Morgunblaðið - 03.05.2007, Page 51
• Þau eru 20 sinnum líklegri til að eiga við hegðunarvandamál að stríða.
• Þau eru 20 sinnum líklegri til að lenda í fangelsi.
• Þau eru 9 sinnum líklegri til að hætta í skóla.
• Þeim skilnaðarbörnum sem halda góðu sambandi við báða foreldra vegnar betur.
Hlúa þarf að sambandi barna við feður sína eftir skilnað og tryggja börnunum
þennan sjálfsagða rétt með breytingum á núverandi lögum.
Vilt þú, frambjóðandi góður, beita þér í eftirfarandi málum ?
1. Að dómarar fái heimild til að dæma foreldrum sameiginlega forsjá, enda stríði það ekki gegn
hagsmunum barnsins. Þá fer enginn sigurviss í dómssal og vilji til samvinnu og samábyrgðar
eykst. Slík dómaraheimild var lögfest í Frakklandi fyrir 13 árum.
2. Að ástæðulausar tálmanir á umgengni við barnið verði gerðar refsiverðar sem um ofbeldi væri
að ræða. Lög landsins kveða á um rétt barnsins til umgengni við báða foreldra en yfirvöld eru
úrræðalaus þegar kemur að tálmunum í þeim efnum. Í Frakklandi er refsiramminn allt að 12
mánaða fangelsi.
3. Að breyta m.a. 30 gr. barnalaganna sem segir á mannamáli að ef forsjárforeldri fellur frá eftir
eitt ár í sambúð með nýjum maka – þá fer nýi makinn sjálfkrafa með forsjá barnsins – en ekki
blóðforeldri þess.
Frambjóðendur !
Er jafnrétti fyrir alla – konur, menn og börn?
Vissuð þið að skilnaðarbörn á Íslandi eru nærri 20 þúsund?
Rannsóknir á skilnaðarbörnum sýna að:
Fréttamenn. Spyrjið frambjóðendur-
12 þúsund feður bíða svara
Feður, mæður, afar og ömmur!
Gerist meðlimir í Félagi ábyrgra feðra og hjálpið okkur að
stuðla að foreldrajafnrétti og réttindum barna okkar
Félagið þakkar stuðning aðstandenda Benedikts Inga Ármannssonar
og hvetur alla til að mæta á minningartónleikana á NASA þann 3. maí
kl 20:00 Allur ágóði þeirra rennur til Félags ábyrgra feðra.
S k r á n i n g á www. a b y r g i r f e d u r . i s