Morgunblaðið - 03.05.2007, Síða 35

Morgunblaðið - 03.05.2007, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 35 Kristín Guðjónsdóttir er látin langt fyrir aldur fram. Það er erfitt að horfa á bak vinkonu eins og Kristínu. Við kynntumst í menntaskóla, þá hafði hún þegar áhuga á listum og var mjög skapandi. Hún hafði lag á því að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni og var gaman að ræða við hana um allt milli himins og jarðar. Minningarnar um stundirnar þar sem við sátum og spjölluðum eru mér dýrmætar. Vin- skapurinn breyttist lítið eftir að Kristín flutti til Bandaríkjanna að öðru leyti en því að lengra varð á milli þess sem við hittumst. Hún var alltaf sama gamla Stína og dugleg að nota tölvupóstinn. Fjölskyldan var henni mikils virði auk þess sem hún var iðin við list sína og leitaðist við að finna nýjar aðferðir til listsköpunar þar sem rætur hennar frá Vestfjörðum komu oft skýrt fram. Kristín var sterk kona með óbilandi kjark og þolgæði sem birtist meðal annars í baráttuvilja til að vinna á sjúkdómnum sem hún þó að lokum þurfti að lúta í lægra haldi fyrir. Hugheilar samúðarkveðjur til Dav- íðs, Steina, Völu, Atla, foreldra og tengdafólks, Margrét Valdimarsdóttir. Við bekkjarfélagarnir úr Hlíða- skóla vorum að byrja að undirbúa gleðistund. Við vorum að skipuleggja hvenær við ættum að hittast til að halda upp á 25 ára útskrift úr gaggó. Við skiptumst á skoðunum á tölvu- póstinum og Kristín lét ekki sitt eftir liggja. Henni leist vel á að hittast í ágúst. Við hin vorum því slegin að frétta að hún hefði dáið aðeins 3 dög- um síðar. Það virðist svo fjarrænt að við, aðeins fertug að aldri, séum farin að týna tölunni. Ég minnist margra góðra stunda í æsku með Kristínu. Í Drápuhlíðinni var alltaf notalegt að vera. Og ég var svo heppinn að fá að fara með í Keldu- dalinn og kynnast veröld hennar þar. Þó að vinátta okkar hafi ekki haldið áfram á fullorðinsárum þá varðveiti ég margar hlýjar minningar í hjarta mínu. Fyrir hönd okkar skólafélaga úr ár- gangi ’66 í Hlíðaskóla sendi ég okkar innilegustu hinstu kveðju elsku Krist- ín. Skarð er höggvið í okkar hóp. Fjöl- skyldunni sendum við okkar samúð- arkveðjur. Þórdís Hrönn Pálsdóttir. Elsku vinkona. Það er skrýtið að þurfa að kveðja þig í blóma lífsins. Ég trúi ekki enn að þú munir ekki banka á hurðina hjá mér í sumar og segja mér frá ein- hverju sem þú varst að lesa eða hugsa. Þú gast líka alltaf hlustað og við vorum búnar að finna lausnir á öll- um mögulegum eða kannski ómögu- legum vandamálum. Ég kynntist þér fyrst þegar ég var nýkomin utan af landi í MH. Þar þekkti ég fáa og enga sem voru með mér í tímum. Við vorum hins vegar saman í mörgum fögum og einn dag- inn settist þú hjá mér og spurðir hvort það væri ekki í lagi, við værum jú nán- ast með eins stundaskrá. Ég var bæði undrandi og glöð enda var ég farin að halda að þessi skóli hentaði mér alls ekki. Skemmtilegast þótti okkur í myndlist þar sem við hírðumst ofan í gluggalausum kjallara og sköpuðum náttúrlega ódauðleg listaverk, ég man t.d. eftir þér stappandi á gólfinu í klossunum að búa mynd sem var þrykkt á pappír. Þessi mynd hefur reyndar alltaf hangið uppi á vegg hjá mér og núna þykir mér sérstaklega vænt um hana. Á milli tíma vorum við með aðsetur ásamt öðrum krökkum á stað það sem nördarnir söfnuðust saman. Þarna var ró og friður nema kannski helst þegar við nenntum ekki að vera „nördar“. Ég er þakklát fyrir allar samveru- stundirnar og þá kannski sérstaklega hin síðustu ár. Afmælið þitt fyrir vest- an síðasta sumar í „dúkkuhúsinu“ var ógleymanlegt. Ég hafði ekki komið þarna síðan ég var smástýri. Allt var svo breytt en samt alveg nákvæmlega eins. Það sama átti við um þig. Þótt allt væri breytt varstu ennþá sama gamla góða Kristín með þinn smitandi hlátur og áhugann á öllum hlutum. Ég votta ættingjum og vinum sam- úð mína. Guð geymi þig, kæra vinkona, þar til við hittumst á ný. Guðbjörg Svava. Mín ástkæra vinkona. Síðan ég fékk fréttirnar af því að þú værir farin hafa minningar leitað á hugann. Ég kynntist ykkur Hróðnýju árið sem við fórum í 7. bekk en ég held við höfum verið 10 ára þegar ég tók eftir þér fyrst. Þú minntir mig alltaf á fiðrildi því þú varst svo létt á fæti. Mig langaði svo að kynnast þér þá en var of feimin. Þú elskaðir að dansa og varst flott- ur dansari. Fékkst meira að segja viðurnefnið „discoqueen“. Ég þorði ekki út á gólfið en þú hættir ekki fyrr en þú gast komið mér út á gólf til að dansa og var mikið dansað eftir það. Við spjölluðum oft um lífið og til- veruna. Til dæmis spáðum við í hvernig sköpunarsagan og vísindin pössuðu. Mér fannst svarið þitt svo snjallt. Jú, sagan í Biblíunni væri dæmisaga þar sem einn dagur tákn- aði milljónir ára. Sumarbústaðarferð þar sem hin stórmerka kvikmynd Sporið, með ónefndum vinkonum í aðalhlutverki, var tekin er minnisstæð. Það var ekki lítið hlegið á meðan á tökum stóð og svo á eftir þegar við horfðum á af- raksturinn. Manstu nóttina sem við komum ekki heim af MH-balli? Við – engl- arnir. Og skýringin sem foreldrarnir fengu þótti ekki beinlínis halda vatni. – Við vorum að vélrita ritgerð fyrir stráka í skólanum. En það var nú samt sannleikurinn. Og svo urðuð þið Davíð ástfangin. Aumingja fólkið sem reyndi að læra á bókasafninu í Há- skólanum þá önnina því þið töluðuð út í eitt. Brúðkaupsdagurinn ykkar Davíðs er ljúf minning, þegar þú, Hróðný og ég ákváðum að þegja al- veg um að þú ætlaðir að vera í hefð- bundnum brúðarkjól í stað dragtar sem þú hafðir keypt. Og ekki einu sinni pabbi þinn og mamma fengu að sjá þig fyrr en við Hróðný vorum búnar að greiða þér, mála og klæða í brúðarfötin. Svo fluttuð þið til Banda- ríkjanna og eignuðust Steina, Völu og Atla. Það eru margar góðar minningar frá síðasta sumri. Fertugsafmælið þitt á Þingeyri, að sjá litla húsið þitt þar, stelpuhelgin í sumarbústaðnum og að fá ykkur fjölskylduna í mat áð- ur en þið fóruð aftur til Þingeyrar. Listrænir hæfileikar þínir komu snemma í ljós og við vinkonurnar kölluðum þig Errorínu. Svo ætluðum við að monta okkur af að þekkja þig þegar þú værir orðin fræg! Þú varðst listakona og þróaðir meira að segja þína eigin aðferð við glervinnslu. Þú áttir gott með að mynda tengsl við fólk og eignast vini. Þú varst t.d. snögg að heilla Magga manninn minn sem fannst alltaf gaman að fá þig í heimsókn. Í gegnum árin barst dauðinn stundum í tal og viðhorfi þínu til hans má best lýsa með ljóði sem var okkur báðum kært: Mér var sagt að dauðinn væri eins og góður vinur því betur sem þú þekkir hann því minna óttaðistu hann. Ég gekk niður að vatninu og kastaði steini og vatnið gáraðist. Það var kvöld. (Vilmundur Gylfason) Stína. Það er ekki auðvelt að þurfa að kveðja þig núna. Ég veit samt að við sjáumst aftur síðar. Takk fyrir samfylgdina og þar til við hittumst á ný … bless. Davíð, Steini, Vala, Atli, Bergþóra, Guðjón og aðrir aðstandendur. Við vottum ykkur okkar innilegustu sam- úð. Jórunn.  Fleiri minningargreinar um Krist- ínu Guðjónsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu á næstu dög- um. ✝ Elsku faðir minn og afi okkar, PÉTUR PÉTURSSON, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 4. maí kl. 13.00. Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, Pétur Gunnarsson, Eyþór Gunnarsson, Birna Gunnarsdóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir og fjölskylda. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, langafi og langalangafi, HJÖRTUR LEÓ JÓNSSON fv. hreppstjóri, Káragerði, Eyrarbakka, Gauksrima 30, Selfossi, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands þriðjudaginn 24. apríl. Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 4. maí kl. 13:30. Sesselja Ásta Erlendsdóttir, Vigdís Hjartardóttir, Þórður Grétar Árnason, Hreinn Hjartarson, Hólmfríður Rannveig Hjartardóttir, Ólafur Sigfússon, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir og mágkona, INGIBJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR frá Hafnarfirði, lést á Kanaríeyjum mánudaginn 26. mars. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju á morgun, föstudaginn 4. maí kl. 15.00. Marjón Pétur Sigmundsson, Sigfús Þór Sigmundsson, Erna Hjaltested, Benedikt Sigmundsson, Haraldur Sigmundsson, Estefan Leó Haraldsson, Haraldur Benediktsson, Elín Jakobsdóttir, Benedikt Benediktsson, Elín K. Björnsdóttir, Viðar Benediktsson, Birna Benediktsdóttir. ✝ MARÍA TRYGGVADÓTTIR tannsmiður, Reynimel 80, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. maí kl. 11.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélagið. Helgi Gunnarsson, Gunnar K. Gunnarsson, Sigrún Sigurgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, BJARNI Þ. VIGFÚSSON, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 4. maí kl. 15:00. Fyrir hönd aðstandenda, Ingibjörg Bjarnadóttir, Einar Baxter, Vilborg Bjarnadóttir, Þorgils Jónasson, Gunnhildur Bjarnadóttir. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Þúfuseli 2, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 28. apríl. Jarðarförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 4. maí kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð líknardeildar LSH í Kópavogi, sími 543 1159. Ástþór Runólfsson Hildur Ástþórsdóttir, Jóhann Ólafur Jónsson, Guðmundur Már Ástþórsson, Hlín Ástþórsdóttir, Hrafnkell Marinósson, Hulda Ástþórsdóttir, Aðalsteinn Guðmannsson, Runólfur Þór Ástþórsson, Heiðrún Ólöf Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, ELÍAS B. HALLDÓRSSON listmálari, Þinghólsbraut 36, Kópavogi, andaðist á líknardeild Landspítala, Landakoti, miðvikudaginn 2. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ásthildur Í. Sigurðardóttir. ✝ Elskulegur sonur okkar, barnabarn og bróðir, BENEDIKT STEINÞÓRSSON, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 4. maí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Guðrún Björk Benediktsdóttir, Hreggviður Þorsteinsson, Steinþór Benediktsson, Hildur Guðbjörnsdóttir, Jóna B. Guðlaugsdóttir, Benedikt J. Ágústsson, Matthildur Guðbrandsdóttir, Benedikt Þorvaldsson, systkini og aðrir aðstandendur. ✝ Elsku litli drengurinn minn, TRISTAN ALEXANDER JÓNÍNUSON, Nesvegi 49, lést mánudaginn 30. apríl. F.h. annarra aðstandenda, Jónína Eyvindsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.