Morgunblaðið - 15.09.2007, Qupperneq 20
Morgunblaðið/G.Rúnar
Eftir Önnu Maríu „Afdráttarlaus ádeila á sölu á menningararfi okkar.“
LJÓSMYNDASÝNING Önnu
Maríu Sigurjónsdóttur í Lista-
mannahúsinu Startart er afdrátt-
arlaus ádeila á sölu á menningar-
arfi okkar. Málefni sem liggur
mörgum á hjarta í dag. Og ekki að
ástæðulausu.
Sýningin er tvískipt. Annars
vegar eru það myndir sem sýna
ósmekkleg rauð „til sölu“-skilti
sem listakonan hefur staðsett í
miðjum íslenskum náttúru-
auðlindum eða hjá torfbæjum,
hálfgrónum við náttúruna, og hins
vegar eru það myndir af nútíma-
legum hlutum sem leynast innan
um forna gripi.
Þær fyrrnefndu eru beinskeytt
skilaboð sem hitta mig álíka og
sniðug mótmælaspjöld eða áróð-
ursmyndir. Þær síðarnefndu halda
aftur á móti einhverjum notaleg-
um fagurfræðilegum staðli og mál-
efnið fylgir þá með í kaupbæti.
Hins vegar er alltaf spurning í
hvaða samhengi maður sér hluti
og gætu uppstillingarnar allt eins
virkað sem íslenskar auglýsingar
á Coca Cola-drykk eða nýjum I-
pod, ef þær væru settar fram sem
slíkar. Í þessu samhengi njóta
bein mótmælin og tilvísunin í Am-
eríkuvæðingu aftur á móti mál-
efnalegs og fagurfræðilegs stuðn-
ings hvort annars.
Arður til sölu
MYNDLIST
Listamannahúsið Startart
Opið virka daga 10-17 og laugardaga 11-
16. Sýningu lýkur 28. sept. Aðgangur
ókeypis.
Anna María Sigurjónsdóttir
Jón B.K. Ransu
20 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
RAKA regnloftið yfir Reykjavík á
laugardag var ákjósanlegt til söngs,
en aftraði á hinn bóginn e.t.v. ein-
hverjum í göngunánd frá að mæta
á söngtónleika Norræna hússins,
miðað við hálffylli litla salarins.
Eiginlega synd, því viðfangsefnin
voru gizka forvitnileg. Auk 8 laga
Edvards Grieg eftir hlé voru í boði
12 lög úr fórum næstu eftirmanna
hans og landa er allir gleymdust
eftir þeirra dag. Samt virtist sá
slagskuggi undan frægðarljóma
Griegs víða vitaóverðskuldaður eft-
ir þessa reynslu. En raunar langt í
frá einsdæmi um örlög „minni spá-
manna“ á Norðurlöndum – sbr.
dönsku samtímahöfundana Carls
Nielsens, er nutu fyrst sannmælis
rúmri hálfri öld eftir lát hans. Sem
betur fer hefur stallsetningarárátta
fyrri hlustendakynslóða nú hjaðnað
til muna með auknu svigrúmi fyrir
sanngjarnara mati í víðara sam-
hengi.
Hitt var þó ekki minna um vert
hvað hinn gestkomandi söngvari,
Harald Bjørkøy, prófessor við
Griegakademíu Björgvinjar í sömu
grein, kom gleðilega á óvart, enda
veit ég ekki til að hann hafi áður
komið fram hér á landi. Á sama
tíma og allt of margir ljóðasöngv-
arar okkar, eftir áþreifanlegum
blæbrigðaskorti að dæma, syngja
líkt og inntak ljóðsins komi þeim
næsta lítið við, mátti hér heyra tjá-
brigði sem færðu tilfinninga-
andstæður jafnt lags sem texta –
allt frá hrolli til húmors og unaði til
armæðu – í æðra veldi eins og vera
bar. Burtséð frá einstaka tónlafi og
léttskjögrandi inntónun í 2-3 af síð-
ustu lögum dagskrár (e.t.v. sakir
þreytu?) var túlkun Bjørkøys til
skínandi fyrirmyndar; dramatískt
þróttmikil, lifandi, þjál og kímin
eftir því sem við átti, og gerði fyrir
vikið jafnvel steingleymdustu ópusa
nærverandi og spennandi í hróp-
andi ósamræmi við núverandi glat-
kistustöðu. Hér hefðu fjarverandi
íslenzkir kollegar hans getað lært
mikið.
Píanóleikur Selmu Guðmunds-
dóttur (fyrir alloknum flygli) var að
vísu ekki jafneitilsnarpur og stöku
sinni mætti óska, en ávallt mús-
íkalskt fylginn; traustur og lipur í
góðu samvægi.
Norskt glatkistugull
TÓNLIST
Tónleikar
Norsk sönglög eftir Olsen, Elling, Ha-
arklou, Borgstrøm, Schjelderup, Eggen
og Grieg. Harald Bjørkøy tenór og Selma
Guðmundsdóttir píanó. Laugardaginn
8.9. kl. 16.
Norræna húsið – Einsöngstónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
NÁTTÚRULEGA heitir sýning á
verkum 18 norrænna listamanna í
Norræna húsinu, þar af eru 10 frá
Færeyjum, en uppruni sýning-
arinnar beinist til Færeyja og er
þetta jafnframt 25 ára afmælissýn-
ing Norræna hússins þar í landi.
Eins og yfirheitið gefur til kynna
eru þetta listamenn sem á sinn hátt
fjalla um náttúruna sem er orðið ansi
trénað þema á samnorrænum sýn-
ingum, sérstaklega þegar nálgunin
við fyrirbærið „Náttúra“ er þetta
víðfeðmt að hægt er að velja úr um
90% norrænna listamanna. Það er
því úr nógu að moða. Nýir og gamlir
miðlar, gagnvirkar og kyrrstæðar
myndir, fundnir og smíðaðir hlutir.
Þá er sæmilegasti metnaður lagð-
ur í sýninguna, með skrá og ýmsu til-
standi og er umfangið í meira lagi
fyrir Norræna húsið þannig að verk-
in líða á milli hæða, frá sýningarsal
eftir gangi og inn á bókasafn. Það
gerist áreynslulaust og er uppsetn-
ing sýningarinnar hin fínasta. Vel
sniðið framhjá göllum í sýning-
arrými og listaverk í bókasafni gefa
umhverfinu breytta og skemmtilega
mynd og svo öfugt.
Það er því ágætlega að þessu stað-
ið nema hvað hefði mátt stilla af fók-
usinn þannig að sýning og orðræða
geti miðast að einhverju.
Náttúra úr fókus
MYNDLIST
Norræna húsið
Náttúrulega – Samsýning 18 norrænna
listamanna
Jón B.K. Ransu
Morgunblaðið/G.Rúnar
Norræna húsið „Vel sniðið framhjá göllum í sýningarrými og listaverk í
bókasafni gefa umhverfinu breytta og skemmtilega mynd, og svo öfugt.“
LJÓSMYNDIR Sunnu Sigfríðardóttur í DaLí gallery
eru á vissan hátt óður til afstraktmálverksins. Mynd-
irnar eru af vegg í gömlu húsi þar sem gamlar innrétt-
ingar hafa verið fjarlægðar svo eftir standa minningar
forma og lita sem tilheyrðu strúktúr eldra heimilis.
Vinnubrögð sem þessi eru vel þekkt í samtímalistinni
og er skemmst að minnast sýningar Sólveigar Að-
alsteinsdóttur í Suðsuðvestur árið 2005. Eins og Sólveig
þá sýnir Sunna hverfulan veruleika sem kristallast í
tímabundnu ástandi veggjarins áður en nýi tíminn og
praktíkin krefst allsherjar yfirmálunar.
Myndir Sunnu ná þó ekki að rista eins djúpt og verk
Sólveigar eða vekja upp tilfinningu fyrir trega í bland við
ískalt raunsætt skráningarferli, heldur virðast verkin
vera afurð tilviljunarkenndra aðstæðna þar sem ljós-
myndarinn fangar tímabundna fegurð millibils-
ástandsins.
Sem slíkar eru ljósmyndirnar fallegar og persónu-
legar á köflum þar sem merkja má mannlega nærveru
sem ljá myndunum tilfinningu fyrir einlægri undrun
uppgötvunarinnar á falinn fagurfræði milliveggjanna.
Undirliggjandi list
MYNDLIST
DaLí gallery Brekkugötu 9, Akureyri
Sýningin stendur til 21. september. Opið föstudaga og laug-
ardaga kl. 14-17. Aðgangur ókeypis.
Sunna Sigfríðardóttir – Glansmyndir af vegg
Þóra Þórisdóttir
ÞETTA var meira en gaman – þetta
var stórkostlegt!“ Svo sagði maður
við mann eftir tónleika Kristjáns Jó-
hannssonar í Íþróttahöllinni á Ak-
ureyri á sunnudaginn var og hann til-
einkaði móður sinni níræðri. Það er í
raun furðulegt að hér á landi sé oft
látið eins og þessi stórsöngvari þurfi
enn að sanna hæfileika sína. Það hef-
ur hann fyrir löngu gert og brást ekki
vonum áheyrenda fremur en endra-
nær
En Kristján var ekki einn á ferð.
Grískættuð söngkona, Sofia Mit-
roupolos, kynnti sig áheyrendum með
geysivoldugri sópranrödd sinni og
glæsilegri framkomu, og nemandi
hans frá Ítalíu, Corrado Capitta, er
barítonsöngvari sem tekið verður eft-
ir í framtíðinni, býr yfir vel agaðri
rödd og lipurri og einlægri fram-
komu. Já, öll voru þau góð og æ betri
eftir því sem á leið tónleikana í áhrifa-
mikilli túlkun sinni á mjög svo drama-
tískri efnisskrá þar sem hvert stór-
verkið rak annað, fæst þó úr þeim
flokki óperuaría og dúetta, sem al-
kunnastur er.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
lék með söngvurunum undir blæ-
brigðaríkri stjórn Guðmundar Óla
Gunnarssonar. Hljómur sveitarinnar
var þéttur og blæfagur, en vill riðlast
þegar mjög sterkt er spilað og geldur
hún þar smæðar sinnar. Kom þetta
vel fram í þeim tveimur verkum sem
hún lék án söngs: Intermezzo Mas-
cagnis hljómaði unaðslega en Car-
men-svítan leystist svolítið upp eftir
hljóðfærategundum í sterkari köfl-
unum.
Raddstyrkur Kristjáns er þekkt
stærð, en. e.t.v. er hann mestur á
veiku tónunum og þar er túlkun hans
svo næm að unun á að hlýða. Þetta
kom fram strax í fyrsta lagi tón-
leikanna, Mamma (Gigli – hvað ann-
að), og hinu næsta, Ideale eftir Tosti,
mjög erfitt en fallega með það farið.
Það tók hljómsveitina smátíma að
laga sig að takti og túlkun söngvarans
í fyrsta laginu og í Hamraborginni
sem var þriðja í röðinni, varð undir-
leikurinn stundum eins og viðskila við
sönginn. Líklega olli útsetningin þar
nokkru um. En þá eru líka aðfinnslur
allar taldar og þaðan í frá féll allt fag-
urlega saman allt til loka og margra
aukalaga, þar sem aldeilis var stuð á
mannskapnum eins og vera ber við
þær aðstæður. Og þegar heim er
haldið þá hefur það gerst að:
… fjörðurinn verður breiðari, bær-
inn stærri
og blárri aldan sem gnýr á víðari
söndum,
pollurinn dýpri, heiðin til muna
hærri.
Þannig á það líka að vera.
Takk fyrir mig.
Frábær gjöf fyrir mömmu
TÓNLIST
Tónleikar
Kristján Jóhannsson ásamt Sofia Mit-
roupolos og Corrado Capitta. Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands.
Íþróttahöllin á Akureyri
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Söngvarinn „Raddstyrkur Kristjáns er þekkt stærð…e.t.v. er hann mestur
á veiku tónunum og þar er túlkun hans svo næm að unun er á að hlýða.“
Erlingur Sigurðarson
SKRAUTLEGA formuð blóma-
mynstur Guðbjargar Ringsted,
máluð með hvítri akrílmálningu á
svartan grunn í Jónas Viðar gall-
erí vísa í margvísleg átök sem
urðu í listinni undir lok nítjándu
aldar og í byrjun þeirrar tutt-
ugustu. Þrátt fyrir að blóma-
mynstur í hvers konar hönnun
hafi verið algeng, ekki síst á ró-
kókó tímabilinu, þá er það með
liststefnum á borð við Art Nouvea
(Nýstíll) þar sem listamenn leitast
við að afnema skilin milli listar og
listiðnaðar.
Guðbjörg segir að hún hafi vilj-
að sjá þessi mynstur sem við
tengjum við silfursmíði, útsaum og
tréskurð í málverki og virðist
þannig vísa í sömu orðræðu og ný-
stíllinn byggðist á sem minnir
okkur á að þetta afnám skilar milli
listar og listiðna náði bara að
verða að veruleika upp að vissu
marki í ákveðnum tilfellum.
Þrátt fyrir að málverk Guð-
bjargar vísi í flókna togstreitu
innan listasögu síðustu aldar virð-
ast þau ekki velta sér á nokkurn
hátt upp úr meintu vandamáli.
Hugmyndin og verkin eru einföld,
hrein og bein og án allrar dýptar.
Sem slík eru þau vel heppnuð og
smellpassa inn í ríkjandi smekk
samtímans á hönnun, listiðnaði og
myndlist.
Máluð blómamynstur
MYNDLIST
Gallerí Jónas Viðar Akureyri
Sýningin stendur til 16. september. Opið
kl. 13-18 föstudaga og laugardaga og
eftir samkomulagi. Aðgangur ókeypis.
Guðbjörg Ringsted – Málverk
Þóra Þórisdóttir