Morgunblaðið - 15.09.2007, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
32% ÚTLENDINGA sem fengu
úthlutað kennitölu hjá þjóðskrá á
tímabilinu 1. ágúst 2006-31. júlí á
þessu ári hafa síðan fengið lög-
heimili skráð hér á landi. Um er að
ræða 4.708 manns af þeim 14.925
sem fengu kennitölu á tímabilinu.
Þetta kemur fram í upplýsingum
sem þjóðskrá hefur tekið saman úr
skrá vegna útgáfu kennitalna til
útlendinga sem ekki hafa tekið
upp fasta búsetu hér á landi eða
hyggjast ekki gera það.
794 börn yngri
en 17 ára
Sé sá hópur skoðaður sem fékk
úthlutað kennitölu fyrstu sex mán-
uði tímabilsins, hefur tæplega
helmingur fengið skráð lögheimili.
Mun fleiri útlenskir karlar en kon-
ur fengu úthlutað kennitölu á
tímabilinu. Alls voru karlar, 18 ára
og eldri, 10.065 og konur 4.066.
Börn 17 ára og yngri voru 794.
Flestir útlendinganna eru fæddir á
árabilinu 1977-1986 eða 6.358 tals-
ins. Pólverjar eru langfjölmennast-
ir, eða 7.665, Litháar eru 994 og
Þjóðverjar 594.
Þeim útlendingum sem sækja
um dvalarleyfi hér á landi hefur
fjölgað mikið undanfarin ár. Á ár-
unum 2004-2006 fjölgaði umsókn-
unum sem Útlendingastofnun ber-
ast um dvalarleyfi um 100%.
„Við fengum um 17.000 umsókn-
ir í fyrra,“ segir Hildur Dungal,
forstjóri Útlendingastofnunar. Í
árslok höfðu verið gefin út 13.000
leyfi, um 2.000-3.000 manns fengu
synjun, en einhverjar umsóknir
voru enn í vinnslu í árslok, eða
fólk hafði hætt við.
Hildur segir að stofnunin hafi
tekið saman tölur á þessu ári frá
ársbyrjun og fram í maí, en á
tímabilinu fékk stofnunin tæplega
5.500 umsóknir um dvalarleyfi til
afgreiðslu. „Þannig að fjöldinn
verður sennilega svipaður í ár og í
fyrra, ég býst við að það verði
áfram þessi mikli fjöldi. Það er
ekkert að draga úr honum,“ segir
Hildur. Síðastliðinn mánuð hafi
Útlendingastofnun samþykkt um
1.300 umsóknir. Mikið annríki sé
hjá stofnuninni og „röð út á götu“
suma daga vegna afgreiðslu leyf-
anna.
Nýtt kerfi í notkun
á næstunni
Hildur segir að um þessar
mundir sé verið að breyta útgáfum
á dvalarleyfum fyrir útlendinga
vegna Evrópustaðla sem kalli á
það. Nú sé verið að taka í notkun
kort í stað miða sem áður voru
settir í vegabréf fólksins.
Vegna kortaútgáfunnar þurfi
fólk að koma í myndatöku. Mynd-
irnar verði teknar hjá sýslumönn-
um í umdæmi viðkomandi. Nokkr-
ar tafir hafi orðið á því að þetta
fyrirkomulag kæmist í gagnið en
vonandi verði af því á næstu vik-
um.
Margir sem fá kennitölu
skrá síðar lögheimili
!
"
#$%
%&''(%
%)#$% %&''*
+ %
,$ - .
/ / / 001 2 3
4 " 0 -
5 +3
3
6 -
+ %
,$ - .
7
8
9
: ;
2<
=3 % +; +
+ %
,$ - .
Í HNOTSKURN
»Þjóðskrá hefur í rúm 20 árhaldið sérstaka skrá vegna
útgáfu kennitalna til útlend-
inga sem ekki eru með fasta
búsetu hér.
»Þeir útlendingar semsækja um dvalarleyfi til
Útlendingastofnunar og fá
leyfi fara inn í þjóðskrá og eru
þar með komnir með lögheim-
ili á Íslandi.
» Þá njóta þeir líka ýmissraréttinda hér á landi og
hafa m.a. aðgang að almanna-
tryggingakerfinu.
»Útlendingastofnun gaf ífyrra út um 13.000 dval-
arleyfi.
»Forstjóri Útlendingastofn-unar telur að fjöldinn
verði svipaður í ár.
ÞRÁTT fyrir framfarir í
læknavísindum gerist það enn
að börn greinist með það sem
sérfræðingar nefna fósturköfn-
un. Í síðasta tölublaði Lækna-
blaðsins er grein eftir fjóra
lækna, Kolbrúnu Pálsdóttur,
Atla Dagbjartsson, Þórð Þór-
kelsson og Hildi Harðardóttur,
um fósturköfnun og heilakvilla
af völdum súrefnisþurrðar.
„Þetta er eitt af því sem við erum að berjast við
alla tíð, að hjálpa börnum í heiminn án þess að þau
verði fyrir súrefnisskorti,“ segir Atli sem er sér-
fræðingur í nýburalækningum. „Við erum nú með-
al þeirra fremstu í heiminum á þessu sviði en þetta
er eins konar gæðarannsókn á frammistöðu okk-
ar, við viljum vita hvernig við getum bætt hana
enn frekar. Dánartíðni í kringum fæðingu er sú
lægsta í heimi hjá okkur hér á Íslandi.
Öll börn verða fyrir smásúrefnisminnkun í blóð-
inu við það að fæðast vegna þess að þetta er mjög
erfið stund, þessar mínútur sem fæðingin tekur.
Fóstrin eru bara svo vel undir þessa miklu raun
búin, þau þola það og verða ekki fyrir neinum
skaða. En ef einhver truflun verður, t.d. ef nafla-
strengur klemmist utan um hálsinn eða streng-
urinn fellur fram, þá er voðinn vís takist ekki að ná
þeim fljótt út. Þetta getur gerst alls staðar þegar
um er að ræða erfiðar fæðingar. Það er ekki alltaf
hægt að sjá það fyrirfram og þess vegna kemur
fyrir að þau verða fyrir það mikilli súrefnisröskun
að þau hljóta af því skaða.
Þótt það gerist bara einu sinni finnst manni það
of oft. Á eftir segir maður alltaf að ef eitthvað hefði
verið gert öðruvísi hefði verið hægt að koma í veg
fyrir þetta. Þess vegna reynum við að nota alls
konar tækni til að finna ráð, notum t.d. fósturrit,
sem mæla hjartsláttinn í fóstrinu, fæðingarlæknar
nota þau mikið. Greinin í Læknablaðinu er sú fyrri
af tveim, annars vegar fjöllum við um þessi mál frá
fæðingarfræðilegu sjónarhorni, í seinni greininni
segjum við frá því hvað mörg börn veiktust en þau
voru sárafá. Allt gengur þetta út á að finna leiðir
til að koma í veg fyrir að börnin verði fyrir viðvar-
andi tjóni.
Við getum ímyndað okkur að við finnum ein-
hvern tíma aðferð til að meta ástandið svo ná-
kvæmlega fyrirfram að við getum sagt með vissu
að nú verði að taka barnið með keisaraskurði. Við
leitum að teiknum sem gefa okkur örugg merki
um að inngrip sé nauðsynlegt. En keisaraskurður
er ekki hættulaus og þetta er því mjög erfitt val,“
segir Atli Dagbjartsson.
Hvergi lægri dánartíðni
kringum fæðingar en hér
Í HNOTSKURN
»Allt að 7% allra fóstra fá of lítið súrefnien aðeins brot af þeim fjölda, eitt eða
tvö börn á ári á Íslandi, verða fyrir raun-
verulegu tjóni.
»Kannaðar voru fæðingar á Íslandi á ár-unum 1997-2001, alls um 14.000 og af
þeim voru 127 sem fengu svo lítið súrefni að
hætta gat verið á ferðum.
»Með fósturköfnun er ekki beinlínis áttvið að umrætt barn kafni heldur að það
verði súrefnissnautt sem getur valdið tjóni,
einstaka sinnum varanlegu og jafnvel
dauða.
Atli Dagbjartsson
FYRIRHUGAÐ er að stofna félag
um söfnun og sýningu á munum er
tengjast íslenska refnum. Stefnt er
að því að opna setrið í Eyrardals-
bænum í Álftafirði er fram-
kvæmdum við hann lýkur, en und-
anfarin ár hefur verið unnið að
endurbyggingu hans. Áætlað er að
það verði ekki seinna en 2009.
Stofnfundurinn verður haldinn í
Samkomuhúsi Súðavíkur í dag,
laugardag 15. september, kl. 14.
Tilgangur félagsins er söfnun
muna, utanumhald og sýning á
munum er tengjast melrakka (tófu).
Í tilkynningu kemur fram að mel-
rakkasetri er ætlað að vera fræða-
setur um íslenska melrakkann þar
sem safnað verður á einn stað þekk-
ingu um þá í fortíð og nútíð.
Stofna félag
um refasetur
á Súðavík
SIGRÍÐUR Lillý Baldursdóttir tek-
ur 1. nóvember næstkomandi við
starfi forstjóra Tryggingastofnunar
ríkisins af Karli Steinari Guðnasyni.
Sigríður Lillý segir mikið breytinga-
skeið framundan hjá stofnuninni og
vísar til þeirrar ákvörðunar ríkis-
stjórnarinnar að fara gaumgæfilega
yfir tryggingamál.
Þá standi til að færa málaflokkinn
að hluta til úr heilbrigðismálaráðu-
neytinu yfir í félagsmálaráðuneytið.
„Þegar hefur verið skipuð nefnd á
vegum forsætisráðuneytisins til þess
að leiða það starf. Það gefur augaleið
að það verða breytingar,“ segir hún.
Áhersla á rafræna þjónustu
Sigríður Lillý kveðst spennt að
taka við stöðunni en hún segir mik-
ilvægt að stofnunin veiti þeim sem
við hana skipta sem besta þjónustu.
„Við höfum þegar sett af stað um-
fangsmikið verkefni til þess að auka
rafræna þjónustu við viðskiptamenn
stofnunarinnar en jafnframt verður
að líta til þess að ekki hafa allir sem
leita til okkar tök á því að hafa sam-
skipti á rafrænu formi. Þannig að
það er minn vilji að efla stofnunina
líka hvað varðar aðra þjónustu,“
segir hún.
Sigríður Lillý hefur starfað sem
framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Tryggingastofnunar undanfarin ár.
1996-2001 var hún skrifstofustjóri í
félagsmálaráðuneytinu, verkefnis-
stjóri í utanríkisráðuneytinu árin
1994-1996 en fram til þess tíma var
hún lektor við Tækniskóla Íslands
og stundakennari við Háskóla Ís-
lands. Hún sat í tryggingaráði frá
1987-1995. Sigríður Lillý er eðlis-
fræðingur að mennt og hefur stund-
að rannsóknir í endurhæfingarverk-
fræði.
Karl Steinar hefur verið forstjóri
Tryggingastofnunar í 14 ár eða frá
1. október 1993. Hann hugðist láta af
störfum vegna aldurs nú á haustdög-
um en það varð að samkomulagi að
starfslok hans yrðu 1. nóvember.
Sigríður Lillý
Baldursdóttir
Karl Steinar
Guðnason
Sigríður Lillý
nýr forstjóri TR
Á námskeiðinu verður
m.a. fjallað um:
• Þroska barna, sjálfsmynd og
samskipti.
• Vandamál sem geta komið upp
í samskiptum innan
fjölskyldunnar.
• Aðferð til þess að kenna
börnum að taka ábyrgð.
• Hvernig hægt er að tala við
börn og tryggja að þau hlusti.
• Aðferð til þess að kenna
börnum tillitssemi og sjálfsaga.
• Aðferðir sem varast að það
séu sigurvegarar og taparar í
samskiptum.
• Hugmyndir um hvernig hægt
er að hafa áhrif á gildismat
barna.
HUGO ÞÓRISSON
Sálfræðingur
WILHELM NORÐFJÖRÐ
Sálfræðingur
NÝTT NÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST
Upplýsingar og skráning í
síma 562 1132 og 562 6632
eftir kl. 16.00 og um helgar
og á hugo@hugo.is
www.samskipti.org