Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 39
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 8-16.30 handa-
vinna. Kl. 9-16.30 smíði/útskurður. Kl. 9.30
boccia. Kl. 10.30 helgistund. Kl. 11 leikfimi. Kl.
13.30 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, fótaaðgerð, leik-
fimi, myndlist, bókband, alm. handavinna. Minnum
á opið hús laugard. 5. maí og sunnud. 6. maí kl. 13-
17 báða dagana. Sýning á munum unnum í félags-
starfinu. Ingvar Hólmgeirsson mætir með nikk-
una, tískusýning, kynslóðir mætast í línudansi,
flautuleikur barna og söngur.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids spilað í dag
kl. 13. Fróðleg og skemmtileg ferð til Færeyja og
Hjaltlands 11.-18. júní. Farið verður um eyjarnar
undir leiðsögn heimamanna, skoðaðir merkilegir
staðir og reynt að kynnast lífi fólksins og menn-
ingu. Nokkur sæti laus, síðustu forvör að skrá sig
s. 588-2111.
Félag kennara á eftirlaunum | Ekkó-kórinn æfir í
KHÍ kl. 16.45.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og kl.
9.55. Rammavefnaður kl. 9.15. Málm- og silfur-
smíði kl. 9.30. Kristín tekur við munum á vorsýn-
inguna, sem verður um næstu helgi, kl. 13-16.
Stólajóga kl. 17.15, jóga á dýnum kl. 18.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 handa-
vinna, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13
Bridsdeild FEBK og handavinna, kl. 18 jóga.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl.
13 í Mýri, karlaleikfimi kl. 13 og Boccia kl. 14 í Ás-
garði. Handavinnuhorn í Garðabergi kl. 13, opið til
kl. 16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30 helgistund.
Frá hádegi vinnustofur opnar m.a. myndlist umsj.
Nanna S. Baldursd. Á morgun kl. 10.30 kennsla
(karlmenn vantar til þátttöku) í Lancier dansi,
undirbúningur fyrir Landsmót UMFÍ í júlí. Kennari
Kolfinna Sigurvinsd. Uppl. á staðnum og s.
5757720. Strætisvagnar S4, 12 og 17.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrirbænastund kl.
12. Léttur hádegisverður á eftir. Vorferð eldri borg-
ara að Laufási kl. 14. Spjall og umræður í safnaðar-
heimili kl. 20: Klausturlíf og heilagur Frans.
Áskirkja | Kl. 10, foreldramorgunn, opið hús. Kl. 14,
söngstund með Kára organista, kaffi á eftir. Kl. 17,
klúbbur 8-9 ára barna og kl. 18, TTT-starfið. Dagskrá
beggja fundanna er „Föndurdagur“. Allir velkomnir.
Bústaðakirkja | Foreldramorgnar eru samveru-
stundir fyrir foreldra og börn þeirra. Markmiðið með
foreldramorgnum er að efla félagsleg tengsl for-
eldra og barna þeirra í Bústaðarsókn. Við hittumst
vikulega í Bústaðarkirkju kl. 10-12. Allir eru velkomn-
ir.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Foreldra-
morgnar kl. 10 í fræðslusal. Bænastund kl. 12.
Barnastarf 6-9 ára kl. 17.15. (www.digraneskirkja.is)
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar kl. 10-12. Fræð-
andi og skemmtilegar samverustundir, ýmiss konar
fyrirlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð
fyrir börnin. TTT fyrir börn 10-12 ára í Víkurskóla kl.
17-18.
Kristniboðsfélag kvenna | Fundur í dag að Háaleit-
isbraut 58-60. Fundurinn hefst kl. 16 með kaffi.
Fundurinn er í umsjá Ingibjargar Ingvarsdóttur. Allar
konur velkomnar.
Laugarneskirkja | Kl. 12 Kyrrðarstund. Gunnar
Gunnarsson leikur ljúfa orgeltóna og sr. Hildur Eir
Bolladóttir leiðir bænir við altarið. Máltíð í safn-
aðarheimilinu í boði á eftir í umsjá Vigdísar Mar-
teinsdóttur. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 15.15 helgistund í þjónustu-
miðstöð aldraðra í bláu húsunum við Dalbraut. Um-
sjón Sigurbjörn Þorkelsson, framkvæmdastjóri og
meðhjálpari Laugarneskirkju.
Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrða- og fyrirbæna-
stund er hvert fimmtudagskvöld í Vídalínskirkju kl.
21. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna.
Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar.
Furugerði 1, félagsstarf | Föstudaginn 4. maí verð-
ur handverkssýning. Sýningin verður opin kl. 14-18.
Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9-12.30 postulín. Kl. 10-11
boccia. Kl. 11-12 leikfimi. Kl. 12-12.30 hádegismatur.
Kl. 14-16 félagsvist. Kl. 15. Kaffi.
Hraunsel | Moggi rabb og kaffi kl. 9. Leikfimi kl.
11.20. Glerbræðsla kl. 13. Bingó kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá Þorbjörgu kl. 9-
16. Félagsvist kl. 13.30, kaffi og meðlæti í hléi. Fóta-
aðgerðir 588-2320. Hársnyrting 517-3005/849-
8029.
Hæðargarður 31 | Morgunandakt kl. 9.30. Prestar
Bústaðakirkju. Harmónikkuleikur og spjall í hádeg-
inu. Stofnfundur „Baráttusamtaka um bætt veður-
far“ föstud. kl. 14.30. Ást 6. maí kl. 20 í Borgarleik-
húsinu. Ókeypis tölvukennsla. Á föstudag koma
fulltrúar Framsóknar kl. 11. Allir velkomnir á allar
samkomur. S.568-3132, asdis.skuladottir@reykja-
vik.is.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun föstudag er
sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 og
Listasmiðjan á Korpúlfsstöðum kl. 13.
Kvenfélag Kópavogs | Minnum á óvissuferðina 9.
maí nk. Lagt verður af stað kl. 18 frá Hamraborg 10.
Síðasti dagur til að skrá sig í ferðina er 4. maí, upp-
lýsingar hjá Helgu Skúladóttur S:554-4382, Helgu
Jóhannsdóttur S:554-1544, Elísabetu Magnús-
dóttur S:553-5858 og Ingibjörgu Hafberg
S:5643210.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund og léttar
æfingar kl. 10.30. Banki kl. 10-10.30. Boccia, karla-
klúbbur kl. 10.30. Handverks- og bókastofa kl. 9.
Boccia, kvennaklúbbur kl. 13.30. Kaffiveitingar kl.
14.30. Söng og samverustund, barnakór Háteigs-
kirkju syngur fyrir okkur kl. 15. Allir velkomnir.
S.552-4161.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 Bænastund og samvera.
Kl. 13 Opin salurinn. Kl. 13.15-14 Leikfimi. Kl. 14.15
Bingó/félagsvist (annan hvern fimmtudag bingó,
annan hvern fimmtudag félagsvist).
80ára afmæli. RannveigÓlafsdóttir er áttræð í
dag, fimmtudaginn 3. maí.
Hún er stödd á Ítalíu ásamt
eiginmanni sínum.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup, ættar-
mót og fleira lesendum
sínum að kostnaðar-
lausu. Samþykki afmæl-
isbarns þarf að fylgja
afmælistilkynningum.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, einnig
senda tilkynningu og
mynd á netfangið
ritstjorn@mbl.is.
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 3. maí, 123. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.)
Sagnfræðingafélag Íslands,Stofnun um stjórnmál ogstjórnsýslu við Háskóla Ís-lands og Morgunblaðið
standa fyrir málþingi á föstudag und-
ir yfirskriftinni „Stefnir í stjórnar-
kreppu? Fordæmi úr fortíðinni.“
Guðni Th. Jóhannesson sagnfræð-
ingur er einn af skipuleggjendum
málþingsins: „Margt bendir til að
það geti reynst snúið að mynda ríkis-
stjórn eftir kosningar til Alþingis 12.
maí næstkomandi. Ríkisstjórn Sjálf-
stæðis- og Framsóknarflokks hefur
setið samfellt í 12 ár, en oft áður
hafði gengið afar illa að mynda starf-
hæfar ríkisstjórnir og urðu iðulega
stjórnarkreppur af þeim sökum,“
segir Guðni. „Á málþinginu ætlum
við að fara yfir sögu stjórnar-
myndana á Íslandi og sjá hvort eitt-
hvað megi læra af henni, og skoða
um leið hvaða líkur eru á stjórnar-
kreppu upp á gamla mátann.
„Fyrst mun Stefanía Óskarsdóttir
stjórnmálafræðingur fjalla um tíma-
bilið 1944 til 1959 og rekja helstu
drætti í stjórnarmyndunum,“ segir
Guðni. „Á árunum 1959 til 1971 sat
viðreisnarstjórn Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks við völd með friði
og spekt, en ég mun fjalla um
tímabilið frá 1971 til 1995 sem ein-
kenndist af töluverðum óróa í
stjórnarmyndunum.“ Helgi Skúli
Kjartansson sagnfræðingur flytur er-
indið „Hverju breyttu kosningar?“
„Hann ætlar að sýna dæmi þess að
ekki þarf endilega að vera mikið sam-
hengi milli kosningaúrslita og
stjórnarmyndana. Loks mun Agnes
Bragadóttir blaðamaður rýna í hvaða
stjórnarmyndunarkostir eru mögulegir
að loknum kosningum.“
Guðni segir spennandi að bera sam-
an stjórnarmyndunarmöguleika nú og
áður, nú séu ekki jafnskarpar línur og
hugsjónaágreiningur milli flokkanna.
„Stjórnmálaflokkarnir útiloka ekki
samstarfsmöguleika eins og sumir
þeirra gerðu gjarnan hér áður fyrr.
Ekki er að finna togstreitu milli ein-
stakra persóna sem hamlað getur
stjórnarsamstarfi,“ segir Guðni. Einn-
ig sé spennandi að skoða hver staða
forseta verði við stjórnarmyndun.
Málþing föstudagsins er haldið í
stofu 101 í Odda, frá kl. 12 til 13.30.
Aðgangur er ókeypis. Fundarstjóri
er Gunnar Helgi Kristinsson.
Stjórnmál | Málþing í Odda um stjórnarmyndunarmöguleika
Stefnir í stjórnarkreppu?
Guðni Th. Jó-
hannesson fæddist
í Reykjavík 1968.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR
1987, BA-prófi í
sagn- og stjórn-
málafræði frá Há-
skólanum í War-
wick 1991, MA í
sagnfræði frá HÍ 1997 og doktors-
gráðu frá Lundúnaháskóla 2003.
Guðni hefur fengist við rannsóknir,
skrif og fræðastörf, hefur frá 2004
verið sagnfræðingur við Hugvísinda-
stofnun HÍ. Guðni á eina dóttur og er
kvæntur Elizu Reid blaðamanni.
Tónlist
DOMO Bar | Latínkvartett Tóm-
asar R. Einarssonar heldur tón-
leika á Múlanum, Þingholtsstræti
5 n.k. fimmtudagskvöld kl. 21.
Kvartettinn skipa auk bassaleik-
arans Tómasar, bræðurnir Óskar
Guðjónsson, saxófónleikari og
Ómar Guðjónsson, gítarleikari og
Matthías M.D. Hemstock
trommu- og slagverksleikari.
Miðaverð 1000 kr.
Salurinn, Kópavogi | Freydís
Dögg Steindórsdóttir heldur
burtfararprófstónleika á flautu
frá Tónlistarskóla Reykjavíkur kl.
20. Undirleikari er Raul Jiménez.
Aðgangur ókeypis og allir vel-
komnir.
Myndlist
Safnahúsið á Sauðárkróki | Í
Safnahúsinu á Sauðárkróki
stendur nú yfir samsýningin Þrí-
hljómur sem er sýning myndlist-
armannanna, Guðbrands Ægis,
Ella og Aðalsteins Svans. Í and-
dyri sýnir Hilmir Jóh. vatnslita-
vísur. Opið kl. 14-19.
Leiklist
Félagsheimilið Herðubreið |
Leikfélag Seyðisfjarðar er 50 ára
í ár. Haldið verður upp á afmælið
með leiklestri og söngvum úr
ýmsum leikritum, sem sýnd hafa
verið í gegnum tíðina laugardag-
inn 5. maí kl. 20.30. Aðeins þetta
eina kvöld.
Fyrirlestrar og fundir
Umhverfis- og náttúrufræði-
félag Mosfellsbæjar | Jóhann Óli
Hilmarsson, fuglafræðingur, segir
frá fuglalífinu við Leirvog. Allir
sem áhuga hafa fyrir náttúru-
skoðun hvattir til að koma og
hafa með sér gesti. Þeir sem eiga
góða handsjónauka ættu að hafa
þá meðferðis. Hittumst á göngu-
stígnum neðan við Leirutanga og
Arnartanga kl. 10. Ekkert þátt-
tökugjald.
Fréttir og tilkynningar
Neskirkja | Aðalfundur Nýrrar
dögunar verður haldinn fimmtu-
daginn 10. maí kl. 20. Venjuleg
aðalfundarstörf, allir velkomnir.
Útivist og íþróttir
Skokkklúbbur Icelandair |
Skokkklúbbur Icelandair stendur
fyrir hlaupi hringinn í kringum
Reykjavíkurflugvöll, fimmtudag-
inn 3. maí næstkomandi kl. 19.
Vegalengdin 7 km.
Skráning á www.hlaup.is eða á
keppnisdaginn að Hótel Loftleið-
um.
Þátttökugjald 1000 kr. fyrir full-
orðna og 500 kr. fyrir 14 ára og
yngri.
LEIKMAÐUR brasilíska
liðsins Santos Futbol Club,
Dionisio, stingst hér í gras-
ið í leik liðsins gegn Cara-
cas Club í suður-amerísku
deildinni, Copa Libertado-
res. Leikmaður Caracas
Club, Lionel Vielma, braut
á Dionisio.
Leikurinn fór fram í
Caracas í Venesúela. Ekki
fylgir sögunni hvernig
Dionisio leið eftir stung-
una. Hann hlýtur í það
minnsta að hafa fengið
h́álsríg.
Á hausnum
Reuters
Skartgripir
Fjallkonunnar
Reynomatic
Café Mílanó
FRÉTTIR
SKOKKKLÚBBUR Icelandair
stendur í 13. sinn fyrir hlaupi
hringinn í kringum Reykjavíkur-
flugvöll í dag, fimmtudaginn 3. maí
klukkan 19. Vegalengdin er 7,0 km.
Veglegir farandbikarar eru
veittir fyrir fyrsta karl og fyrstu
konu í mark. Allir sem ljúka hlaup-
inu fá verðlaunapening. Dregnir
verða út vinningar og eru ferða-
verðlaun í boði.
Skráning á Hlaupasíðunni
(www.hlaup.is) og á keppnisdaginn
frá klukkan 17 á Hótel Loftleiðum.
Þátttökugjald kr. 1.000 fyrir full-
orðna og kr. 500 fyrir 14 ára og
yngri.
Hlaupið kringum
flugvöllinn
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Reykja-
vík efna til vorferðar á varnar-
svæðið á Keflavíkurflugvelli á laug-
ardaginn. Árni Sigfússon bæjar-
stjóri tekur á móti hópnum og
Kjartan Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Þróunarfélags Keflavíkur-
flugvallar, sýnir hópnum fyrrver-
andi varnarsvæðið. Fararstjórar
eru Guðlaugur Þór Þórðarson al-
þingismaður og Guðfinna S. Bjarna-
dóttir, frambjóðandi í Reykjavík,
ásamt fleiri frambjóðendum.
Boðið verður upp á súpu og brauð
á öllum kosningaskrifstofum fyrir
ferðina frá kl. 11. Í ferðinni verður
boðið upp á kaffi og meðlæti.
Lagt verður af stað með rútum kl.
13 frá eftirtöldum kosningaskrif-
stofum Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík: Húsi verslunarinnar,
Kringlunni 7, JL-húsinu, Hring-
braut 119, Hverafold 5, Langholts-
vegi 43, Álfabakka 14a og Hraunbæ
102B, sími: 567-4011.
Vorferð á Kefla-
víkurflugvöll
ÞAÐ er fastur siður hjá mörgum
átthagafélögum að bjóða til vor-
fagnaðar hvert vor. Félag Snæfell-
inga og Hnappdæla í Reykjavík,
sem hefur nú starfað í 68 ár, hefur
þennan sið í hávegum og boðar til
fagnaðar fyrsta sunnudag í maí ár
hvert.
Vorfagnaður FSH 2007 verður í
Fella- og Hólakirkju sunnudaginn
6. maí kl. 14. Vorboðinn, kór aldr-
aðra í Mosfellsbæ, mun syngja und-
ir stjórn Páls Helgasonar. Þórólfur
Árnason fyrrverandi borgarstjóri
verður sérstakur gestur hátíðar-
innar. Að lokinni dagskrá verða
bornar fram veitingar í safnaðar-
heimili.
Vorhátíð Snæfell-
inga í Reykjavík
MENNT - samstarfsvettvangur at-
vinnulífs og skóla, heldur félags-
fund um nýjan framhaldsskóla í
dag fimmtudag kl. 15–17 í hátíðar-
sal Háskóla Íslands.
Á fundinum verður gerð grein
fyrir helstu niðurstöðum og
áherslum í skýrslu starfsnáms-
nefndar um nýjan framhaldsskóla
og stöðu málsins. Þá munu fulltrúar
aðila vinnumarkaðarins og mennta-
stofnana sem eiga aðild að Mennt
gera grein fyrir sínum viðhorfum
og áherslum. Fulltrúar stjórnmála-
flokkanna gera í lok fundarins
grein fyrir viðhorfum flokkanna til
þeirra meginsjónarmiða sem fram
koma í tillögunum um „Nýjan fram-
haldsskóla“, segir í frétt frá Mennt.
Mennt ræðir nýjan
framhaldsskóla