Morgunblaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 16
MAHMOUD Ahmadinejad, forseti Írans, hef- ur verið sakaður um grófa ósiðsemi en hon- um varð það á að faðma að sér gamla konu, fyrrverandi kennara sinn, og kyssa á hönd hennar. Í einu harðlínublaðanna sagði, að framferði forsetans bryti gegn íslömskum lögum og væri einsdæmi. Þess má þó geta, að konan var með hanska á höndum. Skelfileg ósiðsemi Grófur Ahmadinejad forseti. Reuters BANDARÍSK F15-orrustuþota heldur sína leið eftir að hafa fengið áfyllingu hjá KC-135 Stratotanker- olíuflutningavél á sameiginlegri heræfingu Rúmena og Bandaríkja- manna nærri Mihail Kogalniceanu- herflugvellinum í gær, 250 km aust- ur af Búkarest. Rúmenska þingið samþykkti í gær með miklum meiri- hluta að heimila Bandaríkjaher af- not af fjórum herflugvöllum í land- inu í samningi til tíu ára. Þotugnýr yfir rúmenskum ökrum 16 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is ÞINGKOSNINGAR verða haldnar í Tyrklandi 22. júlí eftir að Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra lagði til að þeim yrði flýtt. Tillaga hans kemur í kjölfar þess að stjórn- lagadómstóll landsins ógilti forseta- kjör sem fram fór á þingi sl. föstu- dag. Erdogan fór hörðum orðum um úrskurð stjórnlagadómstólsins í gær, sagði að með honum hefði verið gerð aðför að lýðræðinu í Tyrklandi. Stjórnarflokkur Erdogans, AKP- flokkurinn, hafði gert tillögu um ut- anríkisráðherrann Abdullah Gul sem næsta forseta Tyrklands, en Ahmed Necdet Sezer hefur gegnt embætt- inu sl. sjö ár. Tíu atkvæði vantaði hins vegar upp á að Gul fengi tilskil- inn atkvæðafjölda, en stjórnarand- staðan sniðgekk atkvæðagreiðsluna. Stjórnlagadómstóll landsins ógilti síðan kjörið á grundvelli þess að til- skilinn fjöldi þingmanna hefði ekki verið viðstaddur atkvæðagreiðsluna. Erdogan sagði hins vegar í gær að sá úrskurður þýddi að nánast útilok- að væri að þingið gæti kosið nýjan forseta og því teldist hann „byssu- skot beint gegn lýðræðinu“. Lagði hann til að forseti Tyrklands verði framvegis þjóðkjörinn. ESB varar við afskiptum hers AKP-flokkurinn er hófsamt af- sprengi íslamskrar hreyfingar sem á sínum tíma var bannað að starfa í Tyrklandi en allt frá stofnun lýðveld- is í landinu 1923 hefur kenningum landföðurins Mustafa Kemal Atat- urk um að ríkisvaldið skuli vera öld- ungis veraldlegt en ekki grundvallað á íslömskum lögum eða viðmiðum verið framfylgt af mikilli festu. Her landsins hefur jafnan verið reiðubú- inn til að verja þetta þjóðskipulag, en framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins varaði hins vegar við því í gær að inngrip tyrkneska hersins í stjórnmál landsins gætu haft nei- kvæð áhrif á möguleika Tyrklands að fá inngöngu í sambandið. Segir úrskurðinn aðför gegn lýðræði Reuters Brást hart við Recep Tayyip Erdogan vill að þingkosningum verði flýtt. STJÓRN Súdans hafnaði í gær beiðni Alþjóða- sakamáladóm- stólsins í Haag um að handtaka og framselja súd- anskan ráðherra og leiðtoga arab- ískra vígasveita til að hægt verði að sækja þá til saka fyrir stríðs- glæpi í Darfur-héraði. Ráðherrann Ahmed Haroun, sem fór með málefni Darfur sem aðstoð- arinnanríkisráðherra á árunum 2003–4, er sakaður um að hafa skipulagt og fjármagnað arabískar vígasveitir sem nefnast Janjaweed. Hann er nú ráðherra mannúðar- mála og fer m.a. með málefni tveggja milljóna flóttamanna í Darfur. Ali Kushayb, leiðtogi vígasveit- anna, er sakaður um að hafa fyrir- skipað morð, pyntingar og nauðg- anir í árásum á þorp í Darfur. Stjórn Súdans undirritaði ekki samning um stofnun dómstólsins og viðurkennir ekki lögsögu hans í málinu. Hún segir að súdanskir dómstólar geti fjallað um mál meintra stríðsglæpamanna. Framsali hafnað Ahmed Haroun ÞEGAR þrjú ár eru liðin frá inn- göngu Póllands í Evrópusambandið telja 86% landsmanna, að hún hafi verið heillaspor. 69% studdu hana á sínum tíma. 7% eru enn andvíg henni en 73% bænda segja hag sinn hafa batnað. Ánægja með ESB HRAÐI borgarlífsins hefur aukist samkvæmt breskri rannsókn og er stressið mest í Singapore, Kaup- mannahöfn og Madrid. Niðurstaðan fékkst með því að mæla gönguhrað- ann en hann hefur aukist um 10% til jafnaðar á áratug. Vaxandi stress VÍSINDAMENN hafa komist að því, að ein mesta uppsretta gróður- húsalofttegundarinnar metans séu gífurlega miklir hrísgrjónaakrar í Asíu. Á þá er veitt vatni og hús- dýraáburði og rotnunin veldur síð- an metangasmynduninni. Mengandi grjón VÍSINDAMENN vita nú hvernig á því stendur að hassneysla getur valdið geðsjúkdómum. Ástæðan er sú að eitt virkasta efnið í hassi, THC, dregur úr starfsemi heila- stöðva sem bægja burt óæskilegum hugsunum. THC-magn í hassi hefur tvöfaldast að undanförnu. Geðbilun og hass Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is TZIPI Livni, utanríkisráðherra Ísr- aels, vill að Ehud Olmert forsætis- ráðherra segi af sér embætti og axli þannig ábyrgðina á mistökunum í Líbanon í fyrra en setur honum þó ekki úrslitakosti og hyggst sitja áfram í stjórn hans. Niðurstöður opinberrar skýrslu sem gerð var um stríðið gegn Hizbollah-samtökunum í Líbanon voru að nokkrir æðstu ráðamenn Ísraela hefðu gert slæm mistök og undirbúningur aðgerð- anna hefði verið í skötulíki. „Ég held að ef ég segði sjálf af mér væri ég ekki að bregðast rétt við skýrslunni,“ sagði Livni. Hún myndi hins vegar sækjast eftir leið- togaembætti í Kadima-flokknum ef Olmert segði af sér. Samkvæmt könnunum er Livni vinsælasti ráð- herra landsins en hún slapp að mestu við gagnrýni í Líbanon- skýrslunni. Athygli vakti í gær að leiðtogi Hizbollah, Hassan Nasrallah, sagð- ist virða Ísraela fyrir að láta gera skýrsluna. Hann sagðist ekki vilja nota tækifærið og hlakka yfir óför- um Olmerts, Amirs Peretz varnar- málaráðherra og Dan Halutz, for- seta herráðsins. „Þeir fara nú yfir ósigurinn til að læra af honum,“ sagði Nasrallah. Almennt er viður- kennt að Ísraelsher hafi mistekist gersamlega að brjóta vígasveitir Hizbollah á bak aftur í herförinni. Auk þess sem stöðugt hitnar undir Olmert er líklegt að Peretz missi leiðtogasæti sitt í Verkamanna- flokknum, er getum leitt að því að Ehud Barak, fyrrverandi forsætis- ráðherra, verði arftaki hans. Livni styður enn aðgerðirnar gegn Hizbollah, segir þær hafa verið nauðsynlegar til að „hafa hemil á fjandmönnunum.“ Hún átti fund með Olmert síðdegis í gær þar sem hún lýsti þeirri skoðun sinni að hann ætti að segja af sér. Livni tók fram að hún hefði ekki sett Olmert neina úrslitakosti en beðið hann um að fá að vera ávallt með í ráðum þegar ákvarðanir væru teknar, að sögn vefsíðu The Jerusalem Post. Livni reiðubúin að taka við forystunni Setur þó Olmert forsætisráðherra enga úrslitakosti Í HNOTSKURN »Ísraelar hófu stríð gegnHizbollah-liðum í sunnan- verðu Líbanon í júlí í fyrra eft- ir að vígamennirnir tóku tvo ísraelska hermenn í gíslingu. »Rösklega 1.200 Líbanar,aðallega óbreyttir borg- arar, féllu í átökunum og um 160 Ísraelar, einkum her- menn, ef marka má opinberar tölur. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is DEMÓKRATAR á Bandaríkjaþingi og George W. Bush forseti reyna nú að finna málamiðlunarlausn á deil- unni um hvenær kalla eigi banda- ríska herliðið í Írak heim eftir að forsetinn beitti neitunarvaldi sínu gegn frumvarpi um fjárveitingar til hersins vegna hernaðarins í Írak. Í frumvarpinu var ákvæði um að þorri bandarískra hermanna í Írak yrði fluttur þaðan ekki síðar en í mars á næsta ári og að brottflutn- ingurinn hæfist í október. Hernað- urinn í Írak kostar sem svarar tæp- um 130 milljörðum króna á viku og hægt verður að halda honum áfram út júlímánuð án nýrrar fjárveiting- ar. Þetta er í annað skipti sem Bush beitir neitunarvaldi sínu sem forseti, en í fyrra kom hann í veg fyrir lög um fjárveitingar til rannsókna á stofnfrumum. „Þetta er uppskrift að glundroða og óreiðu og við megum ekki þröngva þessu upp á hermenn okkar,“ sagði Bush þegar hann skýrði frá þeirri ákvörðun sinni að hafna fjárveitingarfrumvarpinu. „Það er ekkert vit í því að segja óvin- inum frá því hvenær við ætlum að hefja brottflutninginn.“ Eining á meðal demókrata Mikil eining ríkti meðal demó- krata um frumvarpið þegar það var samþykkt í vikunni sem leið. Hörð- ustu andstæðingar Íraksstríðsins úr röðum demókrata segjast ætla að greiða atkvæði gegn fjárveitingu ef ekki fylgja bindandi ákvæði um heimkvaðningu herliðsins. Leiðtog- ar demókrata viðurkenna þó að þeir þurfa að ljá máls á erfiðum tilslökun- um þar sem þeir geti ekki hætt á það að verða sakaðir um að grafa undan bandaríska hernum. Demókratar þurfa á stuðningi þingmanna úr röðum repúblikana að halda til að hnekkja neitunarvaldi forsetans því til þess þarf tvo þriðju atkvæðanna. Repúblikanar á þing- inu hafa verið á einu máli um að ekki komi til greina að setja skilyrði fyrir fjárveitingunni en demókratar telja að samstaða repúblikana rofni þegar á reyni því skoðanakannanir benda til þess að mikill stuðningur sé með- al almennings við frumvarpið. Þingmenn í báðum flokkum segja að mjög erfitt verði að finna mála- miðlunarlausn sem hægt verði að koma í framkvæmd. Margir demó- kratar segja að í fjárveitingarfrum- varpinu verði að vera einhvers konar skilmálar um árangur í Írak og ákvæði um að verði þeim ekki full- nægt verði herliðið annaðhvort kall- að heim eða flutt á strjálbýl land- svæði þar sem minna er um árásir súnníta eða sjíta. Einnig er mögulegt að frumvarp- inu verði aðeins breytt þannig að bætt verði við ákvæði um að forset- inn geti frestað heimkvaðningunni við ákveðnar aðstæður. Neyðast til að ljá máls á erfiðum tilslökunum Demókratar reyna að semja við Bush í deilu um Íraksstríðið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.