Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 19 SAMEINAÐI lífeyrissjóðurinn hef- ur sett á laggirnar sérstaka ör- orkuvernd fyrir þá sem eru á aldrinum 18 til 44 ára og eru með séreignarsparnað hjá sjóðnum. Um er að ræða valfrjálsa vátrygg- ingu sem er ætluð þeim sem eru að koma út á vinnumarkaðinn í fyrsta skipti og á meðan þeir ávinna sér rétt til örorkulífeyris hjá lífeyrissjóðum. Sjóðurinn segir í tilkynningu að með samningi við VÍS hafi tekist að setja saman góða vátryggingavernd á góðum kjörum til hagsbóta fyrir yngri rétthafa. Vernd fyrir yngra fólk Samið F.v. Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyr- issjóðsins, Þorgeir Jósefsson stjórnarformaður og Ásgeir Baldurs frá VÍS. BRENT Sugden, forstjóri Versa- cold, hefur í kjölfar skipulagsbreyt- inga verið ráðinn forstjóri yfir kæli- og frystigeymslusviði Eimskips í Ameríku. Bæði Versacold og Atlas Cold Storage, sem reka yfir 120 kæli- og frystigeymslur, tilheyra þessu sviði. Reynir Gíslason, sem gegnt hefur bæði stöðu forstjóra Eimskips í Am- eríku frá júlí 2006 svo og forstjóra Atlas frá nóvember 2006, mun halda áfram sem forstjóri yfir annarri starfsemi Eimskips í Ameríku. Sú starfsemi tengist að mestu leyti skiparekstri félagsins í heims- álfunni en nýlega hóf Eimskip strandsiglingar á austurströnd Bandaríkjanna, samkvæmt tilkynn- ingu frá Eimskip til kauphallar. Samþætta reksturinn Brent Sugden hefur undanfarin sex ár verið forstjóri Versacold og því með nokkra reynslu af rekstri kæli- og frystigeymslna. Nú þegar Eimskip hefur fest kaup á Versacold liggur fyrir að samþætta rekstur Versacold og Atlas og ná fram frekari hagræðingu. Stýrir frystigeymslu- starfsemi í Ameríku HALLINN á vöruskiptum við útlönd var 14,8 milljarðar króna í júlímánuði og er það mesti halli í einum mánuði á þessu ári. Á þessi halli sér rætur í miklum innflutn- ingi og fremur litlum útflutningi í júlí. Þrátt fyrir þetta var hallinn þó nokkru minni en í sama mánuði á síð- asta ári. Á fyrstu sjö mánuðum árs- ins var halli á vöruskiptum aðeins um 62% af halla sama tímabils í fyrra, reiknað á föstu gengi, sam- kvæmt tölum Hagstofunnar. Fluttar voru inn vörur í júlí fyrir 32,7 milljarða króna, sem er miðað við fast tengi nánast óbreytt frá sama tíma í fyrra. Breytt samsetning Í Morgunkorni Glitnis er bent á að veruleg breyting hafi orðið á sam- setningu innflutnings á þessu tíma- bili. Þannig hafi innflutningur fjár- festingavara dregist saman um þriðjung en innflutningur fólksbíla aukist um 80% á milli ára á föstu gengi. Þá varð þriðjungsaukning milli ára í innflutningi varanlegra neysluvara á borð við raftæki. „Gengi krónu var á þessum tíma í fyrra í lágmarki, en hins vegar var krónan mjög sterk í síðasta mánuði. Neytendur virðast því afar næmir fyrir gengi krónu þegar kemur að kaupum á bifreiðum og varanlegum neysluvörum,“ segir ennfremur í Morgunkorninu. Methalli á vöruskiptum í júlímánuði Ál Verð á áli hefur verið að lækka. NETBANKINN hefur ákveðið að bjóða upp á nýjan reikning, svo- nefndan Vaxtaauka, þar sem vextir eru greiddir út mánaðarlega. Er þetta í fyrsta sinn sem boðið er upp á slíkan reikning hér á landi, að því er fram kemur í tilkynningu. Forsvarsmenn Netbankans segja mikla eftirspurn hafa verið eftir leið- um til að ávaxta sparifé sitt á örugg- an hátt, ásamt því að fá greidda vexti reglulega yfir árið í stað ársloka. Reikningurinn er sagður henta þeim sem vilja ávaxta sparifé sitt með öruggum hætti og nota vaxta- greiðslur til að standa straum af mánaðarlegum útgjöldum. Getur viðskiptavinur bankans óskað eftir að föst upphæð verði millifærð mán- aðarlega af Vaxtaauka á annan reikning í eigu sinni. Dæmi er tekið af einstaklingi sem á 10 milljóna króna innstæðu. Viðkomandi fengi greiddar rúmar 106 þúsund krónur á mánuði í vexti, sem hann gæti t.d. látið millifæra mánaðarlega inn á de- betkortareikning sinn. Vaxtaauki er með þrepaskipt vaxtastig eftir upp- hæðum, frá 11,8 til 13,7%. Vaxtaauki Netbankans ♦♦♦ Vantar þig traustan og áreiðanlegan viðskiptafélaga? Kerfisþróun • Fákafeni 11 • 108 Reykjavík • Sími 568 8055 • Fax 568 9031 • www.stolpi.is Kynningar í Reykjavík og landsbyggðinni á næstunni 26. september 27. september 2. október 3. október 4. október 9. október 11. október 11. október 17. október 25. október kl. 16:00-18:00 kl. 16:00-18:00 kl. 16:00-18:00 kl. 16:00-18:00 kl. 16:00-18:00 kl. 12:00-14:00 kl. 12:00-14:00 kl. 16:00-18:00 kl. 12:00-14:00 kl. 16:00-18:00 Grand Hótel Hótel Borgarnes Flughótel Hótel Selfoss Hótel Hérað Edinborgarhúsið Mælifell Hótel KEA Kaffi Hornið Hótel Ólafsvík Reykjavík Borgarnes Keflavík Selfoss Egilsstaðir Ísafjörður Sauðárkrókur Akureyri Höfn Ólafsvík Léttar veitingar og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. B RO S 30 69 /2 00 7 Viðskiptafélaga sem hefur heildarsýn yfir söluna, fjárhaginn, arðsemina, birgðirnar, verkefnin, tímana þína og skilar ávallt nákvæmum stöðuskýrslum? Stólpi er sveigjanlegt bókhalds- og upplýsingakerfi með lausnir fyrir flestar gerðir atvinnurekstrar. Auðvelt er að læra á kerfin sem eru samhæfð Office skrifstofuhugbúnaðinum og kunnug- legt viðmót skilar sér í tíma- og vinnusparnaði fyrir notendur. Nú kynnum við nýja, byltingarkennda útgáfu af Stólpa sem hefur hlotið frábærar umsagnir þeirra sem reynt hafa Ókeypis aðgangur í 60 daga Tryggðu þér ókeypis aðgang að Stólpa í 60 daga. Hafðu samband í síma 568 8055 eða kynntu þér á vefsíðu okkar www.stolpi.is hvernig þú og þitt fyrirtæki geta hagnast á því að velja sér traustan viðskiptafélaga. Staður Dagsetning Staðsetning Tímasetning Útgáfa 2008.1 • Þjónustuvefur • Netaðstoð • Persónuleg aðstoð • Vefskoðari • Þjóðskrá • Fjárhagsbókhald • Skuldunautar • Lánadrottnar • Sölukerfi • Innheimtukerfi • Samningagreiðslur • Birgðakerfi • Framleiðslukerfi • Birgðapantanir • Tollkerfi • Verkbókhald • Verkbeiðnir • Tilboðskerfi • Rafræn samskipti • Markaðskerfi • Félagakerfi • Fyrirspurnakerfi • Launakerfi • Stimpilklukka • Vinnuskýrslur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.