Morgunblaðið - 15.09.2007, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 31
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
1
4
6
5
Á ÞESSU ári eru liðin 60 ár frá því
að Selfosshreppur varð sérstakt
sveitarfélag samkvæmt lögum frá Al-
þingi.
Mikill styr hafði staðið um stofnun
þessa sveitarfélags sem var stofnað
úr hluta af þremur sveitarfélögum;
Sandvíkur-, Hraungerðis- og Ölf-
ushreppi. Tveir síðarnefndu hrepp-
arnir voru mjög andsnúnir stofnun
nýs sveitarfélags. Íbúabyggð var í ör-
um vexti við Ölfusá, beggja vegna ár-
innar og voru þarfir þess fólks því að
mörgu leyti aðrar en í hinum dreifðu
byggðum. Íbúar þessa byggðar-
kjarna kölluðu því eftir stofnun sveit-
arfélags sem gæti annast alla þá
framkvæmda- og stjórnsýsluþætti
sem þétting byggðar útheimti. Loks
var leitað til Alþingis um lausn máls-
ins, sem samþykkti lög um stofnun
sérstaks sveitarfélags sem nefndist
Selfosshreppur og tóku lögin gildi 1.
janúar 1947.
26. janúar 1947 fóru fram fyrstu
kosningar til hreppsnefndar í hinu
nýja hreppsfélagi. Þar komu fram
fjórir pólitískir framboðslistar. Sjö
valinkunnir menn voru valdir til for-
ustu í hreppnum og var Sigurður Óli
Ólafsson einróma kjörinn fyrsti odd-
viti Selfosshrepps og sýndi það að
hann naut mikils trausts manna.
Íbúar í hinu nýja sveitarfélagi
bundu miklar vonir við stofnun þess.
Það var því mikilvægt að vel tækist til
við fyrstu skrefin sem stigin voru í
mótun og vexti hins nýja sveitarfé-
lags við ákvarðanatöku um stjórn-
sýslu og framkvæmdaþætti í því
þjónustuhlutverki sem sveitarfélög
eru í gagnvart íbúunum.
Við stofnun Selfosshrepps voru
íbúarnir rúmlega 800 og fór ört fjölg-
andi. Það þurfti því að huga að mörgu
á fyrstu árum þessa nýja og vaxandi
sveitarfélags. Mikið starf beið hinnar
nýju hreppsnefndar og hvíldi meg-
inþungi starfsins eðlilega á oddvit-
anum Sigurði Óla. Huga varð að
skipulagsmálum, gatna- og holræsa-
málum, fræðslumálum, heilbrigð-
ismálum og öllum grunnþáttum sem
vaxandi byggðarlag þarf til að geta
fullnægt nauðsynlegum og eðlilegum
þörfum íbúa í ört stækkandi sveitar-
félagi.
Mikilvægt var að horfa til langrar
framtíðar í skipulagsmálum. Sig-
urður Óli gerði sér grein fyrir þessu
og hafði forustu um mikil jarðakaup á
fyrstu árum Selfosshrepps, sem
tryggði hreppnum mikla stækk-
unarmöguleika strax frá upphafi.
Þetta var ómetanlegt fyrir vaxt-
armöguleika hreppsins.
Sigurður Óli var í hreppsnefnd Sel-
fosshrepps í 15 ár og oddviti hrepps-
ins fyrstu 11 árin. Íbúafjöldi á Sel-
fossi tvöfaldaðist á þessum 11 árum.
Sem oddviti Selfosshrepps varðaði
Sigurður Óli veginn til velsældar á
bernskuárum hreppsins, ásamt
mörgum öðrum góðum mönnum sem
völdust til forustu með honum. Á
þessum grunni hefur byggð á Selfossi
síðan stöðugt vaxið og dafnað, þar
sem fólki finns gott að búa.
Sigurður Óli setti mikinn svip á
Selfoss í áratugi og verður hans
minnst sem eins af brautryðjendum
Selfosskaupstaðar. Auk forustu í
sveitarstjórnarmálum rak hann
verslun á Selfossi í nær fjóra áratugi
við ójafna aðstöðu við kaupfélags-
veldið. Nú keppast forustumenn allra
flokka við að undirstrika mikilvægi
frjálsrar verslunar þar sem sam-
keppni er tryggð sem stuðlar að
bættum kjörum fólks. Þessu hlut-
verki gegndi Sigurður Óli með versl-
unarrekstri sínum í harðri samkeppni
um langt árabil. Það má því segja
með réttu að Sigurður Óli hafi borið
kyndil frjálsrar verslunar með versl-
unarrekstri sínum á Selfossi.
Sigurður Óli var prúðmenni í allri
sinni göngu. Hann flutti mál sitt af
festu og rökhyggju og hafði lag á að
fá menn til fylgis við þau mörgu góðu
mál sem hann beitti sér fyrir og vann
að á lífsleiðinni. Hann naut mikils
trausts og virðingar hvar sem hann
lagði hönd að verki. Enda var honum
trúað fyrir mörgum ábyrgðarmiklum
störfum. Hann var kjörinn sýslu-
nefndarmaður í 20 ár, formaður
skólanefndar Laugarvatnsskóla í 16
ár. Hann átti lengi sæti í sóknarnefnd
Laugardælakirkju, var formaður
hennar og beitti sér í því starfi fyrir
byggingu Selfosskirkju. Sigurður Óli
var kjörinn Alþingismaður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn árin 1951 til 1967
og forseti efri deildar Alþingis í átta
ár.
Á 60 ára afmæli Selfosshrepps er
gott að minnast Sigurðar Óla Ólafs-
sonar, sem markaði svo farsæl og af-
drifarík spor í þróunarsögu Selfoss-
byggðar og íbúar hennar munu búa
að og njóta um ókomna tíð.
Selfoss 60 ára – Sigurður Óli
Ólafsson fyrsti oddvitinn
Magnús L. Sveinsson skrifar í
tilefni þess að 60 ár eru liðin frá
stofnun Selfosshrepps
» Á 60 ára afmæli Sel-fosshrepps er gott
að minnast Sigurðar Óla
Ólafssonar sem markaði
svo farsæl og afdrifarík
spor í þróunarsögu Sel-
fossbyggðar.
Sigurður Óli Ólafsson
Höfundur er fyrrverandi formaður
VR og forseti borgarstjórnar.
Fréttir á SMS