Morgunblaðið - 03.05.2007, Page 31

Morgunblaðið - 03.05.2007, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 31 MINNINGAR ✝ Lilja Krist-insdóttir fædd- ist í Hafnarfirði 15. ágúst 1927. Hún lést á heimili sínu, Skólabraut 5 á Sel- tjarnarnesi, 19. apr- íl síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Kristinn Þor- steinsson sjómaður og fiskmatsmaður í Hafnarfirði, f. á Mjóafirði eystra 22. maí 1902, d. 16. júní 1967 og kona hans Soffía Sigurjónsdóttir húsmóðir og verkakona, f. í Gerðum í Gerða- hreppi 4. nóv. 1902, d. 9. feb. 1978. Systkini Lilju eru Ásta, f. 25. sept. 1925, d. 6. sept. 1994, maki Krist- inn Ólafur Karlsson, f. 10. nóv. 1921, d. 5. júlí 2001, Hörður, f. 27. ágúst 1929, fórst með togaranum Júlí 9. feb. 1959, maki Dóra Lauf- ey Sigurðardóttir, f. 16. des. 1928 og Þorsteinn, f. 17. jan. 1939, maki Dagbjört Torfadóttir, f. 28. ágúst 1938. 1989. Dætur Lilju og Sigurðar eru: 2) Soffía Kristín, f. í Reykjavík 14. nóv. 1958, maki Kjartan Tryggva- son, f. 5. jan. 1960. Börn þeirra eru Helena, f. 2. sept. 1988, María Kristín, f. 11. ágúst 1990 og Jó- hann Örn, f. 24. okt. 1994. 3) Krist- ín Elinborg, f. í Reykjavík 30. apríl 1961, maki Páll Rúnar Guð- jónsson, f. 6. mars 1960. Þau skildu. Sambýlismaður Kristínar er Kristján Gissurarson, f. 6. júní 1953. Synir Kristínar og Páls eru; a) Sigurður Rúnar, f. 1. júní 1980. Dóttir hans og Hlínar Júl- íusdóttur, f. 18. maí 1984, er Hekla Kristín, f. 28. ágúst 2001. b) Guð- jón, f. 17. maí 1986, c) Egill, f. 29. apríl 1988 og d) Páll Kristinn, f. 19. maí 1990. Lilja ólst upp í Hafnarfirði en bjó lengst af á fullorðinsárum í Reykjavík og síðar á efri árum á Seltjarnarnesi. Hún vann við ýmis störf um ævina. Sem ung kona vann hún á Saumastofunni Feld- inum. Hún vann lengi í mötuneyti Landsbankans, síðar á Hrafnistu og síðustu starfsárin vann hún hjá Sjálfsbjörg í Hátúni 12. Útför Lilju verður gerð frá Grensáskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Lilja giftist 13. sept. 1947 Gunnari Guðjónssyni, verka- manni, f. 21. feb. 1925. Þau skildu. Lilja giftist 29. jan- úar 1956 Sigurði Kristjáni Stefánssyni bifvélavirkja, f. á Hrísum í Fróð- árhreppi 24. des. 1923, d. 16. apríl 1977. Dóttir Lilju og Gunnars er 1) María Jóna, f. í Hafnarfirði 21. des. 1947. Maki 1 Egill Hjartar, f. 31. ágúst 1948. Þau skildu. Maki 2 Jóhann Bergmann, f. 16. okt. 1946. Dóttir Maríu og Jóns S. Magnússonar, f. 20. nóv. 1946, er Lilja Björk, f. 19. júlí 1966, maki Árni H. Kristinsson, f. 1. feb. 1961. Börn þeirra eru Egill, f. 10. des. 1992, Theódór, f. 1. mars 1997 og Ólafur Ívar, f. 14. júlí 2002. Sonur Árna er Gunnar Orri, f. 27. sept. 1984. Sonur Maríu og Egils Hjart- ar er Ívar Bergmann, f. 21. apríl Tengdamóðir mín, Lilja Kristins- dóttir, andaðist að heimili sínu 19. apríl síðastliðinn. Það bar upp á sumardaginn fyrsta, bjartan og hlýjan. En í minni okkar sem eftir lifum munu ský sorgar og saknaðar ætíð grúfa yfir þessum degi. Lilja fæddist í Hafnarfirði árið 1927 og var því á áttugasta aldursári þegar hún lést. Hún var tvígift en seinni maður hennar, Sigurður, lést langt um aldur fram árið 1977 eftir lang- varandi veikindi þegar Lilja var ekki fimmtug. Hún tók fráfall hans mjög nærri sér og næstu árin á eftir voru henni erfið og náði hún aldrei að sætta sig fyllilega við þennan missi. Lilja var glæsileg kona með næmt fegurðarskyn. Hún bar gott skynbragð á tískustrauma og var til þess tekið hvað hún var alltaf vel til höfð. Nokkrum dögum fyrir andlát- ið bauð hún okkur hjónunum í mat til að fá fréttir af syni okkar sem við höfðum heimsótt til Kanada þar sem hann er skiptinemi. Það þótti henni nægjanlegt tilefni til að klæða sig upp. Hún var fagurkeri og naut þess að hafa fallega hluti og myndir í sínu umhverfi eins og heimili henn- ar bar vott um. Hún var einnig list- feng og lagin í höndum og margir fagrir gripir hennar prýða heimili afkomendanna. Þessa list sína, sem hún af hæversku kallaði föndur, stundaði hún fram á síðustu ár uns meiðsli er hún hlaut í slysi tóku að hamla því. Lilja fylgdist vel með, hafði yndi af ferðalögum og fór víða, las mikið, hlustaði á útvarp og horfði á sjónvarp og var ófeimin við að viðra skoðanir sínar á mönnum og málefnum. Hún bjó yfir kímni- gáfu sem gat verið nokkuð hvöss og beindist ekki síður að henni sjálfri en öðrum. En fyrst og síðast var Lilja áhugasöm um velferð fjölskyldu sinnar og fylgdist grannt með öllum afkomendum sínum. Hún var ólöt við að bjóða stórfjölskyldunni í mat og var þá oft þröngt setinn bekk- urinn í litlu íbúðinni hennar. Barna- börnin voru hennar líf og yndi og hún vakin og sofin að hugsa um vel- ferð þeirra enda þau öll hænd að henni. Kynni mín af Lilju spanna ein- ungis átta ár sem telst ekki langur tími af heilli mannsævi. Ég verð henni ætíð þakklátur fyrir hve fljótt og vel hún bauð mig velkominn í fjölskylduna sem tengdason og þá ræktarsemi er hún sýndi mér þann tíma sem við áttum samleið. Einnig þakka ég fyrir þá hlýju sem hún sýndi móður minni í veikindum hennar síðustu æviárin. Fráfall Lilju bar brátt að og eng- in vísbending um það sem í vændum var. Hún var sem ætíð með ýmsar fyrirætlanir fyrir sumarið, var nýbúin að standa fyrir breytingum á íbúð sinni en horfði einnig fram til haustsins, til áttræðisafmælis síns, en aðeins var farið að orða skipu- lagningu utanfarar af því tilefni. Næst á dagskrá var þó að kaupa bíl til að eiga auðveldara með að heim- sækja fjölskyldu og vini. Hún lagð- ist til svefns að kveldi síðasta vetr- ardags og vaknaði ekki aftur. Þannig vildi hún helst fá að kveðja og víst er að hún hefur átt góða móttöku hinumegin hjá áður gengn- um ástvinum og vinum. En sorg og söknuður okkar sem eftir lifum er þeim mun meiri. Guð blessi minn- ingu Lilju Kristinsdóttur. Jóhann Bergmann. Elsku amma, það er erfitt að sætta sig við það að þú sért farin frá okkur, en við vitum að það hefur verið vel tekið á móti þér og að þú ert hjá afa núna. Þú varst alltaf svo góð við okkur og vildir okkur allt það besta. Þú ert yndislegasta manneskja sem við höfum hitt og engin getur komið í staðinn fyrir þig. Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir okkur. Þegar við bjuggum í Svíþjóð heimsóttir þú okkur nokkrum sinn- um. Það var notalegt að hafa þig hjá okkur. Þegar við komum heim úr skólanum þá gafst þú okkur að borða, við fórum í göngutúra og í bæinn saman. Það verður tómlegt án þín, þú varst svo stór hluti af lífi okkar. Líf- ið verður aldrei það sama núna þeg- ar þú ert farin. Við munum alltaf sakna þín og elskum þig öll. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Þú mun alltaf eiga stað í hjarta okkar. Kveðja frá ömmubörnum. Helena, María og Jóhann. Amma mín Lilja er látin, hún lagðist til svefns í fallegu íbúðinni sinni og vaknaði ekki aftur. Sökn- uðurinn er sár og skrýtið að hugsa sér lífið án hennar. Allt frá því ég man eftir mér hef- ur amma verið með mér, og í æsku átti ég alltaf öruggt skjól hjá ömmu og afa Sigga og varði þar ófáum stundum. Það var fjölskyldunni mikið áfall þegar afi lést langt fyrir aldur fram. Söknuður ömmu var mikill og ósanngjarnt að þau skyldu ekki fá að njóta efri áranna saman og afi ekki fá að fylgjast með barna- börnum sínum vaxa úr grasi. En líf- ið heldur áfram þó það sé ekki alltaf eins og maður ætlaði sér. Fjölskyldan var ömmu allt og var hún óendanlega stolt af dætrum sín- um, tengdasonum og ömmubörnum. Amma stóð með sínum og hefði vað- ið eld og brennistein fyrir okkur. Amma var einstaklega listræn, hvort sem það voru glerlistaverk, myndir eða að prjóna á dætur sínar og ömmubörn, allt lék í höndunum á henni. Hún vissi alltaf hvað var í tísku, var alltaf smart og lét mann alveg vita hvað klæddi mann ekki. Þegar ég hugsa um ömmu sé ég fyr- ir mér góða, sjálfstæða, stolta, fal- lega, gjafmilda og fordómalausa konu sem stóð með okkur í blíðu og stríðu. Minning hennar lifir í hjörtum okkar. Lilja Björk Jónsdóttir. Mér var brugðið er ég heyrði af andláti „ömmu Lilju“. Dauðinn kom fyrirvaralítið, en það er huggun harmi gegn að hann var þrautalaus. Lilja var jafnan með mörg járn í eldinum, hún var nýbúin að gera upp íbúð sína og ætlaði að kaupa sér nýjan bíl er dauðann bar að garði. Lilja var því ekkert að leggja árar í bát og hefði að ósekju mátt vera mikið lengur meðal okkar. Þetta minnir mann á hverfulleika lífsins, við erum gestir og enginn ræður sínum næturstað. Kynni okkar ömmu Lilju hófust fyrir tuttugu árum er ég hóf sam- búð með barnabarni hennar og nöfnu. Lilja tók mér strax opnum örmum og upp frá því hefur hún ætíð reynst mér ljúf og góð. Lilja var dul á tilfinningar sínar en ekki duldist það mér að þar fór góð kona. Líf hennar var ekki nein rósabraut, áföll dundu yfir en eftir stóð þakk- læti fyrir góðan eiginmann og dæt- ur, barnabörn og barnabarnabörn. Þetta voru fjársjóðirnir hennar, í þessu var fólgin hamingja hennar og hún verður aldrei metin til fjár og aldrei á neina veraldarvog vegin. Gestrisni var Lilju í blóð borin, ætíð var heitt á könnunni og bakk- elsi með. Hún var með eindæmum gjafmild og eftir því tekið hve rausnarleg hún var þegar tækifær- isgjafir voru annars vegar. Ég fór ekki varhluta af þessu og er ég hóf síðbúinn námsferil færði hún mér marga vísdómsbókina að gjöf. Á hinn bóginn ætlaðist hún ekki til mikils af öðrum, var nægjusöm, lít- illát og hógvær. Lilja gaf Elli kerlingu langt nef og bar aldurinn óvenjuvel. Hún var ung í anda og fylgdist vel með tísku- straumum, var ætíð vel til höfð og passaði sérstaklega vel upp á hár- greiðsluna. Við eftirlifendur getum huggað okkur við það að amma Lilja lifði lífinu, hún var sjálfstæð, hélt andlegri reisn og var virk til hinstu stundar. Fyrir þetta er ég þakklátur því ég veit að pæjan amma Lilja hefði ekki viljað fölna og fjara út. Að leiðarlokum minnist ég ömmu Lilju með hlýju og virðingu. Árni H. Kristjánsson. Lilja Kristinsdóttir ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, SIGRÍÐUR TRYGGVADÓTTIR frá Gröf, Gránufélagsgötu 7, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 24. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Regína Ragnarsdóttir, Tryggvi Ragnarsson, Erling Ragnarsson, Dagbjört Sigrún Torfadóttir, Örn Ragnarsson, Svanhvít Ingjaldsdóttir, Úlfar Ragnarsson, Stefán Ragnarsson, Fríður Jónsdóttir, Svanberg Gunnlaugsson, Jóhannes Stefánsson, Anna Ragnarsdóttir, Þröstur Ragnarsson, Anna Tryggvadóttir, ömmu- og langömmubörn. ✝ Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, vinur og bróðir, EINAR PÉTURSSON, Austurbrún 6, Reykjavík, andaðist á görgæsludeild Landspítala við Hring- braut miðvikudaginn 18. apríl Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir færum við starfsfólki deildar 11G og gjörgæsludeildar Landspítala við Hringbraut. Jón Birgir Einarsson, Sigríður Einarsdóttir, Helga Skúladóttir, Margrét Geirsdóttir, Valgerður Pétursdóttir, Guðmar Pétursson, Guðríður Pétursdóttir og fjölskyldur. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, KARL GARÐAR ÞÓRLEIFSSON tæknifræðingur, Lerkilundi 32, Akureyri, lést á heimili sínu mánudaginn 30. apríl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 8. maí kl. 13:30. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þem sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Heimahlynningar á Akureyri. Anna Freyja Eðvarðsdóttir, Ólöf Inga Andrésdóttir, Birkir Björnsson, Magnús Halldór Karlsson, Þórleifur Karl Karlsson, Arnar Freyr, Magnús Ingi og Erna Kristín Birkisbörn ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GYLFI FELIXSON tannlæknir, Vesturási 4, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 2. maí. Útför auglýst síðar. Jóhanna Oddgeirsdóttir, Oddgeir Gylfason, Stefanía Arnardóttir, Kjartan Gylfason, Anna Guðbjartsdóttir, Unnur Gylfadóttir, Tryggvi Þorvaldsson, Felix Gylfason, Klara Ósk Hallgrímsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN ÁRNASON skógarbóndi og fyrrverandi bæjarverkfræðingur í Hafnarfirði, er látinn. Kristín Björnsdóttir, Friðrik Már Baldursson, Árni B. Björnsson, Halldóra Bragadóttir, Sigríður Björnsdóttir, Valur Ragnarsson, Björn Ágúst Björnsson, Kristín Lúðvíksdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.