Morgunblaðið - 15.09.2007, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 17
BENAZIR
Bhutto, fyrrver-
andi forsætisráð-
herra Pakistans,
ætlar að snúa
heim úr sjálf-
skipaðri útlegð
18. október næst-
komandi og ætla
stjórnvöld ekki
að koma í veg
fyrir það. Hefur hún átt í viðræðum
við Pervez Musharraf forseta um
samstarf en hún krefst þess að
hann verði ekki hvort tveggja í
senn, forseti landsins og yfirmaður
heraflans.
Þingkosningar verða í Pakistan
snemma á næsta ári en Musharraf
hefur átt mjög undir högg að sækja
að undanförnu. Hefur ókyrrð í
landinu farið vaxandi.
Bhutto heim
18. október
Benazir Bhutto
ÁSTANDIÐ í Simbabve er orðið svo
slæmt, að fólk er farið að slátra
kjöltudýrunum og leggja þau sér til
munns. Verðbólgan í landinu er
mörg þúsund prósent og fólk svelt-
ur heilu hungri.
Kjöltudýrin étin
FYRIRSÆTUR yngri en 16 ára
verða bannaðar á Tískusýningunni
í London en hins vegar var ákveðið
að banna ekki ofurgrannar fyrir-
sætur, sem gætu þannig ýtt undir
lystarstol hjá ungum stúlkum.
Fyrirsætubann
LEIÐTOGAR jafnaðarmanna í sex
Evrópuríkjum, Tékklandi, Austur-
ríki, Þýskalandi, Póllandi, Slóveníu
og Slóvakíu, hafa fordæmt fyrirætl-
anir Bandaríkjamanna um að koma
upp eldflaugavarnakerfi í Tékk-
landi og Póllandi. Segja þeir að slík
ákvörðun varði öryggismál í allri
Evrópu og verði því að vera sam-
eiginleg ákvörðun allra.
AP
Fundur Jafnaðarmenn í Prag.
Mótmæla
eldflaugunum
VARAÐ var við flóðbylgju í
Indónesíu í gær vegna jarðskjálfta
en þeir hafa verið margir á síðustu
dögum. Segja vísindamenn, að
hugsanlega eigi þó sá öflugasti eftir
að ríða yfir.
Óttast stórskjálfta
ÞVÍ var haldið fram í ýmsum fjöl-
miðlum í gær, þar á meðal í franska
blaðinu France Soir, að sannanir
væru fyrir því að Madeleine
McCann, litla stúlkan sem hvarf í
Portúgal í maí, hefði látist af of
stórum svefnlyfjaskammti.
Rannsóknarblaðamaðurinn Guil-
hem Battut segir í France Soir að
líkamsvessar úr Madeleine, sem
fundust í bílaleigubíl foreldra henn-
ar, sýni að henni hafi verið gefin
svefnlyf, svo mikið að þau hafi getað
orðið henni að bana.
Gerry McCann, faðir Madeleine,
vísar þessum fréttum á bug og segir
að þau hjónin séu enn sannfærð um
að Madeleine hafi verið rænt og hún
sé enn á lífi. Portúgalska lögreglan
hefur hins vegar tilkynnt þeim að
þau séu grunuð um aðild að hvarfi
dóttur þeirra.
Meira en 130 milljónir ísl. kr. hafa
safnast vegna leitarinnar að Made-
leine en vegna síðustu frétta af mál-
inu eru framlög að mestu hætt að
berast. Þá er sagt að tveir ónefndir
auðmenn sem hugðust styðja þau
hjónin, Gerry og Kate McCann, hafi
nú horfið frá því.
Vegna þess að þau hjónin eru op-
inberlega grunuð um aðild að hvarfi
Madeleine hafa breskir barnavernd-
arfulltrúar gengið á þeirra fund en
undir þessum kringumstæðum hafa
þeir vald til að taka hin börnin tvö af
þeim og koma þeim í fóstur til bráða-
birgða. Ekki er þó talið að til þess
komi að sinni.
Skýrt var frá því í fyrradag að
ákveðið hefði verið að fresta sýningu
bandarísku kvikmyndarinnar „Gone
Baby Gone“ með leikaranum Ben
Affleck í Bretlandi. Segir hún frá leit
tveggja einkalögreglumanna að fjög-
urra ára gamalli stúlku sem hefur
verið rænt, og heitir hún Madeleine
O’Brien.
Of stór skammtur?
Óviss örlög Fjórir mánuðir eru
liðnir frá því Madeleine hvarf.
VLADIMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, sagði í gær að nýr forsætis-
ráðherra, Viktor Zúbkov, kynni að
verða í framboði í forsetakosning-
unum á næsta ári. Fór hann mjög
lofsamlegum orðum um hann.
Forseti? Zúbkov, nýr forsætisráð-
herra og forsetaframbjóðandi.
Forsetaefnið?
ISIO4 – Gættu heilsunnar í dag
svo þú njótir morgundagsins.
Til að tryggja heilbrigði líkama og hugar þarftu mataræði sem
er í jafnvægi: prótín úr kjöti og fiski, vítamín úr ávöxtum og
grænmeti, mjólkurvörur sem færa þér kalkið, sterkjufullan mat
til að fá orku … og jurtaolíu fyrir það sem gleymist of oft:
nauðsynlegar fitusýrur (Omega 3 og Omega 6).
ISIO4 – náttúruleg uppspretta nauðsynlegra fitusýra: Omega 3 og
Omega 6. Nauðsynlegar fitusýrur leika lykilhlutverk í að tryggja allri
fjölskyldunni góða heilsu.
Omega 3 hjálpar hjarta- og blóðæðum að starfa rétt og Omega 6
hjálpar til við að draga úr óæskilegu kólesteróli. Því miður getur líkami
þinn ekki framleitt sjálfur þessar nauðsynlegu fitusýrur. Hann getur
aðeins fengið þær úr matnum sem þú borðar.
Lausnin er einföld:
2 matskeiðar af ISIO4 daglega tryggja líkama þínum það magn af
Omega 3 og Omega 6 fitusýrum sem hann þarfnast.
ISIO4 – formúla sem virkar
LESIEUR, helsti framleiðandi matarolía í Frakklandi, hefur þróað ISIO4.
Eftir margra ára rannsóknir er niðurstaðan þessi einstaka formúla sem
sameinar fjórar olíur og færir þér það besta úr hverri: Canola, Oléisol
(sólblómaolía með áþekkri næringarefnasamsetningu og ólífuolía),
sólblóma og vínberjafræ. ISIO4 er rík af E-vítamínum sem hægja á
öldrun fruma og hún inniheldur líka D-vítamín sem eru nauðsynleg til að
viðhalda styrk beinanna. ISIO4 færir þér ánægju og jafnvægi og
viðheldur upprunalegu bragði og lykt matarins. Hún hentar jafnt sem
bragðbætir, til eldunar og djúpsteikingar.
6-800 g bökunarkartöflur,
3-4 msk. ISIO4-olía,
1 tsk. paprikuduft,
1 tsk. timjan,
1 tsk. kummin (má sleppa),
skvetta af tabasco-sósu,
nýmalaður pipar, salt.
Hitaðu ofninn í 215°C.
Skerðu kartöflurnar í geira. (Bestar
með hýðinu en það má líka afhýða
þær fyrst.) Blandaðu ISIO4-olíu,
paprikudufti, timjani, kummini,
tabasco-sósu, pipar og salti vel
saman í stórri skál. Settu kartöflu-
bátana út í og veltu þeim upp úr
olíunni. Raðaðu þeim á plötu klædda
bökunarpappír og bakaðu þá í miðjum
ofni í 25-30 mínútur, eða þar til þeir
eru brúnir og stökkir að utan og meyrir
í gegn. Snúðu þeim einu sinni á
bökunartímanum.
Uppskrift:
Kryddaðir kartöflugeirar
ISIO4 – holl olía fyrir alla
• Ómettaðar fitusýrur í réttu magni:
of mikið magn þessara fitusýra er ekki
gott fyrir heilsuna.
• Rétt magn af nauðsynlegum fitusýrum:
Omega 3 og Omega 6 í æskilegum
hlutföllum.
• Laus við kólesteról.
• Inniheldur D- og E-vítamín.
Nanna Rögnvaldardóttir
Nú einnig
með ólífubr
agði