Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 23 VÖRUSÝNINGIN Verk og vit verður haldin dagana 17. til 20. apríl 2008 í íþrótta- og sýning- arhöllinni í Laugardal. Þetta verður í annað sinn sem Verk og vit er haldin en sýningin var áður í mars 2006 á vegum AP-sýninga. Sýningin næsta vor er tileinkuð byggingariðnaði, skipulags- málum, mannvirkjagerð og orku- málum. Í viðhorfskönnun sem Outcome-hugbúnaður ehf. gerði fyrir AP-sýningar á meðal sýn- enda Verks og vits 2006 kom m.a. fram að 94% þeirra sem tóku þátt í könnuninni töldu grundvöll fyr- ir því að halda sýninguna Verk og vit aftur og tæp 90% voru mjög ánægðir eða frekar ánægðir með sýninguna. Undirbúningur næstu sýningar er í fullum gangi og þegar er bú- ið að bóka yfir 40% sýning- arsvæðisins. Félagsmenn Sam- taka iðnaðarins fá 20% afslátt á sýningarrými ef þeir skrá sig fyr- ir 1. október næstkomandi en aðrir fá 10% afslátt skrái þeir sig fyrir sama tíma. Nánari upplýs- ingar um Verk og vit 2008 má finna á vefsíðunni www.verkog- vit.is. Vörusýningin Verk og vit haldin í Höllinni í vor Ljósmynd/Kristján Maack Sýning Frá vörusýningunni Verk og vit árið 2006, sem þótti takast það vel að ákveðið hefur verið að halda aðra sýningu næsta vor. EINAR S. Björnsson hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður flug- rekstrarsviðs Flugfélags Ís- lands (FÍ) frá og með 1. nóvember næstkomandi. Einar var þar til í vor flug- rekstrarstjóri Air Atlanta og þar áður Íslandsflugs frá 1999. Hann vann í flugdeild Flugleiða frá ár- unum 1982 til 1997. Einar er menntaður í flugrekstr- arfræðum frá FIT í Flórída, hann er 47 ára, kvæntur Guðrúnu Gunnars- dóttur og eiga þau þrjú börn. Yfir flug- rekstrarsviði Flugfélagsins Einar S. Björnsson SAMKVÆMT nýrri könnun Capacent Gallup eru þrír af hverjum fjórum fasteignakaupendum já- kvæðir gagnvart Íbúðalánasjóði og mikill meirihluti, um 83%, vill að sjóðurinn starfi í óbreyttri mynd. Það er svipuð niðurstaða og sam- bærilegri könnun í lok síðasta árs sýndi en þessi könnun var fram- kvæmd fyrir sjóðinn í júní og júlí sl. Könnunin leiðir í ljós að 9,2% telja að Íbúðalánasjóður eigi að vera heildsala og 8,4% vilja að hann hætti starfsemi og viðskiptabankarnir sjái alveg um íbúðalán. Nærri þrír af hverjum fjórum fasteignakaupendum eru mjög eða frekar jákvæðir gagnvart Íbúðalána- sjóði og 7% eru mjög eða frekar nei- kvæð gagnvart sjóðnum. Fimmtung- ur er hvorki jákvæður né neikvæður. Hringt var í 1.600 einstaklinga sem keyptu fasteign í febrúar til júní á þessu ári. Endanlegt úrtak var 1.469. Svarhlutfall var 56,4%. Flestir vilja óbreyttan Íbúðalánasjóð PROMENS hefur ráðið Gest Þór- isson í stöðu framkvæmdastjóra við- skiptaþróunar. Er ráðningin sögð liður í þeirri stefnu félagsins að stækka með fyrirtækjakaupum og ytri vexti og verður það aðaláherslan í starfi hans. Gestur hefur góða reynslu af fyr- irtækjakaupum frá fyrra starfi sínu hjá fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings. Frá 2001 til 2005 starfaði Gestur hjá Georgia Pacific í Bandaríkjunum við aðgerðarannsóknir, framleiðslu- skipulagningu, vörudreifingu og sölu- og markaðsstörf. Gestur er með MS-gráðu í aðgerðarann- sóknum frá Georgia Institue of Technology og BS-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Ís- lands. Til að byrja með mun Gestur vinna náið með Arne Vraalsen, frá- farandi forstjóra Polimoon, sem Promens keypti undir lok síðasta árs. Gestur, sem hefur aðsetur á að- alskrifstofu félagsins í Kópavogi, tekur sæti í framkvæmdastjórn Pro- mens. Ráðinn til Promens Gestur Þórisson ◆ ◆

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.