Morgunblaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. UPPGJAFARYFIRLÝSING YFIRTÖKUNEFNDAR Í Morgunblaðinu í gær birtist at-hyglisverð frétt þess efnis, aðsvonefnd yfirtökunefnd hefði ákveðið að láta niður falla athugun á því, hvort yfirtökuskylda hefði mynd- azt í kaupum nýrra hluthafa meðal helztu eigenda Glitnis. Ástæðan fyrir þessari ákvörðun yfirtökunefndar kemur fram í bréfi nefndarinnar til Fjármálaeftirlitsins og er sú, að öflun gagna og upplýs- inga hafi reynzt torveld og tímafrek. Nefndinni hafi borizt ákveðin gögn en þau hafi verið frá Kaupþingi banka, sem hafði milligöngu um við- skiptin með hlutabréf Glitnis. Hafði yfirtökunefnd einungis tekizt að afla munnlegra yfirlýsinga frá einum af þremur stærstu kaupendum hlut- anna, þ.e. frá Sundi Holding. Yfirtökunefndin veltir þessu verk- efni í raun yfir á Fjármálaeftirlitið með bréfi sínu og vekur athygli þess á að hugsanleg yfirtökuskylda hafi myndazt vegna þessara viðskipta. Þessi ákvörðun yfirtökunefndar vekur spurningar um það, hvort það eitt dugi út af fyrir sig, þegar nefndin telur ástæðu til að kanna mál af þessu tagi, að neita að afhenda henni gögn. Þá gefist hún einfaldlega upp við verkefni sitt. Ef svo er verður að gera ráð fyrir, að aðrir, sem nefndin kann að taka til skoðunar, hafi sama hátt á og þeir að- ilar, sem hér er um að ræða, og af- hendi einfaldlega engin gögn og þar með geti yfirtökunefnd ekkert gert. Væntanlega mun eitt yfir alla ganga, því að ekki fer yfirtökunefnd að beita mismunandi aðferðum við athuganir sínar. Á ekki að ríkja jafnræði í þess- um efnum sem öðrum? Með ákvörðun sinni og bréfi til Fjármálaeftirlitsins er yfirtökunefnd í raun að lýsa því yfir að nefndin sjálf sé gagnslaus og næsta skref hlýtur að vera að leggja hana niður. Varla var hún skipuð til þess að vera upp á punt – eða var það kannski svo? Fyrir nokkrum dögum lýsti Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, þeirri skoðun sinni, að nauð- synlegt væri að stórefla Fjármálaeft- irlitið. Morgunblaðið hefur tekið und- ir þá skoðun Bjarna Ármannssonar. Það er augljóst, að það þarf eðlilegt eftirlit að vera með íslenzku við- skiptalífi, og eftir því sem það verður umsvifameira er enn meiri ástæða til að það búi við ákveðið aðhald frá þeim, sem hafa verið kjörnir til að gæta almannahagsmuna. Yfirlýsing yfirtökunefndar um eigið gagnsleysi er sterk vísbending um að í þessum efnum sé pottur brotinn. Yfirlýsing Bjarna Ármannssonar, sem hann gaf skömmu áður en upplýst var um brotthvarf hans frá Glitni, var áreið- anlega ekki gefin að tilefnislausu. Fá- ir þekkja viðskiptalíf nútímans betur en Bjarni Ármannsson. Ætla stjórnvöld að yppta öxlum yf- ir þessari þróun? YFIRGANGUR RÚSSA Yfirgangur Rússa gagnvart Eist-um þessa dagana er með ólíkind- um. Í hverju tilfellinu á fætur öðru sést hvernig Rússar eru tilbúnir að umgangast þá, sem ekki þóknast þeim. Úkraína, Georgía og Litháen hafa fengið að finna fyrir þrýstingi þegar ráðamönnum í Moskvu hefur mislíkað og nú er röðin komin að Eistlandi. Allt frá því að Eistar tóku niður stríðsminnisvarða frá Sovéttímanum hefur ríkt umsátursástand við eist- neska sendiráðið í Moskvu. Liðsmenn samtakanna Nasji, sem merkir „okk- ar“ og eru hliðholl Vladimír Pútín forseta, veittust í gær að Marinu Kaljurand, sendiherra Eistlands í Rússlandi, á blaðamannafundi, sem hún hélt í Moskvu, og þurftu lífverðir hennar að nota piparúða til að hrinda árásinni. Rússneska lögreglan hefur verið fljót að kveða niður mótmæli, sem beinst hafa gegn stjórnvöldum, en í þessu tilfelli virðast viðbrögðin láta á sér standa. Árásir á heimasíður eistneska yfirvalda hafa að sögn Eista verið raktar til tölva í rúss- neska stjórnkerfinu. Þá var tilkynnt í gær að einmitt núna þyrfti að gera við brautarteina til Eistlands þannig að ekki yrði hægt að flytja rússneska olíu til hafna í Eistlandi. Umræddur minnisvarði stóð í miðri Tallinn og hafði lengi valdið deilum og ýfingum. Hann var reistur 1947 og er til minningar um sovéska her- menn, sem féllu í heimsstyrjöldinni síðari, en í hugum margra Eista er hann merki sovéskrar kúgunar og undirokunar. Fyrir helgi kom til óeirða við minnismerkið og lét einn maður lífið í þeim. Ákváðu eistnesk stjórnvöld þá að það yrði fjarlægt. Rússnesk stjórnvöld mótmæltu samstundis. Þá krafðist efri deild rússneska þingsins þess að Pútín ryfi samskipti við Eista og neðri deildin að gripið yrði til refsiaðgerða. Þing- nefnd fór frá Moskvu til Tallinn vegna málsins og hvatti til þess að eistneska stjórnin segði af sér. Eistar eiga ekki góðar minningar um yfirráð Sovétríkjanna. Í Eystra- saltsríkjunum ríkir enn ótti í garð Rússa – ekki að ástæðulausu. Í Eist- landi þakka nú margir sínum sæla að vera gengnir í Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið. „Þetta minnir á atburði ársins 1940 þegar Stalín sendi fulltrúa sína til Eistlands til að koma hér á fót sov- éskri leppstjórn,“ er haft eftir Mart Helme, sagnfræðingi og fyrrverandi sendiherra Eistlands í Moskvu, í fréttaskýringu Sveins Sigurðssonar í Morgunblaðinu í dag. Yfirgangur Rússa í þessu máli er ógeðfelldur. Umræddur minnisvarði er tákn þess valds, sem Rússar hafa sjálfir kastað af sér, og það er undir Eistum komið hvort þeir kjósa að taka hann niður og engum öðrum. Rússar ættu að hafa það hugfast. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Aldur sjúklinga er meðalþeirra atriða sem eðlilegt erað skoða þegar rætt er umforgangsröðun innan heil- brigðiskerfisins. Önnur atriði sem huga þarf að eru t.d. ástand sjúklinga, tækninýjungar í meðferð og fleira. Þetta segir Siv Friðleifsdóttir heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra. Hún sagði í kosningaþætti í Sjónvarp- inu í fyrrakvöld að talsvert væri um það erlendis að menn hefðu sest niður og ákveðið sameiginlega að allir sem væru yfir ákveðnum aldri fengju ekki ákveðna þjónustu. Þá væri reiknað út að það borgaði sig ekki fjárhagslega. Lífsgæðin skoðuð Spurð um hvar þetta þekkist nefnir Siv sem dæmi að umræða um þessi mál hafi farið fram „í Oregon í Bandaríkj- unum, á nýlegri alþjóðaráðstefnu í Tor- onto í Kanada, í Noregi, í Hollandi og á Íslandi á ársfundi LSH“, segir Siv. Þar sem menn hafi farið hvað lengst í þess- ari umræðu sé aldur fólks skoðaður í hvert sinn sem ákvarðanir eru teknar um læknismeðferð. Þegar menn hafi rætt um forgangsröðun í heilbrigðis- kerfinu og komið sér saman um ein- hvers konar leiðarljós hafi meðal ann- ars verið skoðað hvaða lífsgæði fáist út úr þeim inngripum sem viðhöfð séu. „Það er auðvitað mikilvægt að þau inn- grip sem kosið er að fara í auki lífsgæði fólks. Þá er tekið tillit til ástands sjúk- lings, aldurs hans og hve flókið og áhættusamt það inngrip er sem um ræðir.“ Eðlilegt sé að stjórnmálamenn ræði þessa þætti, líkt og fagaðilarnir og almenningur. Stjórnmálamenn varpa frá sér ábyrgð Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, kveðst þeirrar skoðunar að stjórnmálamenn hafi varp- að ábyrgð um of á hendur læknum í þessum efnum. Um sé að ræða við- fangsefni sem heilbrigðisstarfsfólk hafi staðið fyrir og leyst úr eftir bestu getu „en fengið óljós skilaboð frá stjórn- málamönnum“. Stjórnmálamenn þurfi að axla ábyrgð og þeir eigi ekki að varpa ábyrgð á heilbrigðisstarfsfólk. Um þá hugmynd að setja ákveðin aldursviðmið varðandi ýmsa meðferð- arþjónustu segir Kristinn eðlilegt að skoða það hverju sinni. Setja þurfi al- mennar relgur um tilteknar aðgerðir og hvort ráðast eigi í þær. Aldur og lík- amlegt ástand séu meðal þeirra þátta sem skoða þurfi í þessu sambandi. Kristinn segir að eflaust verði flókið og umdeilt að setja slíkar viðmiðunarregl- ur en það sé óhjákvæmilegt. Þetta séu erfið mál að ræða en ekki sé hægt að sleppa því að ræða þau. Siðferðilega rangt Margrét Sverrisdóttir, frambjóðandi Íslandshreyfingarinnar, segir að vara beri sérstaklega við því þegar rætt sé um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu að eldra fólk fái hugsanlega lakari þjónustu. „Mér finnst það siðferðilega rangt og hættuleg afstaða,“ segir Mar- grét. Hún segist telja að skoða þurfi þessi mál út frá fleiri forsendum. Liggi það fyrir að einstaklingur sem þarf á kostnaðarsamri læknismeðferð að halda eigi skamman tíma ólifaðan megi skoða málin, en að hafa almennt ald- ursviðmið sé rangt. Margrét segir að hver vísi á annan í umræðunni. „Læknar tala jafnvel um að Alþingi eigi að móta stefnu í þessu,“ segir Margrét. Hún vilji hins vegar að réttur sjúklingsins til þjónustu sé skil- greindur og að ákvarðanir séu einnig teknar í samráði við sjúklinga. Í vissum tilvikum kunni mjög veikt fólk að kjósa að ekki verði farið í kostnaðarsamar aðgerðir og þá eigi það að geta hafnað þeim af fúsum og frjálsum vilja. Ekki megi gleyma að hafa siðræn gildi að leiðarljósi þegar þessi mál eru skoðuð. Læknar nýti þekkingu sína „Ég er algjörlega á móti því að það sé sett einhver ákveðin lína, hvort sem hún er 67 ára, 70 ára eða 80 ára,“ segir Þuríður Backman, þingmaður Vinstri- hreyfingarinnar – þessi mál. Taka læknismeðferð út og líta til mannúða manneskja getur undan ef heilsan e ekki ákveðna með því ekki því hún þjóðhagslegri ha eða þess sem veiti út frá einstakling siðferðilega rétt.“ Læknar veiti m sé hafður í huga, frá þekkingu sinn sem í hlut eiga. Heilsa eldra fól Ásta Möller, þ isflokks, bendir á gangsröðun í heilb ið fram hér á land Fyrir nokkrum út skýrsla um fo Danir féllu frá um um krabba Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segir aldur og á Álitamál? Á að gera kostnaðarsamar aðgerðir á öldruðu fól Er það verk stjórnmála- manna að setja reglur um hugsanleg takmörk á lækn- ismeðferð eldra fólks eða eiga læknar að meta hvert tilfelli fyrir sig? Elva Björk Sverrisdóttir ræddi þessi mál við fulltrúa stjórn- málaflokkanna og lækna- stéttarinnnar. Margrét K. Sverrisdóttir Friðbjörn Sigurðsson Matthías Halldórsson Kristinn H. Gunnarsson Ásta Möller Þuríður Backman

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.