Morgunblaðið - 15.09.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 19
MENNING
MÁLVERK Aðalheiðar Valgeirs-
dóttur eru í anda strauma og stefna
samtímans þar sem listamenn brjóta
upp fyrri tíma stefnur og blanda
þeim saman á strigann, kannski má
hér tala um einhvers konar af-
sprengi póstmódernismans nema
hér er hugmyndafræðin aðallega í
myndbyggingu, litanotkun og sam-
spili forma. Í fremra sal sýnir hún
stór málverk sem byggjast á mjúk-
um formum sem svífa í forgrunni
óræðs rýmis. Í innri sal eru smærri
verk, meðal annars myndir sem
kalla fram í hugann punktalistina
frönsku með Seurat í fararbroddi,
punktamyndir Roy Lichtenstein eða
uppstækkaðar ljósmyndir með
punktakerfi. Punktamyndirnar
leyna á sér og í stærri myndunum er
einna mest að gerast þar sem saman
koma punktafletir og mjúk form,
einnig þar sem málningin sullast yfir
formin og skapar óreiðu. Hug-
myndafræðin að baki verkunum er í
heildina frekar óljós, Aðalheiður hef-
ur lítið sýnt síðustu ár og fleiri fram-
kvæmdir segja án efa meira um
markmið hennar innan listarinnar,
en bestu verkin gefa til kynna hæfi-
leikaríkan málara. Lyftutónlist er að
ég tel nýjung í galleríinu en tónlistin
sem hljómaði í eyrum mér á meðan
ég skoðaði sýninguna vakti furðu og
gerði ekkert nema að trufla, eft-
irgrennslan leiddi í ljós að und-
irspilið var ekki á vegum listakon-
unnar.
Svif
Eftir Aðalheiði „Hugmyndafræðin að baki verkunum er í heildina frekar
óljós…en bestu verkin gefa til kynna hæfileikaríkan málara. “
MYNDLIST
Gallery Turpentine
Aðalheiður Valgeirsdóttir
Til 15. september. Opið Opið þri.-fös.frá
12 til 18 en 12-17 lau. Aðgangur ókeyp-
is.
Vendipunktar
Ragna Sigurðardóttir
Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur
sigridurv@mbl.is
Hinn 7. febrúar árið 1957hlustuðu á annað hundr-að tónleikagestir á Erki-hertogatríóið og Sil-
ungakvintettinn flutt í Melaskólanum
í Reykjavík. Flytjendur voru hið svo-
kallaða Tríó Tónlistarskólans, ásamt
Jóni Sen og Erwin Köppen. Þetta
voru fyrstu tónleikar hins nýstofnaða
Kammermúsíkklúbbs. Fyrir stofnun
klúbbsins hafði kammertónlist sjald-
an verið flutt á Íslandi en nú hófst
markviss flutningur slíkrar tónlistar
hér á landi. Síðan kvöldið í Melaskól-
anum hefur Kammermúsíkklúbb-
urinn haldið starfsemi sinni óslitið
áfram og fimmtíu árum síðar staðið
fyrir vel yfir 200 tónleikum.
Margt um að vera í vetur
„Þetta er 51. starfsárið og leggst
vel í okkur, enda margt um að vera í
vetur,“ segir Runólfur Þórðarson,
einn af stjórnarmönnum Kamm-
ermúsíkklúbbsins. „Við höldum
ótrauð áfram og ég held að það sé ansi
góð fjölbreytni í dagskránni í vetur.“
Vetrardagskráin hefst á morgun
klukkan 20 í Bústaðakirkju með tón-
leikum Camerarctica. Fyrir hlé verð-
ur leikin barokktónlist eftir Zelenka
og Corelli en eftir hlé Strengjakvar-
tett nr. 6 í G-dúr, op.101, eftir Shos-
takovich.
„Undanfarin tíu ár eða svo höfum
við leikið að minnsta kosti einn
strengjakvartett á ári eftir Shostako-
vich. Strengjakvartettar hans eru
samtals 15 og við erum með á dag-
skránni að flytja þá alla. Við förum að
verða búin að því. Þetta eru ein-
hverjir þeir bestu strengjakvartettar
sem samdir voru á síðustu öld og
spanna í raun allan feril Shostako-
vich,“ segir Runólfur.
Gleymdar gersemar
Ýmissa grasa kennir hjá Kamm-
ermúsíkklúbbnum í vetur. Á öðrum
tónleikum vetrarins verður meðal
annars leikið verk fyrir fiðlu og selló
eftir Hafliða Hallgrímsson og á þeim
þriðju leikur Tríó Nordica ásamt Pál-
ínu Árnadóttur og Þórunni Ósk Mar-
ínósdóttur. Á fjórðu tónleikum vetr-
arins, í janúar, mætir til leiks ungt
tónlistarfólk sem lék á tónleikum á
vegum Kammermúsíkklúbbsins fyrir
tíu árum.
„Árið 1998 hlustuðum við á nokkur
þeirra, Víking Heiðar Ólafsson, Ara
Þór Vilhjálmsson og Margréti Árna-
dóttur, á tónleikum í Grensáskirkju
og urðum svo hrifin að við báðum þau
að spila á tónleikum hjá okkur,“ segir
Guðmundur W. Vilhjálmsson, for-
maður Kammermúsíkklúbbsins.
„Þau vöktu stormandi lukku og hug-
myndin núna var að endurvekja
þennan hóp. Tíu ár verða síðan þau
spiluðu fyrir okkur fyrst og það verð-
ur gaman að sjá hvernig þau leika
núna. Þetta verður áreiðanlega mjög
glæsilegt.“
Á lokatónleikum vetrarins leikur
Bibeltríóið, sem sérhæfir sig í tríóum
frá barokktímanum. „Þau spila fyrir
okkur 15 Talnabandssónötur Bibels
og hið þekkta og glæsilega verk
Passacaglia sem mér skilst að hafi
aldrei fyrr verið flutt hér í heild sinni.
Bibeltríóið hefur heldur ekki spilað
hjá okkur áður. Þetta eru hreinar
gersemar sem hafa verið allt að því að
gleymast.“
Breytingar á hálfri öld
Guðmundur er einn af stofnendum
Kammermúsíkklúbbsins og hefur því
starfað með honum í rúma hálfa öld.
Hann segir breytingar miklar síðan
klúbburinn hóf starfsemi sína. „Þetta
á ekki síst við hversu vel menntað
listafólkið okkar er í dag. Breiddin er
líka orðin svo mikil. Hér áður fyrr var
til fárra að leita en í dag er fjöldinn
allur af okkar listamönnum í heimsk-
lassa. Ég held að hvergi í heiminum
sé innan sama radíuss og hér jafn-
mikið af fínum tónlistarmönnum.“
Listamenn í heimsklassa
Morgunblaðið/G.Rúnar
Hljóðfæraleikarar Camerartica leikur á fyrstu tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í vetur.
Í HNOTSKURN
» Sunnudaginn 16. septemberCamerarctica leikur verk eftir Zelenka, Corelli og Shostakovich.
»Sunnudaginn 21. október Sigrún Eðvaldsdóttir og fleiri leika verk eftir Haydn, Hafliða
Hallgrímsson og Tchaikovsky.
»Sunnudaginn 25. nóvemberTríó Nordica og fleiri leika verk eftir Smetana, Ravel og Taneyev.
»Sunnudaginn 13. janúar 2008Víkingur Heiðar Ólafsson, Ari Þór Vilhjálmsson og fleiri leika
verk eftir Schumann, Bartók og Brahms.
»Sunnudaginn 10. febrúar 2008Biber-tríóið leikur verk eftir Biber.
»Allir tónleikarnir eru í Bústaðakirkju og hefjast klukkan 20. Frek-ari upplýsingar er að finna á kammer.is.
Vetrardagskrá
Kammer-
músíkklúbbsins
að hefjast
EFTIR að Gerðarsafn gerði vörslu-
samning með safneign Þorvaldar
Guðmundssonar, er kenndur var við
Síld og fisk, og Ingibjargar Guð-
mundsdóttur hefur safnið sýnt valin
verk úr safneigninni í sex skipti, en
nú eru einmitt síðustu forvöð að sjá
sjöttu sýninguna í safninu, en henni
lýkur á morgun.
Þorvaldur og Ingibjörg áttu á sín-
um tíma stærsta einkasafn á Íslandi
sem inniheldur mörg merk listaverk
eftir höfuðlistamenn þjóðarinnar
sem spannar frá frumherjunum til
septem-hópsins.
Er sýningunni skipt þannig að ab-
straktlistamenn einoka kjallarann
en landslagið og fígúrasjónin leggja
undir sig efri hæðina. Nokkur verk-
anna hafa ekki verið áður á sýn-
ingum í Gerðarsafni, s.s. máluð
brennivínsflaska eftir Jóhannes
Kjarval og smáar styttur eftir Einar
Jónsson og Ragnar Kjartansson.
Er uppsetningin afslöppuð enda
hefur hægt á hugaræsingnum síðan
vörslusamningurinn var gerður árið
2001. Það er engu að síður óhætt að
mæla með sýningunni, sérstaklega
fyrir þá sem hafa enn ekki litið safn-
eign Þorvaldar og Ingibjargar aug-
um. En vissulega eru hér samt fjár-
sjóðir, eftir t.d. Jóhannes Kjarval,
Jón Stefánsson, Louisu Matthías-
dóttur, Jóhann Briem, Júlíönu
Sveinsdóttur og Kristján Davíðsson,
sem maður getur séð aftur og aftur í
nýju ljósi.
Hægt á
hugaræsingnum
Fjörusymfónía Þetta glæsilega
málverk eftir Kristján Davíðsson er
á meðal verka á sýningunni í Gerð-
arsafni.
MYNDLIST
Listasafn Kópavogs –
Gerðarsafn
Opið alla daga nema mánudaga frá 11-
17. Sýningu lýkur 16. september. Að-
gangur 400 kr. Ókeypis á föstudögum.
Úr safneign Þorvaldar Guðmundssonar og
Ingibjargar Guðmundsdóttur
Jón B.K. Ransu