Morgunblaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 42
É́g hugsa ekkert um markaðssetningu eða stórgróða, enda verður hann aldrei … 43 » reykjavíkreykjavík Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA er samsýning fólks sem vinnur í teikni- myndageiranum. Þetta er sem sagt fólk sem hef- ur unnið við teiknimyndaseríur, auglýsingar og allt þetta,“ segir Marta María Jónsdóttir sem er einn 35 listamanna sem opna samsýningu í Stay Gold galleríinu í Brooklyn í New York á morgun. Um er að ræða árlega sýningu sem nefnist Too Art for TV, sem gæti útlagst „Of listrænt fyrir sjónvarp“ á íslensku, en allir eiga myndlistar- mennirnir sameiginlegt að vinna við teiknimynd- ir í hinum ýmsu formum. „Sýningin gengur út á að sýna myndlist eftir þetta fólk, það er að segja teikningar, skissur og myndir - eitthvað annað en það sem er vænst af fólkinu þegar það er að vinna fyrir einhvern,“ segir Marta, en á meðal þeirra sem sýna er fólk sem hefur unnið við stór- ar teiknimyndir á borð við Ice Age og A Scanner Darkly. „Sumir hafa myndlistarmenntun en aðr- ir ekki. Þetta er fólk sem vinnur mikið fyrir sjónvarp og hefur ekki tíma til að sinna sínum eigin hugmyndum vegna þess að það er alltaf að vinna fyrir sjónvarpið og þennan geira,“ segir Marta. Var að eignast barn Aðspurð segist hún ætla að sýna tvö verk á sýningunni. „Ég mun sýna eina málað mynd og eina teikningu. Þetta er hvort tveggja undir áhrifum frá teiknimyndageiranum og súrreal- isma, þar sem hugmyndaflugið fær að ráða.“ Marta segist hafa stundað nám með Jessicu Milazzo sem er aðstoðarsýningarstjóri við sýn- inguna. „Ég, hún og strákur sem heitir Alex Smith sem er líka að sýna höfum verið í miklu sambandi síðan við vorum að læra saman. Hún fékk okkur til að sækja um að taka þátt í þessari sýningu,“ segir Marta sem lærði í London og bjó þar í sjö ár. „Ég hef unnið að myndlist og er með mastersgráðu í myndlist frá Goldsmith’s Col- lege. Eftir það var ég að gera myndlist, mála og vinna við video og hitt og þetta, en svo færði ég mig yfir í hreyfimyndageirann,“ segir Marta, en hún hefur meðal annars unnið fyrir Cartoon Network sjónvarpsstöðina og Game Boy leikja- tölvuna frá Nintendo. Hún hefur verið búsett hér á landi um tveggja ára skeið og hefur meðal annars unnið fyrir Þrjá plús, Fíton og fleiri aug- lýsingastofur. Hún segist hins vegar alltaf unnið að myndlist með og því sé mikill heiður að vera boðið að taka þátt í sýningu sem þessari. „Þetta er líka mjög skemmtilegt, og það er frábær hug- mynd að setja upp svona sýningu.“ Eins og áður segir verður sýningin opnuð á morgun, en Marta sér sér þó ekki fært að vera viðstödd. „Ég var að eignast barn þannig að ég kemst ekki. Ég treysti mér ekki til að fara með lítið barn til New York,“ segir hún í léttum dúr. Morgunblaðið/G. Rúnar Fjölhæf Undir áhrifum frá teiknimyndageiranum og súrrealisma. Marta María og tvö verk eftir hana, „Vél“ og „Stelpa“. Of listrænt fyrir sjónvarp www.staygoldgallery.com  Næstkomandi mánudag kl. 21 ættu allir djassáhugamenn að hafa fjölmennt á Domo því þar hyggst tríóið Tyft troða upp á á tónleikum sem að öllum líkindum verða þeir einu sem sveitin leikur á á Íslandi í ár. Sveitina skipa djasskanónurnar Hilmar Jensson, Jim Black og Andrew D’Angelo en þeir hafa leik- ið saman í meira en áratug við harla góðan orðstír. Djasstríóið Tyft treður upp á Domo  Höfum eitt á hreinu; þetta er ekki grín. Línudanshátíð í Reykja- vík hófst í gær og af því tilefni verð- ur boðið upp á ókeypis línudans- kennslu í Ráðhúsinu frá 17:30 til 20 í kvöld. Stöðug dagskrá verður svo í Laugardalshöll og á Broadway alla helgina, en hápunkturinn er stórsýning með breska línudans- aranum Rob Fowler á laugardags- kvöldið. Fowler þessi kemur frá Liverpool en ekki er vitað hvort hann leggur stund á knattspyrnu líkt og hinn heimsþekkti nafni hans. Nánari upplýsingar á linudans.is. Rob Fowler frá Liver- pool kennir línudans  Í kvöld verða haldnir minning- artónleikar Benedikts Inga Ár- mannssonar, sem lést í apríl sl. Ágóðinn af tónleikunum rennur til Félags ábyrgra feðra, til að ná fram jafnrétti í forsjármálum, að því er fram kemur á vefnum midi.is. Tónleikarnir verða haldnir á NASA og hefjast kl. 20. Fram koma m.a. K.K, Royal For- tun, Appolonian, Danni Pollock og Mongo Lidos og Leaves. Aðgangs- eyrir er 1.000 kr. Minningartónleikar ÓLAFUR de Fleur Jóhannesson kvikmyndagerðarmaður segist ætla að hætta „kvikmyndaströgglinu“ og flytja til Chicago í ágúst næstkom- andi, á bloggi sínu, www.poppoli- .blog.is. „Það er lygi,“ segir Ólafur og skellihlær þegar blaðamaður ber þetta undir hann. „Fólk er alltaf að spyrja mig hvað ég sé að fara að gera næst og ég veit það ekki. Þá er ég með nýja afsökun í hvert skipti,“ segir Ólafur. „Þetta er hrein lygi og það verður komin önnur lygi á síð- una í næstu viku.“ Tökur standa enn yfir á kvik- myndinni Stóra planið, sem Ólafur leikstýrir en handrit hennar byggir að hluta á bókinni Við fótskör meist- arans eftir Þorvald Þorsteinsson. Ólafur segir þrjár vikur eftir af tök- um. Með aðal- hlutverk fara Pét- ur Jóhann Sigfússon, Egg- ert Þorleifsson og Ingvar Sigurðs- son. Þá þreytir Unnur Birna Vil- hjálmsdóttir, ungfrú heimur 2005, frumraun sína í kvikmynda- leik og stendur sig vel, að sögn Ólafs. Tökur á Stóra Planinu hófust 2. apríl. „Við erum búin með fimm vik- ur og eigum þrjár vikur eftir,“ segir Ólafur. Hann klippi myndina jafn- óðum og fínklippi síðar. Ólafur gerir sér vonir um að frumsýna kvik- myndina í október næstkomandi. Því lýgur hann ekki. „Hrein lygi“ í hverri viku Meistarinn Pétur Jóhann Sigfússon (t.v.) og Eggert Þorleifsson horfast í augu í einu atriða Stóra plansins. Ólafur de Fleur Jóhannesson Ljósmynd/Nína Björk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.