Morgunblaðið - 15.09.2007, Side 24
Skrifað upp á skómeðferð
Sumar konur eru sannfærðar um aðþær þjáist af skósýki, reyndar á mis-háu stigi en margar eiga erfitt aðstandast freistinguna þegar þær sjá
fegurðina birtast í skólíki. Haustin eru hátíð
fyrir skósjúka, ekki síður þá sem bera fyrir
sig að hrífast ekki síst að formfegurðinni og
litunum, en hina sem þurfa beinlínis að stíga
skrefið til fulls og finna fullnægjuna með því
að ganga í skónum.
Í vetur eru öfgar í báðar áttir áberandi,
annars vegar flatbotna og dálítið karlmann-
legir skór og hins vegar háir, þokkafullir
hælar, sumir hverjir mjög þykkir og aðrir
fylltir. Hinir flatbotna eru gjarnan með sylgj-
um eða lágtóna skreytingum. Mynstur og
grafík sækja þá í sig veðrið og það heitasta er
lakkáferðin. Skótáin er að rúnast en opin tá
er líka nokkuð áberandi, þá að hluta eða öllu
leyti og minnir á afturhvarf til sjöunda ára-
tugarins.
Stígvélin eru alltaf sígild þegar kólna tek-
ur í veðri, en í vetur eru þau fremur lágbotna
en hitt og má auk þess greina áhrif frá hippa-
tímabilinu, þar sem þykkir viðarhælar eru
vinsælir. Stígvélin ná jafnt upp á kálfa sem
hné. Ökklaskór í anda 18. aldarinnar eru ekki
byltingarkenndir en halda engu að síður velli
í vetur.
Það er ekki til nein einföld meðferð við
skósýki kvenna. Þær þurfa að horfa á skó,
strjúka þeim, máta og stundum kaupa. Það er
eina meðferðin sem hægt er að skrifa upp á –
en hún virkar samt ekki sem lausn til lang-
frama ...
uhj@mbl.is
Morgunblaðið/G.Rúnar
Rúnuð Táin er rúnuð,
9.990 kr. Topshop.
Mynstur Vínrautt og
mynstrað, 10.500 kr.
Bianco.
Drottningarlegir Slaufan gerir
útslagið, 11.600 kr. Bossanova.
Gyllt Málmurinn skekur í vetur,
10.400 kr. Bianco.
Tvílitt Áberandi þema,
14.995 kr. Kron.
Frumlegir Skemmtilegir
hælar, 6.400 kr. Bianco.
Sylgjur Fallegar skreytingar,
11.995 kr. Kron.
tíska
24 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Erlendur Hansen heyrði til EiríksStefánssonar á Útvarpi Sögu
alla leið til Sauðárkróks:
Eiríkur mun halda haus
hefur græna fingur.
Eins og fossinn fjötralaus
fram af bergi syngur.
Kristbjörg Steingrímsdóttir í
Aðaldal sýður í potti rifsber,
myntuhlaup og vísu:
Soðið hef ég ribsber rauð
og reyniber í potti vænum,
myntuhlaup ég síðan sauð
sem er ætlað Vinstri grænum.
Á dögunum birtust vísur eftir
Ingibjörgu Unni Sigmundsdóttir úr
„villta vestrinu“ á Ísafirði. Bjargey
Arnórsdóttir dóttir hennar býr fyrir
sunnan og yrkir um villta vestrið
þar:
Á ísfirskum heiðum er ástandið villt
menn æða eftir gæsum, en missa.
Í borginni sérsveitin setur inn, tryllt
sídrukkið lið sem vill pissa.
Ingibjörg Unnur er mikil
átthagakona og segir Bjargey dóttir
hennar að móðir sín hafi þrjóskast
við að flytja til höfuðborgarinnar.
Og Bjargey yrkir til hennar:
Yfirgefðu öll þín hross
mín elskulega móðir.
Ventu þínu kvæði í kross
og komdu á suðurslóðir.
Bjargey segist bíða eftir svari.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Enn af villta vestrinuefni en margt annað sem talað var um á
bókmenntahátíðinni.
x x x
Víkverji vill vera bókaormur. Fátt jafnastá við það að sökkva sér niður í
skemmtilega bók. Víkverja líður vel með
bók milli handanna. Hann er hins vegar að
verða æ handgengnari hljóðbókum; það er
svo notalegt að halla sér bara aftur í hæg-
indinu og láta góðan upplestur flæða um
sig, að ekki sé nú talað um ljóðalestur. Og
svo er upplagt að hlusta á hljóðbók í bíln-
um. Það er bæði dægra- og ferðastytting.
Alveg eins og Víkverji á sér uppáhalds-
bækur prentaðar, þá er ein hljóðbók honum
svo kær, að hann hlustar á hana með reglu-
legu millibili. Þetta er lestur Gísla Halldórs-
sonar á góða dátanum Svæk. Hvílíkt eyrnakonfekt!
Þar fara saman skemmtileg bók og frábær upplestur.
Víkverji er vegna þessa orðinn áhugamaður um
hljóðbækur og vill gjarnan sjá hlut þeirra stærri á ís-
lenzkum bókamarkaði en nú er.
Víkverji getur ekki annað en glaðzt viðbókmenntahátíðina, sem staðið hefur
í Reykjavík í vikunni. Þar rak hver for-
vitnilegur höfundurinn annan og hver
bókin annarri betri kom út í íslenzkri
þýðingu.
Víkverji hefur fátt eitt lesið af þessum
bókakosti og hefur því svo sannarlega
eitthvað að hlakka til. Hins vegar þótti
honum mest til orða tveggja höfunda
koma; þeirra Johns Maxwells Coetzees
og Ayaan Hirsi Ali.
Bæði eru þau flóttamenn; honum þótti
Suður-Afríka vera sér ótrygg eftir að
saga hans Vansæmd kom út og færði sig
um set til Ástralíu. Hún er sómalskur
flóttamaður, varð hollenzkur þingmaður,
en fór til Bandaríkjanna, þegar henni var
úthýst frá Hollandi.
Þau orð sem þau Ayaan Hirsi Ali og John Maxwell
Coetzee létu falla um hættuna af aðgerðarlausu um-
burðarlyndi; hún gagnvart trúarmenningu og hann
gagnvart ritskoðun, urðu Víkverja meira umhugsunar-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Hippalegir Sá sjöundi er
móðins, 14.995 kr. Topshop.
Lakk Ökklastígvél og lakk eru
inni, 8.900 kr. Bossanova.
Kvenlegt Sígildur glæsileiki,
9900 kr. GS skór.
Framúrstefna Fjólublátt og
flott, 10.990 kr. GS skór.
Grátt Vinsæll litur
í vetur, 8990 kr.
Topshop.