Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 47
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 8 og 10:30 B.i. 16 ára
M A R K W A H L B E R G
Í GÆR VAR ÞAÐ
HEIÐURINN
Í DAG ER ÞAÐ
RÉTTLÆTIÐ
kl. 8 og 10:20 B.i. 16 ára
V.I.J. Blaðið
eeee
LIB Topp5.is
Sýnd kl. 6 Ísl. tal
eeee
„Líflegur og hugvitssam-
legur spennutryllir“
SV, MBL
eee
„Fyrsti sumar-
smellurinn í ár“
MMJ, Kvikmyndir.com
ÍSLEN
SKT
TAL
Sýnd kl. 6
eee
LIB Topp5.is
SPRENG-
HLÆGILEG
MYND FRÁ
BEN STILLER
Fór beint
á toppin
í USA
SJALDAN EÐA ALDREI HAFA
TVEIR KARLMENN DANSAÐ JAFNVEL SAMAN!
eee
S.V. - MBL
www.laugarasbio.is
SÁ SEM SÉR FRAMTÍÐINA GETUR BJARGAÐ HENNI
EFTIR HÖFUND MINORITY REPORT OG BLADE RUNNER
www.haskolabio.is Sími - 530 1919
2 fyr
ir 1
Heimavöllur íslenskra kvikmyndagerðar
Next kl. 5.45 - 8 - 10.15 B.i. 14 ára
Mýrin (2 fyrir 1) kl. 5.40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
Köld slóð (2 fyrir 1) kl. 5.50 - 8 - 10.10 B.i. 16 ára
Sunshine kl. 8 - 10.10 B.i. 16 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 6
Stærsta
kvikmyndahús
landsins
2 fyr
ir 1
ÍSLEN
SKT
TAL
SÓLIN ER AÐ DEYJA. ER HÆGT AÐ BJARGA HENNI?
eeee
V.J.V. Topp5.is
MÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ
MARK WAHLBERG FRÁ LEIK-
STJÓRA "TRAINING DAY"
NICOLAS CAGE - JULIANNE MOORE - JESSICA BIEL
- Kauptu bíómiða í háskólabíó á - Kauptu bíómiða í háskólabíó á
STEFNIR Í STJÓRNARKREPPU?
Fordæmi úr fortíðinni
Málþing um stjórnarmyndanir á vegum
Sagnfræðingafélags Íslands, Stofnunar um stjórnsýslu
og stjórnmál og Morgunblaðsins.
Staður og stund: Oddi, hús félagsvísindadeildar Háskóla Íslands,
föstudaginn 4. maí, 12:00-13:30.
Föstudagurinn, 4.maí
frá kl. 12:00-13:30
Dagskrá:
Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur:
Þingræði og myndun ríkisstjórna, 1944-1959.
Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur:
Stjórnarandstöðumyndunarviðræður, 1971-1995.
Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur:
Hverju breyttu kosningar?
Agnes Bragadóttir blaðamaður:
Stjórnarmyndunarkostir í kjölfar kosninga.
Fundarstjóri verður Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„VELKOMINN heim,“ segir í lok
fréttatilkynningar vegna enduropn-
unar Gauks á Stöng, þess fornfræga
skemmtistaðar sem hefur nú verið
lokaður um hríð. Víst er að margir
hafa saknað staðarins sem á sér tutt-
ugu og þriggja ára gamla sögu, en
það er Kiddi Bigfoot, athafnamaður
með meiru, sem sviptir upp dyr-
unum á nýjan leik. „Ég var lengi bú-
inn að velta þessu fyrir mér og það
var svo í byrjun apríl sem samningar
náðust. Við höfum verið að taka til
og standsetja staðinn síðan þá,“ seg-
ir Kiddi. Engar stórvægilegar breyt-
ingar hafa verið gerðar á staðnum en
markmiðið er að endurvekja gömlu
Gauks á Stöng stemninguna og hefja
aftur sveitaböll á mölinni. „Ég vissi
sem er að húsið er bráðgott fyrir
tónleikahald og í því er gott hjarta.
Ég hef því engar áhyggjur af því að
staðurinn muni ekki spjara sig, þetta
er meira spurning um að fleyta
þessu áfram og fá sama gamla hjart-
að til að slá aftur.“
Um helgar er stefnan sett á „30+“
hljómsveitir eins og Kiddi orðar það,
málið sé að fá fólk inn á tjúttið.
Öll vikan undir
„En svo verður leitað leiða til að
gefa ungum og upprennandi sveitum
tækifæri. Það eru sérfræðingar út
um allan bæ með puttann á púlsinum
og ég hlusta á þá og nýt ráðgjafar
frá þeim. Það er allt opið hvað tón-
leikhald varðar og það er öll vikan
undir í þeim efnum.“ Gaukur á
Stöng verður ekki næturklúbbur
með opið fram undir morgun segir
Kiddi jafnframt og innan tíðar verð-
ur opnað fyrir veitingar. Um skort á
tónleikastöðum í bænum segir hann
að svo virðist sem það sé farið að
rofa til.
„Það er t.d. að rísa nýr tónleika-
staður hérna rétt hjá (Kiddi vísar í
nýjan stað sem Inga Sólveig Frið-
jónsdóttir og Gylfi Blöndal eru að
reisa í Hafnarstræti). Svo hefur
Domo staðið fyrir tónleikum og eitt-
hvað hefur verið um þá á Grand
Rokk að undanförnu. Svo eru fram-
kvæmdirnar hérna við höfnina ekki
amalegar.“
Eins og áður segir eru það Vinir
vors og blóma sem opna staðinn,
föstudaginn 11. maí, en daginn eftir
munu gleðigjafarnir í Buff sjá um
fjörið og víst að stutt verður í kosn-
inga- og Evróvisjóngrín hjá köpp-
unum.
Hjartað slær á ný
Gaukur á Stöng opnar aftur eftir lokun, 11. maí næst-
komandi. Vinir vors og blóma leika þá fyrir dansi.
Morgunblaðið/RAX
Vertinn Kiddi Bigfoot blæs nýju lífi í Gaukinn um helgina.