Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurseptember 2007næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    2627282930311
    2345678
    9101112131415
    16171819202122
    23242526272829
    30123456

Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 21 SAMSKIP hafa aukið þjónustu sína á siglingaleiðinni milli meg- inlands Evrópu og Skandinavíu með tilkomu gámaflutningaskips- ins Ute S. Það getur borið allt að 366 gámaeiningar (TEU) og siglir vikulega milli Helsingjaborgar í Svíþjóð, Hull á Bretlandseyjum og Rotterdam. Skipið var áður í siglingum fyrir sænska flutningafélagið Transatl- antic European Services AB. Það félag hefur nú gert samning við Samskip um að annast flutninga fyrir sig á þessari umræddu sigl- ingaleið. Engar breytingar verða á vikulegum ferðum gámaflutn- ingaskipsins Samskip Explorer milli Helsingjaborgar og Varberg í Svíþjóð, Hull, Zeebrugge í Belgíu og Rotterdam. Samskip eru nú með hátt á þriðja tug skipa í föstum áætlunarsigl- ingum innan Evrópu og yfir 13.000 gáma af ýmsum stærðum og gerð- um. Býður félagið upp á vöruflutn- inga til yfir 30 landa, frá Rússlandi í austri til Íslands í vestri og Skand- inavíu í norðri til Spánar og Ítalíu í suðri. Samskip bæta við sig gámaflutningaskipi Ljósmynd/Hreinn Magnússon Gámar Athafnasvæði Samskipa í Rotterdamhöfn er orðið umsvifamikið. GUÐMUNDUR Bjarnason, fyrr- verandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar, hefur verið ráðinn verkefnisstjóri í stjórnunar- og stefnumótunar- teymi Alcoa Fjarðaáls í Reyð- arfirði. Mun hann m.a. hafa yfirum- sjón með verkefn- um sem snúa að samskiptum við ríkið og sveitar- félög. Guðmundur var bæjarstjóri í Neskaupstað frá árinu 1991 til ársins 1998. Hann gegndi lykilhlutverki við sameiningu sveitarfélaga á Aust- fjörðum sem varð að veruleika árið 1998 og tók við starfi bæjarstjóra Fjarðabyggðar eftir sameininguna. Hann gegndi því starfi til haustsins 2006. Guðmundur var varabæjar- fulltrúi og síðar bæjarfulltrúi fyrir Alþýðubandalagið í Neskaupstað á árunum 1974-1998. Guðmundur hef- ur setið í fjölmörgum stjórnum og ráðum á vegum hins opinbera, fyr- irtækja og knattspyrnuhreyfingar- innar. Hann var starfsmannastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað 1977-1991 og áður kennari við Gagn- fræðaskólann í Neskaupstað. Guð- mundur útskrifaðist með BA-próf í þjóðfélagsfræði frá Háskóla Íslands árið 1975. Guðmundur til Fjarðaáls Guðmundur Bjarnason LAUNAKOSTNAÐUR á almenn- um vinnumarkaði hækkaði á bilinu 6,6 til 11,3% á milli annars ársfjórð- ungs 2006 til sama fjórðungs í ár, samkvæmt launakostnaðarvísitölu Hagstofunnar. Í Vegvísi Landsbank- ans er bent á að töluverðar sveiflur mælist nú í vísitölunni, sem skýrist m.a. af óreglulegum greiðslum, t.d. eingreiðslum og árangurstengdum bónusum. Athyglisvert sé hversu mikill munur sé á launakostnað- arþróun í einstökum atvinnugrein- um. Miklar sveiflur í launakostnaði HP Farsímalagerinn hefur ráðið til sín tvo nýja stjórnendur. Hörður Þór Torfason hefur hafið störf sem sölu- og markaðsstjóri og Víðir Arnar Kristjánsson tekið við stöðu fjármálastjóra. Hörður stundaði nám í markaðs- og alþjóðaviðskiptum við Háskól- ann í Reykjavík. Hann starfaði áð- ur hjá markaðsfyrirtækinu Verum við auglýsinga- og kynningamál. Hann hefur einnig starfað sem sjálfstæður ráðgjafi í markaðsmál- um og hefur áralanga reynslu í heildsölu og verslunarrekstri. Hörður er í sambúð og á fjögur börn. Víðir er með MBA-gráðu frá Es- cuela Superior de Gestion i Mar- keting (ESIC) á Spáni og BS-gráðu í viðskiptafræði frá Viðskiptahá- skólanum á Bifröst. Víðir starfaði áður sem fjármálaráðgjafi hjá Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Hann er í sambúð og á þrjú börn. Ráðnir til HP Farsíma- lagersins Hörður Þór Torfason Víðir Arnar Kristjánsson ◆ ◆

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55869
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
31.12.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: Morgunblaðið B (13.09.2007)
https://timarit.is/issue/285824

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

Morgunblaðið B (13.09.2007)

Aðgerðir: