Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 9

Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 9 FRÉTTIR „ÞÓTT með þess- ari tillögu sé fallið frá hugmyndum um setlón norðan Þjórsárvera skín í gegn að menn eru alveg tilbúnir til að stækka frið- landið svo fram- arlega sem það skerði ekki virkj- anahugmyndir,“ segir Ómar Ragn- arsson, formaður Íslandshreyfingar- innar, þegar leitað er álits hans á tillögum starfshóps umhverfisráð- herra um stækkun friðlands Þjórs- árvera. Hann segir að aldrei verði sátt um að halda opnum hugmynd- um um Norðlingaölduveitu. Ekki var samstaða í starfshópnum um stækkun friðlandsins til suðurs en hugmyndir hafa verið settar fram um að það nái niður með Þjórsá allt að Sultartangalóni. Ómar segir að það ætti að vera sjálfsagt mál. Með því væri hægt að koma í veg fyrir að einstæð fossaröð yrði þurrkuð upp, meðal annars Dynkur sem hann tel- ur að sé merkilegasti stórfoss lands- ins þegar fullt vatn sé á honum. Spurður hvort hægt væri að friða þetta svæði í andstöðu við heima- menn vitnar Ómar til athugana sinna í Noregi, meðal annars friðlands og þjóðgarðs við Jostedalsjökul. Hann segir að það mál hafi verið unnið í samvinnu við bændur sem hafi breytt búskaparháttum og nýtt þau tækifæri sem skapast hafi við að- gerðina. Aldrei verður sátt um Norðlingaölduveitu Ómar Ragnarsson 15% afsláttur af öllum vörum út þessa viku Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is vPóstsendum Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 www.feminin.is Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222 Nýkominn gallafatnaður frá N E V E R M I N D St. 38-52 Síðar gallaskyrtur, vesti, pils, kvartbuxur og stuttbuxur Laugavegi 53, s. 552 1555 TÍSKUVAL Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16 Fallegar yfirhafnir 20% afsláttur fimmtudag, föstudag og laugardag Glæsilegt úrval af kvartbuxum iðunn tískuverslun Laugavegi, s. 561 1680 Kringlunni, s. 588 1680 KRINGLUNNI - Sími: 568 9955 Brúðhjónagjafir Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin að skrá óskalistann ykkar ATH: Opið til 9 öll fimmtudagskvöld OPIÐ TIL 9B RÚÐHJÓN Full búð af glænýjum vörum á verði fyrir alla Líttu á allt fyrir brúðhjónin á www.tk.is MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra: „Ég hef undanfarna daga setið undir ásökunum Kastljóssins. Allir þeir sem heyrt hafa svör Bjarna Benediktssonar, Guðrúnar Ög- mundsdóttur og Guðjóns Ólafs Jóns- sonar hljóta að spyrja sig þess hvað Kastljósinu gangi til með umfjöllun um veitingu ríkisborgararéttar til eins tiltekins umsækjanda, ungrar stúlku frá Mið-Ameríku, sem tengist mér. Er Kastljósið að láta misnota sig til að koma höggi á mig og Fram- sóknarflokkinn í aðdraganda kosn- inga? Stórfrétt Kastljóssins í upphafi var að umræddur umsækjandi hefði einungis dvalist í fimmtán mánuði á Íslandi áður en Alþingi veitti réttinn og mátti skilja sem svo að væri nán- ast einsdæmi og hin mesta spilling. Staðreyndir málsins eru þær að á þessu kjörtímabili hafa 144 einstak- lingar fengið ríkisborgararétt með lögum frá Alþingi. Þar af höfðu 30 einstaklingar dvalist hér eitt ár eða skemur. Næst birti Kastljós umsókn þessa einstaklings og gerði lítið úr þeirri ástæðu að umsóknin byggði á skertu ferðafrelsi. Ég hef ekki getað út- skýrt fyrir stúlkunni af hverju Kast- ljós í réttarríkinu Íslandi braut á henni mannréttindi með broti á frið- helgi einkalífs hennar. Ég hef ekki heldur getað útskýrt af hverju Kast- ljós birtir gögn, sem augljóslega er komið á framfæri með ólögmætum hætti. Í ljós hefur komið að 21 aðrir einstaklingar hafa fengið ríkisborg- ararétt m.a. á grundvelli skerts ferðafrelsis. Í Kastljósinu var m.a. látið að því liggja að aðallega væri um börn að ræða sem fengju ríkis- borgararétt með lögum. Staðreyndin er sú að af þessum 144 voru einungis 14 börn. Formaður allsherjarnefndar hefur hrakið allar fullyrðingar sem ætlað var að sýna að afgreiðsla umsóknar þessarar stúlku hafi á nokkurn hátt verið óeðlileg eða umsóknin fengið „sérmeðferð“. Ríkisborgarréttur er veittur með lögum tvisvar á ári, í síð- ara skiptið rétt fyrir þinglok og sum- ar umsóknir eru þá nýkomnar inn í dómsmálaráðuneytið en aðrar hafa beðið lengur. Fleira mætti tína til um ónákvæmni umfjöllunar Kastljóssins og skrumskælingu staðreynda. Ég áskil mér það síðar, en spyr nú. Hvar liggur trúverðugleikinn? “ Um ríkis- borgararétt og Kastljósið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.