Morgunblaðið - 15.09.2007, Side 18
18 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
ÁKALL til karl-
manna um að
„vakna“ hefur
vakið athygli í
Bretlandi, að
sögn breska
blaðsins Guard-
ian. Ákallið kom
frá Henry Sutt-
on, dómnefnd-
armeðlim í bókmenntasamkeppn-
inni „New Writing Ventures“, eftir
að ljóst var að öll verðlaun sam-
keppninnar runnu til kvenna. Eins
og Guardian benti á var þó annað
ólíklegt þar sem átta af níu þeirra
rithöfunda sem kepptu um verð-
launin voru konur.
Sutton sagði í breskum fjöl-
miðlum að hann væri „hissa og leið-
ur“ yfir því að engir karlmenn
hefðu svo mikið sem náð á stuttlista
keppninnar, en þar enduðu þrjár
konur. „Ég hef aldrei haft trú á
mismun milli kynjanna þegar um er
að ræða hæfileika á sviði skáld-
skapar, en það er eins og það sem
konur skrifa fái meiri hljómgrunn
en það sem karlar skrifa.“ Hann
tók þó fram að í þessu tilfelli hefðu
„konurnar reitt fram besta skáld-
skapinn“ og því með rétti unnið til
verðlaunanna.
Verðlaunin fyrir bestu skáldsög-
una féllu í skaut Azmar Dar fyrir
bókina „The Secret Arts“ sem ger-
ist í Pakistan. Dar er reyndar fyrst
og fremst þekkt sem leikskáld og
verkið sem hún sendi í þessa sam-
keppni var hennar fyrsta tilraun á
sviði skáldsagnagerðar. Suzanne
Johnson vann til verðlauna fyrir
skapandi skrif er ekki flokkast sem
skáldskapur og Jemma Borg
hreppti ljóðaverðlaunin. Borg er
með doktorspróf í erfðavísindum og
nýtir sér þann bakgrunn við ljóða-
gerð sína.
Karlmenn
vaknið!
Kvenrithöfundar
verðlaunaðir
BÓK Germaine
Greer, „Shake-
speare’s Wife“
hlaut hraklega
dóma í breska
blaðinu The Ob-
server nýverið. Í
umsögn sinni
segir Peter Con-
rad að bókin sé
bæði full af illa
ígrunduðum getgátum sem og ill-
kvittni í garð þessa frægasta skálds
Breta.
Conrad telur „heilaga reiði“ vera
það sem drífur Greer áfram í tilraun
til að gefa „fórnarlömbunum systr-
um sínum“ í sögunni vægi. Hann
færir þau rök fyrir máli sínu að bók
Greer byggi í þessu tilfelli á konu –
eiginkonu Shakespeare – sem sé
„ósýnileg“. Hann bendir á að þótt
ýmislegt sé vitað um líf Ann Hath-
away, eiginkonuna sem Shakespeare
yfirgaf, þá sé ljóst að Greer fylli
mjög frjálslega í eyðurnar með því
að nýta sér heimildir um konur al-
mennt á þeim tímum sem Hathaway
var uppi. Heimildir sem engin leið sé
að heimfæra upp á líf Hathaway en
beri samt sem áður upp efnivið heilla
bókarkafla og niðurstöður þeirra.
Greer leiðir að því líkur í bókinni að
Shakespeare hafi látist úr sýfilis –
eða ólifnaði – og lætur bók sína
hverfast um þá hugmynd. Sú stað-
hæfing er að mati Conrads afar
hæpin og illa rökstudd, en þjóni þó
þeim tilgangi fyrir Greer að spilla
ímynd trúverðugleika hans sem
manneskju. Greer heldur því fram
að kvikasilfursinnihald lyfja sem
tekin voru við sjúkdómnum hafi
skert andlegt atgervi skáldsins.
Greer á
hálum ís
Germaine Greer
Á MORGUN stendur Mögu-
leikhúsið opið almenningi að
kostnaðarlausu að því tilefni að
18. leikár leikhússins er nýhaf-
ið. Sex leiksýningar fyrir börn
og unglinga verða sýndar hver
á eftir annarri og er frítt inn
meðan húsrúm leyfir.
Möguleikhúsið hefur starfað
frá árinu 1990, en fyrsta leik-
sýning í nafni þess fór fram í
miðbæ Reykjavíkur 17. júní
það ár.
Í vetur býður Möguleikhúsið upp á 9 mismun-
andi sýningar og það eru 6 þeirra sem sýndar
verða á sunnudaginn. Dagskráin hefst klukkan 11.
Leikhús
Möguleikhúsið
stendur opið
Úr Langafi
prakkari.
MYNDHÖGGVARINN Helgi
Gíslason verður með lista-
mannsspjall á morgun sunnu-
dag klukkan 15 á Kjarvals-
stöðum.
Hann er fyrstur til að sýna
verk sín í nýrri sýningaröð í
vesturforsal Kjarvalsstaða þar
sem áherslan er lögð á þrívið
verk, sem þykja henta rýminu
afar vel, að því er segir í frétta-
tilkynningu.
Á sýningunni sýnir listamaðurinn nýjar lág-
myndir sem er miðill sem Helgi sér sem „einstigi
milli tvívíddar og þrívíddar“.
Sýningin stendur til 14. október.
Myndlist
Helgi Gíslason með
listamannsspjall
Helgi
Gíslason
Menningarmiðstöðin
Skaftfell, miðstöð mynd-
listar á Austurlandi, tek-
ur nú á móti umsóknum
um aðstöðu í gesta-
vinnustofum og sýningar
listamanna fyrir árið
2008.
Framlengdur umsókn-
arfrestur er til 20. októ-
ber næstkomandi.
Allar nánari upplýs-
ingar um hvernig haga skuli umsóknum er að
finna á heimasíðu Skaftfells, www.skaftfell.is.
Auk þess er hægt er að hafa samband í síma:
472 1632.
Myndlist
Skaftfell óskar
eftir umsóknum
Skaftfell.
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Fjórða starfsár Tónlistar-hússins Laugarborgar íEyjafjarðarsveit er nýhaf-ið, en húsið hefur smám
saman haslað sér völl sem helsti vett-
vangur tónleika við Eyjafjörð. Þór-
arinn Stefánsson píanóleikari er
framkvæmdastjóri og listrænn
stjórnandi hússins, og er eðlilega
ánægður með það hvernig til hefur
tekist.
„Það er einstaklega fallegur bíltúr
í margbreytilegu umhverfi að fara
frá Akureyri inn í Laugarborg. Ég
veit ekki betri undirbúning að tón-
leikum en aka í nokkrar mínútur um
fagra sveit; virða fyrir sér haustlit-
ina, snjóbreiðuna að vetri, eða álftir
með varp á vorin. Það er alltaf eitt-
hvað nýtt að sjá,“ sagði Þórarinn
þegar blaðamaður hitti hann að máli
á dögunum.
Ævintýri
Þórarinn segist vilja hafa dagskrá
vetrarins sem fjölbreyttasta. „Hér
finna vonandi allir eitthvað við sitt
hæfi. Þetta var klassísk músík í upp-
hafi, í samræmi við minn bakgrunn,
en fljótt fór að bera á poppi og djass-
tónlist – og nú er Laugarborg tónlist-
arhús með stóru t-i. Þetta er tónlist-
arhús fyrir alla og þangað eru allir
tónlistarmenn velkomnir, alveg sama
hvaða stefnu þeir tilheyra eða hvar
þeir eru búsettir.“
Starfsemin hefur gengið ágætlega,
að sögn Þórarins, en hvernig skyldi
ævintýrið hafa byrjað? Hvað varð til
þess að gamalt samkomuhús inni í
sveit varð helsti tónleikasalur Eyfirð-
inga?
„Ævintýrið hófst, má segja, með
sameiningu þriggja hreppa þannig að
til varð Eyjafjarðarsveit. Þá voru allt
í einu þrjú samkomuhús í einu sveit-
arfélagi og það þurfti að finna þeim
verkefni. Freyvangur var leikhús og
verður áfram, í Sólgarði er Smá-
munasafnið og sú hugmynd kviknaði
hjá Eyjafjarðarsveit og Tónlistar-
félaginu á Akureyri að Laugarborg
gæti orðið tónlistarhús og hýst flyg-
ilinn sem kenndur er við Ingimar Ey-
dal.“
Hugmyndin varð að samningi sem
undirritaður var árið 2000, eftir að
endurbætur höfðu verið gerðar á
húsinu í þessum tilgangi. „Síðan var
stofnuð nefnd sem ég var í forsæti
fyrir, sem hafði það hlutverk að
markaðssetja húsið og finna því
ákveðið notkunargildi. Nú er fjórða
starfsárið nýhafið og starfsemin hef-
ur vaxið og dafnað að umfangi og
Laugarborg er raunverulega eina
tónlistarhúsið við Eyjafjörð. Við eig-
um von á kollegum, bæði á Dalvík og
Akureyri, sem er mikið tilhlökkunar-
efni þannig að það er bjart fram-
undan í tónlistarlífi við Eyjaförð.“
Þórarinn segir að vissulega megi
velta fyrir sér tilverurétti Laug-
arborgar sem tónlistarhúss eftir að
menningarhúsið á Akureyri verður
tekið í notkun. „Það er óskilgreint
hvernig menningarhúsið ætlar að
standa að tónleikahaldi en ég geri ráð
fyrir því að þar á bæ vilji menn fylla
sinn 500 manna sal sem oftast. Slíkir
tónleikar eru aldrei hjá okkur og ég
tel að 99% þeirra tónleika sem eru nú
í Laugarborg eigi að vera þar áfram.
Í grunninn höldum við því okkar
striki og sjáum hvað setur. Við von-
umst auðvitað eftir samvinnu og ég
hefði reyndar kosið að rekstrarlega
yrði Laugarborg annar salur í menn-
ingarhúsinu þótt sá salur yrði annars
staðar. Samnýtingin og samvinnan
gæti orðið í samræmi við viljayfirlýs-
ingu Akureyringa um sameiningu
sveitarfélaga. En menningarhúsið er
sannarlega tilhlökkunarefni, það
verður frábært að fá það hús.“
Þau tímamót urðu um síðustu
mánaðamót að Þórarinn fékk lista-
mannalaun. „Já, það er hátíð hjá
mér! Ég er óskaplega glaður og mér
finnst þetta mikil viðurkenning.“
Þórarinn fær launin í sex mánuði,
hyggst minnka við sig kennslu í Tón-
listarskólanum á Akureyri og sinna
betur verkefni sem hann hefur unnið
að; kanna þjóðlagaútsetningar fyrir
píanó. „Svo hyggst ég spila nokkuð
snúna dagskrá á Myrkum mús-
íkdögum með Emil Friðfinnssyni
hornleikara.“
Þórarinn er Akureyringur, lauk
stúdentsprófi á tónlistarbraut frá
MA og síðan kennaraprófi og einleik-
araprófi í höfuðborginni. Hann bjó
svo 12 ár í Þýskalandi og um skeið í
Danmörku áður en hann sneri heim í
heiðardalinn og settist að á Akureyri.
Eins og það sé ekki nógur starfi að
kenna rekur Þórarinn líka eigið út-
gáfufyrirtæki.
„Ég stofnaði Polarfonia Classics
1999 af einskærum áhuga á þessum
málum og gekk strax ágætlega. Ég
gaf út fyrsta Guitar Islancio-diskinn,
nokkra með Garðari Cortes eldri og
tónleikadisk með Sinfóníuhljómsveit
Íslands.“
Þetta var meðan hann bjó í Dan-
mörku.
„Eftir að ég kom heim og fór í aðra
vinnu dalaði þetta örlítið en nú er aft-
ur komin glæða í starfsemina. Fyrir
stuttu kom út diskurinn Sjallaball
með hljómsveit Ingimars Eydal, tvö-
faldur með gömlum upptökum úr
Sjallanum, og nýlega diskur með ak-
ureyrsku hljómsveinni Mó, sem leik-
ur þjóðlagatónlist. Á döfinni er disk-
ur með Þorsteini Gauta Sigurðssyni
píanóleikara.“
Heiðursútgáfa með Halldóri
Og – síðast en ekki síst – vinnur
Þórarinn að þriggja diska útgáfu til
heiðurs Halldóri Haraldssyni píanó-
leikara. „Halldór, minn gamli kenn-
ari, varð sjötugur í febrúar og eftir að
ég hringdi í hann, til þess að óska
honum til hamingju með afmælið, fór
ég að velta þessu fyrir mér. Til er
mikið efni með Halldóri sem hefur
aldrei komið út. Ég gaf út einn disk
með Halldóri undir mínu merki fyrir
nokkrum árum, þar sem hann spilaði
Schubert- og Brahms-sónötur og ein
gömul hljómplata er til með honum,
en það er allt og sumt.“
Þórarinn segir annað ekki hafa
komið til greina en um veglega út-
gáfu yrði að ræða. „Ég hef átt mjög
góð samskipti við Ríkisútvarpið, sem
lúrir á gömlum upptökum, en þar
hefur verið unnið mjög merkilegt
starf við upptökur með íslenskum
tónlistarmönnum fyrri ára og varð-
veislu þess efnis. Stofnunin má
reyndar muna sinn fífil fegurri því
þetta er ekki gert í dag en það er sem
sagt mjög mikið til með tónlist-
armönnum af eldri kynslóðinni.“
Á einum diskinum leikur Halldór
sólóverk, kammerverk á öðrum og á
þeim þriðja verða upptökur þar sem
hann leikur konserta með Sinfón-
íuhljómsveit Íslans. „Við ætlum að
reyna að koma þessu út sem allra
fyrst. Vinnan við val á verkum er
nánast búin, það vantar svolítið upp á
fjármögnunina en ég vona að okkur
takist að fá það sem upp á vantar.
Það yrði gaman að geta gefið diskana
út á afmælisárinu.“
Tónlistarhús með stóru t-i
Hvað er betra fyrir tónleika en stuttur bíltúr í einstaklega fallegu umhverfi?
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fjölhæfur Þórarinn Stefánsson skipuleggur, kennir, spilar og gefur út.
♦♦♦
VETRARDAGSKRÁ Laugarborgar er fjölbreytt. Hún hófst með kaffi-
tónleikum og lýkur á sama hátt á sjómannadaginn, 1. júní 2008, þegar
Raggi Bjarna og Bergþór Pálsson ásamt hljómsveit hússins syngja sjó-
mannalög og önnur dægurlög.
Djass, sönglist, kammermúsík, þjóðlög, dægurlög, – allt er þetta að
finna í dagskrá Laugarborgar. Á næstu tónleikum, á fimmtudagskvöld,
syngur Andrea Gylfadóttir með Blúsmönnum sínum.
Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur í Laugarborg og í ár
flytur Fífilbrekkuhópurinn lög Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar
Hallgrímssonar. Auk þess verða styrktartónleikar Minningarsjóðs Garð-
ars Karlssonar á sínum stað í lok mars í samvinnu við Tónlistarskóla
Eyjafjarðar. Af öðrum föstum liðum má nefna Vínartónleika í byrjun
árs. Samstarfsverkefni eru áberandi í vetur en Laugarborg á samvinnu
við Listahátíð, Tónskáldafélag Íslands um rekstur Myrkra músíkdaga,
Listaháskóla Íslands og Félag íslenskra tónlistarmanna. Auk þess verður
samstarfi fram haldið við Þingeyskan sagnagarð um endurtekningu
valdra tónleika í Þorgeirskirkju. Þá býður Laugarborg grunnskólanem-
um upp á skólatónleika í samvinnu við Tónlist fyrir alla. Af öðru
fræðslustarfi má nefna þrenna tónleika í vetur undir yfirskriftinni Saga
íslenskrar tónlistar, en Daníel Þorsteinsson leiðir þá. Meðal annarra
listamanna sem koma fram í Laugarborg í vetur eru KK, Sigrún Eð-
valdsdóttir, Kati og Matti Saarinen, Hulda Björk Garðarsdóttir, Camer-
arctica, Sunna Gunnlaugsdóttir, Peter Máté, Helga Bryndís Magn-
úsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir og Kolbeinn Bjarnason og fleiri, alls vel á
annað hundrað tónlistarmenn.
40 tónleikar – alls konar