Morgunblaðið - 15.09.2007, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 21
AKUREYRI
LANDIÐ
Eftir Jón H. Sigurmundsson
Þorlákshöfn | Þrír vélhjólamenn eru
farnir til Bandaríkjanna til að keppa
fyrir hönd Íslands á Motocross of
Nations sem er stærsta mótokros-
skeppni sem haldin er í heiminum ár
hvert, eins konar ólympíuleikar vél-
hjólamanna.
Leikarnir verða í Bandaríkjunum
22. og 23. september. Vélhjólaklúbb-
ur Umf. Þórs í Þorlákshöfn hefur
ákveðið að styrkja þessa þrjá drengi
með árskorti á mótokrossbrautina í
Þorlákshöfn, auk þess sem Valdimar
Þórðarson fær sérpeningastyrk, en
hann er heiðursfélagi í vélhjóladeild-
inni. Hinir tveir sem skipa landsliðið
eru Einar Sverrir Sigurðsson og Ar-
on Ómarsson. Þremenningarnir eru
komnir til Bandaríkjanna og verða
þar í æfingabúðum fram að keppn-
inni. Í för með þeim eru tíu aðstoð-
armenn og að auki munu á annað
hundrað áhugamenn fara utan til að
fylgjast með keppninni.
Vélhjólaíþróttir njóta orðið gífur-
legra vinsælda á Íslandi og skiptir þá
ekki máli kyn eða aldur þátttakenda
og hjólum af öllum stærðum og gerð-
um hefur fjölgað mikið. Nýjar braut-
ir hafa verið opnaðar á undanförnum
árum og með tilkomu þeirra hefur
akstur utan vega þar sem bannað er
að aka dregist verulega saman, en
betur má ef duga skal. Tvær slíkar
brautir eru í Sveitarfélaginu Ölfusi,
ein í Bolöldum auk brautarinnar í
Þorlákshöfn sem er í umsjón Þórs.
Styðja vélhjólamenn
vegna þátttöku í stórmóti
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Árskort afhent Sindri Stefánsson, Gunnar Guðnason, Sigurður Odd-
freysson og landsliðsmennirnir Aron Ómarsson úr Reykjanesbæ, Einar
Sverrir Sigurðsson úr Mosfellsbæ og Valdimar Þórðarson úr Mosfellsbæ.
Grindavík | Bæjarráð Grindavíkur
mun fara til fundar við Árna Mathie-
sen fjármálaráðherra næstkomandi
mánudag til að ræða ákvörðun rík-
isstjórnar um að sniðganga stærstu
verstöð landsins í mótvægisaðgerð-
um vegna niðurskurðar aflamarks í
þorski, að því er fram kemur á vef
bæjarins.
Vísað er til þess að í tillögum rík-
istjórnarinnar sé ekkert sem gagnist
Grindavík sem stærstu verstöð Ís-
lands í þorskaflaheimildum. Alvar-
legast sé þó að engar aðgerðir séu
boðaðar fyrir þá stétt sem mest eigi
undir, sjómenn, sem séu hátt hlutfall
vinnufærra manna á staðnum.
„Bæjarstjórn Grindavíkur mun
beita sér af fullum þunga til þess að
tryggja að Grindvíkingar beri ekki
skarðan hlut frá borði,“ segir í yf-
irlýsingu á vef bæjarins.
Grindvíkingar
vilja halda
sínum hlut
NEMENDUR 6. bekkjar grunn-
skólanna á Akureyri hafa fengið
óvenjulega en skemmtilega kennslu
í líffræði upp á síðkastið. Þar er um
að ræða verkefnið Frá öngli í maga;
siglt er um innanverðan Eyjafjörð í
Húna II, boðið upp á ýmsan fróðleik
og síðast en ekki síst veiða krakk-
arnir fisk og aflinn er grillaður og
snæddur um borð.
Það er félagsskapurinn hollvinir
Húna sem stendur að verkefninu
með aðstoð starfsfólks Háskólans á
Akureyri. „Við fórum í nokkrar til-
raunaferðir í fyrravetur og þær
gengu allvel. Nú stendur svo yfir
tveggja vikna dagskrá þar sem farið
er með alla 6. bekkinga í þriggja
klukkutíma sjóferð um innanverðan
fjörðinn,“ segir Hreiðar Valtýsson
fiskifræðingur, sem verið hefur holl-
vinum Húna innan handar.
Krakkarnir eru m.a. fræddir um
ýmiskonar gömul veiðarfæri, um
nauðsynlegan öryggisbúnað til sjós
og einnig um rannsóknir í sjó og líf-
verur sjávar. Krabbagildra er tekin
upp og lífverur í henni skoðaðar;
krossfiskar, beitukóngar og smá-
krabbar, krakkarnir fá svo að veiða
á stöng, aflinn grillaður og loks
borðaður. Lífríki botnsins er og
skoðað með neðansjávarmyndavél,
og hefur það vakið mikla athygli.
Verkefnið hefur hingað til alfarið
verið unnið í sjálboðavinnu, en að
sögn Þorsteins Péturssonar, tals-
manns hollvina Húna, hefur nýverið
náðst samningur við Saga Capital
um að styðja verkefnið og því verði
hægt að halda því áfram.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Gaman á sjó Börnin úr Síðuskóla, sem þarna eru komin að bryggju aftur, skemmtu sér vel um um borð í Húna II á innanverðum Eyjafirðinum.
Líffræði sem bragð er að
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Frá öngli í maga Ingi Pétursson flakar fisk sem veiddist í túrnum, hann
var skoðaður gaumgæfilega, síðan grillaður og borðaður með góðri lyst.
Í HNOTSKURN
»Húni II hefur flutt yfir 3.000farþega á þessu ári og auk
þess hafa 2.000 manns komið til
að skoða bátinn.
»Hreiðar Valtýsson segir ak-ureyrsku börnin mjög áhuga-
söm um ferðirnar með Húna II
og margar beiðnir hafi komið um
að fá að fara aftur.
UNNIÐ er að því
þessa dagana að
bjarga þús-
undum trjáa
vegna Miðhúsa-
brautar, skv.
frétt á heimasíðu
Akureyrarbæjar,
en vinna við
brautina er haf-
in. Trén eru í öll-
um stærðum,
mest birki, lerki og fura. Trjánum
verður svo fundinn staður víðs-
vegar um bæinn, t.d. á Eiðsvöllum, í
Akurgerði og á golfvellinum.
Tré víkja fyrir
Miðhúsabraut
Burt Unnið að því
að fjarlæga trén.
LEIKRITIÐ Óvitar eftir Guðrúnu
Helgadóttur verður frumsýnt hjá
Leikfélagi Akureyrar í kvöld. Að-
sókn hefur aukist gríðarlega hjá
LA undanfarin ár, Magnús Geir
Þórðarson leikhússtjóri segir mik-
inn áhuga hafa verið á starfsemi fé-
lagsins en líklega aldrei eins og
núna. Í gær var orðið nær uppselt á
fyrstu 10 sýningarnar á Óvitum og
metið í kortasölu frá því í fyrra
þegar slegið.
Nær uppselt
á 10 sýningar
SUNDLAUG Akureyrar býður
öllum frítt í sund á dag, laug-
ardag, í tilefni Akureyrarhlaups
KEA og þríþrautar sem m.a. fer
fram í Akureyrarlaug. Akureyr-
arhlaupið hefst kl. 10 á Akureyr-
arvelli en keppt verður í 21, 10
og 5 km hlaupi, auk þess sem
boðið verður upp á 3 km
skemmtiskokk.
Frítt í sund í til-
efni hlaupsins