Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
C(
!
"
$%
$
"
&
%
'
$"
$$
"(
)
!
$
$ (
$%
'
*
TM Software hlaut nýverið sam-
starfsgráðuna Cisco Premier part-
ner en Cisco framleiðir hugbúnað
fyrir netkerfi, bæði nærnet og víð-
net. Í tilkynningu frá TM Software
segir að netvinna sé einn stærsti
þátturinn í daglegum rekstri nútíma
fyrirtækja, hvort sem þau séu stór
eða smá. Búnaður frá Cisco sé not-
aður til að búa til netlausnir sem
gera samskipti yfir Netið möguleg
og auðveldar þar með alla upplýs-
inganálgun, innan sem utan fyrir-
tækisins.
Mun TM Software vera eitt af
fáum fyrirtækjum á Íslandi sem
hlotið hafa þessa vottun frá Cisco og
segja forsvarsmenn fyrirtækisins
það vera mikinn heiður.
TM Software
fullgildur
samstarfs-
aðili Cisco
FJARSKIPTAFYRIRTÆKIÐ
Icecell hefur gert samning við Mílu
ehf. um hýsingu á búnaði. Icecell
fékk nýlega úthlutaðri tíðniheimild
vegna rekstur á GSM-kerfi frá Póst
og fjarskiptastofnun og fyrirhugar
að hefja resktur þjónustu sinnar um
næstu áramót. Icecell er að hefja
vinnu við uppsetningu á sendum og
öðrum búnaði og mun Míla útvega
þeim hýsingu í sínum símstöðvum.
Icecell hefur í hyggju að ná til 98%
landsmanna með GSM-dreifikerfi
sínu. Félagið er í eigu svissneskra
aðila og eru höfuðstöðvar þeirra á Ís-
landi á Flugvallarvegi í húsnæði
Flugbjörgunarsveitarinnar. Míla
byggir á aldagamalli starfsemi fjar-
skiptanets Símans. Fyrirtækið var
nýlega skilið frá annarri starfsemi
Símans og er í eigu Skipta hf.
Icecell samdi
við Mílu
PRENTSMIÐJAN Oddi og Birt-
íngur útgáfufélag ehf. hafa gert
með sér samning um prentun allra
tímarita Birtíngs. Í tilkynningu seg-
ir að um sé að ræða einn stærsta
prentsamning sem gerður hefur
verið hér á landi og þann stærsta
sem gerður hefur verið um prentun
tímarita. Samkvæmt honum prent-
ar Oddi yfir 220 tölublöð af tímarit-
um Birtíngs á ári.
Árlegur eintakafjöldi er áætl-
aður vel yfir tvær milljónir en Birt-
íngur gefur út vikublöðin Séð og
heyrt og Vikuna og mánaðarblöðin
Gestgjafann, Nýtt líf, Hús og híbýli,
Söguna alla, Golfblaðið, Ísafold og
Mannlíf.
Haft er eftir Jóni Jósafat Björns-
syni, framkvæmdastjóra Odda, að
samningurinn geri fyrirtækinu
kleift að taka stærri skref varðandi
fjárfestingar, bæði hvað varðar
framleiðsluna sjálfa og þjón-
ustuferlið. Spennandi tímar séu
framundan í tímaritaútgáfu í heim-
inum og talsverðir möguleikar á að
bæta þjónustu Odda ennþá meir.
Þá lýsir Elín Ragnarsdóttir,
framkvæmdastjóri Birtíngs, yfir
mikilli ánægju með samninginn við
Odda, hann sé mjög hagstæður fyr-
ir félagið. Samstarfið við Odda und-
anfarin ár hafi verið mjög farsælt.
Oddi prentar tímarit Birtíngs
Ljósmynd/Jóhann Þröstur Pálmason
Tímarit Elín Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Birtíngs, og Jón Jósafat
Björnsson, framkvæmdastjóri Odda, handsala prentsamninginn.
ÞÓRÐUR Birgir Bogason hefur keypt fyrirtækið
Parket & gólf af fjölskyldu Ómars Friðþjófssonar, stofn-
anda fyrirtækisins. Parket & gólf hefur verið starfandi á
gólfefnamarkaði í meira en tvo áratugi en verslunin, sem
er til húsa í Ármúla 23, var fyrst opnuð árið 1985.
Parket & gólf selur parket, hurðir, flísar og inn-
veggjaefni frá þekktum framleiðendum eins og Hörning,
Hakwood, Parador, Lebo og Upofloor. Í tilkynningu
kemur fram að fyrirtækið hafi tekið þátt í ýmsum verk-
efnum undanfarin ár, t.d. á Bessastöðum, í Alþingishús-
inu, Höfða, Listasafni Íslands, Seðlabankanum, Valhöll á
Þingvöllum og Hótel Borg, auk fjölda verkefna fyrir
Kaupþing, Glitni og Landsbankann.
Mörg tækifæri til vaxtar
Þórður Birgir, sem er verkfræðingur að mennt, þekkir
vel til byggingavörumarkaðarins en hann var um tíma
forstjóri MEST. Þar áður starfaði hann fyrir Samskip í
Þýskalandi og Hollandi, samtals í um 10 ár.
Hann segir mörg tækifæri til vaxtar og þróunar fyrir
fyrirtæki eins og Parket & gólf.
„Uppsteypa húsa hefur farið mjög vel af stað á þessu
ári og það liggur fyrir að innrétta þarf allt þetta hús-
næði. Þá skiptir máli að skipta við trausta fagaðila sem
geta haldið settar tímaáætlanir,“ segir hann í frétta-
tilkynningu en um þessar mundir er verið að stækka
sölu- og sýningarrýmið í Ármúlanum og auka vöruúr-
valið. Starfsmenn fyrirtækisins eru 15 talsins og starfa
þeir allir áfram með nýjum eiganda.
Þórður Birgir kaupir Parket
& gólf af stofnendunum
Eigandi Þórður Birgir Bogason, fv. forstjóri Mest, hef-
ur keypt Parket & gólf af fjölskyldunni sem stofnaði
fyrirtækið fyrir 22 árum.
SAMTÖK verslunar og þjónustu,
SVÞ, munu í dag standa fyrir morg-
unfundi á Nordicahóteli undir yfir-
skriftinni „Aukið heilbrigði – ábyrgð
atvinnulífsins“. Mun fundurinn
standa frá klukkan 8:00-10:00.
Á fundinum verður undirrituð yf-
irlýsing forystumanna verslunarfyr-
irtækja í SVÞ þar sem þeir samein-
ast um markmið til hagsbóta fyrir
neytendur, starfsfólk og þjóðina
ásamt því að skora á stjórnvöld að
bæta úr í þessum efnum.
Fundur um
heilbrigði
STÖÐUGT fleiri aðilar sækja
um aðild að kauphöllum OMX
Nordic Exchange á Norðurlönd-
unum og í Eystrasaltsríkjunum,
auk þess sem núverandi aðilar
hafa verið að útvíkka aðild sína.
Á þessu ári hafa alls átta nýir að-
ilar gengið til liðs við Nordic
Exchange og þrettán hafa útvíkk-
að aðild sína. Í dag eiga 162
bankar og verðbréfafyrirtæki
viðskipti á einum eða fleiri mörk-
uðum OMX Nordic Exchange.
„Það er ánægjulegt að sjá að
stöðugt meiri áhugi er á beinum
aðgangi að viðskiptum í Nordic
Exchange meðal verðbréfafyr-
irtækja jafnt innan sem utan
Norðurlandanna. Okkur hefur
tekist að skapa svo stóran mark-
að að við erum nú leiðandi á
mörgum sviðum, þar á meðal í
pappírsiðnaði, tísku og upplýs-
ingatækni,“ er haft eftir Jukka
Ruska, forstjóra OMX, í tilkynn-
ingu.
Núna í september er von á ní-
unda aðilanum, Flow Traders í
Amsterdam, sem skráir sig á
danska, finnska og sænska mark-
að OMX. Einnig hafa BNP Pari-
bas í París og IMC í Amsterdam,
sem voru í sænsku og finnsku
kauphöllinni, farið inn í þá
dönsku.
Í júlí sl. útvíkkuðu fjárfesting-
arbankinn Saga Capital og Nor-
dVest verðbréf á Íslandi aðild
sína þannig að hún næði til
Stokkhólms og Helsinki. Van der
Moolen hefur haft aðgang að
finnska markaðnum og útvíkkaði
í júlí aðild sína til sænska hluta-
bréfamarkaðarins. Nýverið gekk
félagið til liðs við danska mark-
aðinn og mun brátt bæta ís-
lenska markaðnum við. EIK
Bank A/S í Kaupmannahöfn út-
víkkaði aðild sína til Íslands í júlí
og til OMX Nordic Exchange í
Stokkhólmi frá byrjun ágúst síð-
astliðinn.
Stöðugt fjölgar á OMX
Nordic Exchange
Fyrirtækið R. Sigmundsson ehf.
hefur nú flutt alla starfsemi sína
undir eitt þak í nýju húsnæði við
Klettagarða 25.
Fram að þessu hefur fyrirtækið
verið með þrjár starfsstöðvar, sem
nú munu verða sameinaðar í tæp-
lega 3.000 fermetra nýbyggingu,
þ.e. verslanirnar, verkstæðin og
skrifstofurnar og „mun það verða
til mikilla hagsbóta fyrir bæði fyr-
irtækið og viðskiptavini þess,“ segir
í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Í nýja verslunarrýminu mun
verða mun meira pláss til að sýna
þá vöru sem boðið er uppá, hvort
heldur sem það eru siglingatæki,
vegaleiðsögutæki, skemmtibáta,
vélar eða bílalyftur, svo eitthvað sé
nefnt.
„Á síðasta ári sameinuðust fyr-
irtækin R. Sigmundsson, Vélasalan
og Radiomiðun undir nafni R. Sig-
mundsson. Öll þessi fyrirtæki áttu
sér langa sögu og höfðu mikla
reynslu og þekkingu hvert á sínu
sviði. Síðan sameiningin átti sér
stað í fyrra hefur verið unnið að því
að koma fyrirtækinu undir eitt þak
og er því takmarki nú náð,“ segir
ennfremur í tilkynningunni.
R. Sig-
mundsson
flytur í nýtt
húsnæði
GEYMSLA Eitt í samvinnu við
Fasteignafélagið Eyrarbakka býður
nú viðskiptavinum upp á geymslu
fyrir húsvagna sína.
Um er að ræða 2.000 fermetra
húsnæði á Eyrarbakka, en í tilkynn-
ingu segir að áhersla sé lögð á að
húsnæðið sé aðgengilegt og vistvænt
í alla staði.
Vefmyndavélar eru í húsinu og
munu viðskiptavinir sjálfir geta
fylgst með vögnum sínum á Netinu.
Hrólfur Hreiðarsson, stjórnarfor-
maður Fasteignafélagsins Eyrar-
bakka, segir mikil verðmæti fólgin í
húsvögnum og að það geti skilað sér í
hærra endursöluverði séu þeir
geymdir innan dyra yfir hörðustu
mánuði ársins.
Húsvagna-
geymsla
◆
◆
◆