Morgunblaðið - 13.09.2007, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
'
"
2$!
'(()'
*
'
+
,
-
,
%3&2 4(2
*$2
5
+
'2
+ '3 2
6
!
.3&#& 73"(
89 (:$
.3 $(
;)
;
;
;
;
;
<;)
< = =;
= = =;
) ) ) .
/
)0 1
)0
'
2$!
'(
0(>$ >
? $$ 2 >
@A(
.B >
( ! $
6C @#$ CD
5E
>
? ! $
B ! $
/> E .
%( #F?
G
'#
H
*/I 2 ,>J ->
K
.G%@
*/I 3
+$$
) L K >$
& 7 3
(34 34 &4(
G
(
G
(
G
(
G
(
(34 34 &
(34 34 &
(34 34 &
(34 34 &
)
)
;
;
;
)
,
/
/
=;
=;
<;
,
/
/
=;
< < ;
,
/
/
= =;
<;
,
/
/
= = <;
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
SAGT er að ekki sé allt gull sem
glóir en engu að síður er ljóst að
þegar að kreppir á fjármálamörkuð-
um leita fjárfestar gjarnan á náðir
eðalmálmsins góða. Þetta hefur sag-
an margoft sýnt okkur og ólgutímar
þeir er nú hrella fjárfesta eru engin
undantekning. Það sem af er ári hef-
ur heimsmarkaðsverð á gulli hækk-
að um nær 12% og gera flestir ráð
fyrir að það muni hækka enn frekar.
Sérstaklega ef ekki fer að birta yfir
öðrum fjárfestingarkostum.
Ástæðan fyrir því að fjárfestar
taka að kaupa gull þegar að kreppir
annars staðar er sú að málmurinn
heldur verðmæti sínu gífurlega vel.
Sagt er að demantar séu bestu vinir
stúlkna en fæstar þeirra yrðu von-
sviknar yfir því að fá gull í staðinn.
Hins vegar gæti verið erfitt að
gleðja þær með því að vefja utan um
þær verðbréfum!
Mun skila góðri ávöxtun
En jafnvel þótt rofi til á fjármála-
mörkuðum eru þeir til sem telja afar
líklegt að gullverð muni halda áfram
að hækka. Framleiðsla á málminum
hefur nefnilega dregist saman að
undanförnu og eins og hagfræðin
kennir okkur hækkar verð á vöru
þegar framboð dregst saman en eft-
irspurn ekki. Einn þeirra sem trúa á
áframhaldandi hækkun gullverðs,
hvernig svo sem fer á fjármálamörk-
uðum, er Torbjörn Iwarson, yfirmað-
ur hrávöruviðskipta hjá Handelsban-
ken Capital Markets. Hann hefur
rannsakað þróun gullverðs með tilliti
til framleiðslu allt frá árinu 1971.
„Verðþróunin nú byggist m.a. á
því að gullverði var haldið niðri allan
10. áratuginn. Ekki hefur verið leitað
að gulli og þær námur sem þekktar
eru í dag eru gamlar. Í S-Afríku er
verið að vinna gull á fleiri kílómetra
dýpi og það er stærsti gullframleið-
andi heims. Á síðustu árum hefur
framleiðslan dregist saman í S-Afr-
íku og annars staðar í heiminum,“
segir Iwarson í samtali við Dagens
Industri.
Hann telur gull munu skila fjár-
festum góðri ávöxtun á næstu árum
en varar þó við því að menn leggi öll
eggin í sömu körfu.
Gullið glóir á ný
Framleiðsla hefur dregist saman á undanförnum árum
Gullverð hefur hækkað um 12% það sem af er ári
Reuters
Eðalmálmur Fjárfestar leita oft á náðir gulls þegar að kreppir.
Í HNOTSKURN
» Þegar gullframleiðsla eróbreytt hækkar verð að
meðaltali um 18% á ári.
»Árleg gullframleiðsla íheiminum er um 2.400
tonn.
» Í ársbyrjun kostaði únsanaf gulli 637 dali á heims-
markaði. Nú kostar hún 713
dali.
VERÐBÓLGA í Kína í ágústmánuði
var sú hæsta í landinu í ellefu ár en hún
mældist 6,5% á ársgrunni í mánuðinum
samanborið við 5,6% í mánuðinum áður.
Í frétt á breska fréttavefnum Tim-
esOnline segir að liðlega 18% hækkun á
matvælaverði eigi stærstan þátt í auk-
inni verðbólgu í Kína.
Samkvæmt upplýsingum frá hagstofu
Kína hækkuðu kjötvörur um 49% í verði
á milli júlí og ágúst. Þar munar mest um
svínakjöt en mikill skortur hefur verið á
þeim afurðum að undanförnu.
Svín óskast
FASTEIGNAFÉLÖG í Bret-
landi, sem leigja út íbúðarhúsnæði,
hafa haldið áfram að fjárfesta í slíku
húsnæði þar í landi þrátt fyrir hækk-
un vaxta að undanförnu. Í frétt á
fréttavef breska blaðsins Guardian
segir reyndar að ein helsta skýr-
ingin á þessum fjárfestingum félag-
anna nú sé einmitt hækkun vaxt-
anna. Þeim fækki stöðugt sem hafi
efni á því að kaupa sitt eigið húsnæði
vegna þess hvað vextir séu orðnir
háir. Eftirspurn eftir leiguhúsnæði
hafi því aukist jafnt og þétt.
Í fréttinni segir einnig að spár um
væntanlega lækkun á fasteignaverði
hafi jafnframt áhrif á minni eft-
irspurn eftir íbúðarhúsnæði til
kaups. Væntanlegir kaupendur haldi
í æ ríkara mæli að sér höndum.
Færri geta keypt
húsnæði í Bretlandi
Reuters
STJÓRNENDUR Arcelor
Mittal, stærsta stálframleið-
anda heims, telja framtíðina
bjarta í stáliðnaði. Á næstu
fimm árum reikna þeir með að
sala fyrirtækisins muni aukast
um fimmtung og verða 131
milljón tonna árið 2012. Þetta
kom fram í máli Lakshmi Mit-
tal, forstjóra og aðaleiganda
félagsins, á kynningardegi
þess sem haldinn var í París í
gær.
Bjartir tímar
framundan
ÞRÁTT fyrir að hægja muni á
bandaríska hagkerfinu á næstunni í
kjölfar kreppunnar á veðlánamark-
aði þar í landi er lítil hætta á nið-
ursveiflu þar í landi. Þetta segir Sim-
on Johnson, aðalhagfræðingur
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali
við Bloomberg News.
„Við sjáum enga ástæðu til þess að
ætla annað en að um væga kælingu
sé að ræða í Bandaríkjunum,“ segir
Johnson og bætir við að aukin einka-
neysla muni vega upp á móti nið-
ursveiflunni á fasteignamarkaði.
Merki hennar megi sjá fram á næsta
ár.
Ennfremur segir Johnson að þrátt
fyrir að áhrifa veðlánakreppunnar
gæti á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum, m.a. þannig að erfiðara sé að
nálgast lánsfé, hafi áhrifin á heims-
hagkerfið verið takmörkuð.
Engin kreppa framundan
VERÐ á hráolíu á mörkuðum í
Bandaríkjunum fór í gær á tímabili
upp í 79,29 dali á fat og hefur nafn-
verð olíu aldrei verið hærra. Hæsta
gildið sem áður hafði náðst var
78,77 dalir á fat, um miðjan ágúst-
mánuð.
Athyglisvert er að þessi þróun á
sér stað þrátt fyrir að Samtök olíu-
framleiðsluríkja, OPEC, tilkynntu í
fyrradag að þau hygðust auka
framleiðslu sína um 500 þúsund föt
á dag.
Enn hækkar
olíuverð