Morgunblaðið - 03.05.2007, Síða 45

Morgunblaðið - 03.05.2007, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 45        Nýr þáttur er kominn á mbl.is þar sem landsliðskokkarnir Ragnar og Bjarni galdra fram girnilegar bakaðar kartöflur með rósmaríni og ekta kartöflumauk með hvítlauk Þú sérð uppskriftirnar á Vefvarpi mbl.is FUNDUR UM MÁLEFNI ELDRI BORGARA Laugardaginn 5. maí kl. 14.00 Á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins Langholtsvegi 43 (gamla Landsbankaútibúið) Sérstakir gestir fundarins verða Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður sem skipar fyrsta sæti í Reykjavík norður, Guðfinna Bjarnadóttir fyrrverandi rektor HR sem skipar annað sætið í Reykjavík norður og Jórunn Frímannsdóttir borgar- fulltrúi og formaður Velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Fjölmennið á fundinn, allir velkomnir Stjórnir sjálfstæðisfélaganna í Langholts, Laugarnes og Túnahverfum Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins Langholtsvegi 43 (gamla Landsbankaútibúið) sími 569 8141 langholtsvegur@xd.is Hlíðasmári 15 • 201 Kópavogur • Sími: 585 0100 Guðmundur St. Ragnarsson - Löggildur fasteignasali                ! "#  $%  OPIÐ HÚS Í DAG ARNARSMÁRI 26 - 3. HÆÐ FIMMTUDAG KL. 19.00-19.30 Húseign kynnir glæsilega 5 herbergja íbúð á besta stað í Kópavogi. Þrjú góð barnaherbergi m. góðum skápum og rúmgott hjónaherbergi. Fallegt eldhús. Sameign er mjög snyrtileg með teppum á gólfi. Allar nánari upplýsingar veitir Baldvin Ómar í síma 898 1177 eða á skrifstofu Húseignar í síma 585 0100. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÞAÐ koma hingað franskir forn- leifafræðingar sem fara að grafa í jörðu í Grófinni og við það rask vaknar risi sem hefur búið undir borginni í árhundruð. Hann reiðist raskinu og vinnur ýmis skemmd- arverk en þá kalla borgaryfirvöld eftir Risessunni til að bjarga borg- arbúum frá þessum ógurlega risa.“ Svona lýsti Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík, sögunni sem franska götuleikhúsið Royal de Luxe ætlar að leika fyrir Íslendinga dagana 11. og 12. maí næstkomandi í miðborg Reykjavíkur. Boðað var til blaðamannafundar í Hafnarhúsinu gær þar sem götuleik- húsið var kynnt en koma þess mark- ar upphaf Listahátíðar og lok Pour- quoi Pas? – fransks vors á Íslandi 2007. Átta metra há strengjabrúða Franska götuleikhúsið nýtur hylli um allan heim fyrir stórsýningar sem það semur frá grunni og flytur með risafígúrum sem arka um götur líkt og Risessan sem er átta metra há strengjabrúða og 680 kg að þyngd. Hrefna sagðist lofa mikilli skemmtun en einnig að sýningin myndi hafa mikil áhrif á daglegt líf borgarbúa þessa tvo daga og fólk þyrfti að sýna þolinmæði. „Það þarf að loka götum í mið- bænum tímabundið og lögreglan mun stýra umferð á meðan götuleik- húsið er á ferðinni. Öll miðborgin verður leiksvið og fólk verður að taka tillit til þess,“ sagði Hrefna og bætti við að það væru margir sem kæmu að þessu verkefni. „Það eru margir sem leggja hönd á plóginn til að mæta kröfum listamannanna en það þarf að aðstoða þá við ýmsa hluti. T.d. þarf að búa til stóran „geysi“ sem gýs á nokkurra mínútna fresti í þessa daga, skera í sundur strætisvagn og fólksbíla og koma fyrir útisturtu á hafnarbakkanum. Nú þegar er kominn hingað fjöru- tíu manna hópur Frakka sem vinnur að undirbúningi sýningarinnar en allt í allt koma í kringum tvö hundr- uð manns að þessu verkefni.“ Fyrsta sinni á Norðurlöndunum Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri hjá framkvæmdasviði Reykjavík- urborgar, sagði að þá hefði ekki órað fyrir umfanginu í kringum götuleik- húsið. „Við vorum mjög vel und- irbúin, búin að hitta hópinn og fara yfir alla hluti en þegar á hólminn er komið eru hlutirnir kannski svolítið flóknari en til stóð,“ sagði Hrólfur, bjartsýnn þrátt fyrir smáörðugleika. Með Royal de Luxe-hópnum starfar fjöldi dansara, leikara, tón- listarfólks og tæknimanna en t.d. þarf um fimmtán manns til að stýra hreyfingum einnar brúðu. Leikhóp- urinn var stofnaður árið 1979 af Jean Luc Courcoult sem er jafn- framt leikstjóri og aðalhugmynda- smiður hans. Hópurinn ferðast um allan heim með sýningar sínar en sýningin hér á Íslandi er sú fyrsta á Norðurlöndunum og hafa þau aldrei sýnt í jafnlítilli borg og Reykjavík. Vilhjálmur Vilhjálmsson borg- arstjóri var viðstaddur blaðamanna- fundinn og sagðist fagna því mikla menningarstarfi sem hefur átt sér stað milli Íslendinga og Frakka. „Það er mikil spenna í borginni yfir því að eitt stærsta götuleikhús í heimi skuli fara á stjá hér og ég vona að það hafi ekki áhrif á alþingiskosn- ingarnar og trufli ekki kjósendur,“ sagði Vilhjálmur, sem hafði greini- lega smááhyggjur af því að tréris- arnir myndu hindra fólk í að komast á kjörstað hinn 12. maí. Risagötuleikhúsið Royal de Luxe opnar listahátíð Morgunblaðið/ÞÖK Stofnandi Jean Luc Courcoult, leikstjóri og stofnandi Royal De Lux, tjáir sig á blaðamannafundinum í gær. Risafígúrur og sundur- skorinn strætisvagn Risar Frá sýningu Royal de Luxe á sögu Jules Verne um ferð soldáns- ins í Indlandi á fíl sínum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.