Morgunblaðið - 03.05.2007, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
MEXÍKÓSKI
listamaðurinn
Mario Garcia
Torres fékk
bresku Cartier-
verðlaunin í ár
sem eru afhent
ungum og upp-
rennandi lista-
mönnum.
Mario Garcia
Torres býr í Los
Angeles og vinnur með huglæga
list, meðal verka hans eru kvik-
myndir, myndbönd og ljósmyndir.
Eitt af því sem fylgir Cartier-
verðlaununum er að verðlaunahaf-
inn fær að vinna verk sem mun
verða til sýnis í haust á Frieze-
listastefnunni í London en það
þykir stórt tækifæri fyrir unga
listamenn.
Neville Wakefield, nýráðinn list-
rænn stjórnandi Frieze-verkefn-
isins, sagði um Garcia Torres:
„Tillaga Marios að verkinu fyrir
Frieze er frábær og ómótstæðileg
samsetning af kaldhæðnum húmor
og huglægri fegurð og mun örugg-
lega þykja torskilið og flókið en
um leið halda athygli allra.“
Cartier-verðlaunin voru afhent í
fyrsta skipti í fyrra og geta aðeins
ungir listamenn utan Bretlands
fengið þau.
Verðlaunin innihalda m.a
þriggja mánaða dvöl í Gaswork
vinnustofunni í London, 10.000
punda efniskostnað og lista-
mannalaun að upphæð 1.000 pund
sem og tækifærið til að koma fram
á Frieze.
Sigurvegari seinasta árs var
New York-búinn Mike Rottenberg
sem er myndbandslistamaður og
sýndi verkið Chasing Waterfalls á
Frieze.
Ungur og
efnilegur
Garcia Torres fékk
Cartier-verðlaunin
Mario Garcia
Torres
BANDARÍSKI
ljósmyndarinn
Anne Leibovitz
tók ljósmyndir af
Elísabetu II
Englandsdrottn-
ingu í tilefni af
opinberri heim-
sókn hennar til
Bandaríkjanna
sem hefst í dag.
Elísabet verður í
Bandaríkjunum í sex daga, en þetta
er fjórða opinbera heimsókn hennar
þangað. Leibovitz er einn helsti
stjörnuljósmyndari Bandaríkjanna,
en hún var stödd hér á landi í síð-
asta mánuði og tók þá ljósmyndir af
bandaríska leikaranum Leonardo
diCaprio í Jökulsárlóni, fyrir tíma-
ritið Vanity Fair. Ísbjarnarhúnninn
Knútur var settur inn á kápumynd
tímaritsins með Photoshop-
myndvinnsluforritinu, en húninn
ljósmyndaði Leibovitz í heimkynn-
um hans, dýragarðinum í Berlín.
Þekktasta ljósmynd Leibovitz er
líklega ljósmynd af bítlinum John
Lennon og eiginkonu hans Yoko
Ono, en á myndinni er Lennon nak-
inn en Ono fullklædd. Myndina tók
hún fyrir tónlistartímaritið Rolling
Stone. Þá hafi fleiri setið fyrir naktir
fyrir Leibovitz, m.a. leikkonan Demi
Moore þegar hún var kasólétt, en sú
mynd birtist á forsíðu Vanity Fair.
Ljósmyndin af Elísabetu II verð-
ur öllu formlegri, eins og gefur að
skilja. Elísabet situr í viðhafn-
arstofu Buckinghamhallar og horfir
út um svaladyr á hallargarðana.
Hún er í kvöldkjól og með demanta-
kórónu á höfði. Leibovitz sagði fyrir
ljósmyndatökuna í mars sl. að hún
vildi ná „mjög einfaldri portrett-
mynd“.
Myndaði
Elísabetu II
Elísabet II. Eng-
landsdrottning.
KVENNAKÓR Reykjavíkur
heldur vortónleika sína í
Grensáskirkju í kvöld kl. 20 og
á sunnudaginn, 6. maí, kl. 17.
Tónleikarnir bera yfirskriftina:
Yfir vötn og höf og er þema
þeirra vatn í ýmsum myndum.
Kórinn mun frumflytja tvö ný
lög eftir Tryggva M. Baldvins-
son samin við ljóð Davíðs Stef-
ánssonar. Einsöngvari er
Gunnar Guðbjörnsson, píanó-
leikari er Anna Guðný Guðmundsdóttir og stjórn-
andi er Sigrún Þorgeirsdóttir.
Miðaverð er 2.300 kr. við innganginn en 2.000
kr. í forsölu. Miðasölusími er 896 6468 eftir kl. 16.
Tónleikar
Syngja um vatn í
ýmsum myndum
Kvennakór
Reykjavíkur.
Í HÁDEGINU í dag verða
Þorsteinn H. Ásbjörnsson ten-
ór og Antonía Hevesi píanó-
leikari með tónleika í Hafn-
arborg þar sem Þorsteinn mun
syngja vel þekktar tenóraríur.
Hafnarborg hefur frá 2003
staðið fyrir tónleikum í hádegi
einu sinni í mánuði sem eru
sérstaklega hugsaðir sem
tækifæri fyrir fólk sem starfar
í miðbæ Hafnarfjarðar til að
njóta góðrar tónlistar í hádegishléi. Tónleikarnir
hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálftíma, enginn
aðgangseyrir og öllum opnir á meðan húsrúm
leyfir.
Tónleikar
Tenórsúpa
í hádeginu
Þorsteinn Helgi
Ásbjörnsson
MATTHÍAS V. Baldursson
heldur burtfararprófstónleika
sína frá Tónlistarskóla FÍH
laugardaginn 5. maí kl. 17 í
hátíðarsal skólans í Rauða-
gerði 27. Matthías útskrifast
með burtfararpróf á saxófón,
en efnisskrá tónleikanna sam-
anstendur af verkum hans
fyrir ólíkar samsetningar
hljóðfæra, allt frá kvartett upp í stórsveit.
Matthías hefur starfað sem saxófón-, klarinett-
og bassakennari hjá Skólahljómsveit Kópavogs
frá 1999.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum
heimill á meðan húsrúm leyfir.
Tónleikar
Burtfararprófs-
tónleikar á saxófón
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
SEX listamenn eða hópar lista-
manna sem starfa að jafnaði saman,
hljóta tilnefningu til Sjónlistaverð-
launanna 2007 á tveimur sviðum,
myndlist og hönnun, fyrir framlag
sitt til greinarinnar á tólf mánaða
tímabili frá mars 2006. Tilkynnt var
um tilnefningarnar í gær í Ketilshús-
inu á Akureyri, en verðlaunin verða
afhent nyrðra í september.
Fyrir myndlist eru tilnefnd Birgir
Andrésson fyrir yfirlitssýninguna
Black–out og Build í Listasafni Ís-
lands, Hrafnkell Sigurðsson fyrir
ljósmyndaröðina Áhöfn sem sýnd
var fyrst á sýningunni Eiland í
Gróttu og olíuverkin Athafnasvæði
sem sýnd voru í Gallerí Suðsuð-
vestur, og Hekla Dögg Jónsdóttir
fyrir Fossinn, röð verka í skamm-
degissýningunni Ljósaskipti og Fire,
Fire, Fire.
Fyrir hönnun eru þrjú fyrirtæki
tilnefnd; Nikita (Heiða Birgisdóttir)
fyrir snjóbrettafatnað, Studio
Granda (Margrét Harðardóttir og
Steve Christer) fyrir viðbyggingu við
Vogaskóla í Reykjavík og íbúðarhús
á Hofi á Höfðaströnd og Össur fyrir
gervifótinn Proprio Foot.
Sjónlist 2007 er samstarfsverkefni
Akureyrarbæjar, Forms Ísland –
samtaka hönnuða og Sambands ís-
lenskra myndlistarmanna.
Þekking, áhugi, aðgengi
„Markmið verkefnisins er að veita
verðlaun á sviði sjónlista og beina
þannig sjónum að framúrskarandi
framlagi myndlistarmanna og hönn-
uða starfandi á Íslandi og íslenskra
sjónlistamanna erlendis, stuðla að
aukinni þekkingu, áhuga og aðgengi
almennings að sjónlistum og hvetja
til faglegrar þekkingarsköpunar og
bættra starfsmöguleika sjónlista-
manna á Íslandi,“ segir í tilkynningu.
Allir hönnuðir og myndlistarmenn
sem sýnt hafa verk sín á tímabilinu,
eða kynnt þau með öðrum hætti,
koma til greina við tilnefninguna.
Sýning á verkum þeirra sem hlutu
tilnefningu í ár verður opnuð í Lista-
safninu á Akureyri á Akureyrarvöku
25. ágúst næstkomandi.
Einnig verður heiðursorða Sjón-
listar veitt árlega og verður greint
frá því hver hlýtur orðuna árið 2007
við afhendingu verðlaunanna. Í
tengslum við hátíðina verður jafn-
framt efnt til málþings og í ár verður
siðfræði í listum umræðuefni.
Í umsögn dómnefndar um mynd-
listarmennina segir m.a. að Birgir
Andrésson sé tilnefndur „fyrir ein-
stakt framlag til könnunar á ís-
lenskri menningu og sambandi sjón-
rænnar skynjunar og merkingu
texta.“
Um Hrafnkel Sigurðsson segir
nefndin að ljósmyndaröðin Áhöfn og
olíuverkin Athafnasvæði varpi nýju
ljósi á íslenska sjómenn og karl-
mennsku.
Og Hekla Dögg Jónsdóttir er til-
nefnd, segir dómnefnd „fyrir fersk,
fínleg og blæbrigðarík verk unnin úr
„litlum efnum“ sem er ætlað að lýsa
upp umhverfið og skerpa skilning-
arvitin.“
Í umsögn dómnefndar um Nikita
segir að Heiða Birgisdóttir hafi verið
aðalhönnuður hins unga fyrirtækis
og hugmyndasmiður frá upphafi, en
það var stofnað árið 2000.
„Fyrirtækið er rekið af ungu fólki
og hefur á þessum sjö árum náð
miklum og góðum árangri i hönnun á
fatnaði fyrir mjög ákveðinn mark-
hóp.“
Um Studio Granda segir dóm-
nefnd m.a. að hinir framsæknu arki-
tektar, Margrét Harðardóttir og
Steve Christer, séu tilnefndir fyrir
tvær framúrskarandi byggingar,
sem áður eru nefndar.
Össur, segir dómnefndin, „fyr-
irtækið, sem framleiðir og þróar
gervifætur, hefur alla tíð unnið eftir
mjög meðvitaðri hönnunarstefnu.
Þetta endurspeglast í öllu sem snert-
ir fyrirtækið.“ Það er skoðun að með
Proprio foot, sem nýlega kom á
markað, hafi tæknihönnun á Íslandi
náð nýjum hæðum.
Sex listamenn eða hópar listamanna tilnefndir til Sjónlistaverðlaunanna 2007
Framúrskarandi framlag
ÞEIR sem hljóta Sjónlistaverðlaunin fá einnig peningaverðlaun, tvær millj-
ónir króna hvor. Verðlaunaafhendingin fer fram á Akureyri 21. september
í beinni útsendingu Sjónvarpsins og verða tilnefndir listamenn kynntir til
leiks með stuttum sjónvarpsþáttum þegar nær dregur hátíðinni.
Tvær milljónir í verðlaun
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
GUÐMUNDUR Páll Ólafsson
líffræðingur, ljósmyndari og
rithöfundur hefur verið ötull
talsmaður íslenskrar náttúru.
Viðamiklar bækur hans um
landið og lífríkið eru margverð-
launaðar og fullyrða má að þær
hafi átt sinn þátt í að opna augu
fólks fyrir verðmætum náttúr-
unnar, og kveikja umræðuna um hvernig beri að
umgangast hana. Nú er komin út enn ný bók frá
Guðmundi Páli. Hún er um Þjórsárver og heitir
fullu nafni: Hernaðurinn gegn landinu: Þjórsárver,
hjarta landsins.
Stríðið sem vitnað er til hér að ofan hefur staðið
í hálfa öld að mestu fjarri kastljósi fjölmiðla, að því
er segir á bókarkápu. „Baráttan hefur geisað um
náttúruperluna Þjórsárver og þar hafa tekist á
heimamenn og ráðamenn þjóðarinnar, nátt-
úruunnendur og virkjanasinnar: andstæðar hug-
myndir um náttúru Íslands og hlutverk mannsins í
henni.“
Bókinni er skipt í fjóra aðalkafla: Nálgun, sem
fjallar um Miðlandsöræfi; Í hjarta landsins, sem er
um verin og ána; Virkjana- og baráttusaga, þar
sem fjallað er um virkjanaáform valdhafa; en loka-
kaflinn ber yfirskriftina: Þyki okkur vænt um land.
Eins og í fyrri bókum Guðmundar, prýðir fjöldi
ljósmynda Þjórsárverabókina, auk teikninga,
korta og grafa, ljóða og textabrota, og tilvitnana í
umsagnir annarra um málefni veranna, en enn-
fremur er þar vitnað í fundargerðir og ályktanir
bæði virkjanasinna og náttúruverndarfólks.
Bókin er tæpar 300 síður, í venjulegu bókar-
broti, og er gefin út af Máli og menningu.
Stríð um varðveislu þjóðargersema
Morgunblaðið/RAX
Baráttumaður Guðmundur Páll Ólafsson
♦♦♦
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Spenntur? Ingunn Wernersdóttir, eigandi Inn-fjárfestingar ehf. sem gefur
verðlaunafé fyrir myndlist, Hannes Sigurðsson, forstöðumaður Listasafns-
ins á Akureyri og upphafsmaður Sjónlistar, og Birta Guðjónsdóttir frá SÍM.
Í HNOTSKURN
»Sjónlist er samstarfsverk-efni Akureyrarbæjar,
Forms Ísland – samtaka
hönnuða og Sambands ís-
lenskra myndlistarmanna.
»Aðal fyrirtækjabakhjarlSjónlistar er Glitnir hf. og
aðrir þeir helstu eru Inn fjár-
festing ehf., danska fyrir-
tækið Montana og Flugfélag
Íslands.
» Í dómnefnd á sviði hönn-unar sitja Ásrún Krist-
jánsdóttir, sem er formaður,
Sigríður Sigurjónsdóttir og
Massimo Santanicchia.
» Í dómnefnd á sviði mynd-listar sitja Margrét Elísa-
bet Ólafsdóttir, og er hún for-
maður nefndarinnar, Ingólfur
Arnarsson og Jón Proppé.