Morgunblaðið - 15.09.2007, Side 4
4 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur
sigridurv@mbl.is
TÍMAMÓTASAMNINGUR var í
gær undirritaður á milli íslensku at-
vinnuleikhúsanna og Morgunblaðs-
ins. Markmið samningsins er að
neytendur geti á einum stað nálgast
allar upplýsingar um framboð leik-
húsanna, sýningardaga, sýningar-
tíma, dagskrá og miðasölu. Fram-
vegis verða þessar upplýsingar
birtar í Morgunblaðinu á hverjum
degi og á vefnum mbl.is. Á vefnum
hefur einnig verið bætt við fjölmörg-
um möguleikum fyrir leikhúsin til að
kynna starfsemi sína.
Hugmyndin með samstarfinu er
að neytendur geti nýtt sér þjónustu
Morgunblaðsins og mbl.is til að velja
úr þeim fjölmörgu söng-, óperu-,
dans- og leiksýningum sem í boði
eru á ári hverju. Að samningnum
standa Þjóðleikhúsið, Borgarleik-
húsið, Leikfélag Akureyrar, Íslenski
dansflokkurinn, Íslenska óperan,
Landnámssetrið og Sjálfstæðu leik-
húsin sem alls eru 57 sjálfstæðir
leikhópar.
Sýningar úr felum
Gunnar Gunnsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðu leikhús-
anna, segir að þótt leikhúsin séu í
innbyrðis samkeppni felist samvinna
þeirra í því að þjónusta áhorfendur.
„Við erum með yfir 300.000 áhorf-
endur á ári, sem skiptir máli að
þjónusta. Með þessu geta áhorfend-
ur farið á einn stað og fundið upp-
lýsingar um allar sýningar sem í
boði eru. Það er náttúrlega mjög
mikið að á þessu litla landi skuli á
hverju ári vera frumsýndar um 80
leiksýningar á atvinnugrundvelli,“
segir hann.
Gunnar bendir á að mikið af leik-
sýningum hafi verið í felum fram að
þessu, til dæmis farandsýningar.
Hann segir mikinn kostnað hafa
fylgt því að veita áhorfendum
grunnupplýsingar, svo sem klukkan
hvað sýningar séu. Með samstarfinu
verði allir hins vegar sjáanlegir,
einnig litlu leikhúsin. Gunnar bendir
á að þegar allar upplýsingar séu
komnar á einn stað skapist ný tæki-
færi.
„Það er mikið sóknarfæri að
tengja þetta við Netið, sérstaklega
gagnvart yngra fólki. Netnotkun er
að breytast mjög mikið. Samvinna
prentmiðilsins og netmiðilsins er
líka mjög mikilvæg,“ segir hann.
Vefurinn er framtíðin
Auk Gunnars voru í nefndinni,
sem vann að samningnum, Ása
Richardsdóttir, framkvæmdastjóri
Íslenska dansflokksins, og Júlía
Hannam, markaðsstjóri Þjóðleik-
hússins.
„Ég held að leikhúsin hljóti að
græða á þessari samvinnu. Það sem
Morgunblaðið hefur sett upp fyrir
okkur á vefnum gefur óendanlega
möguleika. Vefurinn er framtíðin og
þetta er bæði neytendum og leik-
húsum til hagsbóta,“ segir Júlía.
Allt um leikhúsin á sama stað
Morgunblaðið/Frikki
Skrifað undir Fulltrúar íslensku sviðslistastofnananna og forstjóri Árvakurs við undirritun samningsins í gær.
Tímamótasamningur Morgunblaðsins og allra atvinnuleikhúsa á Íslandi stór-
bætir þjónustu við þá 300.000 áhorfendur sem sækja leikhúsin á hverju ári
TENGLAR
..............................................
Slóðin á leikhúsvef mbl.is er http://
www.mbl.is/mm/folk/leikh/
KARLMAÐUR um þrítugt var
handtekinn á Laugavegi á fimmtu-
dag eftir tilraun til að komast und-
an lögreglu á stolnu reiðhjóli. Að
sögn lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu var maðurinn töluvert
ölvaður og átti í miklum erfiðleik-
um með að halda jafnvægi. Fótfrá-
ir lögreglumenn áttu því ekki í
vandræðum með að hlaupa hann
uppi.
Maðurinn er einn af átta sem
mega eiga von á sektarboði frá
lögreglu eftir að hafa óhæfir ekið
farartæki á fimmtudag eða aðfara-
nótt föstudags. Þannig var fjórum
ökumönnum bifreiða gert að hætta
akstri vegna ölvunar, þar af tveir
karlmenn á sextugsaldri og kona á
fertugsaldri.
Einnig voru þrír ökumenn
staðnir að akstri undir áhrifum
fíkniefna og fjórir karlmenn voru
teknir fyrir að keyra ökutæki án
þess að hafa til þess tilskilin rétt-
indi.
Reyndi að
stinga af
á reiðhjóli
♦♦♦
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
ESKJA hf. mun líkast til loka
frystihúsi sínu á Eskifirði fyrir
áramót, en þó er verið að skoða
möguleika á að vinna fisk þar
áfram með mun færra fólki. Um 40
manns vinna í frystihúsinu að jafn-
aði, en á Eskifirði búa rétt rúmlega
þúsund manns. Í húsinu hefur ver-
ið unninn þorskur, en bolfiskkvóta
Eskju fylgja um 4.600 þorskígildis-
tonn.
„Við höfum of lítinn kvóta fyrir
þetta hús miðað við þá uppsetningu
sem við höfum þar og færum við
yfir í að vinna aðrar fisktegundir,
sem ekki er mjög fýsilegt fyrir
okkur, kostar það töluvert stórar
fúlgur að koma slíku í kring,“ segir
Haukur Björnsson, framkvæmda-
stjóri Eskju. „Að loka frystihúsinu
er einn af þeim möguleikum sem til
eru í stöðunni. Þetta gæti allt eins
skeð en endanleg ákvörðun hefur
ekki verið tekin. Ef ekkert breytist
er það þó líklegra en hitt.
Ákvörðun tekin fljótlega
Auðvitað hefði þetta áhrif á
reksturinn á Eskifirði, verði þetta
niðurstaðan, en við höfum verið að
segja við fólkið okkar að komin sé
upp ný staða. Við erum með sér-
hæft hús í þorski og búið er að
skera niður stóran hluta af kvót-
anum okkar. Við eigum því erfiðara
með að finna grundvöll til að reka
frystihúsið en áður.“
Haukur segir niðurstöðu munu
liggja fyrir á næstu vikum. „Við er-
um eins og allir aðrir í ákveðinni
óvissu með okkar stöðu. Við viljum
vera heiðarlegir við starfsfólkið,
sem er búið að þjóna okkur lengi
og vel, og viljum ekki koma aftan
að neinum og senda fólki uppsagn-
arbréf fyrirvaralaust.“
Haukur segir hugsanlegt að ein-
hver hluti starfsmanna í frystihús-
inu gæti haft möguleika á störfum
annars staðar í fyrirtækinu, en
ekki sé þó mikið um laus störf.
Annar möguleiki sé að þótt segja
eigi öllum upp gæti alveg eins ver-
ið inni í myndinni að hluti fólksins
yrði áfram og fiskurinn unninn á
annan hátt. „Það myndi kosta pen-
inga og yfirlegu og er það sem við
erum að skoða núna.“
Selja ekki botnfiskkvóta
Um það hvort selja eigi botnfisk-
kvóta Eskju segir Haukur það ekki
standa til. „Við erum að velta fyrir
okkur að fá einhverja aðila til að
styrkja kvótann okkar með því að
koma inn með annan kvóta.“
Hafa fyrirtækin Skinney-Þinga-
nes á Höfn, FISK á Sauðárkróki
og Brim m.a. verið nefnd til sög-
unnar í þessu samhengi en áhugi
þeirra ekki fengist staðfestur.
Eskja dregur
saman vinnslu
í frystihúsi
40 manns vinna í húsinu að jafnaði
Ekki fýsilegt að vinna aðrar tegundir
STJÓRN HB Granda hf. hefur
ákveðið að falla frá fyrirætlunum um
að reisa fiskiðjuver á Akranesi er
skyldi verða tilbúið árið 2009.
Að sögn Eggerts B. Guðmundsson-
ar, forstjóra HB Granda, eru ástæður
ákvörðunarinnar tvíþættar. „Við
sendum Faxaflóahöfnum erindi 10.
ágúst þar sem við óskuðum eftir því
að skoðað yrði hvort hægt væri að
flýta framkvæmdum við nýja höfn á
Akranesi þannig að við gætum verið
komnir með vinnslu þarna í gang árið
2009,“ segir Eggert. Einnig óskaði
HB Grandi eftir því að mörk lóðarinn-
ar sem fiskvinnsluhús félagsins
stendur á við Reykjavíkurhöfn yrðu
löguð og lóðin stækkuð. Nú er lóðin
löguð að húsinu sem á henni stendur
og mjög skringileg og óhentug í lag-
inu að sögn Eggerts. Einnig var farið
fram á að skilmálar um notkun lóð-
arinnar yrðu rýmkaðir svo hægt væri
að nýta hana til fleiri nota en einungis
fiskvinnslu.
„Svar Faxaflóahafna var í stuttu
máli að ekki yrði hægt að ljúka fram-
kvæmdum á Akranesi jafn hratt og
við hefðum óskað eftir og á hinn bóg-
inn voru þeir ekki tilbúnir að gera til-
slakanir með lóðina í Reykjavík. Þessi
tvö atriði sameinuð urðu til þess að
stjórnin ákvað að falla frá þessum fyr-
irætlunum,“ segir Eggert.
Harmar ákvörðunina
„Ákvörðunin kemur alveg í bakið á
okkur og verulega á óvart. Við höfð-
um ekki hugmynd um annað en að
hér væri allt í fullum undirbúningi
þess að fyrirtækið stæði við það sem
stjórnendur þess höfðu áður sagt.
Þeir höfðu mikið fyrir að tilkynna
„Ákvörðunin kemur
alveg í bakið á okkur“
okkur um ákvörðunina um að flytja
vinnsluna upp á Akranes um leið og
hún var tekin. Þá lýstum við yfir mikl-
um fögnuði með þessi áform. Svo
heyrir maður í útvarpsfréttum að þeir
eru hættir við,“ segir Gísli Einarsson,
bæjarstjóri á Akranesi.
„Ég harma aðferðafræðina og síð-
an þessa ákvörðun þeirra. Þeir gefa
það út að Faxaflóahafnir hafi ekki
getað þjónustað fyrirtækið eins og
þeir voru að biðja um. Staðreyndin er
hins vegar sú að Faxaflóahafnir eru
með yfirlýsta stefnu um að byggja
upp og efla fiskihöfn á Akranesi, að
Akranes verði aðalfiskihöfnin innan
Faxaflóahafna. Þetta kemur vægast
sagt illa á mann og er mjög óvænt.“
Gísli segir að undirbúningur beiðna til
fjárlaganefndar Alþingis hafi verið í
fullum gangi í því skyni að standa sem
best að framkvæmdunum á Akranesi,
enda þurfi í raun að breyta sam-
gönguáætlun ef það á að vinna hafn-
arframkvæmdir á borð við þá sem
stóð fyrir dyrum. „Þetta er hörmung-
arupplifun,“ segir Gísli að lokum.
Svæðinu ekki breytt
Björn Ingi Hrafnsson, formaður
stjórnar Faxaflóahafna, segist ekki
vita nákvæmlega hvað liggi að baki
ákvörðun stjórnar HB Granda. Hann
segir vilja hafa verið fyrir því að
leggja áherslu á uppbyggingu hafn-
arsvæðis á Akranesi og að full sam-
staða hafi verið um það af hálfu hafn-
arstjórna og stjórnmálaflokka. Það
hafi hins vegar ekki verið mögulegt
innan þess tímaramma sem HB
Grandi setti fram óskir um, enda
þurfi slík framkvæmd að fara í gegn-
um umhverfismat, hönnunarvinnu og
fleira.
Þá segir Björn Ingi að hugmyndum
fyrirtækisins um uppbyggingu íbúða-
hverfis á þeirri lóð, sem það hafi á
leigu við Reykjavíkurhöfn, hafi verið
hafnað ásamt ósk þess um að fá tvær
leigulóðir til viðbótar. „Þetta svæði
hefur verið skilgreint og skipulagt
undir hafnarstarfsemi og því verður
ekki breytt á grundvelli óska leigu-
taka,“ segir Björn.
Í HNOTSKURN
»HB Grandi stundar veiðarog vinnslu á bolfiski og
uppsjávarfiski.
»Fyrirtækið gerir út 14 skipog rekur sérhæfð fisk-
iðjuver, frystihús og mjölverk-
smiðjur.
Morgunblaðið/Þorkell
Um kyrrt Fiskiðjuver HB Granda verður ekki flutt á Skipaskaga.
HB Grandi hverfur
frá áformum um
fiskiðju á Akranesi
BANDARÍSK herflugvél af Herkú-
les-gerð lenti á Keflavíkurflugvelli
um þrjúleytið í gær með bilaðan
hreyfil. Vélin er fjögurra hreyfla,
og ekki var talið að mikil hætta
væri á ferðum, enda gekk lendingin
að óskum. Um borð voru þrettán
hermenn. Nokkur viðbúnaður var
þó vegna lendingarinnar.
Lenti í Keflavík
með bilaðan
hreyfil