Morgunblaðið - 03.05.2007, Síða 1

Morgunblaðið - 03.05.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 119. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Veldu virkni Nýjung Fitusnauðasta jógúrtin á markaðnum AFTUR Í TÍSKU GAMAN AÐ GRAMSA Á FLÓA- MARKAÐNUM Á VESTURGÖTU >> 42 MIKILVÆGT AÐ LIFA EÐLILEGU LÍFI KRABBAMEIN FRÆÐSLUFUNDUR >> 12 FRÉTTASKÝRING Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is ÁHUGAMENN um framboð Íslands til ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna fylgjast nú grannt með stjórnarkreppunni í Tyrklandi. Þróun mála þar kynni nefnilega að hafa áhrif á útkomuna þegar kosið verður á milli Tyrklands, Íslands og Austurríkis um tvö laus sæti í októ- ber 2008. Herinn í Tyrklandi lýsti því yfir sl. föstudag, eftir að fyrsta umferð forsetakosninga fór fram í tyrkneska þinginu, að hann myndi standa vörð um hið veraldlega þjóðskipulag, nú sem endranær. Túlkuðu sumir þá yfirlýsingu sem hótun um valdarán. Forsaga málsins er sú að stjórnarflokkur Erdogans forsætisráðherra – en sá er hóf- samt afsprengi íslamskrar hreyfingar sem á sínum tíma var bannað að starfa í Tyrk- landi – tilnefndi Abdullah Gul í embætti for- seta, sem losnar í sumar. Veruleg andstaða er við það í Tyrklandi að bæði forseti og forsætisráðherra komi úr stjórnarflokknum og kom það m.a. í ljós á sunnudag þegar um milljón manns tók þátt í mótmælum í Istanbul. Óttast margir að það yrði til að grafa undan hinu veraldlega þjóðskipulagi sem hefur verið við lýði í Tyrklandi allt frá stofnun lýðveldis 1923. Ræðst af þróun mála Tyrkir hafa verið mest áberandi í baráttu um sætin tvö í öryggisráði SÞ 2009–2010 og segjast raunar vera nánast búnir að tryggja sér þann fjölda atkvæða sem þarf til. Ís- lenskir embættismenn bera sig þó vel, vel hefur gengið að safna loforðum um stuðn- ing við framboð Íslands. Eitt og hálft ár er þar til kosið verður milli Íslands, Tyrklands og Austurríkis og aðstæður geta breyst á skömmum tíma. Væringarnar í Tyrklandi undanfarna daga hafa t.a.m. valdið niðursveiflu á þarlendum fjármálamörkuðum en rifja má upp í því samhengi að Tyrkir hættu við framboð til öryggisráðs SÞ 1996 vegna fjármálakreppu í landinu. Lítill vafi leikur hins vegar á því að Tyrk- ir glata atkvæðum þjóða sem mikið leggja upp úr því að virðing sé borin fyrir lýðræði, mannréttindum og réttarríkinu ef herinn tekur völdin í landinu. Simon Chesterman, sérfræðingur um málefni SÞ, nefnir til samanburðar að framboð Taílendingsins Surakiarts Sathirathai til embættis fram- kvæmdastjóra SÞ í fyrra hafi beðið mikinn skaða þegar herinn í Taílandi tók skyndi- lega völdin í landinu. Ekki sé þó gefið að tyrkneski herinn grípi inn í. Pólitískt umrót muni vissulega vara um sinn en ekki sé víst að það út af fyrir sig skaði framboð Tyrk- lands, þvert á móti sé hugsanlegt að menn myndu vilja styrkja stöðu lýðræðislegra stjórnvalda í landinu með því að kjósa þau til setu í öryggisráði SÞ.  Segir úrskurðinn | 16 Valdarán í Tyrklandi? Gæti haft áhrif á SÞ-framboð Íslands Abdullah Gul „HVERT var svarið við fyrstu spurningunni um Vatnsdælasögu?“ hefði getað brunnið á þessari ungu stúlku eftir samræmda prófið í Um 4.500 nemendur þreyta nú samræmd próf við grunnskóla, flestir í íslensku eða um 4.200 en fæstir í samfélagsfræði eða um 1.900. íslensku í Áslandsskóla í Hafnarfirði gær. Krökkunum fannst prófið í þyngri kantinum en flestir töldu sér þó hafa gengið ágætlega. Morgunblaðið/Ásdís Og hvert var svarið? BANDARÍSKIR vísindamenn telja sig hafa fundið út hvers vegna hóf- semi í mat kann að eiga þátt í að lengja líf manna. Rannsóknir á erfðaefni orma leiða í ljós gen sem eiga þátt í þeim viðbrögðum við minni inntöku kaloría að lengja ævi þeirra. Greint er frá niðurstöðunum í tímaritinu Nature en þær renna stoðum undir þá gömlu tilgátu að lífverur lifi lengur sé kaloríufjöld- inn takmarkaður. Bjartsýnismenn telja þessa vitneskju munu færa vís- indin nær þeim áfanga að geta framleitt pillu sem lengir manns- ævina um allt að 40% með því að herma eftir viðbrögðum ormagens- ins. Þangað til geta hófsemdarmenn í mat og drykk glaðst yfir því að eiga í vændum langlífi. Hinir geta sagt þetta misskilning, tími hófsamra líði einfaldlega hægar í leiðindum meinlætisins. Finna lykil að langlífi AP Elli Mannsævin lengist. Eftir Bjarna Ólafsson og Björn Jóhann Björnsson NOVATOR, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, gekk í gærkvöldi frá sölu á eign- arhlut sínum í búlgarska síma- félaginu BTC. Heildarverðmæti BTC er 160 milljarðar króna og mun þetta vera stærsta skuldsetta yfirtaka í Mið- og A-Evrópu til þessa. Hreinn söluhagnaður Nova- stefnir að kaupum á öllu félaginu og afskráningu úr kauphöllinni í Sófíu í Búlgaríu. Björgólfur Thor sagðist í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi vera afar sáttur við niðurstöðuna í heild. Um gríðarlega flókið og um erfitt verkefni hefði verið að ræða í Búlg- aríu; að nútímavæða símafyrirtæki í ríkiseigu og koma því inn í 21. öld- ina. Tekist hefði að ná fram settum markmiðum á mjög skömmum tíma og Novator hefði talið réttan tímann núna til að selja. „Við tök- um út góðan hagnað og höfum gott orðspor í Búlgaríu, sem og á al- þjóðamarkaði,“ sagði Björgólfur. tors af viðskiptunum er hátt í 60 milljarðar króna en annarra ís- lenskra fjárfesta um sex milljarð- ar. Mun þetta vera mesti innleysti söluhagnaður Íslandssögunnar af einni fjárfestingu. Ávöxtun ís- lensku fjárfestanna sem tóku þátt í fyrstu kaupum er nærri fimmföld. Kaupandinn er bandaríska fjár- málafyrirtækið AIG Global Invest- ment Group. Það hefur tryggt sér kaup á rúmlega 90% í BTC en Innleysa 66 milljarða hagnað Í HNOTSKURN »Novator fjárfesti fyrst íBTC í samvinnu við Ad- vent International og fleiri þegar BTC var einkavætt árið 2004. Straumur- Burðarás og Síminn tóku einnig þátt. »Novator jók við hlut sinnárin 2005–2006 og fer fé- lagið með um 85% í BTC við þessa sölu. Auk þess leiddi Landsbankinn ásamt City Bank fjármögnun viðskipta með bréf í BTC árið 2006. Novator selur hluti sína í BTC-síma- félaginu í Búlgaríu á 160 milljarða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.