Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 13
SAMTÖK um betri byggð telja
nægja að rannsaka veðurfar á
Hólmsheiði til næstu áramóta, til að
fá upplýsingar um það hvort þar sé
hægt að byggja nýjan flugvöll. Með
því móti yrði unnt að flýta því að
flytja Reykjavíkurflugvöll og spara
samfélaginu þriggja ára fórnar-
kostnað sem fylgi núverandi stað-
setningu hans.
Samtök um betri byggði efndu til
blaðamannafundar í gær til að
kynna aðferðir við veðurfarsathug-
anir og segja frá kynningu sem for-
svarsmenn samtakanna höfðu kom-
ist yfir á niðurstöðum samráðs-
nefndar um úttektir á Reykja-
víkurflugvelli.
Fórnarkostnaður
13 milljarðar
Örn Sigurðsson úr stjórn sam-
takanna segir að „leyniskýrsla“
samgönguráðherra taki af öll tví-
mæli um að ekki sé stætt á því að
reka flugvöll í Vatnsmýri. Raunar
sýna útreikningar samtakanna mun
meiri fórnarkostnað við rekstur
flugvallar á þessum stað en fram
komi í skýrslu samráðsnefndarinn-
ar, eða 13,2 milljarðar á ári í stað
3,5 milljarða. Jafnframt sé staðfest
að hagkvæmast sé að miðstöð inn-
anlandsflugs verði á nýjum flugvelli
á Hólmsheiði, sem kosta muni allt
að 15 milljarða kr.
Í skýrslunni kemur fram að það
taki fimm ár að rannsaka til hlítar
nýtt flugvallarstæði. Samtök um
betri byggð hafa leitað til veður-
fræðinga og fengið þær upplýsing-
ar að unnt sé að rannsaka veðurfar
á nýju flugvallarsvæði á mun
skemmri tíma. Veðurfarsathuganir
hafa farið fram á Hólmsheiði frá 1.
janúar 2006.
Fram kemur í fréttatilkynningu
samtakanna að Haraldur Ólafsson
veðurfræðingur telji að með notkun
tölvutækninnar nægi að rannsaka
veður þar til næstu áramóta. Þann-
ig yrði vindafar rannsakað í tölvu-
hermi þar sem byggt er á veður-
farsupplýsingum margra undanfar-
inna ára frá nálægum veður-
stöðvum.
Flugvöllur fyrir árslok 2010
Gunnar Gunnarsson, úr stjórn
Samtaka um betri byggð, segir að
með þessu móti megi spara sam-
félaginu þriggja ára fórnarkostnað
sem nemi samtals 10,5 milljörðum
samkvæmt skýrslu samgönguráð-
herra en tæpum 40 milljörðum
samkvæmt útreikningum samtak-
anna. Samtök um betri byggð meta
það svo að ljúka megi byggingu nýs
flugvallar á Hólmsheiði fyrir árslok
2010.
Morgunblaðið/Ásdís
Betri byggð Fulltrúar Samtaka um betri byggð kynna athuganir sínar vegna mögulegs flugvallar á Hólmsheiði.
F.v. Gunnar H. Gunnarsson, Guðrún Jónsdóttir, Örn Sigurðsson og Steinunn Jóhannesdóttir.
Samtök um betri byggð telja unnt að flýta veðurfars-
athugunum vegna nýs flugvallar á Hólmsheiði
Geta sparað þriggja
ára fórnarkostnað BORGAR
SIG AÐ TAKA
HÚSNÆÐISLÁN
Í ERLENDRI
MYNT?
Lán í erlendri mynt eru með lægri vöxtum en lán
í íslenskum krónum að jafnaði. Lægri vextir eru
mikil hagsbót. Erlend lán eru ekki verðtryggð
og þeim fylgir því engin verðbólguáhætta. Auk þess
getur þú greitt inn á höfuðstól lánsins þegar þér
hentar. Þess vegna geta þessi lán verið mun
hagstæðari en önnur lán. Þeim fylgir hins vegar
ákveðin gengisáhætta. Nú getur þú fengið
helmingaskipt húsnæðislán hjá Glitni. Helmingur
lánsins er þá í erlendum lágvaxtamyntum og
hinn helmingurinn í íslenskum krónum. Þannig
bjóðum við lága vexti með minni gengisáhættu en
ef lánið væri að fullu í erlendri mynt.
Kynntu þér helmingaskipt húsnæðislán og fáðu
nánari upplýsingar og ráðgjöf í næsta útibúi,
þjónustuveri í síma 440 4000 eða á www.glitnir.is
Vinnuréttardagur Háskólans á Bifröst
Föstudaginn 4. maí
Dagskrá
Kl. 13.00 Setning vinnuréttardagsins, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst
Kl. 13.05 Magnús M. Norðdahl, deildarstjóri lögfræðideildar ASÍ
Alþjóðlegur vinnuréttur - nýir Evrópusamningar og nýjar samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar
Kl. 13.25 Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur Samtaka atvinnulífsins
Lögfræðileg álitaefni varðandi frumvarp endurskoðunarnefndar jafnréttislaga
Kl. 13.45 Elín Blöndal, dósent við Háskólann á Bifröst
Vottun á jafnlaunastefnu
Kl. 14.05 Umræður og fyrirspurnir
Kl. 14.20 Kaffihlé
Kl. 14.40 Ástráður Haraldsson, dósent við Háskólann á Bifröst
Nýjar takmarkanir á rétti atvinnurekenda til að ráða og reka?
Kl. 15.00 Bergþóra Ingólfsdóttir, hdl., Mandat lögmannsstofu
Ábyrgð notendafyrirtækja á launum leigðra og útsendra starfsmanna
Kl. 15.20 Lára V. Júlíusdóttir, lektor við Háskóla Íslands
Réttur atvinnurekanda til skaðabóta við brotthlaup starfsmanns úr starfi—heimild til hýrudráttar og fleiri leiðir
Kl. 15.40 Umræður og fyrirspurnir
Kl. 16.00 Vinnuréttardegi lokið
Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála stendur að vinnuréttardeginum í samstarfi
við Vinnuréttarfélag Íslands og lagadeild Háskólans á Bifröst
Fundarstjóri er Bryndís Hlöðversdóttir, deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst
Upplýsingar og skráning: bifrost@bifrost.is
Þátttökugjald er 4.000 kr.
Vinnuréttardagurinn