Morgunblaðið - 03.05.2007, Síða 52
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 123. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Skólagjaldalán
Nemar í grunnháskólanámi til BA-
og BS-gráða við erlenda háskóla
munu frá og með næsta skólaári eiga
þess kost að fá allt að 670.000 krónur
í skólagjaldalán frá Lánasjóði ís-
lenskra námsmanna, LÍN. Fjár-
hæðin er háð útreikningsmynt og er
ákvörðuð sem einn fimmti af sam-
anlögðu hámarksláni, hækkar svo í
þriðjungshlut ári síðar. »4
Oftast sótt um eftir 2 ár
Einstaklingar sækja oftast um
veitingu ríkisborgararéttar eftir að
hafa haft lögheimili hér á landi í tvö
ár eða lengur, eru eldri en 18 ára og
uppfylla ekki búsetuskilyrði. »2
Franskt jafntefli
Stjórnmálaskýrendur greinir á um
hvor forsetaframbjóðandinn hafi haft
betur í kappræðum í gær, hægrimað-
urinn Nicolas Sarkozy eða sósíalist-
inn Ségolène Royal. Mikil stemning
var fyrir einvíginu. »17
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Aumingja Joe
Staksteinar: Bók um forsetann
Forystugreinar: Uppgjafar-
yfirlýsing yfirtökunefndar |
Yfirgangur Rússa
Af listum: Þegar hjartað brann
UMRÆÐAN»
Veruleiki aldraðra
Landnám í Lóni
Innflytjendur ekki vandamálið
Almannatryggingar á allra vörum
Exista komin í lykilstöðu
Húsnæðismarkaðurinn og jafnvægi
Íbúðalán og samkeppni
Sjá tækifærin í austrinu
VIÐSKIPTI»
4%*: "
.
)
*
;
%
3
3 3 3
3 3
3 3
3
3 3
3
,6
'8 "
3 3
3 3 3
<=>>2?@
"AB?>@/;"CD/<
62/2<2<=>>2?@
<E/"6 6?F/2
/=?"6 6?F/2
"G/"6 6?F/2
"9@""/ H?2/6@
I2C2/"6A IB/
"<?
B9?2
;B/;@"9)"@A2>2
Heitast 13 °C | Kaldast 5 °C
Vestan 8–11 m/s og
skúrir eða slydduél en
bjartviðri austanlands.
Hiti 5–13 stig, hlýjast
austan til. »10
Marta María Jóns-
dóttir tekur þátt í
samsýningu í Brook-
lyn í New York með
34 listamönnum sem
vinna við teikni-
myndir. »42
MYNDLIST»
Sýnir í Too
Art for TV
KVIKMYNDIR»
Stefnt að því að frum-
sýna í október. »42
Pottþétt-plöturnar
hafa notið mikilla
vinsælda hér á landi
og er sú nýjasta eng-
in undantekning,
Pottþétt 43. »48
TÓNLIST»
Pottþéttar
seljast best
TÓNLEIKASTAÐUR»
Hjarta Gauks á Stöng
slær á ný. »47
FÓLK»
Britney Spears tróð upp
í San Diego. »49
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Ron Jeremy meðal aðdáenda
2. Næst því að hjóla nakinn …
3. Brak úr þyrlu Chelsea-aðdáanda
4. Árni flytur lögheimili í Þykkvabæ
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ATVIK við leikskóla í Reykjavík í síðustu viku þar
sem sex ára drengur með þroskafrávik olli
skemmdum á bílum með því að kasta í þá möl hefur
sett móður hans í þá stöðu að þurfa að velja milli
tveggja kosta, þ.e. að greiða tjónið sjálf, eða kæra
starfsfólk leikskólans fyrir vanrækslu. Ásta Jóns-
dóttir, móðir drengsins, segir son sinn tilheyra svo-
kölluðu „gráu svæði“ þar sem fagaðstoð í boði fyrir
fjölskylduna fer eftir efnahag viðkomandi. Það sem
vekur þó mesta undrun hennar er að dagvistunar-
yfirvöld firra sig allri ábyrgð á skemmdum sem
drengurinn olli á bílunum þótt atvikið hafi hent á
leikskólatíma. „Þessi viðbrögð vekja eðlilega þá
spurningu mína, hvers vegna ég sé að greiða fyrir
gæslu á leikskólanum úr því að ég sem foreldri þarf
að ábyrgjast hugsanleg óhöpp – að ég tali ekki um
slys – sem kunna að eiga sér á leikskólatímanum,“
segir Ásta. „Ef svona er að málum staðið, hvers
vegna er foreldrum þá ekki gerð rækileg grein fyrir
þessu? Ég átta mig ekki á því hvernig foreldrar eiga
að geta stundað vinnu sína ef þeir þurfa jafnframt
að gæta þess að leikskólinn gæti barna þeirra.“
Ásta segir að sonur hennar hafi augljóslega at-
hafnað sig drjúga stund ótruflaður við að skemma
bílana og því sé ljóst að hann hafi ekki verið í gæslu
þann tíma, jafnvel þótt öllum hafi verið ljóst að hann
ætti við sín hegðunarvandamál að etja og mætti
ekki vera eftirlitslaus að neinu marki.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leik-
skólaráðs, sagðist ekki þekkja til þessa máls en
sagði að það yrði kannað í dag.
Ósátt við dagvistina
„Hvernig eiga foreldrar að geta stundað vinnu sína ef þeir þurfa jafnframt að
gæta þess að leikskólinn gæti barna þeirra?“ spyr móðir leikskólabarns
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Réttlætismál Ásta Jónsdóttir spyr hví foreldrar
greiði fyrir gæslu ef ábyrgðin er þeirra.
Í HNOTSKURN
»Móðir drengsins álítur að dagvistunar-yfirvöld í Reykjavík þurfi að sýna meiri
ábyrgð í málum af þessu tagi í stað þess að
beina foreldrum þá leið að kæra starfsfólk
leikskólanna.
»Móðurinni fellur þungt að vera sett í þástöðu að þurfa að kæra starfsfólk og
ekki síður finnst henni erfitt að kyngja því
þegjandi og hljóðalaust að foreldrar séu
skaðabótaskyldir ef börn þeirra valda
skemmdum á meðan þau eru í gæslu leik-
skóla gegn greiðslu.
„ÞAÐ SEM verið
er að gera í þess-
um sumarhúsa-
málum er að eig-
endur eru að
stilla þessum
leiguliðum upp
við vegg og ekk-
ert rými er fyrir
samningaviðræð-
ur um kaupverð.
Ef við viljum ekki
ganga að þessum kröfum þá verðum
við að gjöra svo vel að taka húsið á
bakið, brenna það eða flytja burtu,“
segir Sigurður Guðmundsson land-
læknir, sem starfar í leyfi við heil-
brigðismál í Malaví, en leigusamn-
ingur hans á frístundahúsalóð í landi
Dagverðarness í Skorradal rennur
út í nóvember nk. Hann segir erfitt
að standa í flutningum úr tólf þúsund
kílómetra fjarlægð og hefur óskað
eftir í það minnsta árs framlengingu
á leigusamningnum. Hann segir
jafnframt fleiri leigjendur standa í
sömu sporum.
Arngrímur Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Dagverðarness ehf.
sem á landið, segir erindi Sigurðar
hafa borist og er það til umfjöllunar
hjá stjórn félagsins. | 6
Mönnum
stillt upp
við vegg
Ekkert rými fyrir
samningaviðræður
Sigurður
Guðmundsson
TINNA Gunnlaugsdóttir þjóðleik-
hússtjóri afhenti Dansleikhúsi með
ekka lyklavöldin að Þjóðleikhúsinu
í tvo sólarhringa í gærdag. María
Pétursdóttir myndlistarkona
framdi gjörning sem tákna átti
komu dansins í húsið. Listamenn
báru fagurrauða hjálma af þessu
tilefni, eins og sjá má á myndinni.
Fyrstu danssporin í listdansi
voru stigin í Þjóðleikhúsinu. Dans-
leikhús með ekka hóf starfsemi
sína í Þjóðleikhúskjallaranum og
færir sig af því tilefni upp á stóra
sviðið með verkið Mysteries of
Love. Kl. 17 í dag munu yfir 40
listamenn sýna frumsamin dans-,
tónlistar- eða leikverk í öllum krók-
um og kimum aðalbyggingar leik-
hússins. Kl. 21 hefst svo sýning á
Mysteries of Love. Um kvöldið
munu tónlistarmenn stíga á svið
ásamt óvæntum gestum í Þjóðleik-
húskjallaranum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Dansað í öllum krókum og kimum