Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 27

Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 27 Sjálfstæðisflokkurinn laðaði til sínkjósendur í borgarstjórnarkosn-ingunum með því að lofa ódýrumlóðum fyrir alla. Fyrir tveimur ár- um var haft eftir Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni núverandi borgarstjóra að stefna Sjálfstæðisflokksins væri sú að úthluta lóðum á gatnagerðagjöldum. Nú hef- ur hins vegar verið kynnt fast verð á lóðum sem jafn- gilda fjórföldum gatnagerð- argjöldum: 4,5 milljónir fyrir hverja íbúð í fjölbýli, 7,5 milljónir fyrir íbúð í parhúsi eða raðhúsi og 11 milljónir fyrir einbýlishúsalóð. Það er ekki nema von að vonsviknir kjósendur Sjálfstæðisflokks- ins séu undrandi og reiðir. Treystir borgarstjóri á minnisleysi? Borgarstjóri bítur hins vegar höfuðið af skömminni í grein í Morgunblaðinu, 1. maí, þar sem hann kallar þetta fasta verð kostn- aðarverð og segir það vera „það sem ég hef alltaf boð- að“. Förum aðeins yfir mál- flutning sama Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar frá síðasta kjörtímabili: Fjölbýli: 1,7 milljónir fyrir lóð sagt „óhóflegt“ 2003. Þegar lóðauppboð í Norð- lingaholti leiddi til þeirrar niðurstöðu að meðalverð á hverja íbúð í fjölbýli var 1,7 milljónir haustið 2003 var haft eftir Vilhjálmi Þ. að það verð væri „óhóflegt“ í kvöldfréttum útvarps. Fjölbýli: 2–2,5 milljóna lóðum lofað 2005: Þegar sjálfstæðismenn kynntu (hinar horfnu) hugmyndir sínar um Eyjabyggð sagði Vilhjálmur Þ. í Spegli ríkisútvarpsins að gatnagerðargjöldin á hinum nýju svæð- um fyrir íbúðir í fjölbýli gætu orðið 2–2,5 milljónir króna „jafnvel minna“. Hann var þar að svara áhyggjum af því að dýrar brýr og göng myndu hleypa upp verði við að út- búa lóðirnar. Í sömu umfjöllun voru lóða- verð nálægt þeim 4,5 milljónum sem borg- arstjóri boðar nú kölluð „óheyrileg“ og því „verði að linna“. Einbýli: 6,3 milljónir fyrir lóð sagt „ótrú- legt“ 2005: Lóðaverð fyrir einbýlishús tók risastökk upp á við í kjölfar breytinga á lánamarkaði til fasteignakaupa árið 2004. Vilhjálmur Þ. neitaði að horfast í augu við hinar raun- verulegu orsakir og kenndi þá- verandi meirihluta í Reykjavík um. Þá var meðalverð fyrir lóð undir einbýlishús 6,3 milljónir í útboði í Norðlingaholti. Vil- hjálmur kallaði það „ótrúlega þróun“. Einbýli: 3,5–4,5 mkr. fyrir lóð í Lambaseli 2005: Sjálfstæð- ismenn gagnrýndu harðlega út- hlutun 30 lóða undir einbýlishús í Lambaseli. Þær kostuðu 3,5– 4,5 milljónir króna (eftir stærð). Eftir Vilhjálmi Þ. var þá haft í kvöldfréttum Sjónvarps að hann vildi selja lóðir fyrir gatnagerð- argjöld. Hann bætti um betur í kosningabaráttunni 2006, boðaði lægra lóðaverð og sagði: „Ég tel það séu bara réttindi þeirra sem vilja byggja og búa í Reykjavík að þeir geti fengið lóðir.“ Óheiðarlegur málflutningur og brotin loforð Það skiptir litlu máli hvar drepið er niður í málflutningi Sjálfstæðisflokksins í lóðamálum undanfarin ár. Hann var óheið- arlegur og gekk út á það að selja borgarbúum þann draum að engin takmörk yrði á lóðum undir þeirra stjórn, ódýrar lóðir fyrir alla. Þessum draumi hafa þeir nú rænt og þurfa að svara fyrir það gagnvart eigin kjósendum. Ég man varla eftir jafn margítrekuðu kosningaloforði sem hefur verið jafnrækilega svikið. Borg- arstjóri þarf að gera hreint fyrir sínum dyr- um. Borgarstjóri flýr svikin loforð í lóðamálum Dagur B. Eggertsson svarar grein Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar »Ég manvarla eftir jafn margítrek- uðu kosninga- loforði sem hef- ur verið jafnrækilega svikið. Borg- arstjóri þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar. Dagur B. Eggertsson Á velheppnuðum landsfundi Sam-fylkingarinnar var Mona Sahlin,nýr formaður sænskra sósíal-demókrata, spurð um ástæðu þess að hún væri sósíaldemókrati. Svar hennar var einfalt og gott. Hún sagðist vera sósíaldemókrati m.a. vegna þess að sú hugmyndafræði byggðist á því að öflugt og traust velferðarkerfi sem gæfi öllum jöfn tækifæri í lífinu væri forsenda þess að atvinnu- og efnahagslífið blómstraði. Með því að veita öllum börnum jöfn tækifæri og gott veganesti í lífinu hvað varðar menntun, heilbrigð- isþjónustu og félagslegan stuðning þá væri lagður grunnurinn að því að at- vinnulífið blómstraði. Brauðmylsnuhagfræðin Þetta skilja hægrimenn því miður illa. Og þetta skilningsleysi birtist með áþreif- anlegum hætti í auglýsingum Sjálfstæð- isflokksins nú þar sem sagt er að þegar öllu sé á botninn hvolft sé traust efnahagslíf helsta velferðarmálið. Þetta er brauð- mylsnuhagfræðin sem byggist á því að bjóða þegnunum upp á velferð þegar vel ár- ar – og væntanlega minni velferð þegar illa árar. Menntun, heilbrigði og félagsleg velferð eru aldrei annað en kostnaður í hugum hægri manna. Kostnaður sem menn reyna að ná niður með öllum tiltækum ráðum, jafnvel með þeim afleiðingum að eldri borg- arar og börn búa við fátækt. Blár, bleikur, grænn Velferðarkerfið er hins vegar fjárfesting í fólkinu í landinu rétt eins og menntakerfið okkar samkvæmt hugmynda- fræði okkar í Samfylkingunni. Þess vegna er velferðin grundvöllur þess að atvinnulífið hér geti blómstrað. Á þessu byggist norræna módelið sem Sjálfstæðisflokkurinn þykist kannast við í kosningum þegar að félagshyggjan verður allsráð- andi. Og flokkurinn skiptir um ham og er ýmist bleikur eða grænn eftir því við hvern er tal- að. Gleymum því hins vegar ekki að þetta er marklaust kosn- ingahjal og það sýna verkin und- anfarin 12 ár. Biðlistar og fátækt Verkin sýna að velferðarmálin eru sann- arlega ekki hátt skrifuð, það sýna biðlistar eftir brýnni aðstoð heilbrigðiskerfisins, það birtist í kjörum eldri borgara og það birtist auðvitað í þeirri nöturlegu staðreynd að hér á Íslandi búa mun fleiri fátæk börn hlut- fallslega en annars staðar á Norðurlöndum. Þessi börn upplifa ekki jöfn tækifæri og það mun ekki aðeins bitna á þeim heldur ís- lensku samfélagi í heild sinni þegar fram líða stundar. Það borgar sig nefnilega að fjárfesta í fólkinu í landinu og það hefur af- leiðingar að gera það ekki. Að þessu leyti er grundvallarmunur á stefnu Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í velferðarmálum. Velferðin í forgrunni Eftir Ágúst Ólaf Ágústsson » Þetta er brauðmylsnu-hagfræðin sem byggist á því að bjóða þegnunum upp á velferð þegar vel árar og væntanlega minni velferð þegar illa árar. Höfundur er varaformaður Samfylkingarinnar. Ágúst Ólafur Ágústsson– græns framboðs, um eigi ákvarðanir um t frá einstaklingnum arsjónarmiða. „Sjötug átt góð 20 ár fram- er í lagi. Það að veita ðferð af því að það taki sé svo gömul út frá agkvæmni ríkissjóðs ir þjónustuna, en ekki gnum, finnst mér ekki meðferð og kostnaður en þeir meti málin út ni og einstaklingunum ks mismunandi þingmaður Sjálfstæð- á að umræða um for- brigðskerfinu hafi far- di undanfarin ár. árum hafi verið gefin organgsröðunina sem fengið hafi mjög ítarlega umfjöllun, meðal annars hjá fagfélögum. Ásta segist telja það varasamt að horfa á aldur fólks í sjálfu sér þegar kemur að læknismeðferð. Fremur eigi að huga að ástandi þess sem í hlut eigi hverju sinni. „Eldra fólk er mjög mis- munandi til heilsunnar komið. Sextug- ur maður getur verið eins og áttræður maður heilsufarslega,“ nefnir Ásta sem dæmi. Hún segir aðspurð að það sé alltaf erfitt að meta hvenær veita eigi með- ferð og hvenær ekki og ekki sé hægt að styðjast við algildar reglur. Horfa þurfi til þess hvort lífsgæði fólks aukist eða ekki. Vilja að allir hafi jafnan aðgang Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingar, segir að ráða megi af umræðu um heilbrigðisþjónustu að Ís- lendingar séu sammála um að allir eigi að hafa jafnan aðgang að heilbrigðis- þjónustunni. „Við eigum að geta veitt okkar fólki þá þjónustu sem það þarf,“ segir Ásta. Því miður sé farið að forgangsraða í heilbrigðiskerfinu eftir því hvort fólk hafi efni á að kaupa þjónustuna. Ásta segist vita til þess að sums stað- ar erlendis fái fólk sem komið sé yfir ákveðinn aldur ekki vissa þjónustu. Nefna megi sem dæmi að fólk sem orð- ið er mjög gamalt fái ekki að fara í mjaðmaaðgerð. „Þá er það oft vegna þess að talið er að það sé of hættulegt, fólk muni ekki þola slíkt inngrip vegna annarra ástæðna,“ segir Ásta. Hún viti hins vegar dæmi um ís- lenskan mann sem fékk nýja mjöðm eftir að hann var kominn yfir áttrætt. „Hann lifði góðu lífi í um 12 ár með nýja mjöðm og þetta bætti gæðum við líf hans. Ella hefði hann legið og ekki getað hreyft sig,“ bendir hún á. Danir breyttu reglum varðandi krabbameinsmeðferð aldraðra Friðbjörn Sigurðsson, formaður læknaráðs Landspítala – háskóla- sjúkrahúss, segir að sér sé ekki kunn- ugt um að hugmyndir um aldursviðmið varðandi læknismeðferð hafi verið ræddar innan spítalans. Hann bendir á að í Danmörku hafi um skeið verið í gildi reglur sem kveðið hafi á um að fólk yfir sjötugu fengi ekki krabbameinsmeðferð. Síðan hafi Danir fallið frá þessu og slíkar reglur gildi ekki í dag. Í umræðu um þessi mál þurfi jafn- framt að huga að tryggingavernd ein- staklinga og spyrja hvað felist í al- mannatrygginum. „Mín skoðun er að við séum ekki tilbúin að ræða forgangsröðunina á þennan hátt eins og kemur fram á for- síðu Morgunblaðsins í dag [í gær],“ segir Friðbjörn. Umræðan í vestræn- um þjóðfélögum sé víðast sú að ekki megi mismuna fólki eftir kynferði, bú- setu, þjóðerni eða aldri. „Það er vax- andi krafa að fólki sé ekki mismunað eftir aldri og það kemur spánskt fyrir sjónir ef það ætti að mismuna á þennan hátt. Dýr og góð meðferð getur gagnast mjög eldri einstaklingum,“ segir Friðbjörn. Hann bendir jafnframt á að fjár- magn sé takmarkað og það geti verið erfitt fyrir lækna eina að meta hvaða meðferð sé þess virði að veita hana. Stjórnmálamenn og almenningur þurfi að ræða þessi mál. Heilsuhagfræði og siðfræði Matthías Halldórsson, landlæknir, segir að einstökum læknum beri ávallt að gera það sem þeir geti fyrir sína sjúklinga. Erlendis hafi menn rætt um hvort þeir sem skipuleggja heilbrigð- isþjónustuna eigi að gera það þannig að tryggt verði að peningarnir renni þang- að sem þeir skapa mesta heilsu. „Þetta er heilsuhagfræðilegt atriði sem jafn- framt þarf að hafa í huga þegar verið er að skipuleggja heilbrigðisþjón- ustuna,“ segir Matthías. Spyrja þurfi hvernig megi hámarka fjölda góðra æviára fyrir þann pening sem lagður er í heilbrigðisþjónustuna. Þó þurfi að huga að fleiru en hagfræði, þar á meðal að siðferðilegum álitamálum. „Siðferði- lega er það engin spurning að læknir sem stendur fyrir framan sjúkling á að gera allt sem hann getur fyrir þann sjúkling,,“segir hann. Þetta sé bæði í samræmi við siðareglur lækna og al- mennt siðferði. Hins vegar kunni sjúk- lingur að hafa ákveðnar óskir, til dæm- is varðandi lok lífs, og þær verði að virða. „Það er alltaf forgangsraðað í heilbrigðisþjónustunni. Munurinn er hugsanlega sá hvort þetta er gert með- vitað eða tilviljanakennt. Fjármagn er takmarkað og frá almennu sjónarmiði sé heppilegast að nota þá peninga, sem til eru, þannig að þeir skapi sem mesta heilsu. Aðalatriðið er að fólki sé ekki mismunað eftir efnahag eða þjóðfélags- stöðu“. aldursviðmið- ameinsmeðferð ástand sjúklinga meðal þess sem ætti að skoða lki sem kunna að lengja líf þess um stutta hríð? Ásta R. Jóhannesdóttir Í HNOTSKURN »Siv Friðleifsdóttir heilbrigð-isráðherra sagði í Morgun- blaðinu í fyrradag að hún væri ekki að boða þá stefnu að taka upp aldursviðmið þegar kæmi að tiltekinni læknismeðferð. »Hins vegar væri eðlilegt að Ís-lendingar ræddu forgangs- röðun í heilbrigðiskerfinu, líkt og gert hefði verið. »Umræða um forgangsröðunhefði farið fram á Alþingi. » Í heilbrigðisáætlun sem gildirtil ársins 2010 er sett fram 21 forgangsmarkmið, sem er til- greint, tímasett og tölusett. Siv Friðleifsdóttir elva@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.