Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
JÓN Sigurðsson,
hljómlistarmaður frá
Söndum í Dýrafirði,
gjarnan nefndur Jón
bassi, andaðist 30. apríl
sl. á heimili sínu, 75 ára
að aldri.
Jón fæddist 14. mars
1932 á Söndum, sonur
hjónanna séra Sigurð-
ar Z. Gíslasonar og
Guðrúnar Jónsdóttur
húsfreyju. Jón ólst upp
á Söndum til 12 ára ald-
urs. Þá missti hann föð-
ur sinn í snjóflóði og
flutti eftir það ásamt
móður sinni og systkinum til Reykja-
víkur. Jón lauk almennri skólagöngu
og stundaði nám í Tónlistarskólan-
um í kontrabassaleik, hljómfræði og
tónsmíðum.
Jón fór ungur að leika opinberlega
á hljóðfæri og var orðinn djassleikari
16 ára. Hann hóf að leika á kontra-
bassa með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands fljótlega eftir stofnun hennar
árið 1950 og starfaði
með Sinfóníuhljóm-
sveitinni óslitið þar til í
fyrra. Auk þess var Jón
í fjölda danshljóm-
sveita um ævina, lengst
var hann í KK sextett,
var í Sumargleðinni og
um tíma með eigin
hljómsveit, Sextett
Jóns Sigurðssonar.
Jón var einnig
þekktur fyrir útsetn-
ingar sínar og útsetti
fjölda laga fyrir ýmsa
flytjendur. Hann samdi
alla tónlist í kvikmynd-
ina „79 af stöðinni“ árið 1962 að und-
anskildu titillagi Sigfúsar Halldórs-
sonar og varð tónlist Jóns mörgum
eftirminnileg. Jón var einn af stofn-
endum STEFs. Þá kenndi hann við
Tónlistarskólann í Reykjavík og
Tónlistarskóla FÍH um árabil.
Jón kvæntist Jóhönnu G. Erling-
son sem lifir mann sinn. Þau eign-
uðust átta börn og eru sjö á lífi.
Andlát
Jón Sigurðsson
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
TÍMAVÉL er meðal þess sem notað
verður á margmiðlunarsýningu um
Surtsey sem opnuð verður á sunnu-
daginn kemur á efstu hæð Þjóð-
menningarhússins við Hverfisgötu.
Sýningin er sett upp í tilefni af til-
nefningu Surtseyjar á heims-
minjaskrá UNESCO yfir menning-
ar- og náttúruminjar heimsins.
Sýningargestir ganga fyrst inn í
anddyri þar sem gosið og ólgandi
hraunelfur Surtseyjar nýtur sín vel
á risaskjáum og speglum undir dynj-
andi goshljóðum. Þá er saga eld-
gossins og eyjarinnar rakin á vegg-
spjöldum og sýnd á fjölda ljósmynda
auk skýringarmynda um jarðfræði
Surtseyjar og lífríkið í eynni og haf-
inu í kring. Steinar og hraunmolar,
fuglar og skordýr og margt fleira
sem tengist Surtsey verður einnig til
sýnis. Einnig er sýnt þrívíddarlíkan
af Surtsey sem sýnir eyna eins og
hún var stærst árið 1967, þegar
Surtseyjargosinu lauk, og eins hafs-
botninn í kring. Þar mótar greini-
lega fyrir grynningum þar sem
Surtla, Syrtlingur og Jólnir gusu.
Tvær eyjar mynduðust en þær hurfu
aftur undir sjávarborðið.
Jarðfræði, dýralíf og gróðurfar
Hápunktur sýningarinnar er svo
tímavélin sem var smíðuð af þýska
fyrirtækinu Art+Com. Uppsetningu
hennar lauk í gær. Snorri Bald-
ursson, fulltrúi Náttúrufræðistofn-
unar Íslands í sýningarstjórn, út-
skýrði tækið. „Það sýnir þróun
eyjarinnar frá upphafi gossins í
Surtsey í nóvember 1963 og fram til
ársins 2130, því við spáum fyrir um
hvernig eyjan muni þróast,“ sagði
Snorri.
Tækið varpar myndum á tvo stóra
fleti og fremst er stjórntæki sem
áhorfendur geta notað til að velja
hvort sýndar eru upplýsingar um
jarðfræði, gróðurfar eða dýralíf
Surtseyjar á sextán stöðum tíma-
kvarðans. Hægt er t.d. að skoða
hvernig nýjar plöntur eða dýr hafa
fundist í eynni ár frá ári. Það var
ekki síst forvitnilegt að sjá hvernig
Surtsey hefur veðrast af vindum og
sjávargangi á rúmlega fjórum ára-
tugum og hvernig talið er að hún
muni mótast næstu 123 árin. Í lok
þess tímabils er því spáð að Surtsey
muni líkjast mjög öðrum úteyjum
Vestmannaeyja hvað varðar dýralíf
og gróðurfar. Í stað berangurslegra
hrauna og móbergsfláa verði komn-
ar grösugar lundabyggðir á hákoll-
inn og þverhnípt móbergsbjörg þar
sem svartfuglar una sér sumarlangt
á syllum.
Heimsminjagildi Surtseyjar þykir
einstakt því Surtsey er eina „nýja
landið“ sem hefur ekki verið raskað
og þróunar- og mótunarferlum verið
fylgt eftir og þeir skráðir jafnóðum
allt frá upphafi. Þar hefur ítarlegt
rannsóknar- og vöktunarstarf verið
unnið allt frá upphafi gossins.
Náttúrufræðistofnun Íslands er
ábyrg fyrir sýningunni og setur
hana upp. Snorri Baldursson var
verkefnisstjóri fyrir hönd Nátt-
úrufræðistofnunar og Lovísa Ás-
björnsdóttir á Náttúrufræðistofnun
vann skýringarmyndirnar. Hjörleif-
ur Stefánsson arkitekt er sýning-
arstjóri og Þórunn Þorgrímsdóttir
hannaði sýninguna, Gert Monath frá
Art+Com bjó tímavélina til og setti
hana upp.
Tímavél sem sýnir þróun
Surtseyjar til ársins 2130
Morgunblaðið/G. Rúnar
Tímavél Rakin er mótunarsaga Surtseyjar frá upphafi í myndum og sýnt með hjálp tímavélarinnar hvernig
Surtsey mun líklega mótast og þróast næstu 123 árin hvað varðar ásýnd, dýralíf og gróðurfar.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Sýning Hjörleifur Stefánsson, Snorri Baldursson, Lovísa Ásbjörnsdóttir,
Gert Monath og Þórunn S. Þorgrímsdóttir unnu við uppsetninguna.
Í HNOTSKURN
»Surtseyjargosið hófst 14.nóvember 1963 suðvestur af
Vestmannaeyjum. Þar hafði áður
mælst um 130 metra sjávardýpi.
»Nafn eyjarinnar var sótt ívísu Völuspár sem hefst á
orðunum: Surtur fer sunnan.
»Fimm eldgígar opnuðustmeðan á gosinu stóð. Tvær
eyjar mynduðust auk Surtseyjar,
Syrtlingur og Jólnir, en þær
hurfu í hafið.
»Surtseyjargosinu var taliðendanlega lokið í júní 1967.
Þá var nýja eyjan 2,65 km2 að
stærð.
SÝNING Í TILEFNI TILNEFNINGAR SURTSEYJAR Á HEIMSMINJASKRÁ UNESCO
NEMAR í grunnháskólanámi til
BA- og BS-gráða við erlenda há-
skóla munu frá og með næsta skóla-
ári eiga þess kost að fá allt að
670.000 krónur í skólagjaldalán frá
Lánasjóði íslenskra námsmanna,
LÍN. Fjárhæðin er háð útreiknings-
mynt og er í reglunum ákvörðuð sem
einn fimmti af samanlögðu hámarks-
láni, hækkar svo í þriðjungshlut
skólaárið 2008 til 2009 og verður svo
framvegis óbreytt.
Alls voru sjö breytingar á úthlut-
unarreglunum samþykktar á stjórn-
arfundi LÍN í gærkvöldi og segir
Gunnar I. Birgisson, formaður
stjórnar sjóðsins, að breytingarnar
eigi sér langan undirbúning.
„Þetta er gert til að við séum ekki
að mismuna fólki sem er að læra hér
heima og erlendis,“ segir Gunnar.
„Þarna voru nokkrar veigamiklar
breytingar gerðar og nefni ég þar
hækkun grunnframfærslunnar, sem
var veruleg,“ segir hann og leggur
áherslu á að sjóðurinn muni lána um
11.000 manns fast að ellefu milljarða
frá og með næsta ári.
Grunnframfærslan hækkar
Fram og með næsta skólaári mun
framfærslan hækka um 7,6% í
94.000 krónur á mánuði, auk þess
sem skerðingarhlutfall vegna tekna
lækkar úr 12% í 10% – en var til sbr.
75% 1991. Þá hækkar samanlagt há-
markslán vegna skólagjalda að með-
altali um 5%. Á Íslandi hækkar há-
markið t.d. úr 3,2 í 3,35 milljónir.
Einnig verða öll ferðalán greidd
út í lok misseris og gilda því eft-
irleiðis sömu reglur um útborgun
ferðalána vegna náms á Íslandi og
erlendis. Síðan verða reglur um
ákvörðun námsloka gerðar skýrari
og ákvæði um ógjaldfallna upp-
greiðslu námslána útfærð nánar.
Breytingar á úthlutunarreglum LÍN Áætlað að um
11.000 manns fái 10,9 milljarða í námslán á næsta ári
Nýtt skólagjaldalán
Morgunblaðið/Eyþór
„ÞETTA skiptir
miklu máli og við
erum mjög
ánægð,“ segir
Hafdís Gísladótt-
ir, framkvæmda-
stjóri Öryrkja-
bandalags
Íslands, ÖBÍ, um
undirritun sam-
starfs nokkurra
aðila í gær um
bætt aðgengi allra að áningar- og
útivistarstöðum um land allt.
Aðilar samningsins eru Ferða-
málastofa, ÖBÍ, Samtök ferðaþjón-
ustunnar, Ferðaþjónusta bænda og
Ferðamálasamtök Íslands.
„Það skiptir náttúrulega miklu
máli að allir eigi aðgang hér að ferða-
mannastöðum, svo ekki sé talað um
útlendinga sem hingað koma. Von-
andi verður þetta fyrsta skrefið.“
Hafdís kveðst bjartsýn á að í fram-
tíðinni verði tekið tillit til allra, fatl-
aðra og barnafólks, við hönnun
mannvirkja í ferðaþjónustu. „Lyfta
þurfi grettistaki í þessum málum.“
Veturinn 2006 hafði samgöngu-
ráðuneytið forgöngu um ofangreint
verkefni og segir Hafdís ferlinefnd
ÖBÍ hafa átt gott samstarf við aðila
innan ferðaþjónustunnar.
Samstarf
um bætt
aðgengi
Hafdís
Gísladóttir
Framkvæmdastjóri
ÖBÍ fagnar skrefinu
♦♦♦
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð nýtur 22% fylgis í Reykja-
víkurkjördæmi norður, samkvæmt
skoðanakönnun sem Félagsvísinda-
stofnun vann fyrir fréttastofu Stöðv-
ar 2 og birt var í gærkvöldi.
Samkvæmt þessu hefur flokkur-
inn rúmlega tvöfaldað fylgi sitt í
kjördæminu og bætir við sig manni.
Sjálfstæðismenn bæta einnig við
sig manni og mælist fylgið 34,5 pró-
sent. Fylgi Samfylkingarinnar er
tæp 30 prósent og tapar flokkurinn
manni. Frjálslyndir og Íslandshreyf-
ingin kæmu ekki inn manni.
Samkvæmt könnuninni kæmist
Jón Sigurðsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, ekki á þing yrðu úr-
slit kosninganna þessi.
D- og V-listi
bæta við sig
í Reykjavík