Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ viðskipti/athafnalíf Bergstaðastræti 37 Sími 552 5700 holt@holt.is - www.holt.is tvíréttað í hádeginu á 2.500 kr. einstakt umhverfi, frábær matur og úrvalsþjónusta Borðapantanir í síma 552 5700 og holt@holt.is                                                                      Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, net- fang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Björn Jóhann Björnsson, frétta- stjóri, bjb@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ENN bætast þekktustu og kærustu fyrirtæki Dana í eigu íslenskra fjár- festa. Í gær var gengið frá kaupum fjárfestingafélagsins Nordic Part- ners á fasteignum og rekstri hót- elanna D’Angleterre, Kong Freder- ik og Front. Eru þetta meðal þekktustu hótela Danmerkur og öll í hjarta Kaupmannahafnar. Samning- urinn var gerður við fjölskyldufyr- irtækið Remmen Hotels og er kaup- verð ekki gefið upp. Þó er ljóst að um hundraða milljóna króna fjár- festingu er að ræða. Auk hótelanna og tilheyrandi veit- ingastaða kaupir Nordic Partners einnig rekstur veitingastaðarins Co- penhagen Corner við Ráðhústorgið. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi kaupenda en Lands- bankinn fjármagnaði kaupin að hluta. Lúxushótelið D’Angleterre, sem er við Kóngsins Nýjatorg, á sér yfir 250 ára sögu. Þar hafa helstu þjóð- höfðingjar, viðskiptajöfrar og lista- menn heims verið tíðir gestir. Hótel Kong Frederik er 110 herbergja hótel við Ráðhústorgið, rétt við Tí- volí og Strikið, og Front er gegnt nýja óperuhúsinu við höfnina. Nordic Partners er fjárfesting- arfélag í eigu fjögurra fjárfesta. Saga þess nær aftur til 1997 þegar það tók þátt í einni fyrstu einkavæð- ingu Lettlands. Félagið á ýmsar eignir á Íslandi, í Litháen, Eistlandi, Lettlandi, Póllandi, Danmörku og víðar. Félagið hefur einnig fjárfest í matar- og drykkjarvöruframleiðslu í Austur-Evrópu. Þá kemur félagið að fisk- og kjötvinnslu á Íslandi en það rekur sælkeraverslanir undir nöfn- unum Gallerí Kjöt, Fiskisaga og Ostabúðin. Stjórnarformaður Nor- dic Partners er Jón Þór Hjaltason. Forstjóri og aðaleigandi er Gísli Reynisson og framkvæmdastjóri á Íslandi er Bjarni Gunnarsson. Dýrustu hóteldjásn Dana komin í eigu Íslendinga Djásn Hótel D’Angleterre er í hjarta Kaupmannahafnar og eitt elsta og flottasta hótel Dana, sem nú er komið í eigu Nordic Partners. VÍSITALA neysluverðs í september hækkaði um 1,32% frá fyrra mánuði samkvæmt útreikningum Hagstof- unnar, en vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,14% á sama tíma. Er þetta í samræmi við spár greiningardeilda bankanna sem spáðu 1,3-1,4% hækkun vísitölunnar. Útsölulok, hækkanir á húsnæðis- markaði og hækkandi eldsneytisverð eru meðal þess sem ollu hækkun vísitölunnar í ágúst. Verðbólga á árs- grundvelli mælist 4,2%, og hækkar úr 3,4%. Er verðbólgan því á ný komin yfir 4% þolmörk verðbólgu- markmiðs Seðlabankans. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala neyslu- verðs hækkað um 4,2% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísi- tala neysluverðs hækkað um 1,6% sem jafngildir 6,5% verðbólgu á ári en 2,6% fyrir vísitöluna án húsnæðis. Verð á fatnaði hækkaði um 13,6% milli mánaða, fyrst og fremst vegna útsöluloka, og hefur það áhrif til ríf- lega 0,5 prósentustiga hækkunar á vísitölunni. Húsnæðisliður hækkaði um 2,5%, sem leggur tæplega hálft prósentustig til hækkunar á vísitölu neysluverðs. Þar af er 0,41 prósentu- stig vegna hækkunar á markaðs- verði húsnæðis. Verðbólga aftur komin yfir þolmörk   !"# $# %         #& ! '( )        (  (  ( % * + , - . / 0 / - - 1 % !"# $"! %"& %"!  NÝ STJÓRN Icelandair Group hf. var kjörin í gær á hluthafafundi fé- lagsins og nýr stjórnarformaður var svo kjörinn Gunnlaugur M. Sig- mundsson. Á sama fundi var ákveðið að breyta samþykktum félagsins í þá átt að stjórnarmönnum verði fækkað úr sjö í fimm. Auk Gunnlaugs voru kjörnir í stjórnina Ómar Benedikts- son, varaformaður, Ásgeir Baldurs, Einar Sveinsson og Finnur Reyr Stefánsson. Hluthafafundurinn var haldinn í kjölfar þess að Finnur Ing- ólfsson, fyrrverandi stjórnarformað- ur Icelandair, seldi alla hluti sína í fé- laginu. Í samtali við Morgunblaðið sagði Gunnlaugur að tilgangurinn með fækkun stjórnarsæta væri að gera stjórnina skil- virkari og væri ætlunin sú að hún fundaði oftar og ynni nánar með framkvæmda- stjórn félagsins. „Það er vilji okkar að halda áfram að byggja félagið upp, að halda áfram að bæta þjónustu við farþega og við- halda góðum samskiptum við hlut- hafa og starfsmenn.“ Lagði Gunnlaugur á það áherslu að hann og samstarfsaðilar hans litu á Icelandair sem langtímafjárfest- ingu. Ný stjórn hjá Icelandair Group Gunnlaugur Sigmundsson HÖSKULDUR Ásgeirsson hefur ákveðið að láta af störfum sem for- stjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar ohf. (FLE) í lok nóvember nk. og stað- gengill forstjóra, Elín Árnadóttir, tek- ur þá við starfi forstjóra félagsins. Elín fæddist árið 1971 og lauk cand.oecon.-námi frá viðskiptadeild Háskóla Íslands árið 1996. Hún starf- aði sem fjármálastjóri Snæfells 1997- 1998, síðar í hagdeild Gelmer-Iceland Seafood í Frakklandi 1999-2000 og svo sem sérfræðingur hjá fyrirtækjaþróun Íslandsbanka 2000-2001. Elín var ráðin fjármálastjóri FLE í júní 2001 og hefur auk þess verið staðgengill for- stjóra frá 2006. Elín er gift Árna Ólafssyni framkvæmdastjóra og eiga þau eitt barn. Höskuldur Ásgeirsson var ráðinn framkvæmdastjóri félagsins og síðar forstjóri þegar rekstur FLE og ríkisfríhafnarinnar var sameinaður og hluta- félagsvæddur 1. október 2000. Hann hefur ráðið sig til nýrra verkefna en á vef Víkurfrétta í gær kom fram að hann væri að fara til Nýsis. Elín tekur við af Hösk- uldi sem forstjóri FLE Elín Árnadóttir Höskuldur Ásgeirsson GÍSLI Reynisson, forstjóri Nor- dic Partners, segir kaupin á eign- um Remmen-hjónanna Henning og Else Marie hafa verið í undirbún- ingi síðan í febrúar á þessu ári. Fé- lagið geri sér vel grein fyrir því að það sé að kaupa eignir sem skipi stóran sess í huga og hjarta Dana og tillit verði tekið til þess. „Við verðum virkir eigendur og munum ráðast í frekari fjárfestingar kring- um þessar eignir,“ segir Gísli. Hann upplýsir ekki kaupverðið en segir tölurnar vissulega háar. Kaupin hafi farið fram í góðu samstarfi við Landsbankann og Fyrirtækjaráð- gjöf hans. Gísli segir að með þess- um kaupum sé heildarvirði eigna á vegum Nordic Partners um 65 milljarðar króna. 65 milljarða króna eignir Gísli Reynisson SAMKVÆMT bráðabirgðatölum Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2006 nam lands- framleiðslan tólf hundruð millj- örðum króna og jókst að raungildi um 4,2% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 7,1% vaxtar á árinu 2005 og er umtalsvert meiri en áætlanir höfðu gert ráð fyrir en spár gerðu ráð fyrir 2,6% hagvexti á síðasta ári. Hagstofan segir að vöxt lands- framleiðslunnar á liðnu ári megi, líkt og undanfarin þrjú ár, öðru fremur rekja til aukinnar einka- neyslu og fjárfestingar en á móti vegi aukinn innflutningur, sem sé langt umfram aukningu á útflutn- ingi. Laun- og fjármagnsgjöld til út- landa jukust mun meira en nam aukningu launa- og fjármagnstekna frá útlöndum og þrátt fyrir jákvæða þróun viðskiptakjara aukast þjóð- artekjur á árinu 2006 mun minna en landsframleiðslan eða um 1,2% sam- anborið við 7,9% vöxt árið áður. Hagvöxtur umfram spár PRIMERA TRAVEL GROUP, ferðaþjónustufyrirtæki í eigu Andra Más Ingólfssonar, hefur samkvæmt heimildum Morgunblaðsins fest kaup á írsku ferðaskrifstofunni Bud- get Travel. Greint var frá því í írskri útgáfu Sunday Times á sunnudag að kaupin væru nærri og nú eru þau orðin að veruleika. Samkvæmt frétt blaðsins er áætlað verðmæti samningsins um 10 milljónir evra, jafngildi um 892 milljóna króna, en ekki hefur tekist að fá það staðfest. Seljandi mun vera þýska fyrirtækið TUI. Budget er sagt geta þjónustað um 350 þúsund farþega á háannatíma en til samanburðar segir í frétt Sunday Times að Primera muni flytja um 650 þúsund farþega um heim allan á þessu ári. Kaupir Bud- get Travel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.