Morgunblaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GETTU HVAÐ GRETTIR?
ÞAÐ ER GUFUSOÐIÐ GRÆNMETI
Í MATINN Í KVÖLD
ÞÚ ERT BARA AÐ
BULLA NÚNA OG ÞÚ
VEIST ÞAÐ
ÞÚ ERT
EKKI AÐ
MALA
ANSANS!
ÉG GLEYMDI
AFTUR
SKURNINNI!
HÚN VILL
FREKAR
VERA
FRÆÐARI
VÁ! ÉG
HELD AÐ
ÞETTA SÉ
EKKI HOLLT
KENNARINN MINN VERÐUR
REIÐUR! VIÐ ÁTTUM AÐ TAKA
EGGJASKURN MEÐ OKKUR
TIL AÐ BÚA TIL SNJÓHÚS
HÚN TEKUR STARFINU
ALVARLEGA... HÚN VILL EKKI
VERA KÖLLUÐ KENNARI
GÓÐAN DAG, ÉG X-387
KÖNNUNARVÉLMENNI
FRÁ PLÚTÓ
MM
SKYNJARAR MÍNIR SÝNA
AÐ MIKIÐ SÚKKULAÐI
SÉ Í NÁNASTA NÁGRENNI.
VINSAMLEGAST SETJIÐ
SÚKKULAÐI Á ÞENNAN ARM
TIL RANNSÓKNAR
ÞAÐ ER AÐ
KOMA
MATUR
MÉR VERÐUR
AÐ TAKAST
ÆTLUNARVERK
MITT. ÞÉR
VERÐUR EYTT
JARÐARBÚI!
FARÐU
AFTUR TIL
PLÚTÓ X...
EITTHVAÐ
STJÓRNVÖLD
VERÐA AÐ GERA
EITTHVAÐ FYRIR
LITLA MANNINN!!
HVER SAGÐI
ÞETTA? HANN!
ATLI, ÉG ER EKKI
FRÁ ÞVÍ AÐ ÞAÐ SÉ
EITTHVAÐ TIL Í ÞESSUM
KENNINGUM UM
GRÓÐURHÚSAÁHRIF
NÚ, AF
HVERJU?
ÞETTA ER ANNAR
ÁLFURINN SEM ÉG
SÉ SEM GENGUR UM
Á SUNDSKÝLU
LALLI, GOTT AÐ
ÞÚ GAST KOMIÐ
JÁ... ÞAÐ VAR SAMT
EKKI AUÐVELT AÐ
KOMAST ÚR VINNUNNI
ÉG VONA AÐ ÞIÐ GETIÐ
FUNDIÐ ANNAN TÍMA TIL
ÞESS AÐ ÆFA EN KLUKKAN
EITT Á HÁDEGI
ÉG ÞOLI
EKKI AÐ
VAKNA SVONA
SNEMMA
ÉG
LÍKA
ÞAÐ ER TIL
MEIRA KAFFI
EF ÞÚ VILT
GETUR ÞÚ
EKKI FARIÐ
HRAÐAR?
ÉG ER AÐ
MISSA AF
VÉLINNI!
SEGÐU
UMFERÐAR-
TEPPUNNI ÞAÐ
SEINNA...
HEY!
ÞÚ!
ALLS EKKI
SLÆMUR DAGUR
dagbók|velvakandi
Kosningar í nánd
JÁ, nú má heyra að það er að koma
kosningahljóð í flokkana. Þeir eru
þegar byrjaðir að lofa okkur kjós-
endum bæði gulli og
grænum skógum að
launum, bara ef við
viljum kjósa þá.
Reynsla mín í gegn-
um árin af þessum
kosningaloforðum er
ekki alltof góð og
raunar sýnist manni að útkoman sé
helst sú að sú eða sá sem lofar mestu
endar bara með að svíkja mest. Hvað
þessi nýju sprengiframboð varðar þá
hef ég ekki trú á að þau geri annað af
sér en að auka enn á úlfúð og ósam-
heldni. Nokkuð er deilt um útlend-
inga sem flutt hafa til okkar síðast-
liðin ár, svokallaða nýbúa. Auðvitað
tökum við vel á móti gestum, hvern
lit sem þeir kunna að hafa eða hvaða
trúarbrögð þeir aðhyllast. Aðal-
atriðið er að þetta sé gott og heið-
arlegt fólk. Svo lengi sem við höldum
frelsi okkar og getum sjálf ákveðið
hversu stór þessi gestahópur má
vera þá er þetta allt gott og blessað.
Við skulum vera þess minnug að í fá-
tækari löndum Evrópusambandsins
eru á milli 20 og 30 milljónir manna
atvinnuleysingjar sem eru tilbúnir
að prófa eitthvað nýtt þar sem
ástandið getur í mörgum tilfellum
ekki versnað. En bara ein milljón af
þessu fólki væri ótrúlega stórt
vandamál fyrir okkar litla land með
sína 300.000 íbúa. Við Íslendingar
værum hreinlega skák og mát. Og
óneitanlega vofir þetta yfir okkur.
Nú, þarna er um að ræða eina af
stærstu hættum sem biðu okkar við
innlimun inn í ESB en óneitanlega
eru hætturnar fleiri ef sú óhamingja
myndi dynja yfir að við yrðum inn-
limuð. Sannleikurinn er bara sá að
öll þessi loforð og tilboð sem flokk-
arnir eru að veifa framan í okkur, nú
í aðdraganda kosninga, eru upp til
hópa algjör aukaatriði. Sumir flokk-
ar neyta allra bragða til að plata okk-
ur inn í ESB, – með öðrum orðum að
selja frelsi föðurlandsins í klærnar á
hinu volduga Evrópusambandi.
Allavega: Kosningarnar í vor eru
hreinlega barátta á milli íslenskra
frelsissinna og svokallaðra Evrópu-
sinna. Öll önnur baráttumál og hug-
sjónir dæmast hér aukaatriði.
Karl Jónatansson,
harmónikkuleikari.
Framkoma í Kastljósi
ÉG vil gera athugasemdir við fram-
komu fréttamanna í Kastljósi. Sumir
þeirra eru svo aðgangsharðir við við-
mælendur sína að jaðrar við dóna-
skap. Framkoma Helga Seljan við
Jónínu Bjartmars á dögunum var
fyrir neðan allar hellur. Þá finnst
mér Jóhanna Vilhjálmsdóttir hafa
stundum gengið of langt. Það á að
vera sjálfsögð krafa að fréttamenn í
Kastljósi sýni viðmælendum sínum
virðingu.
Það verður líka að gera sömu kröf-
ur til gesta í Kastljósi. Kristrún
Heimisdóttir í Samfylkingunni fór
algerlega yfir strikið fyrir skömmu
þegar hún ræddi við Ragnheiði Elínu
Árnadóttur. Kristrún gjammaði sí-
fellt fram í og eyðilagði þáttinn.
Bryndís Bjarnadóttir.
Eyrnalokkur tapaðist
Á peysufatadag Verslunarskólans sl.
fimmtudag tapaðist íslenskur víra-
virkiseyrnalokkur í miðbæ Reyjavík-
ur eða við Háskóla Íslands. Finnandi
vinsamlegast hafið samband við
Katrínu í s. 690-2989. Fundarlaun.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÞAÐ svíkur engan að ganga niður að höfn, skoða skipin og mannlífið. Mál-
arar voru að störfum í slippnum þegar ljósmyndara bar að garði.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Á höfninni
FRÉTTIR
VINNURÉTTARDAGUR Háskól-
ans á Bifröst verður haldinn föstu-
daginn 4. maí nk. á Bifröst.
Frummælendur verða Magnús
M. Norðdahl, deildarstjóri lög-
fræðideildar ASÍ, sem talar um al-
þjóðlegan vinnurétt – nýja Evrópu-
samninga og nýjar samþykktir
alþjóðavinnumálastofnunarinnar;
Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlög-
fræðingur Samtaka atvinnulífsins,
fjallar um lögfræðileg álitaefni
varðandi frumvarp endurskoðunar-
nefndar jafnréttislaga; Elín Blön-
dal, dósent við Háskólann á Bifröst,
fjallar um vottun jafnlaunastefnu;
Ástráður Haraldsson, dósent við
Háskólann á Bifröst, fjallar um nýj-
ar takmarkanir á rétti atvinnurek-
enda til að ráða og reka, Bergþóra
Ingólfsdóttir, hdl. Mandat lög-
mannsstofu, um ábyrgð notenda-
fyrirtækja á launum leigðra og út-
sendra starfsmanna og Lára V.
Júlíusdóttir, lektor við Háskóla Ís-
lands, um rétt atvinnurekenda til
skaðabóta við brotthlaup starfs-
manns úr starfi – heimild til hýru-
dráttar og fleiri leiðir.
Fundarstjóri verður Bryndís
Hlöðversdóttir, forseti lagadeildar
Háskólans á Bifröst.
Áhugasömum er bent á að frek-
ari upplýsingar er að finna á heima-
síðu Rannsóknarseturs vinnuréttar
og jafnréttismála www.rvj.bifrost.is
og á vef Háskólans á Bifröst
www.bifröst.is og þar geta þeir
skráð sig til þátttöku.
Vinnuréttardagur
Háskólans á Bifröst
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg