Morgunblaðið - 15.09.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 33
MINNINGAR
✝ Þóranna Guð-mundsdóttir
fæddist í Reykjavík
31. janúar 1949.
Hún lést í Ólafsvík
7. september síðast-
liðinn. Hún var dótt-
ir hjónanna Guð-
mundar Kristins
Axelssonar og Dýr-
finnu Valdimars-
dóttur. Þóranna var
elst af fimm systk-
inum, bræður henn-
ar eru Valdimar, d.
27.4. 2006, Stefán,
d. 7.6. 1994, Axel og Hafsteinn.
Fyrsti maður Þórönnu er Val-
geir Ó. Guðmundsson, f. 7. nóv-
ember 1947, sonur
þeirra er Guð-
mundur Jón, f. 20.
september 1966.
Annar maður henn-
ar er Hörður Viðar
Ingvarsson, f. 28.
apríl 1949, börn
þeirra eru Sigur-
laug, f. 22. júlí 1972
og Hörður Þór, f.
21. september 1978.
Sambýlismaður
Þórönnu er Daníel
Jónsson, f. 1. sept-
ember 1943.
Útför Þórönnu fer fram frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum í
dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Elsku mamma.
Það er svo skrýtið að þú skulir
vera farin, við vorum öll nýbúin að
heimsækja ykkur til Ólafsvíkur.
Bjarki Már sagði við mig: „Mamma,
við verðum að heimsækja ömmu, við
vitum ekkert hvenær hún fer frá
okkur.“ Þó svo að þú værir enn svo
ung var eins og hann hafi fundið á
sér hvað ætti eftir að henda. Við átt-
um yndislega stund með þér í litla
„dúkkuhúsinu“, eins og við kölluðum
húsið ykkar. Mér er nú hlátur í huga
þegar ég hugsa til þess þegar ég og
Guðrún Kristín sátum í tvo tíma við
eldhúsborðið og reyndum að kenna
þér á nýja gemsann þinn, en það
endaði með því að við skrifuðum
heila ritgerð fyrir þig á blað til að
fara eftir, það var mikið hlegið. Þó
svo að þú værir svona langt í burtu
vorum við nú alltaf duglegar að
hringja hvor í aðra. Ég kveð þig með
söknuð í hjarta og bið algóðan guð að
geyma þig. Ég veit að það verður
tekið vel á móti þér.
Ég þakka þau ár sem á átti
Þá auðnu að hafa þig hér,
Og þar er svo margs að minnast
Svo margt sem um hug minn fer
Þó þú sért horfinn úr heimi
Ég hitti þig ekki um hríð,
Þin minning er ljós sem lifir
Og lýsir um ókomna tið
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Þín dóttir
Sigurlaug Harðardóttir.
Elsku mamma mín, þá er komið að
þeirri stundu sem ég held að ég hafi
kviðið mest. Ég var á leiðinni á ár-
gangsmót með bekkjarsystkinum
mínum þegar Sigurlaug hringdi í
mig og bað mig um að tala við sig og
sagði mér þetta. Mér varð svo brugð-
ið að mér fannst heimurinn vera að
hrynja. Ég held að það hafi verið
annar hvor bræðra þinn sem fékk
okkur öll til þess að fara að heim-
sækja þig þetta sumarið því ég veit
að það hefur ekki gerst áður að við
höfum heimsótt þig öll sama sum-
arið. Og ég gleymi því seint hvað þú
varst ánægð þegar ég og Elva kom-
um með stelpurnar um verslunar-
mannahelgina til þín og þú hittir þær
í fyrsta skipti. Og þó svo að við höf-
um ekki stoppað lengi þá veit ég að
stelpurnar sáu og fundu strax
hversu hlý og yndisleg mamma þú
varst því þær kölluðu þig strax
ömmu Nönnu. Ég vildi líka óska þess
að þú hefðir fengið að kynnast þeim
betur því þær eru allar yndislegar og
eins og þú sagðir þá er ekkert skrítið
að ég hafi fallið fyrir þeim því þær
eru svo fallegar og góðar.
En nú ertu farin og það er ekkert
sem ég get gert nema endurspegla
þá hlýju og ást sem þú hefur gefið
mér til þess að sýna hversu yndisleg
þú varst.
En nú ertu komin á góðan stað þar
sem þú og Óskar Smári passið hvort
annað.
Kveðja, þinn sonur
Hörður Þór.
Elsku Nanna, það er svo skrítið að
þú sért farin. Við hittum þig fyrst í
sumar en þá höfðum við nokkrum
sinnum talað saman í síma, við vor-
um ekki búin að vera lengi hjá ykkur
Danna þegar stelpurnar voru farnar
að kalla þig ömmu Nönnu, það var
svo gott að vera hjá ykkur og við sát-
um og spjölluðum og hlógum og þið
fylltuð borðið af kræsingum.
Það var svo erfitt að kveðja ykkur
því þú vildir ekki sleppa okkur strax
og Hekla sagði við þig að þegar hún
yrði 6 ára þá ætlaði hún að koma aft-
ur að heimsækja ykkur í litla sæta
húsið ykkar. Svo þegar stelpunum
var sagt að þú værir farin til himna-
ríkis, vissi Hekla nú alveg af hverju,
hún sagði að þú værir svo góð að
englarnir vildu hafa þig hjá sér, og
Birta sagði, það var svo gott að
knúsa hana.
Nú kveðjum við þig, elsku amma
Nanna okkar, með innilegri þökk
fyrir að hafa fengið að kynnast þér,
þú gafst okkur mikið á þessum stutta
tíma. Sofðu vært og Guð geymi þig,
þú sagðir þetta alltaf við Hödda og
nú segir hann þetta alltaf við okkur
þegar við förum að sofa.
Elsku Danni og aðrir aðstandend-
ur, megi drottinn gefa ykkur styrk á
þessum erfiðu tímamótum, fallegu
minningarnar um Nönnu okkar
hjálpa okkur í sorginni.
Elva Björk Einarsdóttir,
Birta Líf og Hekla Sól.
Elsku amma.
Okkur langar að kveðja þig með
örfáum orðum.Við hefðum viljað
vera lengur hjá þér þegar við heim-
sóttum þig í sumar en okkur fannst
yndislegt að vera hjá ykkur afa. Þið
tókuð alltaf svo vel á móti okkur. Við
munum alltaf hugsa til þín, elsku
amma.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Þín barnabörn
Bjarki Már Vilhjálmsson,
Guðrún Kristín Vilhjálmsdóttir.
Margs er að minnast,
margt er að þakka.
Guð sé fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Höf. Vald. Briem)
Í dag er kvödd hinstu kveðju
frænka mín, Þóranna Guðmunds-
dóttir. Mér var brugðið þegar
mamma sagði mér frá láti hennar.
Þær voru alltaf í góðu sambandi, og
höfðu talað saman nokkrum dögum
áður. Níu ár skilja okkur frænkur að,
mikið þegar maður er lítill en ekkert
þegar maður er stór. Nanna var
uppáhaldsfrænkan, hún var þolin-
móð við litla frænku. Dúkkurnar
voru túberaðar og málaðar. Hún
passaði litlu frænku. Við áttum líka
sameiginlegt að eiga heila glás af
bræðrum, Nanna fjóra og ég líka.
Svo bættist í minn hóp ein systir og
enn einn bróðirinn. Þetta var í þá
gömlu góðu daga þegar fjölskyldur
hittust á sunnudögum, og allir voru
uppáklæddir. En alltaf standa jólin
hjá afa og ömmu í Seljabrekku upp
úr, það hús stóð þar sem Háaleit-
isbraut og Ármúli mættast, þar stóð
líka Seljaland þar sem Ella frænka
og Sigurjón bjuggu. Sem sagt algjör
sveit. Á jólunum hittust allir og borð-
uðu saman hangiket og uppstúf að
hætti ömmu. Flest börnin í fötum
sem amma hafði saumað, strákarnir
í svörtum buxum, hvítri skyrtu og
vesti. Við Nanna höfðum meira val,
fengum svolítið að ráða.
Ég varð aðalbarnapían hennar
Nönnu, þegar hún fluttist hingað í
Mosfellssveitina. Fyrst passaði ég
Gumma og síðan Sigurlaugu, þá
pínulitla. Nanna var passasöm um
börnin sín og alltaf gott að koma til
hennar, allt var svo hreint og fínt.
Seinna fluttist hún til Vestmanna-
eyja, þar bjó hún nokkur ár, Hörður
er fæddur þar. Þá minnkuðu sam-
skiptin mikið. Eitt skiptið hringdi
Nanna í mig, það var til að samgleðj-
ast mér, þá átti ég von á yngsta
barninu mínu. Ég var sett 30. janúar
1999, en það var afmælisdagur
Nönnu, hún var upp með sér. En
sonur minn fæddist 8 vikum fyrir
tímann, fæddur 4. des. 1998, honum
lá svo á í heiminn.
Nanna bjó í Ólafsvík síðustu árin
með sambýlismanni sínum, honum
Danna, Danni reyndist henni mjög
vel. Þegar Nanna fór á Reykjalund
fyrir tæpum tveim árum komu þau
til mín áður og áttu góða stund með
mér. Borðuðu með okkur og sátu við
spjall. Ég vil þakka Nönnu fyrir allar
góðu minningarnar. Danna, börnum
hennar, Gumma, Sigurlaugu og
Herði, eftirlifandi bræðrum, Axel og
Hafsteini, sendi ég mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Linda Björk Stefánsdóttir.
Nokkur kveðjuorð til þín elsku
Nanna. Mér hefur sjaldan brugðið
eins og þegar Axel bróðir þinn
hringdi og sagði mér andlát þitt. Það
tók mig tíma að meðtaka það. Það
var svo stutt síðan við töluðum sam-
an í síma, þú varst jafn jákvæð og
hress eins og alltaf, þrátt fyrir veik-
indi þín gerðir þú góðlátlegt grín að
sjálfri þér.
Þú varst bara sex ára þegar ég
tengdist fjölskyldu þinni, og síðan
eru meir en 50 ár. Alltaf varstu dug-
leg að hringja og spjalla, spyrja
frétta af fjölskyldu minni. Eftir að
fjölskylda þín flutti til Eyja minnkaði
samgangur milli fjölskyldnanna. En
eftir að þú fluttist til Ólafsvíkur kom-
uð þið Danni oft við þegar þið áttuð
leið hjá. Síðast þegar við töluðumst
við nokkrum dögum fyrir andlát þitt
sagðirðu mér að þú hefðir verið að
hugsa um að koma við hjá mér þegar
þú varst á leið heim eftir stutta
sjúkrahúsdvöl, ég vildi óska að þú
hefðir gert það.
Ég þakka þér innilega fyrir sam-
fylgdina í gegnum árin og ég votta
Danna, börnum þínum og öllum af-
komendum mína dýpstu samúð, með
kveðju frá börnum mínum.
Hulda Jakobsdóttir.
Elsku Nanna mín. Ekki grunaði
mig að ég ætti eftir að sitja hér og
skrifa minningargrein um þig svona
stuttu eftir að ég talaði við þig í sím-
ann síðast. Það lá svo vel á þér, mikið
hlegið og mikið gaman. Þú hringdir
minnst tvisvar í mánuði aðallega til
að fullvissa þig um það að við fjöl-
skyldan hefðum það gott hér í Eyj-
um og að ég væri nú örugglega að
hugsa um þinn „lille bror“. Þér var
svo umhugað um að fjölskyldan þín í
Eyjum hefði það gott og að allir
væru sáttir við allt og alla.
Þessi umhyggja þín fyrir fjöl-
skyldunni var eitt af þínum aðals-
merkjum og eitt af því sem stendur
upp úr þegar við hugsum til baka.
Við erum svo þakklát fyrir það í dag
að við skyldum hafa gefið okkur tíma
til að koma við hjá þér í Ólafsvík þeg-
ar við fjölskyldan fórum „hringinn“ í
sumar. Það var ekki að spyrja að
gestrisninni hjá þér. Þú tókst á móti
okkur með nýbökuðum vöfflum og
tilheyrandi og þó þú sjálf hafir
kannski ekki verið ánægð með
hvernig þær heppnuðust runnu þær
engu að síður ljúflega niður í maga
þreyttra ferðalanga. Í kvöldmatnum
var svo boðið upp á saltkjöt og baun-
ir og ís í eftirrétt þannig að við stóð-
um algerlega á blístri þegar við
kvöddum ykkur Danna um kvöldið.
Eitt af því sem stendur mér per-
sónulega ofarlega í minni, elsku
Nanna mín, er þegar þú gerðir þér
ferð hingað út í Eyjar þremur vikum
fyrir áætlaðan fæðingardag yngsta
fjölskyldumeðlimsins, Hafþórs Elís.
Tókst ekki annað í mál er þú fréttir
að hin verðandi móðir þyrfti á hvíld
að halda samkvæmt læknisráði síð-
ustu vikur meðgöngunnar. Út í Eyj-
ar komstu, fluttir inn til okkar og
tókst að þér ásamt Haffa að sjá um
heimilisstörfin og eldri drengina tvo,
þá Andra Þór og Kristján Hauk, sem
þá voru 8 og 6 ára. Hjálp þín var
ómetanleg, ekki síst eftir að ég kom
heim með litla drenginn, enda þegar
kom að því að nefna hann kom ekki
annað til greina en að þú yrðir guð-
móðir hans og héldir á honum undir
skírn.
Eins og ég sagði áður var um-
hyggja þín fyrir fjölskyldunni einn af
þeim stóru kostum sem prýddu þig
og þegar Axel trúði þér, stóru systur
sinni, fyrir verðandi trúlofun hans og
Gullu, var gleði þín ómæld. Svona
varstu þátttakandi í lífi okkar allra
þrátt fyrir að búa svona langt frá
okkur.
Okkur langar að lokum að þakka
þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir okk-
ur og fyrir að vera hluti af lífi okkar.
Þín verður sárt saknað, ekki síst af
honum Danna þínum sem nú á um
svo sárt að binda að hafa misst elsku-
lega sambýliskonu og sinn best vin.
Oft ég hugsa auðmjúkt til þín,
einkum þegar húmar að.
Eins þótt fari óravegu
átt þú mér í hjarta stað.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson.)
Anný, Hafsteinn, Axel,
Andri Þór, Kristján Haukur
og Hafþór Elí.
Þóranna
Guðmundsdóttir
Elsku amma, takk fyrir allar
góðu og hlýju stundirnar
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson.)
Kveðja,
Aron Smári Harðarson,
Danmörku.
HINSTA KVEÐJA
✝
Elskulegur sonur minn, faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og bróðir,
HJÖRTUR LÍNDAL GUÐNASON,
Flétturima 24,
Reykjavík,
er látinn.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
21. september kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Hjartardóttir.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
LÍSBET FRIÐRIKSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri.
lést að morgni fimmtudagsins 13. september.
Útför hennar verður gerð frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 20. september kl. 13.30.
Guðrún Guðmundsdóttir, Guðlaugur Baldursson,
Halla Sigurðardóttir,
ömmu og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi, sonur, bróðir og mágur,
ÁSGEIR ELÍASSON,
Langholtsvegi 1,
lést sunnudaginn 9. september.
Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn
17. september kl. 13.00.
Soffía Guðmundsdóttir,
Þorvaldur Ásgeirsson, Eva Hrönn Jónsdóttir,
Guðmundur Ægir Ásgeirsson,
Tanja Ösp, Ísak Snær, Óðinn Breki,
Ragnheiður Erlendsdóttir, Björn Haraldsson,
Hólmfríður Björnsdóttir, Sævar Sveinsson,
Linda Björnsdóttir, Magnús Bárðarson,
Lára Björnsdóttir, Gunnar Sæmundsson,
Eyrún Björnsdóttir, Stefán Gunnarsson.
✝
Elskulegur faðir okkar, bróðir og frændi,
SIGURÐUR KONRÁÐ KRISTJÁNSSON,
er látinn.
Minningarathöfn um hinn látna fer fram í
Fossvogskapellu mánudaginn 17. september
kl. 15.00.
Sara Sigurðsson,
Troy Sigurðsson,
Hermann Sigurðsson,
Olga Miller,
Sigvaldi Snær Kaldalóns.