Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BJARNI Bene-
diktsson, for-
maður allsherj-
arnefndar Al-
þingis, sendi
Morgunblaðinu
eftirfarandi at-
hugasemd í gær:
„Á heimasíðu
sinni fer Sigur-
jón Þórðarson
þingmannsefni
Frjálslynda flokksins í Norðaust-
urkjördæmi mikinn. Nú beinir Sig-
urjón orðum sínum að mér og seg-
ir mig segja ósatt um vitneskju
mína varðandi tengsl Jónínu
Bjartmarz við ákveðinn umsækj-
anda um ríkisborgararétt. Þetta
eru ekkert annað en rakalausar
dylgjur.
Netverjinn Sigurjón heldur því
jafnframt fram að ég hafi neitað
honum um afhendingu gagna
vegna umsókna um ríkisborgara-
rétt. Þetta er hreinn uppspuni. Ég
hef ekki heyrt frá Sigurjóni í
margar vikur og þaðan af síður
fengið frá honum slíka beiðni. Um-
mæli hans um að aðrir greini
rangt frá hitta hann því sjálfan
fyrir. Þingmaðurinn veður áfram í
þeirri villu að ég hafi heimildir til
að mæla fyrir um aðgang að skjöl-
um og gögnum. Mér er kunnugt
um að hann hafi leitað til þingsins
með beiðni um upplýsingar. Það
erindi fær afgreiðslu hjá skrifstofu
þingsins eins og önnur erindi þing-
manna á grundvelli gildandi laga
og reglna.
Það er loks vafalaust einsdæmi
að þingmaður leggist svo lágt að
nafngreina einstaka starfsmenn
þingsins og bendla þá við óviðeig-
andi afgreiðslu erinda. Þingmað-
urinn og hans þingflokkur setur
niður við slíka framgöngu.
Að mínu frumkvæði er nú verið
að vinna að greiningu og flokkun
þeirra erinda sem allsherjarnefnd
hefur afgreitt á líðandi kjörtíma-
bili. Þessar upplýsingar ættu að
vera aðgengilegar síðar í dag.“
Athugasemd formanns
allsherjarnefndar
Bjarni
Benediktsson
Á MILLI níu og tíu þúsund Ís-
lendingar lifa í dag með krabba-
meini en lífslíkur þeirra og lífs-
gæði eru oft mun betri en
almenningur gerir sér grein fyrir.
Þetta er meðal þess sem fjallað
verður um á fræðslufundi Lions-
hreyfingarinnar um krabbamein
sem haldinn verður í sal 5 á Hótel
Loftleiðum klukkan 17 í dag. Ásdís
Einarsdóttir kennari mun á fund-
inum halda fyrirlestur um hvernig
það er að lifa með krabbameini.
„Ég fer nú yfir afar víðan völl í
þessum fyrirlestri,“ sagði Ásdís.
„Meðal annars segi ég frá mínum
eigin veikindum, hvernig það er að
greinast með krabbamein og
ganga með ólæknandi sjúkdóm.
Einnig ræði ég um viðbrögð sam-
félagsins, heilbrigðiskerfið, lyfja-
gjöfina og aukaverkanir hennar og
hvernig hægt sé að lifa eðlilegu lífi
með krabbamein.“
Ásdís greindist með krabbamein
fyrir ellefu árum. „Fyrst greindist
ég með brjóstakrabbamein en síð-
an fannst þetta í beinunum líka.
Þegar maður er með krabbamein í
beinunum er þetta langvarandi
sjúkdómur sem eiginlega ekkert
er hægt að gera við, nema að
reyna að halda honum niðri með
lyfjagjöf. Auðvitað eru margar og
slæmar aukaverkanir af lyfjunum
en almennt séð hefur gengið vel að
halda sjúkdómnum niðri þennan
rúma áratug sem ég hef glímt við
hann.
Eitt það mikilvægasta fyrir fólk
með krabbamein er að geta haldið
áfram að lifa eðlilegu lífi. Þá meina
ég að taka þátt í atvinnulífinu,
stunda áhugamál sín og njóta lífs-
ins. Það er lykilatriði fyrir andlega
líðan að detta ekki alveg út úr líf-
inu en krabbameinsmeðferð er
ekki bara kostnaðarsöm og erfið,
heldur er hún líka gríðarlega tíma-
frek. Fólk þarf því að skipuleggja
tíma sinn aðeins öðruvísi.“
Nærgöngular spurningar
Ásdís segir almennt ríkja mik-
inn skilning á málefnum krabba-
meinssjúkra á Íslandi. Alvarlegir
sjúkdómar veki þó oft mikla for-
vitni og nærgöngular spurningar.
„Maður tilheyrir auðvitað minni-
hlutahópi og þessir lífshættulegu
sjúkdómar eru áhugaverðir fyrir
fólk sem ekki er með þá. Það ríkir
yfir þeim ákveðin dulúð og þó svo
að enginn vilji fá þá finnst mörg-
um þeir spennandi. Þetta er ein-
hver tenging við dauðann sem allir
eru eðlilega forvitnir um.
Mér líður stundum eins og
frambjóðanda í kosningum þegar
ég þarf að sitja fyrir svörum um
veikindi mín við ólíklegustu að-
stæður. Það er nánast eins og fólki
hafi verið gefið leyfi til að tala við
mann um þetta hvenær og hvar
sem er. Auðvitað eru spurning-
arnar langoftast vel meintar en ég
fæ stundum leið á því að vera sí-
fellt að tala um þetta og það kem-
ur fyrir að mér finnst þessar
spurningar jaðra við hnýsni. Það
vill líka enginn í þessari stöðu láta
vorkenna sér.“
Ný og betri lyf
Ásdís nefnir að framfarir á sviði
krabbameinslækninga séu ekki
miklar eða hraðar þessa dagana en
þeir, sem gangi með sjúkdóminn,
þurfi fyrst og fremst á nýjum og
betri lyfjum að halda. „Mér finnst
merkilegt hvað það gengur vel að
þróa ný drápstól til að útrýma
fleira og fleira fólki við hinar ýmsu
aðstæður um allan heim en á sama
tíma hefur lítil sem engin framför
orðið í lækningum á þessum al-
genga og stórhættulega sjúkdómi.
Að sama skapi er ákaflega leið-
inlegt fyrir okkur sem erum veik
að heyra þá umræðu sem fer í
gang í hvert sinn sem nýtt lyf
kemur þó á markaðinn. Ég sá á
sínum tíma fyrirsögn á forsíðu
Morgunblaðsins þar sem stóð
„Holskefla nýrra og dýrra krabba-
meinslyfja“. Þar var vitnað í orð
Jóhannesar M. Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra lækninga við
LSH, og skilaboðin voru þau að
við værum byrði á samfélaginu.
Manni finnst hreinlega eins og
verið sé að ræða hvort það borgi
sig að splæsa lyfjum á okkur.“
Auk Ásdísar verða þrír aðrir
fyrirlesarar á fræðslufundi
Lionshreyfingarinnar. Halla
Skúladóttir krabbameinslæknir
mun fjalla almennt um krabba-
mein, dr. Helgi Sigurðsson, pró-
fessor í krabbameinslækningum,
spyr í fyrirlestri sínum hvort
krabbamein hafi of neikvæða
ímynd og að lokum mun Nanna
Sigurðardóttir, félagsráðgjafi og
verkefnastjóri á Krabbameinsmið-
stöð LSH, tala um samfélagið,
fjölskylduna og krabbamein. Að
fyrirlestrunum loknum verða síðan
almennar umræður.
„Mikilvægt að lifa eðlilegu lífi“
Lionshreyfingin gengst fyrir fræðslufundi um krabbamein á Hótel Loftleiðum í dag
Morgunblaðið/G. Rúnar
Ásdís „Mér líður stundum eins og frambjóðanda í kosningum þegar ég þarf að sitja fyrir svörum um veikindi mín.“
Eftir Gunnar Hrafn Jónsson