Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ viðskipti/athafnalíf FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is V erð á hveiti og öðru korni hefur ekki verið mikið í umræðunni hér á landi, en búast má við því að fljótlega verði þar breyting á. Raunin er nefnilega sú að heimsmarkaðsverð á hveiti hefur hækkað mikið og hratt und- anfarna mánuði og mun það óhjá- kvæmilega hafa áhrif á íslenska neytendur, enda er hveiti uppi- staðan í stórum hluta þess matar sem við leggjum okkur til munns. Í breska fag- tímaritinu The Grocer er greint frá því að verð á hveiti þar í landi hafi hækkað úr 85 pundum á tonn í apríl í 155 pund á tonn í júlí og er búist við enn frekari í hækkunum. Í International Herald Tribune kem- ur fram að verð á framvirkum samn- ingum á hveiti í Bandaríkjunum, með afhendingu í desember, hafi hækkað um 40% frá því í júlí og meira en tvöfaldast á einu ári. Margar ástæður eru fyrir hækk- ununum nú, þar á meðal aukin eft- irspurn eftir korni og áhrif veðra- breytinga á uppskeru. Þá hafa margir bændur í Bandaríkjunum og Evrópu hætt að rækta korn til manneldis og rækta þess í stað korn til framleiðslu lífræns eldsneytis. Aukin kjötneysla Marteinn Magnússon, markaðs- stjóri hjá heildversluninni Eggerti Kristjánssyni hf, segir aukna vel- megun í fjölmennum Asíuríkjum skýra að hluta aukna eftirspurn eftir korni. „Sífellt fleiri fjölskyldur í löndum eins og Indlandi og Kína hafa nú efni á því að neyta meira kjötmetis og mjólkur en þær hafa gert hingað til. Einföld þumalfing- ursregla segir okkur að til að fram- leiða eitt tonn af kjöti þurfi fimm tonn af korni og er því auðvelt að sjá hvernig aukin eftirspurn eftir kjöti getur þrýst upp kornverði,“ segir Eggert. Í grein The Grocer segir að sam- tök breskra myllueigenda geri ráð fyrir því að eftirspurn eftir korni muni aukast um 50% á næstu tutt- ugu til þrjátíu árum og Efnahags- og samvinnustofnunin, OECD, hef- ur spáð 50% hærra kornverði næsta áratuginn. Veðurfar hefur aukið enn á verð- þrýsting á kornmarkaði. Votviðri í Vestur-Evrópu og Kanada, þurrkar í Austur-Evrópu og óheppilegt upp- skeruveður í Bandaríkjunum hafa valdið því að kornuppskera almennt verður minni en búist hafði verið við. Þetta mun þó aðeins hafa áhrif til skamms tíma á kornverð að því gefnu að veður verði betra á næstu árum. Þriðju ástæðuna, breytingar á ræktun, má að stórum hluta rekja til niðurgreiðslna til bænda vegna framleiðslu á lífrænu eldsneyti. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Evr- ópu veita veglega styrki til þeirra bænda sem rækta korn til fram- leiðslu á lífrænu eldsneyti og hefur fjöldi bænda hætt ræktun til mann- eldis og tekið þess í stað upp ræktun til framleiðslu eldsneytis. Þetta hef- ur þær fyrirsjáanlegu afleiðingar að framboð á korni og margri annarri matvöru hefur dregist saman. Verðhækkanir óumflýjanlegar Segist Marteinn ekki sjá fyrir end- ann á þessari þróun svo lengi sem niðurgreiðslur til þessarar ræktun verða við lýði og jafnvel búast við því að ræktun fyrir lífræna elds- neytisframleiðslu muni aukast þeg- ar fram líður. „Verð á smjöri, matarolíum, mjólk og kakói hefur hækkað um að minnsta kosti 70% á síðustu átta mánuðum,“ segir Marteinn. „Það mun svo hafa þau áhrif að verð á matvöru almennt mun hækka. Hækkanir hafa ekki verið mjög miklar undanfarna mánuði, en hjá frekari hækkunum verður ekki kom- ist eigi matvælaframleiðendur að halda velli.“ Umtalsverðar hækkanir á olíu hafa einnig haft áhrif til hækkunar á matvælaverði til neytenda, enda hef- ur allur flutningskostnaður hækkað, hvort heldur sem flutningarnir fara fram á láði eða legi. Þá leggjast þungir umhverfisskattar á land- flutninga í Evrópu og stuðla enn að hærra matvælaverði til neytenda. Marteinn segir að samt megi ekki mála skrattann á vegginn og halda að ástandið sé verra en það er. „Þetta eru stórar og afdrifaríkar breytingar sem eru að verða á mat- vælamarkaði, en þetta eru einnig sérstakir og áhugaverðir tímar sem við lifum á. Það verða tækifæri fyrir bændur og matvælaframleiðendur til að bregðast við breytingunum með jákvæðum hætti.“ Bendir Mar- teinn á að t.d. sé svigrúm til að auka kornframleiðslu í Evrópu, enda sé nokkuð til af ónýttu ræktarlandi. Hins vegar taki það tíma að taka slíkt land í rækt. „Þá er allt útlit fyrir að sam- keppnisstaða íslensks landbúnaðar muni batna til muna. Íslensk kjöt- og mjólkurframleiðsla er ekki jafn- háð korni og gerist erlendis. Því er eðlilegt að ætla að framleiðslukostn- aður hér á landi muni ekki aukast jafnmikið og þar og það gerir ís- lenskar landbúnaðarafurðir sam- keppnishæfari en þær eru nú.“ Þá er hugsanlegt að ræktarland hér á landi verði verðmætara styrk- ist staða íslensks landbúnaðar í sam- ræmi við það sem áður segir. Bendir Marteinn á að hlýnun í veðri geri það að verkum að hægt verður að rækta fleiri tegundir hér á landi en hægt hefur verið hingað til. Korn- rækt hér á landi fer vaxandi og er hugsanlegt að hún verði mikilvægari þáttur í íslenskum landbúnaði en áð- ur. Ljóst er að ef fram heldur sem horfir þá sé heimsmarkaður með matvæli að breytast til frambúðar. Þrátt fyrir að afleiðingarnar verði líklega eitthvað hærra matvælaverð fyrir okkur þá eru líklega fáir sem harma það að almenn velmegun í Asíuríkjum fari vaxandi og að fleiri geti leyft sér þann einfalda munað að borða kjöt. Hins vegar má velta fyrir sér hvort eðlilegt sé að nið- urgreiða notkun ræktarlands til framleiðslu eldsneytis ef það skekk- ir matvælamarkað um of. Uppskerubrestir og breytingar á neyslumynstri almennings Undanfarið ár hefur verð á mörgum grundvall- armatvörum eins og hveiti og öðrum kornmat, matarolíum og mjólkurvöru hækkað mjög. Til dæmis hefur heimsmarkaðsverð á hveiti tvöfald- ast á innan við átta mánuðum. Ástæðurnar eru margar og ekki ljóst hverjar afleiðingarnar verða. Reuters Brestur Það er kaldhæðnislegt að þeir bændur sem orðið hafa fyrir mestum skaða vegna uppskerubrests eru þeir sem sáu fyrir aukna eftirspurn og gerðu ráðstafanir til að auka framleiðslu. Sú fjárfesting þeirra er nú glötuð. Í HNOTSKURN » Verð á hveiti í kauphöl-inni í Chicago sló í fyrra- dag nýtt met, en skeppan af hveiti fór þá í fyrsta skipti yfir níu bandaríkjadali. » Aukin eftirspurn eftirkjöti og mjólkurvörum í Asíu hefur valdið því að verð á skepnufóðri hefur hækkað. » Uppskerubrestur ímörgum helstu korn- ræktarlöndum heimsins hef- ur einnig ýtt undir hækk- anir. ) )      1    /  34  (  ( #!  >  M(> - 1 % * + , - . / 0 / - - 1 %   6 #N JJJ>2( E># Marteinn Magnússon á vegum ráðstefnufyrirtækisins Nomos, Útflutningsráðs Íslands og Háskólans í Reykjavík o.fl. Skráning í síma 511 4000 utflutningsrad@utflutningsrad.is www.nomos.is Reykjavík 14. september 2007 Radisson SAS Hótel Sögu kl. 9.00-17.00 Alþjóðleg lögfræðiráðstefna Tengsl hugverkaréttar og samkeppnisréttar Móttaka í Höfða í boði Reykjavíkurborgar að lokinni ráðstefnu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.