syni. Myndlist Gerðuberg | Rúrí: Tími – Afstæði – Gildi. Sýning frá glæstum listferli. Listaverk, ljós- myndir og myndbönd af innsetningum og skúlptúrum. Sýningin stendur til 6. maí. Sjá www.ruri.is. Skotgalleríið | Óðinsgata 22a, kjallari. Hall- dór Hrafn Guðmundsson sýnir í Skotgall- eríinu. Þetta er tíunda sýningin í Skotgall- eríinu. Opið 15–18. Tónlist Angelo | Laugavegi 22a, kl. 23–3. Hetjur hylltar: biggo fær hetjur úr plötuþyrlaheim- inum og heldur kvöld þeim til heiðurs. Laugardagurinn 28. apríl er tileinkaður Magga Lego. Maggi mætir með deephouse- safnið sitt og sýnir af verju hann er besti plötuþyrill sem Ísland hefur alið. Ráðhús Reykjavíkur | Tónleikar Lúðra- sveitar verkalýðsins laugardaginn 28. apríl verða helgaðir fjölbreyttri íslenskri tónlist. Á dagskránni eru gömul og ný íslensk lög, sum hver samin eða sérstaklega útsett fyr- ir sveitina. Tónleikarnir hefjast kl. 14. Að- gangur er ókeypis. Salurinn, Kópavogi | Tíbrá: Söngtónleikar. Laugardagur 28. apríl, kl. 16. Hlín Péturs- dóttir, sópran og Hrefna Eggertsdóttir, pí- anóleikari, flytja söngdagskrá með verkum eftir Ravel, Fauré, R. Strauss, Sigurð Þórð- arson, Árna Björnsson ofl. Tónleikarnir voru fyrst fyrirhugaðir 24. mars. Miðaverð: 2000 kr. S: 5700400 og á salurinn.is. Seljakirkja | Vortónleikar kvennakórsins Seljanna í Seljakirkju 28. apríl kl. 17. Stjórn og einsöngur: Svava K. Ingólfsdóttir, ein- söngur: Linda Antonsdóttir. Píanó: Að- alheiður Þorsteinsdóttir. Bassi: Tómas R. Einarsson. Gítar: Ragnar Hermannsson. Gestakór er Karlakór Kópavogs. Stjórn: Julian Hewlett. Söngvinir | Söngvinir: Kór eldri borgara í Kópavogi heldur vortónleika í Digra- neskirkju kl. 17. Kór eldri borgara í Garðabæ kemur í heimsókn. Fjölbreytt dagskrá. Allir velkomnir. Skemmtanir Lukku Láki | Gleðisveitin Vítamín verður hjá Grindvíkingum á laugardagskvöldið og heldur uppi fjöri allt til morguns. Norræna húsið | Barnadagskrá og kvik- myndasýningar í tilefni af 100 ára afmæli Astrid Lindgren í Norræna húsinu. Laug- ardag 28. apríl og sunnudag 29. apríl kl. 14. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson segir frá Astrid Lindgren, syngur lög og segir sögur. Að auki verður sýnd stuttmynd um Kalla á þakinu. Enginn aðgangseyrir. Fyrirlestrar og fundir Askja– Náttúrufræðihús Háskóla Íslands | Laugardaginn 28. apríl kl. 14 heldur Mich- ael Lynch, prófessor við Indíana-háskóla, erindi um uppruna erfðamengja í fyr- irlestraröðinni „Undur Veraldar“ á vegum Raunvísindadeildar. Michael Lynch er af- kastamikill vísindamaður á sviði erfðafræði og þróunarfræði. Samtökin ́78 | Opinn fundur í félagsheimili Samtakanna 7́8, Laugavegi 3, kl. 13. Um- fjöllunarefni fundarins eru áhyggjur af auknu ofbeldi í garð samkynhneigðra og „transgender-fólks“ sem orðið hefur vart við að undanförnu. Meðal frummælenda verður Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höf- uðborgarsvæðisins. Geðhjálp | Túngata 7 í Reykjavík. Sál- fræðiráðgjöf alla virka daga eftir sam- komulagi. Félagsráðgjöf annan hvern fimmtudag kl. 14–16. Tekið er á móti viðtals- beiðnum í síma 570-1700. Tjarnarbíó | SFR-stéttarfélag, Starfs- mannafélag Reykjavíkurborgar og Hitt hús- ið bjóða til stjórnmálafundar kl. 16–18. Allir velkomnir, fólk undir 25 ára er sérstaklega velkomið. Fundurinn verður sendur beint út á netinu: http://straumur.nyherji.is/rvk.asp. Spurningar úr sal og í gegnum netfangið ungtfolkkys@gmail.com. Í RIGNINGUNUM hér heima á Fróni má ylja sér við þá tilhugsun að úti í heimi sé fólk sem baði sig í sólskini. Þessar stúlkur sáust að leik við gosbrunn í Colmar- almenningsgarðinum í austurhluta Frakklands á dög- unum, en óvenjuhlýtt vorveður leikur við Frakka þessa dagana. KOMANDI sunnudagskvöld verður kynningar- og myndakvöld um Stafafell í Lóni. Jörðin afmarkast af vatnaskilum, ám og fjalls- eggjum og er alls um 400 ferkíló- metrar. „Stefnt er að stofnun Hollvina- samtaka Stafafells (Vi-St) sem mynda bakland í þeirri baráttu að tryggja að jörðin haldist sem söguleg, landfræðileg og útivist- arleg eining. Jafnframt verður leitað eftir stuðningi fjársterkra aðila sem geta komið að uppbygg- ingu þjónustumiðstöðvar,“ segir í fréttatilkynningu. Af þessu tilefni verður Kynn- ingar- og myndakvöld í Þrúð- vangi, Álafosskvos kl. 20.00. Kynning á Stafafelli í Lóni Í TILEFNI af umferðaröryggisviku Sameinuðu þjóðanna dagana 21.– 28. apríl verður Frumherji hf. með kynningu í Smáralind í dag, laug- ardaginn 28. apríl, frá kl. 11–16. Þar verður lögð áhersla á mik- ilvægi þess að öryggisbúnaður bíla sé í lagi og það sé m.a. tryggt með því að láta skoða bílinn á réttum tíma. Einnig verða gefin góð ráð varðandi undirbúning bílsins fyrir sumarið. Áhersla verður á öryggi barna í umferðinni, barnareiðhjól, reiðhjólahjálmar og barnabílstólar verða sýndir. Ökuhermir verður á staðnum og hægt verður að spreyta sig á ökuprófi í honum og fleira. Þá gefst gestum Smáralind- ar kostur á að taka þátt í happ- drætti, dregin verða út gjafabréf á ókeypis aðalskoðun á hálftíma fresti. Öryggisdagur í Smáralind ÁKVEÐIÐ hefur verið að útvíkka hinn árvissa hreinsunardag á Sel- tjarnarnesi. Nú stendur átakið frá laugardeginum 28. apríl til laugardagsins 5. maí. Þessa viku leggja starfsmenn áhaldahúss garðeigendum lið og fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðarmörk. Umhverfisnefnd Seltjarnarness býður bæjarbúum í morgunkaffi á Eiðistorgi við upphaf átaksins kl. 10–12 í dag, laugardaginn 28. apríl. Sjá nánar á seltjarnarnes.is Hreinsunar- vika Reuters Sól og sumar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.