Morgunblaðið - 15.09.2007, Page 27
farið.“ Að öðru leyti er hvít há-
glansáferð og dökkur viður gegnum-
gangandi í innréttingum hússins.
Það er þó fleira en hlýlegur viður
sem gefur húsinu notalegan blæ. Í báð-
um stofum hússins veita eldstæði yl og
í ljós kemur að eldurinn í þeim er knú-
inn með gasi. Í aðalstofunni á efri hæð
hússins er arinstæðið eftir endilöngum
veggnum sem skilur að stofu og borð-
stofu og til að geta notið loganna báð-
um megin hans var ákveðið að gera
glugga í vegginn borðstofumegin.
Að sögn Svövu hefur nýtingin á hús-
inu breyst nokkuð, sérstaklega hjá
börnunum. „Eins og gengur og gerist
um hús frá þessum tíma eru barna-
herbergin ekkert sérlega stór. Eftir að
við breyttum koma krakkarnir miklu
meira út úr herbergjunum sínum en
áður og eru saman frammi í sjónvarps-
og tölvurýminu. Hugmyndin hjá okkur
var líka að hafa herbergin einföld með
litlum innréttingum þannig að þau
yrðu meira eins og svefnstaður í stað
þess að hver og einn væri allan daginn í
sínu horni. Það hefur heppnast mjög
vel.“ Hún bætir því við að veggirnir
milli barnaherbergjanna séu lausir og
að undir þau hafi verið lögð gólfefni
þannig að hægt verði síðar meir að
stækka þau með því að opna á milli.
Þegar Svava er spurð um uppáhalds-
stað sinn í húsinu vefst henni tunga um
tönn. „Mér finnst stofurnar uppi og í
sólskálanum æðislegar en þó verð ég
að viðurkenna að eldhúsið er eig-
inlega í uppáhaldi, enda finnst mér
mjög gaman að elda. Eldhúsið var
líka í grunninn ástæðan fyrir því að
við fórum út í þessar breytingar því
við gátum aldrei setið öll saman þar
inni, og því þurfti að breyta.“
Mátti ekki rífa út sálina
Eins og gefur að skilja gengur
ekki alveg átakalaust fyrir sig að
endurnýja og nánast endurbyggja
300 fermetra einbýlishús enda segir
Svava að á vissan hátt hefði verið
einfaldara að byggja nýtt frá grunni.
„Hins vegar var samstarfið við Rut
Káradóttur frábært því við náðum
mjög vel saman um allar ákvarðanir.
Það skipti okkur líka miklu máli
hvað hún bar mikla virðingu fyrir
húsinu og nálgaðist það af miklum
hlýleika. Það hefur fylgt fjölskyld-
unni frá upphafi og við máttum ekki
til þess hugsa að sálin yrði rifin úr
því. Allt þetta ferli hefur verið mikil
upplifun, ekki síst fyrir tengdafor-
eldra mína að vera með og taka þátt í
endurbyggingunni. Vissulega var
erfitt að sjá þegar var verið að rífa
húsið niður en ég held að allir séu
hæstánægðir með útkomuna.“ Hún
bætir því við að það hafi skipt höf-
uðmáli að hafa góða byggingar-
stjóra. „Almáttugur minn,“ segir
hún með áherslu, „þeir Sævar og Ár-
mann hjá Timburverki eru búnir að
vera eins og aukaeiginmenn fyrir
mig síðasta árið. Þetta hefði ekki
tekist án þeirra.“
Þótt mikið verk sé að baki eru þau
hjón þó ekki af baki dottin því næsta
verkefni verður að byggja milli íbúð-
arhússins og bílskúrsins og nýta
hann á annan hátt en nú er gert.
„Við ætlum að nota hann meira sem
hluta af húsinu og m.a. hafa þar aðal-
inngang fjölskyldunnar með tilheyr-
andi útifatadóti og skófatnaði. Það
verður gert næsta sumar. Okkur
langar að drífa í að klára þetta svo
eftir það snúist framkvæmdir hjá
okkur um hefðbundið viðhald.“
ben@mbl.is
Eldhúsið Rýmið var stækkað með því að opna inn í þvottahúsið sem var og þar er nú nóg pláss fyrir fjölskylduna.
Síðan var nýtt þvottahús byggt hinum megin við klukkuvegginn.
Parketveggur Gólfefnið klæðir veggi á nokkr-
um stöðum, meðal annars á þessu baðherbergi
sem er á efri hæð hússins.
Einfalt Fáir hlutir en fallegir einkenna heimilið, enda segir
Svava að hún sé ákaflega vandlát á það sem ratar inn í húsið
eftir að það var tekið í gegn.
Borðstofa Þar sem opið er milli borðstofunnar og eldhússins var ákveðið
að láta sérsmíða borðstofuborð sem færi vel við eldhúsinnréttinguna.
Samskonar ljósakrónur og lampar eru á fleiri stöðum í húsinu.
Óhapp!
Sólarferð
Kassinn kl. 20:00
ÓHAPP! eftir Bjarna Jónsson
Forsýningar þri. 18/9, mið. 19/9, frumsýning fös. 21/9.
Kúlan kl. 13:30 og 15:00
GOTT KVÖLD eftir Áslaugu Jónsdóttur
Frumsýning sun 23/9 kl. 13:30, 2. sýn. kl. 15, lau 29/9
kl. 13:30 og 15:00, sun. 30/9 kl. 13:30 og 15:00.
Stóra sviðið kl. 20:00
HAMSKIPTIN eftir Franz Kafka
Leikgerð Gísli Örn Garðarsson og David Farr.
Frumsýning fim. 27/9, fös. 28/9, sun. 30/9.
ÍVANOV
Klassískur gamanleikur í leikstjórn Baltasars Kormáks
GOTT KVÖLD
Nýtt barnaleikrit með söngvum eftir Áslaugu Jónsdóttur
ÁSTIN ER DISKÓ, LÍFIÐ ER PÖNK!
Nýr söngleikur eftir Hallgrím Helgason
BAÐSTOFAN
Nýtt verk eftir Hugleik Dagsson
VÍGAGUÐINN
Glænýtt verk eftir Yasminu Reza
SKILABOÐASKJÓÐAN
Vinsæll ævintýrasöngleikur fyrir áhorfendur á öllum aldri
Meira til á www.leikhusid.is
Sala áskriftarkorta stendur yfir!
OPIN KORT
Þú velur þér sæti á fimm sýningar að eigin vali
ÁSKRIFTARKORT
Þú tryggir þér sæti á fimm sýningar á Stóra sviðinu
ÞJÓÐLEIKHÚSKORTIÐ FORSKOT
Þú færð sæti á fimm forsýningar á 5000 kr.
Kortagestir sem greiða fyrir 20. september fá einnig
frímiða á spennandi sýningu.
Afgreiðsla miðasölu á Lindargötu 7
er opin frá kl. 12.30–18.00
mánudaga og þriðjudaga.
Aðra daga frá kl. 12.30–20.00.
Símapantanir frá kl. 10.00 virka
daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á
www.leikhusid.is
Á öllum sviðum lífsins
Hvar verður þú
í vetur?
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 27