Morgunblaðið - 03.05.2007, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 03.05.2007, Qupperneq 21
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Það er alltaf svaka stemninghér á flóamarkaðinum okk-ar og allir geta fundið eitt-hvað við sitt hæfi. Hér kennir ýmissa grasa fyrir fólk á öll- um aldri, bæði í fatnaði, húsgögnum, hlutum og nánast hverju sem er. Og þar sem tískan fer alltaf í hringi þá getur verið gaman að gramsa í göml- um flíkum og finna eitthvað sem er komið aftur í tísku,“ segir Halldóra Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri í Félagsmiðstöðinni á Vesturgötu, en hún er ein aðal flóin í undirbúningi fyrir flóamarkað þann sem und- anfarið hefur verið haldinn annað hvert ár í miðstöðinni. „Markaðurinn verður opinn frá klukkan eitt til fjögur á morgun, föstudag og svo líka á mánudaginn, sjöunda maí. Það er allt á fullu og við erum eins og maurar hérna núna, dragandi poka til og frá, fulla af föt- um og öðru dóti. Stemningin sem myndast í kringum þetta, bæði und- irbúninginn og flóamarkaðsdagana sjálfa, er alveg sérstök. Þetta verður svona gagn og gaman. Fólki finnst það eiga meira í fé- lagsmiðstöðinni þegar það hefur lagt sitt af mörkum með því að gefa eitt- hvað á markaðinn eða starfa að hon- um, vegna þess að fyrir ágóðann kaupum við ýmislegt til að gera hlý- legt hérna hjá okkur. Til dæmis höf- um við keypt stóra og fallega stand- klukku, myndir á veggina og ýmislegt fleira til að prýða og gera heimilislegt hér í félagsmiðstöðinni. Fyrir vikið þykir fólki notalegt að koma hingað og við viljum auðvitað fá sem flesta til að njóta alls þess sem hér er boðið upp á. Það eru ekki margir sem vita að félagsmiðstöðin er opin fyrir alla, hún er ekki ein- göngu hugsuð fyrir þá sem búa hér í húsinu heldur ekki síður fyrir fólkið í hverfinu eða í raun allt fólkið í borg- inni. Hér er ótrúlega margt í boði fyrir fólk á öllum aldri, ekki síst ungt fólk. Við erum með spænsku- og enskunámskeið, bæði fyrir byrj- endur og lengra komna, gler- bræðslu, myndlist, útsaum, leshóp og margt fleira skemmtilegt.“ Halldóra segir að öllum sé frjálst að leggja til hluti eða fatnað á flóa- markaðinn. „Hver sem er getur komið til okk- ar með dót úr geymslunni sinni eða fataskápnum, við tökum við öllu. Framkvæmd markaðarins byggist á samvinnu. Og það er einmitt eitt af því sem gerir þetta svo skemmtilegt, að allir hjálpast að. Við sem erum starfsmenn hér sjáum um þetta ásamt gestum sem hingað koma. Og það er svo mikil gleði sem fylgir þessu. Fólki finnst gaman að koma hingað með dótið sitt og gefa á flóa- markaðinn, sumir koma fótgangandi með fullar töskur, aðrir koma með fulla bíla. Og þeir sem þekkja vita að það er alltaf ákveðinn léttir að taka til og losa sig við uppsafnað dót. Svo þökkum við auðvitað öllum fyrir með kossi á kinn.“ Halldóra segir að þau sem vinni á flóamarkaðinum klæði sig upp og geri sem mesta skemmtun úr þessu. „Svo lækkum við verðið og hrópum tilboð þegar líður að lokum og þetta verður mikið fjör. Við verðum líka með veislukaffi hérna. Og allt það sem við ekki seljum, gefum við til Rauða krossins.“ Halldóra hlakkar til sumarsins og segir að þau í Félagsmiðstöðinni á Vesturgötu ætli til dæmis að vera með opið hús á Menningarnótt og bjóða upp á eitthvað skemmtilegt. „Við tókum í fyrsta sinn þátt í Menningarnótt í fyrra og þá vorum við með lifandi djass og það var mik- ið fjör og við ætlum að gera það að hefð að vera með í þessum skemmti- lega menningarviðburði.“ Fjölbreytt Allt milli himins og jarðar fæst á markaðinum góða. Morgunblaðið/ÞÖK Stuð Halldóra og Guðrún skelltu sér í bleika kjóla og mátuðu hárþurrkur á flóamarkaðinum í Félagsmiðstöðinni á Vesturgötu en þar hefur markaðurinn verið haldinn annað hvert ár. Koss á kinn og fjör á flóamarkaði Félagsmiðstöðin Vesturgötu stendur á horni Garðastrætis og Vesturgötu, beint á móti Naustinu. Flóamarkaðurinn verður opinn á morgun föstudag 4. maí og mánu- dag 7. maí, kl. 13–16. |fimmtudagur|3. 5. 2007| mbl.is daglegtlíf Það er sannkallaða náttúru- paradís að finna við Comovatn á Ítalíu, bæði fyrir fjallagarpa og þá sem vilja taka því rólega. »24 ferðalög Sumarlegir ávextir, fiskur og önnur hollusta setja svip sinn á helgartilboð matvöruverslana ásamt grillmatnum. » 22 helgartilboðin MSG er bragðaukandi efni og hafa fjölmargar rannsóknir ver- ið gerðar á meintri skaðsemi þess. » 22 neytendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.