Morgunblaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 23
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 23
:
Skóverslun - Kringlunni
Sími 553 2888
Opið til kl. 21 í kvöld
Teg: 76190
stærð 35-42
Litur: Rautt,
svart og beige
Verð 9.995
Teg: 76111
stærð 35-42
Litur: Brons, sil-
fur, svart og
leopardo
Verð 7.995
Teg: 76313
stærð 35-42
Litur: Svart,
hvítt og grænt
Verð 9.995
Teg: 76373
stærð 35-42
Litur: Leopardo
Verð 9.995
Teg: 76358
stærð 35-42
Litur: Svart, hvítt
og grænt
Verð 12.995
Teg: 76360
stærð 35-42
Litur: Svart og
kremað
Verð 12.995
Sumarskórnir
frá
HISPANITAS
Opið til kl. 21.00
www.xf.is
JÓN MAGNÚSSON,
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR, LEIÐIR
FRAMBOÐSLISTA FRJÁLSLYNDA FLOKKSINS
Í REYKJAVÍKURKJÖRDÆMI SUÐUR.
Við viljum búa í sanngjarnara samfélagi
• Skattleysismörk hækki strax í 150.000 kr. hjá þeim
tekjulægstu.
• Lækkum skuldir heimilanna, burt með verð-
trygginguna.
• Aldraðir og öryrkjar geti haft 1.000.000 kr. tekjur án
bótaskerðingar og að tekjutenging við maka verði
afnumin.
• Lífeyrisgreiðslur beri 10%
skatt líkt og
fjármagnstekjur.
Skeifan 7 | Reykjavík | sími 553-6061
Óvenjuleg messa var haldin í
Minjasafnskirkjunni um síðustu
helgi; messa í 19. aldar sið. Söng-
hópurinn Hymnodia söng og séra
Óskar Hafsteinn Óskarsson fór
með texta frá þessum tíma. En
það sem var kannski skemmtileg-
ast við athöfnina var þegar séra
Óskar Hafsteinn Óskarsson fékk
sér hressilega í nefið, eins og
prestar þessa tíma hafa líklega
gert í vinnunni.
Georg Ólafur Tryggvason flug-
umferðarstjóri kom með lausnina
á gátu sem Atlantsolía lagði fyrir
Akureyringa í tilefni þess að fyr-
irtækið opnað bensínstöð í bæn-
um nýverið. Ljósmynd Eðvarðs
Sigurgeirssonar var dreift í hús
og fólk beðið um að bera kennsl á
annað tveggja skipa á Pollinum.
Nú hefur verið staðfest að um
er að ræða Arandora Star, en það
var skotið niður 2. júlí 1940 af
þýskum kafbát. Með því fórust
805 manns, flestir þýskir stríðs-
fangar.
Tvær konur á besta aldrei komu
einnig að því að leysa gátuna.
Þær gáfu sig á tal við starfsmann
stöðvar Atlantsolíu, að sögn
Huga Hreiðarssonar, markaðs-
stjóra fyrirtækisins og sögðu að
skipið Arandora hefði komið í júlí
1933 og að þær hefðu farið um
borð í þetta tiltekna skip. Ástæð-
an var sú að faðir annarrar kon-
unnar var umboðsmaður skipa-
félagsins á Akureyri. Höfðu þær
á orði að þetta hefði verið gríðar-
fallegt skip með tilkomumiklum
sölum. Þær sögðu að minna skip-
ið hefði verið herskip með mörg-
um dátum og að það hefði ríkt
„ástand“ í bænum þá daga sem að
dvaldi á pollinum. Allar líkur eru
á að þar sé um að ræða franska
eftirlitsskipið Pollux.
Tveir nemendur Háskólans á
Akureyri fengu á dögunum 500
þúsund kr. styrk hvor frá fyr-
irtækinu, en það hefur samið við
HA um að veita slíka styrki til
nemenda í raunvísindanámi. Það
voru Gunnar Harðarson, nem-
andi í umhverfisfræði og Ingólfur
Sigfússon, nemandi í tölv-
unarfræði, sem fengu fyrstu
styrkina. Við úthlutun var litið til
árangurs þeirra í raungreinum í
framhaldsskóla sem og árangurs
á fyrsta misseri við viðskipta- og
raunvísindadeild Háskólans á Ak-
ureyri, skv. tilkynningu frá skól-
anum.
Í fyrra gerðu Hugvit hf. og Há-
skólinn á Akureyri með sér
þriggja ára samstarfssamning
sem meðal annars felur í sér að
Hugvit mun á samningstímanum
árlega veita veglega námsstyrki
til tveggja námsmanna við skól-
ann sem þykja hafa sýnt fram-
úrskarandi árangur í námi.
Fulltrúar þeirra stjórnmála-
flokka, sem bjóða fram í Norð-
austurkjördæmi í Alþingiskosn-
ingunum, verða gestir á 13.
súpufundi íþróttafélagsins Þórs í
Hamri í dag kl. 12–13. Umræðu-
efni er nýútkomin skýrsla Þórdís-
ar Lilju Gísladóttir, sem lauk
MA- gráðu í Menningar- og
menntastjórnun við Félags-
vísinda- og Hagfræðideild Há-
skólans á Bifröst.
Gestir fundarins í Hamri verða
Höskuldur Þórhallsson 3. maður
á B-lista, Kristján Þór Júlíusson
1. maður á D-lista, Sigurjón Þórð-
arson 1. maður á F-lista, Hörður
Ingólfsson 1. maður á I-lista,
Lára Stefánsdóttir 3. maður á S-
lista og Dýrleif Skjóldal sem er í
3. sæti V-lista.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Ljósmynd/Kristján
Arandona Star Hugi Hreiðarsson, Elín Gunnarsdóttir og Georg Ólaf-
ur Tryggvason sem upplýsti hvað skip var á mynd Atlantsolíu.
Davíð Hjálmar Haraldsson gerir brag um„smygltilraun Hollendingsins“ um
páskahelgina:
Fíkniefnalögreglan er fjarska dugleg sveit
og flest um smygl hún veit.
Hún gómar stundum harðsvíraðan glæpa-
mannaflokk
er gleypir dóp í smokk.
Á föstudaginn langa illan fann hún smyglarann
og frelsi svipti hann.
Hún vissi að í maga bófans væri kókaín.
Varla telst það grín.
Hún skurðlækni til kallaði er skorið gæti upp
frá skeifugörn að hupp.
„Hér má“, kvað þá doksi, „fara hefðbundnari leið,
og hinkrið við um skeið.
Kopp á dólginn bindið þétt og kannið allt sem
finnst
en kremjið þó sem minnst.“
Og þessu gegndi lögreglan og þrjótnum beið svo
hjá.
Það tók nokkuð á.
Af skyldurækni athugaði skarnið blautt og þykkt.
Skorti þá ei lykt.
Og hér var þörf á gjörhygli er hratið niður gekk.
Hanska því ei fékk
En pólitíið þraukaði og pressan stöðugt jókst.
Á páskadag það tókst
og þarna lágu opinberuð þrælsins brot og skömm;
300 rúm grömm.
Já, lög og regla sigraði en lúðinn dúsa má
lás bakvið og slá.
En sagt er að í Fíknó dveljist svona tveir, þrír menn
í sápubaði enn.
VÍSNAHORNIÐ
Af smygli
og smokki
pebl@mbl.is