Morgunblaðið - 03.05.2007, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 25
Annað sem fer í
taugar Víkverja í kosn-
ingabaráttunni eru lof-
orð um að ef þessi kemst
til valda þá muni hann
lækka þetta og hitt og
annað verður ókeypis og
svo á að framkvæma
svona og svona mikið,
það hljómar allt voða-
lega vel og slær kannski
ryki í augu sumra kjós-
enda, en síðan kemur
ekkert um það hvaðan
peningarnir eiga að
koma til að geta haft allt
ókeypis og borgað fyrir
framkvæmdirnar.
Víkverji er líka orðinn leiður á
frambjóðendum út um allan bæ,
dreifandi bæklingum og bolum eða
gefandi pylsur með frosið bros á vör,
svoleiðis framkoma fær engin at-
kvæði hjá Víkverja.
Víkverja finnst að það eigi að
banna slíka kosningabaráttu og hvert
framboð megi aðeins dreifa einum
stórum bæklingi með sínum baráttu-
málum í hús í sínu kjördæmi svo fólk
geti sest niður í rólegheitunum og
borið saman framboðin og myndað
sér skoðun. Í staðinn fyrir að þetta
bylji á manni daginn út og inn; aug-
lýsingar, pylsur, barmmerki, tuð í
sjónvarpi og útvarpi og annað slíkt,
þá á bara að hafa þetta einfalt svo fólk
geti myndað sér skoðun í alvörunni,
án alls áreitis.
Það er hálfur mán-uður í kosningar
og Víkverji er þegar
orðinn hundleiður á
kosningabaráttunni.
Það var voðalega gam-
an þegar baráttan
hófst fyrst og kosn-
ingafundir byrjuðu í
sjónvarpi og útvarpi.
Víkverji fylgdist
spenntur með þeim en
eftir að hafa horft á tvo
var hann búinn að
horfa á þá alla. Eftir að
hafa lesið einn bækling
var hann búinn að lesa
þá alla.
Málið er nefnilega þannig að öll
framboðin eru sífellt að tuða um það
sama þó þau haldi að þau séu ekki að
því. Og þetta tuð og þessi orðræða er
orðin svo þreytt að hún fer inn um
eitt og út um hitt. T.d. fær Víkverji
græn útbrot af orðinu forgangsröðun,
„það verður að forgangsraða“ vellur
upp úr frambjóðendum í sambandi
við hvert málefni; forgangsraða í
samgöngumálum, forgangsraða í
heilbrigðisgeiranum. Forgangsröðun
er tískuorð kosninganna í ár og notað
óspart en Víkverji er búinn að sjá að
það stendur oft lítið á bak við það hjá
frambjóðendum. Stundum þegar þeir
eru búnir að tuða um forgangsröðun í
einhverjum þættinum og eru síðan
spurðir hvernig þeir vilji þá forgangs-
raða verður oft fátt um svör.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Fréttir á SMS
Gönguferðir í Alicante-héraði
Express ferðir efna til göngu-
ferðar í fjallahéruðum Alicante 27.
september til 1. október og 11.-15.
október. Á göngu-
svæðinu eru merk-
ar minjar frá tím-
um Mára og
Rómverja. Þar er
einstök náttúru-
fegurð og á þess-
um árstíma er milt
loftslag í spænsk-
um fjöllum. Far-
arstjóri verður
Ingibjörg Þórhallsdóttir, sem gjör-
þekkir svæðið, söguna og nútímann.
Ferðum þessum er einkum ætlað að
vera heilsusamlegar og fróðlegar og
verður gist á hlýlegu hóteli í þorpinu
Tarbena.
Sveitasælan er komin út
Sveitasæla, kynningarbæklingur
Ferðaþjónustu bænda 2007-2008, er
kominn út. Í dag eru 145 félagar í
Ferðaþjónustu
bænda sem bjóða
gistingu inni á
heimilum gest-
gjafa, í sérgisti-
húsum bænda,
sveitahótelum og
í sumarhúsum.
Máltíðir að hætti
heimamanna eru í
boði á mörgum
stöðum. Einnig er fjölbreytt af-
þreying í boði, s.s. hestaferðir,
gönguferðir, veiði, golf og fugla-
skoðun. Allir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi hafi menn hug
á því að dvelja í íslenskri sveitasælu.
Hægt er að nálgast bæklinginn á
upplýsingamiðstöðum, skrifstofu
Ferðaþjónustu bænda og í N1 versl-
unum og N1 þjónustustöðvum um
land allt.
Helgarsumarferðir til Berlínar
Ferðaklúbbur MasterCard í sam-
starfi við GB-ferðir hefur ákveðið að
efna til átta helgarferða til Berlínar í
júlí og ágústmánuðum. Boðið verður
upp á gistingu á tveimur glæsihótel-
um Berlínarborgar, Ritz Carlton
Berlín og Marriott Berlín. Bæði hót-
elin eru fimm stjörnu og eru staðsett
við Potzdamer Platz og er verðið
fyrir MasterCard-hafa 10.000 kr.
ódýrara en almennt verð. Innifalið
er flug, skattar, gisting í tvíbýli í
þrjár nætur með morgunverði og að-
gangi að heilsulindum hótelanna.
Kyrrð og kraftur öræfanna
Ásta Arnardóttir, leiðsögukona og
jógakennari, efnir til fjögurra til sex
daga öræfaferða í sumar. Gengið
verður um náttúruparadísir við ræt-
ur Vatnajökuls og Hofsjökuls og
jóga stundað kvölds og morgna.
Matráðskona í ferðunum verður
Brynhildur Þorgeirsdóttir, mynd-
listarmaður, og einnig mæta til leiks
þau Ingibjörg Guðmundsdóttir, leið-
sögukona og jógakennari, og Harpa
Arnardóttir, leikkona. Allur ágóði af
ferðunum rennur í náttúruvernd-
arsjóð Augnabliks, en Augnablik er
listfélag, sem stofnað var árið 1991.
Markmið félagsins er einkum að
vera vettvangur fyrir listsköpun,
rannsóknir og fræðslu.
vítt og breitt
www.expressferdir.is
www.sveit.is
www.gbferdir.is
www.this.is/augnablik
Nýtt frá Dior
Smáralind • Sími 554 3960
Kringlan • Sími 533 4533
HYDRACTIN VISIBLE DEFENSE SPF 20
Veittu húðinni hámarks vörn og raka.
Lotusblómið viðheldur fegurð sinni þrátt fyrir áreiti frá
umhverfinu og erfið vaxtarskilyrði.
Kremið inniheldur efni Lotusblómsins sem hefur
þann einstaka hæfileika að vernda húðina frá óæskilegum
áhrifum umhverfis og veitir húðinni um leið góðan raka.
dior.com
Dior kynning 3.-6. maí
í Hygeu Kringlu og Smáralind.
Sérfræðingur frá Dior verður á staðnum og
býður upp á húðgreiningu og góð förðunarráð.
Glæsileg tilboð.
Gjöf fylgir ef þú verslar tvo hluti í Dior*
*Gildir meðan birgðir endast, fylgir ekki tilboðum.