Morgunblaðið - 15.09.2007, Síða 26
lifun
26 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
H
úsið keyptum við af
tengdaforeldrum
mínum fyrir sex árum
en byrjuðum ekki að
breyta húsinu fyrr en
fyrir um ári,“ segir Svava Bernhard
Sigurjónsdóttir sem ásamt eig-
inmanni sínum, Vilhjálmi Vilhjálms-
syni, og fjórum börnum er búin að
hreiðra um sig á æskuheimili hans
eftir gagngerar endurbætur á allri
byggingunni. „Í september í fyrra
fluttum við í 75 fermetra íbúð í ná-
grenninu þar sem við bjuggum allan
síðastliðinn vetur. Svo fluttum við
aftur inn í maí síðastliðnum.“
Húsið sjálft hefur ekki eingöngu
gengið frá föður til sonar heldur
urðu kynslóðaskipti einnig í
tengslum við hönnun þess. „Tengda-
pabbi fékk á sínum tíma Þorvald S.
Þorvaldsson, fyrrverandi skipulags-
stjóra í Reykjavík og borgararki-
tekt, til að teikna húsið fyrir sig
enda eru þeir gamlir vinir,“ held-
ur Svava áfram. „Þegar við
ákváðum að ráðast í þessar end-
urbætur var niðurstaðan að fá son
hans, Jón Þór Þorvaldsson, arki-
tekt hjá Úti og inni, til að teikna
fyrir okkur breytingar á húsinu
utanverðu. Stærstu breyting-
arnar voru hins vegar gerðar inn-
anhúss og hönnunin á þeim var í
höndum Rutar Káradóttur
innanhússarkitekts sem reyndist
okkur frábærlega.“
Eitt leiðir af öðru
Þær breytingar eru heldur ekki
smáar í sniðum því segja má að
húsið hafi nánast verið endurnýj-
að „út að götu“ eins og húsfreyjan
orðar það. „Húsið var byggt 1969
svo það var kominn tími á að taka
til hendinni að innanverðu. Hins
vegar var vandað til þess í upphafi
svo það lágu miklir möguleikar í
því. Í grunninn breyttum við engu
í skipulaginu heldur héldum stof-
unni, eldhúsinu, herbergjunum,
snyrtingum og öðrum rýmum þar
sem þau voru. Hins vegar opn-
uðum við mikið rýmið á efri hæð-
inni, t.a.m. milli stofu, borðstofu
og eldhúss og úr forstofu í að-
alrýmið.“
Eldhúsið var sömuleiðis stækk-
að inn í rými þar sem áður var
þvottahús en handan þess var
byggt nýtt sem viðbygging. Þá
var sólskáli, sem byggður var við
húsið fyrir um áratug, endurhann-
aður og opnað inn í hann úr hús-
inu svo hann nýtist nú sem auka-
stofa á neðri hæð hússins. Geymslu-
rými á neðri hæð var breytt og
útbúið gufubað, fataklefi og fata-
herbergi. Þá var snyrtingu, sem áð-
ur var hugsuð sem einkasnyrting í
hjónaherbergi á efri hæð, breytt
þannig að gengið er inn í hana utan
herbergisins og hún þjónar því öllum
í húsinu í dag.
„Svona framkvæmd, þar sem ver-
ið er að endurnýja eða endurbyggja
gamalt hús, hefur alltaf tilhneigingu
til að stækka stöðugt því eitt leiðir af
öðru,“ útskýrir Svava. „Til dæmis
uppfylltu opnanlegu gluggarnir eng-
ar nútíma öryggiskröfur því þeir
opnuðust til hliðanna og alveg upp á
gátt ef því var að skipta. Í byrjun
stóð til að fá hespur á þá en þá kom í
ljós að þær voru ófáanlegar svo nið-
urstaðan var að skipta um öll opnan-
leg fög í húsinu.“
Þá voru allar lagnir og rafmagn í
húsinu endurnýjað, ofnar fjarlægðir
og hiti settur í gólf. Lýsing og tækja-
mál heimilisins voru endurhönnuð
frá grunni, en til þess fengu þau hjón
Helga Eiríksson lýsingarhönnuð,
sem kenndur er við verslun sína Lu-
mex. M.a. var komið fyrir ljósastýr-
ingarkerfi í húsinu og á neðri hæð er
fullkominn sjónvarps- og tölvubún-
aður í miðrými sem virkar eins og
eins konar upplýsingamiðstöð heim-
ilisins. Þá var farin sú óvenjulega
leið að fella hátalara inn í loft í stof-
unni svo lítið sem ekkert ber á þeim í
heildarmyndinni.
Barnaherbergin svefnstaðir
Gólfefni í húsinu eru gegnum-
gangandi hvíttað eikarparket og
ljósar flísar en á nokkrum útvöldum
stöðum heldur parketviðurinn áfram
þar sem gólfið endar og klæðir heilu
veggina sem gefur mjög hlýlegan
blæ. „Eiginlega má segja að við höf-
um byggt allt út frá gólfefninu,“ seg-
ir Svava hlæjandi. „Það tók okkur
ekki meira en klukkutíma að velja
gólfefnin og svo kom allt hitt í kjöl-
Morgunblaðið/Frikki
Sólstofan Gasarni var einnig komið fyrir í sólstofunni sem nýtist mun betur eftir að opnað var inn í hana úr húsinu.
Í farvegi feðranna
Uppáhaldsstaður Upphaf framkvæmdanna var þörfin fyrir að stækka eldhúsið til að koma stórri fjölskyldunni fyrir.
Svava ásamt tveimur börnum sínum, þeim Sigurjóni Friðbirni Björnssyni og Þorbjörgu Bernhard Vilhjálmsdóttur.
Kynslóð hefur tekið við af
kynslóð í einbýlishúsi í
Breiðholti. Þar hefur son-
ur frumbyggjans hreiðr-
að um sig ásamt fjöl-
skyldu sinni eftir að
sonur arkitektsins sem
hannaði húsið í upphafi
teiknaði viðbyggingu fyr-
ir hina nýju íbúa. Berg-
þóra Njála Guðmunds-
dóttir sá hvernig virðing
fyrir arfleifðinni leiddi til
nýtískuheimilis með
gamla sál.