Morgunblaðið - 15.09.2007, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Kosovo hefur í átta ár verið undirforræði Sameinuðu þjóðanna
og hafa Íslendingar verið meðal
þeirra þjóða, sem hafa tekið þátt í
stjórninni þar. Í raun má segja að
Kosovo hafi verið í stöðu nýlendu
alþjóðasamfélagsins, þótt sú skil-
greining yrði tæpast viðurkennd af
þeim, sem þar ráða ferðinni.
Fyrirkomulagið í Kosovo átti aldr-ei að standa svona lengi, þótt
eftir á sé auðvelt að segja að það
yrði vandkvæðum bundið að ná
sáttum um framtíð landsins/
héraðsins. Serbía vill ekki að Kos-
ovo fái sjálfstæði. Þorri íbúa Kos-
ovo vill ekki heyra undir Serbíu.
Þarna er enginn millivegur.
Undirbúningur var hafinn að þvíað Kosovo fengi sjálfstæði, en
nú hafa Rússar lagst gegn því í ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðina.
Evrópusambandið hefur þrýst á
serbnesk stjórnvöld að fallast á að
Kosovo fái sjálfstæði. Gulrótin er
aðild að ESB. Í Serbíu ganga menn
hins vegar ekki af göflunum við til-
hugsunina um inngöngu í ESB.
Frekar mætti segja að nokkur and-
úð ríkti gegn sambandinu og
mælist stuðningur við aðild um
þessar mundir 53%.
Ef Kosovo fengi sjálfstæði teljamargir að Serbía myndi ein-
angrast og snúa baki við Evrópu-
sambandinu. Þá er nærtækast að
Serbar myndu horfa til Rússlands.
Staða Kosovo er hins vegar ótækog Sameinuðu þjóðirnar voru
ekki stofnaðar til að reka nýlendur.
STAKSTEINAR
Kosovo Þýskur hermaður á vegum
NATO á verði í þorpinu Skorobiste.
Serbía og Kosovo
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
*$;<
!
"#$
*!
$$; *!
!"
"
#
$" %$
=2
=! =2
=! =2
#"!&'()*$+
>$ -
62
%&
& '(
)
;
%"'
)
*
+, "
*
-
.
*
+ /
!#
0
'&, ,-
$..
$" / $
* $&'
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
01
0
1 1
11
0
0
0
0
0
01
0
01
0
0
0
0
0
01
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Iðnó ehf. | 14. september 2007
Dagurinn í dag
Gaman að segja frá því
að hingað komu í byrj-
un viku tvö risastór
vöðvabúnt frá Ameríku
sem eru lífverðir Aya-
an Hirsi Ali og voru að
taka Iðnó út. Þeir fóru
um allt hús, niður í kjallara og end-
uðu upp í risi í setustofunni og voru
þeir upprifnir yfir fegurð hússins og
sjarma og það fyrsta sem annar
þeirra segir þegar upp er komið var:
„Eru ekki draugar hér?“ Hugsið
ykkur, hann varð var við andana.
Meira: idno.blog.is
Nanna Katrín Kristjánsdóttir | 14. sept.
Hætt að fara í bíó
Ég er eiginlega hætt
að fara í bíó, ég er rétt
sest inn, þegar ég
kemst að því að enn
einu sinni eru þeir að
sýna sömu myndina og
ég geng út. Það virðist
vera eins og þeir sýni bara þrjár
myndir.
Þessa sem byrjar með fljúgandi
hestinum, stráknum á tunglinu eða
konu sem á að vera frelsisstyttan.
Held að bíóhúsin verði að fara að
gera eitthvað í þessu.
Meira: nanna.blog.is
Sigurður Hr. Sigurðsson | 14. sept.
Ófögur sjón
Það er ánægjulegt að
fleiri skipulagsyfirvöld
á Reykjanesi samþykki
ekki lagningu há-
spennulína þvers og
kruss yfir fólkvanginn.
Það gleymist oft að
reikna með því sem almenningur
tapar á því þegar plantað er niður
háspennumöstrum, stundum þar
sem náttúrufegurðin er hvað mest.
Ég hef enga tölu á hversu oft ég hef
farið og gengið um Reykjanesið
þvert og endilangt…
Meira: siggi-hrellir.blog.is
Svavar Alfreð Jónsson | 14. september
Lyktin af þér
Í gærkvöldi horfði ég á
þýsku kvikmyndina
„Das Leben der And-
eren“. Hún er af-
skaplega vel gerð og
frábærlega leikin. Um-
fjöllunarefnið er líka
mjög spennandi – lífið í þýska al-
þýðulýðveldinu. Aðalsöguhetjan er
starfsmaður Stasi, austur-þýsku
leyniþjónustunnar.
Upphafsatriði myndarinnar vakti
upp minningar hjá mér. Vorið 1994
var ég á ráðstefnu í Berlín. Þá heim-
sótti ég aðalbækistöðvar Stasi sem
eru til húsa í gamla flotamálaráðu-
neyti nasistanna. Yfirmaður Stasi,
Joachim Gauck, tók á móti okkur.
Húsakynnum Stasi var ekki lokað
eftir fall múrsins. Þar er að finna
gríðarlegt magn upplýsinga um fólk,
aðallega fyrrum borgara DDR. Þeg-
ar alþýðulýðveldið varð gjaldþrota
var ákveðið að fólk gæti nálgast upp-
lýsingar um sig hjá Stasi og fólk var
ráðið til stofnunarinnar til að gera
þær aðgengilegar. Einnig gast þú
fengið að vita hverjir það voru sem
gáfu upplýsingarnar um þig, eins og
fram kemur í Das Leben der And-
eren. Gauck var settur yfir þessa
nýju Stasi.
Gauck sagði okkur sögu Stasi og
leiddi okkur um húsakynni stofn-
unarinnar. Við sáum meðal annars
deildina sem sá um að opna bréf til
almennings. Það eftirminnilegasta
var samt risastór geymslusalur, full-
ur af vandlega lokuðum gler-
krukkum. Hver þeirra var merkt
mannsnafni og hafði að geyma klút.
Við gestirnir vissum ekkert hvað
þetta var en Gauck vissi af eigin raun
hvað hér var um að ræða.
Á sínum tíma var Gauck æskulýðs-
prestur í borginni Rostock í gamla
austurhlutanum. Margir prestar létu
um sig muna í andófi gegn alræðinu
og auk þess var kirkjan bakhjarl frið-
arhreyfinga sem voru stjórnvöldum
mikill þyrnir í augum. Einu sinni sem
oftar var Gauck færður til yf-
irheyrslu. Að henni lokinni var hon-
um réttur klútur og hann beðinn að
nudda honum við nára sér. Þar er
víst mesta útstreymi lyktar á lík-
amanum og þess vegna hoppa
hundar gjarnan í klof manna.
Klúturinn var svo gripinn með
töng og settur ofan í krukku.
Meira: svavaralfred.blog.is
BLOG.IS
Bolungarvík | Bæjarstjórn Bolungar-
víkur telur að þótt ýmislegt jákvætt
sé að finna í mótvægisaðgerðum rík-
isstjórnarinnar vanti talsvert upp á
að stjórnvöld komi af krafti til móts
við fyrirtækin, sveitarfélögin og ein-
staklingana sem harðast verða úti
vegna niðurskurðar aflaheimilda í
þorski. Bæjarstjórnin hefur lagt
fram sína eigin aðgerðaáætlun í at-
vinnumálum í tengslum við aðgerðir
ríkisstjórnarinnar.
Í bókun bæjarstjórnar er vakin at-
hygli á því að niðurskurður aflaheim-
ilda sé þegar farinn að hafa áhrif í
Bolungarvík þar sem tæplega 60
starfsmenn sjávarútvegsfyrirtækja
hafi misst vinnuna. Lögð er áhersla á
mikilvægi mótvægisaðgerða og því
fagnað sérstaklega að tuttugu millj-
ónum skuli varið til uppbyggingar
Fræðaseturs Háskóla Íslands í Bol-
ungarvík.
Því er lýst yfir að nú þegar verði
ráðist í aðgerðaáætlun bæjarstjórn-
ar, vegna slæmrar stöðu í atvinnu-
málum sveitarfélagsins, enda rími
þær við aðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Tekið er fram að stærstur hluti fjár-
magns til framkvæmda verði að
koma úr ríkissjóði. „Með því að ráð-
ast í þessar aðgerðir telur bæjar-
stjórn Bolungarvíkur að koma megi í
veg fyrir atvinnuleysi og fólksfækk-
un,“ segir í bókun bæjarstjórnar.
Meðal þeirra aðgerða sem fram
koma í áætlun Bolvíkinga er að
byggð verði öldrunardeild á staðn-
um. Boðið verði upp á starfstengt
nám þar sem fólk sem misst hefur
störf í fiskvinnslu geti menntað sig
til starfa, á launum.
Bæjarstjórnin hyggst ráðast í
endurbætur á Félagsheimili Bolung-
arvíkur og hefur hug á því að byggja
upp íþróttamannvirki og íþrótta-
svæði þannig að hægt verði að sækja
um unglingalandsmót sumarið 2010.
Stefnt er að því að flýta fram-
kvæmdum í sveitarfélaginu við gerð
fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.
Horft er sérstaklega til viðhalds
gatna, gangstétta og lagna og fegr-
unarátaki haldið áfram. Í tengslum
við gerð nýs aðalskipulags verður
framkvæmdum á hafnarsvæðinu
hraðað þannig að fyrirtæki sem
vinna við sjávarútveg og ferðaþjón-
ustu eflist og geti skotið fastari rót-
um á staðnum. Haldin verður ný-
sköpunarsamkeppni í þeim tilgangi
að laða að frumkvöðla.
Útbúa eigin
aðgerðaáætlun
MARGRÉT og vinkona hennar, lundinn Bíbí, leika sér í
rólu á Siglufirði í góðu veðri í vikunni. Síðustu daga
hefur snjóað niður í miðjar hlíðar í Siglufirði. Stall-
systrunum finnst það bara ágætt enda hefur veturinn
upp á margt skemmtilegt að bjóða. Kannski má lesa til-
hlökkun út úr brosi þeirra og augum. Hver veit?
Siglfirskar vinkonur
Ljósmynd/Sigurður Ægisson
TEIKNARINN Sigmund verður í
sumarleyfi næstu vikurnar. Teikn-
ingar hans birtast því ekki í Morg-
unblaðinu fyrr en um miðjan næsta
mánuð.
Sigmund