Morgunblaðið - 15.09.2007, Síða 2
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ
gerði húsleit í höfuðstöðvum Lyfja
og heilsu í Reykjavík í gær og í
starfsstöð fyrirtækisins á Akranesi
vegna athugunar á því hvort fyr-
irtækið misnotaði markaðsráðandi
stöðu sína á Akranesi, en þar hefur
ný lyfjaverslun nýlega verið opnuð.
Í yfirlýsingu frá Lyfjum og heilsu
segir að fráleitt sé að fyrirtækið
misnoti stöðu sína og að það muni í
hvívetna aðstoða Samkeppniseftir-
litið við athugun sína.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, staðfesti að
eftirlitið hefði gert húsleit í höf-
uðstöðvum Lyfja og heilsu og uppi
á Akranesi „og athugunin beinist
að því að ganga úr skugga um það
hvort fyrirtækið hafi beitt sam-
keppnishindrunum með ólögmæt-
um hætti“, sagði Páll Gunnar enn-
fremur.
22% til 77% verðmunur á lyfj-
um á Akranesi og í Vesturbæ
Hann sagði ómögulegt um það
að segja hvenær mætti búast við
niðurstöðu af athugun embættisins.
Nýja lyfjaverslunin á Akranesi,
Apótek Vesturlands, birti auglýs-
ingu í fjölmiðlum í gær undir yf-
irskriftinni: „Ert þú að niðurgreiða
lyf fyrir Skagamenn?“ Þar eru tek-
in dæmi af verðmun á lyfjum hjá
Lyfjum og heilsu á Akranesi og í
Vesturbæ Reykjavíkur og hjá Apó-
teki Vesturlands. Þar kemur fram
t.d. að verð hjá Lyfjum og heilsu á
Akranesi og Apóteki Vesturlands
er í öllum tilvikum nánast það
sama, en mun hærra hjá Lyfjum
og heilsu í Vesturbæ Reykjavíkur
og er munurinn allt frá 22% og upp
í 77%.
Í yfirlýsingu frá Lyfjum og
heilsu af þessu tilefni segir að
keppinautur fyrirtækisins á Akra-
nesi hafi opnað apótek sitt 1. júlí
sl. og leggi í markaðsöflun sinni
meðal annars áherslu á lágt verð.
„Lyf og heilsa hefur mætt þeirri
samkeppni með lækkun álagning-
arprósentu sinnar á um tveimur
hundruðustu af vörutegundum sín-
um á Akranesi. Að mati Lyfja og
heilsu er fráleitt að kalla slíkt mis-
notkun á markaðsráðandi stöðu í
bæjarfélaginu og telur augljóst að
verðlækkunin sé einfaldlega eðlileg
viðbrögð við nýrri og öflugri sam-
keppni,“ segir meðal annars.
Þá kemur fram að Lyf og heilsa
muni aðstoða Samkeppniseftirlitið í
hvívetna við athugun þess og
leggja þannig sitt af mörkum til
þess að niðurstaða fáist í málinu
sem allra fyrst.
Húsleit
hjá Lyfjum
og heilsu
Samkeppnishindr-
anir til rannsóknar
FULLHLAÐIN olíubíll valt á Kjós-
arskarðsvegi á fimmta tímanum í
gærdag. Ökumaður var fluttur með
sjúkrabíl á slysadeild með eymsli í
síðunni. Olía lak ekki úr bílnum og
var enn unnið að því á tíunda tím-
anum í gærkvöldi að dæla olíu úr
bílnum yfir í annan bíl áður en hægt
væri að reyna að koma honum á rétt-
an kjöl. Bíllinn var með rúm átta
tonn af olíu og varð slysið með þeim
hætti að vegkantur gaf sig. Þegar
ökumaður reyndi að koma í veg fyrir
að bíllinn ylti ofan af veginum kom
slinkur á bílinn og valt hann við það.
Fullhlaðinn
olíubíll valt
Morgunblaðið/Kristinn
Bílvelta Olíubíllinn þar sem hann valt á Kjósarskarðsvegi.
2 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Með Morgunblaðinu
í dag er dreift
kynningarblaði
um Íslensku
Sjónlistaverðlaunin
á Akureyri.
M E N N I N G A R H ÁT Í Ð - M Á L Þ I N G
Á A K U R E Y R I 2 1 . - 2 3 . S E P T E M B E R
V E R Ð L A U N A A F H E N D I N G Í B E I N N I Ú T S E N D I N G U S J Ó N V A R P S
N ÁT T F ATA - , F U R Ð U F ATA - O G G R Í M U D A N S L E I K I R U M A L L A N B Æ
Í S L E N S K U
S J Ó N L I S T A V E R Ð L A U N I N
S J Ó N
L I S T
2 0 0 7
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
„ÞAÐ er gríðarlegt áfall að verða
fyrir svona óhappi,“ sagði Ágúst Ingi
Ketilsson, fjallkóngur í vesturleit á
Flóa- og Skeiðamannaafrétti, en 103
kindur drukknuðu í gærmorgun
þegar verið var að reka fé yfir Kálfá.
„Við vorum að fara yfir Kálfá á
nýjum stað. Féð var tregt að fara út í
ána. Svo tóku nokkrar af skarið og
fóru út í ána á röngum stað. Þá fylgdi
safnið á eftir. Það var hins vegar
slæmur bakki hinum megin árinnar
sem þeim gekk illa að komast upp á.
Það var mikið í ánni og ærnar tróð-
ust fljótt undir, þær sem ekki kom-
ust upp bakkann.“
Leitarmenn brugðust hart við
þegar ljóst var hvað var að gerast og
björguðu fjölda fjár sem var að
drukkna. Ágúst sagði að þetta hefði
allt gerst mjög hratt. Erfitt hefði
verið að varna tjóni því kindurnar
hefðu troðist hver ofan á aðra og
drukknað ótrúlega fljótt.
Veður var afar slæmt leitardag-
ana; norðaustan slagvirði með mikilli
rigningu. „Þetta hafa verið gríðar-
lega erfiðar leitir. Ég held að megi
segja að við séum heppnir að komast
með alla menn heila heim. Vatns-
veðrið á miðvikudag var þannig að
allir lækir urðu að stórfljótum.“
Menn og dýr í hrakningum
Skeggi Gunnarsson, bóndi á
Skeggjastöðum, lenti í brasi þegar
hann fór yfir Skillandsá. „Það hefur
verið gríðarlega mikið vatn í öllum
ám og vont að reka yfir þær. Hestar
hafa verið á kafi. Þegar ég fór yfir
Skillandsá flaut ég af hestinum en ég
hékk í taumnum. Ég náði að krafsa
mig í land með hestinum. Ég var
ekki stórlega í hættu, en þó veit mað-
ur aldrei hvað hefði getað gerst.“
Skeggi sagði að erfitt hefði verið
að reka féð yfir ár og læki. Menn
hefðu sumstaðar orðið að skilja eftir
fé vegna þess að ekki hefði verið
hægt að koma því yfir árnar. Eitt-
hvað af fé drapst á miðvikudag þegar
kindur stukku í pytti eða komust
ekki yfir ár.
„Ég er búinn að slarka í þessu í 30
ár og þetta eru með erfiðustu leitum
sem ég hef tekið þátt í,“ sagði
Skeggi.
„Það er gríðarlegt áfall að
verða fyrir svona óhappi“
103 kindur
drukknuðu í
smölun
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Óhapp Yfir 100 kindur drukknuðu í Kálfá hjá Skáldabúðum í gærmorgun.
Allmörgum kindum tókst að bjarga. Eftir slysið tók hreinsun við.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson í Dublin
david@mbl.is
BERTIE Ahern, forsætisráðherra
Írlands, hefur síðustu tvo dagana
setið sveittur frammi fyrir sérstakri
rannsóknarnefnd sem kannar
meinta spillingu í írskum stjórn-
málum á árum áður. Samanlagt var
Ahern spurður spjörunum úr í um
tíu klukkustundir um peninga sem
hann fékk greidda inn á reikninga
sína frá auðmönnum snemma á síð-
asta áratug og verður raunar kall-
aður fyrir réttinn að nýju, að því er
greint var frá í gær. Um leið og vitn-
isburðinum var lokið rauk Ahern
hins vegar út á flugvöll til að kveðja
Geir H. Haarde forsætisráðherra en
opinberri heimsókn Geirs til Írlands
lauk síðdegis í gær.
Upphaflega höfðu þeir Geir og
Ahern átt að eiga fund í gær, föstu-
dag. Þegar ljóst varð á mánudag að
Ahern myndi þurfa að mæta fyrir
rannsóknarnefndina á fimmtudag og
föstudag var fundur forsætisráð-
herranna hins vegar færður fram til
miðvikudags. En Ahern hét því að
koma aftur á fund Geirs ef hann
mögulega gæti og hann reyndist
maður orða sinna. Áttu þeir Geir
óformlegt spjall í um hálftíma áður
en Geir flaug áleiðis heim til Íslands.
Fyrr um daginn hafði Geir hitt
Brian Lenihan, dómsmálaráðherra
Írlands, og hann heimsótti einnig
fjármálamiðstöðina í Dublin en upp-
gangur fyrirtækja í fjármálaþjón-
ustu hefur verið mikill á Írlandi sl.
tvo áratugi. Þá kynnti Geir sér einn-
ig starfsemi Forfás – ráðgjaf-
arnefndar stjórnvalda í málefnum
sprotafyrirtækja og frumkvöðla-
starfsemi.
Ahern
kom út á
flugvöll
að kveðja
Morgunblaðið/Davíð Logi
Fjármálamiðstöðin í Dublin Gary Palmer, framkvæmdastjóri Irish Funds Industry Association, Geir H. Haarde
forsætisráðherra, Deirdre Power, stjórnarmaður IFIA, og Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra á Írlandi.
Opinberri heimsókn Geirs H. Haarde til Írlands lauk í gær