Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 6

Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is RÉTTINDI lóðarleigjenda í skipulagðri frí- stundabyggð munu að öllum líkindum skýrast töluvert nái frumvarp félagsmálaráðherra fram að ganga en frumvarpsdrögin eru til umsagnar hjá hagsmunasamtökum auk þess sem almenningi gefst kostur á að koma á framfæri athugasemd- um. Stefnt var að því að leggja frumvarpið fyrir áður en Alþingi lauk störfum í vor en náðist ekki. Töluvert hefur verið fjallað um málefni leiguliða undanfarin misseri en eftir að leigusamningum lýkur standa þeir oft höllum fæti gagnvart lóðar- eiganda og hafa oft aðeins þá kosti að samþykkja margfalda hækkun leigu, greiða uppsett verð fyr- ir lóðina ellegar fara með sitt sumarhús annað. Hefur erindum til stjórnvalda sem snerta sam- skipti lóðarleigjenda og lóðareigenda fjölgað mik- ið á undanförnum árum og í mörgum tilvikum er um að ræða leigjendur sem hafa haft lóð til um- ráða áratugum saman. Samstarfshópurinn bendir á í því sambandi að sérstæk úrræði gætu brotið í bága við ákvæði stjórnarskrár um samningafrelsi og friðhelgi eignarréttarins. Einna helst hafa nokkrir sumarhúsaeigendur í landi Dagverðarness í Skorradal barist fyrir slík- um úrræðum en eigendur jarðarinnar hafa boðið kaup lóðanna á verði sem þeim þykir langt yfir markaðsvirði. Rösklega 100 bústaðir eru á jörð- inni og er Sigurður Guðmundsson, sem nú starfar að heilbrigðismálum í Malawi á vegum Þróunar- samvinnustofnunar Íslands, einn þeirra. Leigu- samningur hans rennur út í nóvember nk. „Við eigum lítið hús á vatnsbakkanum sem við keyptum fyrir þremur, fjórum árum. Áður en við keyptum leituðum við hófanna hjá þáverandi eig- anda jarðarinnar um áætlanir til framtíðar, s.s. hvort það væru vangaveltur um sölu því við vild- um fá að leigja áfram eftir að samningurinn rynni út. Hann sagði okkur að engar áætlanir væru aðr- ar en að halda áfram leigu,“ segir Sigurður. Ekki löngu síðar skipti hann um skoðun og seldi jörð- ina. Nýr eigandi setti þá fram afarkosti. „Hann bauð okkur skikann sem bústaðurinn stendur á fyrir 3,6 milljónir króna en þetta eru um 2.800 fer- metrar.“ Stillt upp við vegg Sigurður segir að tekist sé á um eignarrétt frá tveimur sjónarhornum, annars vegar eignarrétt þeirra sem eigi fasteign á leigulóð og hins vegar rétt þess sem eigi landið. „Það sem verið er að gera í þessum sumarhúsamálum er að eigendur eru að stilla þessum leiguliðum upp við vegg og ekkert rými er fyrir samningaviðræður um kaup- verð. Ef við viljum ekki ganga að þessum kröfum þá verðum við að gjöra svo vel að taka húsið á bakið, brenna það eða flytja burtu.“ Dagverðarnes ehf. sendi Sigurði bréf ekki alls fyrir löngu þar sem segir að hann hafi greinilega ekki áhuga á að kaupa og því er krafist upplýsinga um hvernig og hvenær hann ætli að fjarlægja fasteignina af landinu fyrir samningslok. Sigurður hefur þegar sent bréf til baka þar sem sá mis- skilningur er leiðréttur að hann vilji ekki kaupa landið. „Við vildum bara ekki kaupa á þessu verði. Það sem við erum búin að fara fram á er að fá að minnsta kosti árs framlengingu á leigusamn- ingnum vegna stöðu okkar hér í Malawi en það er svolítið erfitt að standa í flutningum úr tólf þús- und kílómetra fjarlægð.“ Sigurður segir lagalega stöðu sína og annarra í sömu sporum óskýra og er ósáttur með að frum- varpið hafi ekki náð fram að ganga á liðnu starfs- ári Alþingis. Hann segir að verði svar Dagverðar- ness neikvætt séu ekki nema tveir kostir í stöð- unni, annars vegar að láta sækja bústaðinn eða láta reyna á málið fyrir dómstólum. „Slíkt mál yrði þá prófmál fyrir mjög marga aðra sem eru í sömu stöðu eða verða það bráðum.“ Stjórnin með málið til umfjöllunar Arngrímur Hermannsson, framkvæmdastjóri Dagverðarness, segir stjórn félagsins hafa mót- tekið bréf Sigurðar og er hún með það til umfjöll- unar. Hann segir að meðaltali tvo bústaðaeigend- ur á ári hverju lenda í sömu stöðu og Sigurður og þeir hafi langflestir tekið upp viðræður við stjórn- ina. Framtíðin er sú að menn eignist sínar lóðir. „Viðræður eru í gangi við leigjendur og hefur stjórnin komið til móts við hvern og einn. Sigurð- ur hefur ekki sýnt neinn áhuga á að kaupa, ekki stungið upp á neinni tölu sjálfur né hvernig hann vilji greiða. Stjórnin mun þó fjalla um hans óskir og koma til móts við þær eins og hann þarf, svo framarlega sem hann fái sína hluti á markaðs- virði.“ Tekist á um eignarrétt frá tveimur sjónarhornum Náttúrufegurð Afar fagurt er um að litast í Skorradal og því ekki að undra að fjölmargir Íslendingar vilji eyða frítíma sínum í sumarhúsum þar. Mörgum gremst þó uppsett verð á sumarhúsalóðum. Í HNOTSKURN »Starfshópur um málefni er varða frí-stundahús var skipaður 21. júlí 2006. Hópurinn hélt 23 fundi og var tillögum skil- að til félagsmálaráðherra 28. febrúar sl. »Meðal annars er lagt til að samningarum leigu á lóð undir frístundahús kveði á um endurskoðun á leigu og forkaupsrétti leigjenda við sölu á leigulóð. »Frumvarpsdrög eru til umsagnar hjáhagsmunaðilum og má nálgast á vefsvæði félagsmálaráðuneytisins, www.felagsmalaraduneyti.is. SIV Friðleifsdóttir heilbrigðisráð- herra og Arnþór Jónsson, varafor- maður SÁÁ, undirrituðu í gær sam- komulag um framlengingu þjónustu- samnings milli heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og fjár- málaráðuneytisins annars vegar og Samtaka áhugafólks um áfengis- vandann (SÁÁ) hins vegar. Eldri þjónustusamningur um rekstur sjúkrasviðs SÁÁ var þar með fram- lengdur til loka þessa árs. Fjármála- ráðherra mun síðan staðfesta samn- inginn með undirskrift sinni. Jafnframt framlengingu þjónustu- samningsins var gert samkomulag um 80 milljóna króna eingreiðslu til að mæta viðbótarkostnaði vegna göngudeildarþjónustu og aukinnar þjónustu SÁÁ við ópíumfíkla, sem þjónustusamningurinn náði ekki til, aukins húsnæðiskostnaðar vegna breytinga á fasteignagjöldum sjúkrahúsa og vegna veikleika í rekstri áranna 2006 og 2007. Unnið er að endurskoðun þjónustusamn- ingsins og stefnt að því að nýr samn- ingur gangi í gildi í byrjun næsta árs. Siv kvaðst vera ánægð með að já- kvæð niðurstaða hefði náðst í samn- ingaviðræðum stjórnvalda og SÁÁ. „Ég tel að þessi samningur sé góður og framsýnn og vísir að næstu skref- um. Við viljum gjarnan ná langtíma- samningi við SÁÁ og stefnum að því að vera með hann í hendi helst um áramótin,“ sagði Siv. Hún þakkaði SÁÁ fyrir starf samtakanna og sagði það mikilvægt. SÁÁ hefði náð góðum árangri í umönnun sjúklinga og einn- ig á sviði forvarnarstarfs. Siv þakk- aði sérstaklega aðstoð tveggja „heið- ursmanna SÁÁ“, þeirra Einars Þórðarsonar og Magnúsar Erlends- sonar, við gerð samningsins. Arnþór Jónsson sagði framleng- ingu þjónustusamningsins tryggja rekstur SÁÁ til næstu áramóta. „Vonandi verður hægt að nýta tím- ann til að teikna upp samkomulag sem verður til lengri tíma.“ Hann taldi eingreiðsluna nú vera ákveðna viðurkenningu á því að starfsemi SÁÁ hefði aukist, án þess að full- nægjandi greiðslur hefðu komið til. „Eins og flestir vita er SÁÁ sér- stakt, sem veitandi sjúkraþjónustu, að því leyti að við greiðum niður all- an hallarekstur af sjálfsaflafé,“ sagði Arnþór. Þjónustusamningur SÁÁ framlengdur Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segir framlengdan þjónustusamning vera vísi að næstu skref- um og að stefnt sé að gerð langtímaþjónustusamnings við SÁÁ sem taki helst gildi um næstu áramót Morgunblaðið/G. Rúnar Undirritun Siv Friðleifsdóttir og Arnþór Jónsson staðfestu framlengingu þjónustusamningsins milli SÁÁ og ríkis- ins. Einnig var gert samkomulag um eingreiðslu upp á 80 milljónir til að mæta þörfum samtakanna. Í DRÖGUM að frumvarpi til laga um réttindi og skyldur eigenda og leigjenda lóða í skipulagðri frí- stundabyggð er m.a. vikið að starfi starfshópsins. Segir þar að mikið hafi verið rætt um samskipti eig- enda frístundahúsa á leigulóðum og landeigenda. Hópurinn ræddi t.a.m. hvernig væri hægt að jafna samn- ingsstöðu aðila þannig að sann- gjörn niðurstaða fengist sem sam- ræmist ákvæðum stjórnar- skrárinnar um friðhelgi eignar- réttarins og frelsi til að gera samninga af frjálsum vilja. „Starfshópurinn telur öll tor- merki á því að leysa þennan ágrein- ing með setningu afturvirkra laga. Sú leið sem virðist helst koma til álita í þessu sambandi er að hlut- aðeigandi aðilar skjóti ágreinings- efninu til úrlausnar dómstóla á grundvelli 36. gr. samningalaga sem fjallar um heimild til að víkja til hliðar efni samninga ef það yrði talið ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju og bera það fyrir sig.“ Einnig vísaði samstarfshópurinn í svar talsmanns neytenda þar sem bent er á úrræði sem felst í 2. máls- lið 1. gr. 107. gr. laga um meðferð einkamála. „Samkvæmt því getur lóðarleigjandi í þessu tilviki leitað samþykkis gagnaðila, þ.e. lóðareig- anda, fyrir því að málið verði með óskuldbindandi hætti lagt fyrir hlutaðeigandi sýslumann sem leiti sátta með aðilum.“ Tiltekin lágmarksákvæði Í frumvarpsdrögum starfshópsins er gert ráð fyrir að í samningum um kaup eða leigu á lóð undir frí- stundahús þurfi aðilar að taka af- stöðu til tiltekinna lágmarks- ákvæða. Til að mynda er lagt til að í samningum um leigu á lóð þurfi að- ilar að taka afstöðu til endurskoð- unar á leigu og forkaupsrétti leigj- enda við sölu á leigulóð. Einnig er lagt til að við úrlausn tiltekinna ágreiningsefna milli að- ila innan frístundabyggðar verði farin hliðstæð leið og í fjöleignar- húsalögum, og hægt verði að skjóta ágreiningsefnum með nokkrum takmörkunum til kærunefndar fjöl- eignarhúsamála. Þá verði félög eig- enda og leigjanda lóða vettvangur fyrir samskipti um sameiginleg hagsmunamál. Eina leiðin að skjóta málum til dómstóla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.