Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 24
Nánari upplýsingar um „Il sentiero del viand-
ante“ fjallgönguleið Rómverja
www.geocities.com/bftrav/viandantei.htm.
Hotel Villa Cipressi í Varenna
www.hotelvillacipressi.it
Til fræðast enn frekar og kynna sér gisti-
möguleika við Comovatn:
www.islandtours.it (smella á “fyrir Íslendinga
efst til hægri á inngangssíðu).
www.lagodicomo.com/english/index.php
www.larioonline.it/lakecomo/accommoda-
tion/index.asp
www.holidayonlake.com/lakecomo/
Islandtours-ferðaskrifstofur eru reknar íflestum Evrópulöndum og þar til ífyrravor voru þær í eigu Flugleiða, enþá var framkvæmdastjórum þeirra gef-
inn kostur á að kaupa fyrirtækin.
„Ég sló til og eftir að skrifstofan varð mín
fór ég að hugsa um að nýta reksturinn einnig
á hinn veginn, þ.e. að selja Íslendingum og
öðrum þjóðum ferðir til Como og annarra
áhugaverðra áfangastaða á Ítalíu. Hugmyndin
er að skipuleggja styttri eða lengri ferðir fyrir
litla hópa, þar sem fólk upplifir fegurð svæð-
isins og menningu á virkan hátt. Það er líka
mjög mikilvægt að velja staði og ferða-
tilhögun með tilliti til þess að vera á „réttum“
tíma, en mér finnst mesti lúxus sem maður
getur veitt sér þegar maður ferðast að vera
ekki á „high season“.“
Guðrún segir að það sé sérstök áhersla í
ferðunum á Comosvæðið en þar fyrir utan
verður boðið uppá ýmis önnur áhugaverð
svæði, oft þau sem eru minna þekkt. Svæðið í
kringum Comovatn er af landfræðilegum
ástæðum ekki gert fyrir fjöldatúrisma, því
hér steypast snarbrött fjöllin beint ofan í
vatnið og undirlendi ekki mikið. Af þeim sök-
um henta ferðirnar frekar minni hópum en
fjöllin við vatnið, t.d. fyrir ofan Lecco eru
fræg og svæðið sannkölluð paradís fjall-
göngufólks. Það þarf því engan að undra að
margir af frægustu fjallgöngugörpum og
fjallaklúbbum Ítalíu eru einmitt frá Lecco.
„Svæðið hefur verið að verða þekktara og
þekktara síðustu árin og e.t.v. spilar þar inn í
sú staðreynd að margir þekktir einstaklingar
úr leikara- og tískuheiminum hafa fjárfest í
eignum við vatnið, t.d. hjartaknúsarinn
George Cooney og tískukóngurinn Versace.“
Úr alfaraleið
– En hvers konar ferðir eru í boði?
„Ég hef, þegar hér er komið sögu „hannað“
tvær ferðir um Comosvæðið. Önnur er klass-
ískari þar sem skoðaðir eru markverðir staðir
við vatnið og nánasta umhverfi þess, farið í
siglingar og frægar villur og garðar heimsótt-
ir. Hin ferðin er gönguferð þar sem farið er í
bland upp á hæstu tinda og meðfram vatninu,
gist í fjallaskálum og gömlum villum við vatn-
ið. Skipst er á að ganga stærri stíga við vatnið
og fáfarnari gönguleiðir eins og t.d. „Il sen-
tiero del viandante“, sem er fjallgönguleið
sem Rómverjar lögðu.
Allar gönguferðir og hótel eru sérvalin fyrir
hópana en einnig aðstoðum við einstaklinga
og höfum m.a. íbúð til leigu. Af öðrum ferðum
um Ítalíu má svo nefna ferð um Napolí, Caprí
og Amalfíströndina, ferð um Sikiley og sæl-
kera- og tónlistarferð til Parma og fleira
spennandi.
Töfrar landslagsins við Comovatn hafa
snortið djúpt margan ferðlanginn og stað-
urinn laðaði á sínum tíma til sín listamenn
rómantíska stefnunnar sem fengu innblástur
af hinu ofurrómantíska landslagi svæðisins.
Þegar breska skáldið Shelley kom til Ítalíu
1818 sagði hann „Comovatn nær út fyrir allt
það sem ég taldi fegurð fela í sér.“ Byron lá-
varður, sem er ekki síður þekktur fyrir sinn
sérstæða lífstíl og stormasöm ástarsambönd
en skrif sín, fann heldur betur hentuga um-
gjörð utan um ljóð sín og ástarævintýri í hinu
stórkostlega landslagi Comovatns.
Um svipað leyti og Shelley dvaldi við Como
flúði Karólína frá Brunswick (síðar Englands-
drottning) úr ástlausu hjónabandi, en hún var
gift Georg, sem seinna varð Georg IV. Var
hún fordæmd af bresku hirðinni fyrir þetta
athæfi, en við Como gaf prinsessan sig á vald
ástríðnanna. Þar kynntist hún ítalska auð-
manninum Poggami og festi kaup á villu í
Cernobbio, þar sem hún hélt til næstu fimm
árin. Árið 1873 var henni breytt í lúxushótel
og gefið nafnið Villa d’Este. Mörgum gömlum
villum hefur verið breytt í hótel við Como-
vatn, sem dæmi má nefna Hotel Villa Cipressi
í Varenna, þar sem hóparnir gista einmitt.
Fálki Veziokastali fyrir ofan Varenna er opinn allt árið en þar er að finna tamda fálka. Fjallafegurð Útsýni yfir Comovatn frá Fiumelatte (Varenna).
Silkiborgin Como hefur oft verið nefnd „silkiborgin“, því hún býr yfir langri silkigerðarhefð. Árið 1990 var opnað í þessari litríkuborg sérstakt
Silkisafn, www.museosetacomo.com, til heiðurs þessari handiðn sem hefur borið hróður Como víða.
Ljósmynd/ Hanna Friðriksdóttir
Ferðafrömuðurinn Guðrún Sigurðardóttir í
húsakynnum Islandtours.
Gönguleiðin „Il sentiero del viandante“ kann að virðast gróin en hún nær engu að síður allt
frá Lecco til bæjarins Colico, sem er skammt frá svissnesku landamærunum.
Gönguferðir, menning og lífsins lysti-
semdir á slóðum Byrons og Clooney
ferðalög
24 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Mandello – á mánudögum
Dervio – á þriðjudögum
Varenna – á miðvikudögum
Bellano – á fimmtudögum
Lierna – á föstudögum
Lecco – á miðvikudögum og
laugardögum
Markaðir við
Comovatn
Guðrún Sigurðardóttir hefur bú-
ið í 25 ár í bænum Lecco við
Comovatn og rekið þar ferða-
skrifstofuna Islandtours s.l. tíu
ár. Skrifstofan sérhæfir sig í
ferðum fyrir Ítali til Íslands og
tók í vor upp á að bjóða Íslend-
ingum ferðir til Comovatns og
fleiri áfangastaða á Ítalíu.
Hanna Friðriksdóttir hitti Guð-
rúnu og forvitnaðist um hinar
spennandi Comoferðir.