Morgunblaðið - 15.09.2007, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN/KIRKJUSTARF
ALFA-námskeið
í Grensáskirkju
ALFA-námskeið verður í Grens-
áskirkju á miðvikudagskvöldum kl.
19.22 frá og með næsta mið-
vikudegi, 19. sept. Hver samvera
hefst með sameiginlegum máls-
verði og í kjölfar hans er fyrirlestur
og umræður um grundvallaratriði
kristinnar trúar. Einnig verður
ALFA-námskeið á mánudögum kl.
11.30-14. Það hefst næsta mánudag,
17. sept., og er haldið í samstarfi
við Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastsdæma en tíminn hentar
helst þeim sem ekki eru bundin á
hefðbundnum dagvinnutíma.
Skráning á bæði námskeiðin fer
fram í Grensáskirkju í síma 580-
0800.
ALFA-námskeiðið hefur farið
sigurför um heiminn undanfarinn
áratug og er nú haldið í nálægt 150
löndum. Að sjálfsögðu er hægt að
skrá sig og koma á fyrstu samveru
án skuldbindinga um áframhald-
andi þátttöku.
Haustmarkaður
Kristniboðs-
sambandsins
Hinn árlegi haust- og grænmet-
ismarkaður Kristniboðssambands-
ins verður haldinn laugardaginn
15. september, kl. 13-15, í kjallara
húss KFUM&K á Holtavegi 28. Til
sölu verða ávextir, grænmeti, sult-
ur, kökur og fleira. Þá verður lítið
Afríkuhorn á markaðnum með
slæður og handunnar festar frá
Afríku.
Tilgangur markaðarins að þessu
sinni er að afla fjár til verkefnis
sem kallast Af götu í skóla. Mark-
mið þess er að bæta líf götubarna í
Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu,
með því að gera þeim mögulegt að
ganga í skóla. Íslenskir kristniboð-
ar, sem starfa í borginni, munu
fylgja verkefninu eftir. Allir sem
hafa áhuga eru velkomnir.
Kveðjum Örnu Grét-
arsdóttur
Seltjarnarnessöfnuður kveðjur sr.
Örnu Grétarsdóttur við messu
sunnudaginn 16. september kl. 11.
Arna hefur starfað við Seltjarnar-
neskirkju frá 1998, fyrst sem æsku-
lýðsfulltrúi og síðustu rúm fjögur
árin sem prestur. Kammerkór Sel-
tjarnarneskirkju leiðir tónlist-
arflutning undir stjórn Friðriks
Vignis Stefánssonar organista.
Kirkjugestum er boðið að þiggja
léttar kaffiveitingar eftir stundina.
Sóknarnefnd og starfsfólk kirkj-
unnar hvetur Seltirninga til að fjöl-
menna í messu og þakka Örnu fyrir
vel unnin störf í þágu safnaðarins.
Verið öll velkomin.
Haustferð frá
Digraneskirkju
Eldri borgarar munu fara austur
fyrir fjall miðvikudaginn 19. sept-
ember kl. 10.30 frá Digraneskirkju.
Leiðin liggur um Hellu, Hvolsvöll,
Odda á Rangárvöllum og Fljótshlíð.
Þátttaka í kostnaði er 2.000 kr.
Verið velkomin og skráið ykkur í
síma 554-1620. Yrsa Þórðardóttir,
prestur.
Sunnudagaskóli á
Vatnsendasvæðinu
Sunnudaginn 16. september hefst
sunnudagaskóli í Fríkirkjunni Ke-
fas. Í sunnudagaskólanum verður
margt gott og gaman gert og eru
kennarar hans ung hjón sem hafa
margra ára reynslu af barnastarfi.
Sunnudagaskólinn verður alla
sunnudaga frá 11-12 og eru öll börn
og foreldrar velkomin, sérstaklega
af Vatnsendasvæðinu og nágrenni
þess. Fríkirkjan Kefas er í Fagra-
þingi 2a við Vatnsendaveg.
Kyrrðarstund í
Keflavíkurkirkju
Kyrrðarstundir hefjast að nýju mið-
vikudaginn 19. september kl. 12.15.
Léttar veitingar verða í boði að
samveru lokinni.
Laugardaginn 15. september kl.
2 verður kvikmyndasýning í
Kirkjulundi í samvinnu við hópinn
Deus ex Cinema, rannsóknarhóp
um trúarstef í kvikmyndum. Horft
verður á kvikmyndina Såsom i en
spegel eftir Ingmar Bergman en
hann féll frá nú í sumar svo sem
kunnugt er. Erindi verða haldin um
kvikmyndina og umræður að sýn-
ingu lokinni. Sjá nánar á keflavik-
urkirkja.is
Barna- og almenn
messa í Fríkirkjunni í
Reykjavík
Almenn guðsþjónusta og barna-
messa kl. 14. Hjörtur Magni þjónar
og prédikar í almennri guðsþjón-
ustu. Carl Möller og Anna Sigga
leiða almennan safnaðarsöng. Barn
verður borið til skírnar. Barna-
starfið er í höndum Nöndu Maríu
og Péturs Markan. Við byrjum öll
saman í kirkjunni, en þegar guðs-
þjónustan er hafin, ganga Nanda og
Pétur með börnin upp í safn-
aðarheimilið þar sem helgisagan
verður sögð, sungnir verða söngvar
og leikbrúðurnar koma í heimsókn.
Messukaffi í safnaðarheimilinu í
lokin.
Vetrarstarf
í Selfosskirkju
Messað er alla sunnudaga kl. 11.
Eftir athöfnina er léttur hádeg-
isverður í safnaðarheimilinu.
Barnaguðsþjónustur í lofti safn-
aðarheimilis sunnudaga kl. 11.15.
Morguntíð með fyrirbæn þriðju-
daga til föstudaga kl. 10. Kaffisopi
á eftir.
Poppmessur að kvöldi til, aug-
lýstar sérstaklega. Þorvaldur Hall-
dórsson söngvari stjórnar léttri
tónlist.
Opin kirkja – næðisstundir. Sel-
fosskirkja er að öðru jöfnu opin á
meðan starfsemi fer fram í henni.
Tilvalið er að slökkva á símanum,
anda djúpt og finna fyrir innri ró.
Kvenfélag Selfosskirkju annast
um hádegisverð að lokinni messu á
sunnudögum, auk þess sem félagið
sér um kaffiveitingar við mörg og
margvísleg tækifæri og undirbýr
erfisdrykkjur, ef óskað er. Á 50 ára
afmæli Selfosskirkju 2006 gaf fé-
lagið kirkjunni kaleik, patínu og
oblátuöskjur, stórmyndarlega og
fagra gripi.
Barnaspurningar (ferming-
arstörf) hefjast á haustdögum.
Haldnir verða fundir með for-
eldrum barnanna. Undir vor er far-
ið í ferðalag upp í Skálholt. Lögð er
áhersla á, að börnin og foreldrar
þeirra sæki kirkju þann tíma, sem
fermingarstörfin standa yfir.
Foreldramorgnar eru miðviku-
daga kl. 10.30 til 12. Boðið er upp á
fyrirlestra og fræðandi sam-
verustundir.
Tvíburamæður hittast einu sinni
í mánuði kl. 10.30 til 12.
Kirkjuskóli fyrir börn á aldrinum
6 til 10 ára starfar í Félagsmiðstöð-
inni, Tryggvagötu 23, þriðjudaga
kl. 13.30 til 14.30. Leiðtogi: Eygló J.
Gunnarsdóttir, djákni.
TTT-starf. Tíu til tólf ára börn
eru boðin að taka þátt í kristilegu
starfi í safnaðarheimilinu á þriðju-
dögum kl. 15.
Æskulýðsfélag Selfosskirkju
heldur fundi í safnaðarheimilinu.
Vel tókst til um starf félagsins á
fyrra ári. Leiðtogi: Jóhanna Ýr Jó-
hannsdóttir.
Samkomur leik- og grunnskóla-
barna á aðventunni. Í samráði við
leikskóla Árborgar og grunn-
skólana á Selfossi koma börnin á
aðventusamkomur í Selfosskirkju í
desember.
Eldri borgarar. Djákni Selfoss-
kirkju húsvitjar vikulega í Græn-
umörk og heimsækir öldr-
unarstofnunina Ljósheima. Dagvist
aldraðra kemur í heimsókn í kirkju
og safnaðarheimili fyrsta fimmtu-
dag í mánuði hverjum. Þá er helgi-
stund í kirkjunni, en skemmti-
dagskrá, samsöngur og
kaffidrykkja í safnaðarheimili á
eftir.
Guðsþjónustur á Ljósheimum og
Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Síð-
asta sunnudag hvers mánaðar eru
haldnar guðsþjónustur á Ljós-
AKRANESKIRKJA: | Sálmar og gítar kl.
14. Örn Arnarson syngur þekkta sálma
við eigin gítarundirleik og nálgast þá á
persónulegan hátt. Allir velkomnir!
AKUREYRARKIRKJA: | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Börn fá afhenta kirkjubók
fyrir sunnudagaskólann. Opið hús í safn-
aðarheimilinu þar sem kynnt verður starf
vetrarins, léttar veitingar, allir velkomnir.
Fundur með fermingarbörnum og for-
eldrum þeirra strax eftir guðsþjónustuna.
ÁRBÆJARKIRKJA: | Taizé-guðsþjónusta
kl. 11. Prestur Sigrún Óskarsdóttir, org-
anisti Krizstina Kalló. Kirkjukórinn leiðir
sönginn. Mánudaginn 17. september kl.
15-17 er skráning í nýstofnaðan barnakór
kirkjunnar. Skráningin verður í kirkjunni.
ÁSKIRKJA: | Barnastarf og messa kl. 11.
Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús
Ragnarsson. Börnin taka þátt í upphafi
messunnar, en fara síðan niður í safn-
aðarheimili ásamt Hildi Björgu og Elíasi.
Þar verður fylgst með ævintýrum Danna
og Birtu í nýrri kirkjubók, og Rebbi refur og
Engilráð bregða á leik. Sóknarprestur.
ÁSTJARNARSÓKN: | Fyrsta messa í kap-
ellu Ástjarnarsóknar við Kirkjuvelli 1. Dr.
Gunnar Kristjánsson predikar, sr. Bára
Friðriksdóttir þjónar fyrir altari, organisti
Skarphéðinn Þór Hjartarson. Sókn-
arnefndarfólk aðstoðar í messunni.
Sunnudagaskólinn byrjar á sama tíma.
Messukaffi á eftir. Allir hjartanlega vel-
komnir.
BESSASTAÐASÓKN: | Sunnudagaskóli kl.
11 í sal Álftanesskóla. Nýir leiðtogar
bjóða öll börn af Álftanesi og foreldra
þeirra velkomin til þátttöku í öflugu og
skemmtilegu starfi.
BORGARPRESTAKALL: | Borg-
arprestakall. Messa í Borgarneskirkju kl.
14. Messa í Borgarkirkju kl. 16. Sókn-
arprestur.
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi: |
Barnaguðsþjónusta verður í Brautarholts-
kirkju sunnudaginn 16. sept. kl. 11 f.h.
Sr. Kjartan Jónsson annast stundina.
Gunnar Kristjánsson sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA: | Messa kl. 11.
Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Org-
anisti Julian Isaacs. Barnaguðsþjónusta
kl. 11 í umsjá Jóhanns, Lindu Rósar og
Nínu Bjargar. Molasopi eftir messu.
BÚSTAÐAKIRKJA: | Barnamessa kl. 11.
Samvera fyrir alla fjölskylduna. Söngur,
fræðsla, bænir og þakkir. Foreldrar, afar
og ömmur hvött til þátttöku með börn-
unum. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Pálmi
Matthíasson messar. Organisti Renata Iv-
an, kór Bústaðakirkju syngur, molasopi
eftir messu.
DIGRANESKIRKJA: | Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Magnús Björn Björnsson. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju,
A-hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á
sama tíma. Léttar veitingar að messu lok-
inni. Kvöldmessa kl. 20. Prestur sr. Yrsa
Þórðardóttir. Meme group sér um tónlist-
ina. (www.digraneskirkja.is )
DÓMKIRKJAN: | Kl. 11 messa, sr. Hjálm-
ar Jónsson prédikar. Dómkórinn syngur,
organisti er Marteinn Friðriksson. Barna-
starf á kirkjuloftinu meðan á messu
stendur.
EGILSSTAÐAKIRKJA: | Messa kl. 14 –
Með þátttakendum á kóranámskeiði. Fjöl-
breytt tónlist og söngur fólks úr mörgum
kirkjukórum. 17. sept. (mánud.) Kyrrð-
arstund kl. 18.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: | Guðsþjónusta
kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústs-
son, Félagar úr kór Fella- og Hólakirkju
leiða almennan safnaðarsöng. Organisti
er Ástríður Haraldsdóttir. Sunnudagaskóli
á sama tíma í umsjá Sigríðar R. Tryggva-
dóttur. Mikill söngur og fjölbreytt dagskrá.
Verið innilega velkomin.
FÍLADELFÍA: | Brauðsbrotning kl. 11.
Ræðum. Samúel Ingimarsson. Bibly stu-
dies at 12.30. Everyone is welcome.
Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðum. Jón
Þór Eyjólfsson. Gospelkór Fíladelfíu leiðir
lofgjörð. Barnakirkja fyrir 1-13 ára. Allir
velkomnir. Bein úts. á Lindinni og www.go-
spel.is. Samkoma á Omega kl. 20. fila-
delfia@gospel.is
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Góð stund fyrir alla fjölskyld-
una. Þjóðlagamessa kl. 20. Kór kirkj-
unnar og hljómsveit kirkjunnar leiðir
tónlist og söng. Kaffi í safnaðarheimilinu
að lokinni guðsþjónustu. Prestur: Sigríður
Kristín Helgadóttir.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: | Almenn guðs-
þjónusta og barnamessa kl. 14. Hjörtur
Magni þjónar og prédikar, en Carl Möller
og Anna Sigga leiða tónlistina. Barn borið
til skírnar. Barnastarf í höndum Nöndu og
Péturs. Byrjum í kirkjunni og göngum sam-
an upp í safnaðarheimilið. Sagan, söngv-
ar og leikrit. Messukaffi í safnaðarheimili.
FRÍKIRKJAN KEFAS | Sunnudagaskólinn
hefst kl. 11 og að sjálfsögðu eru allir
krakkar velkomnir! Almenn samkoma kl.
14 þar sem Sigrún Einarsdóttir prédikar.
Á samkomunni verður lofgjörð og fyr-
irbænir og samkomu lokinni verður kaffi
og samvera. Allir velkomnir og vinsamleg-
ast athugið breyttan samkomutíma.
GLERÁRKIRKJA: | Barnastarf og messa
kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Prestur sr.
Arnaldur Bárðarson. Félagar úr Kór Gler-
árkirkju leiða söng. Organisti Hjörtur
Steinbergsson. Fermingarbörn ásamt for-
eldrum hvött til þátttöku.
Grafarholtssókn | Sunnudagaskóli i Ing-
unnarskóla kl. 11, messa í Þórðarsveig 3
kl. 14, upphaf fermingarstarfa, kirkju-
kaffi.
GRAFARVOGSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Önnu Sigríði
Pálsdóttur. Kór Grafarvogskirkju syngur.
Organisti: Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Fundur eftir messu með foreldrum ferm-
ingarbarna í Folda-, Hamra- og Húsaskóla.
GRAFARVOGSKIRKJA – Borgarholts-
skóli: | Sunnudagaskóli kl. 11 í Graf-
arvogskirkju. Prestur sr. Bjarni Þór Bjarna-
son. Umsjón: Hjörtur og Rúna.
Undirleikari: Stefán Birkisson.
Sunnudagaskóli kl. 11 í Borgarholts-
skóla. Prestur sr. Lena Rós Matthías-
dóttir. Umsjón: Gunnar og Dagný. Undir-
leikari: Guðlaugur Viktorsson.
GRENSÁSKIRKJA: | Morgunverður kl. 10.
Bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í
umsjá Lellu, Lilju Irenu o.fl. Messa kl. 11.
Altarisganga. Samskot til ABC-
barnahjálpar. Messuhópur þjónar. Kirkju-
kór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni
Arinbjarnarson. Prestur sr. Ólafur Jó-
hannsson. Molasopi eftir messu.
GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili: |
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Bragi Benedikts-
son messar. Organisti Kjartan Ólafsson.
Félag fyrrum þjónandi presta.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11 í Hásölum. Prestur sr. Þórhall-
ur Heimisson. Ræðuefni: Konur og kirkj-
an. Organisti Guðmundur Sigurðsson. Kór
kirkjunnar leiðir söng. Sunnudagaskólar
fara fram á sama tíma í safnaðarheimili
og Hvaleyrarskóla.
HALLGRÍMSKIRKJA: | Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir hér-
aðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Jóni D. Hróbjartssyni. Ferming-
arbörn aðstoða. Hópur úr Mótettukór
syngur. Organisti Björn Steinar Sólbergs-
son. Barnastarfið í umsjá Magneu Sverr-
isdóttur djákna. Kaffisopi eftir messu.
HJALLAKIRKJA: | Messa kl. 11. Sr. Sig-
fús Kristjánsson þjónar. Félagar úr kór
kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 13. Við minnum á bæna-
og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 (sjá
einnig á www.hjallakirkja.is).
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: | Kl. 11
Fjölskyldusamkoma. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN í Reykjavík: | Sam-
koma sunnudag kl. 20. Umsjón: Elsabet
Daníelsdóttir. Heimilasamband fyrir konur
mánudag kl. 15. Bæn og lofgjörð fimmtu-
dag kl. 20. Umsjón: Elsabet Daníelsdóttir
og Miriam Óskarsdóttir.
HVERAGERÐISKIRKJA: | Guðsþjónusta
og barnastarf kl. 11. Sunnudagaskólinn
byrjar sitt vetrarstarf. Fundur með ferm-
ingarbörnum og forráðamönnum þeirra í
framhaldi af guðsþjónustunni.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: | Fjölbreytt
barnastarf kl. 11. Einnig fræðsla fyrir full-
orðna. Samkoma kl. 20 með mikilli lof-
gjörð og fyrirbænum. Kristniboðarnir
Ragnar Schram og Kristbjörg Gísladóttir
sýna myndir, segja frá starfi sínu í Eþíópíu
og predika. Samkoma á Eyjólfsstöðum á
Héraði kl. 20. Alfa-námskeið hefst á
þriðjudag kl. 20.
KEFLAVÍKURKIRKJA: | Guðsþjónusta
sunnudaginn 16. september kl. 11. Prest-
ur er sr. Skúli S. Ólafsson. Kór Keflavík-
urkirkju syngur undir stjórn Hákonar Leifs-
sonar.
KÓPAVOGSKIRKJA: | Barnastarf kl.
12.30. Messa kl. 14. Prestar sr. Karl V.
Matthíasson og sr. Ægir Fr. Sig-
urgeirsson. Félagar úr kór kirkjunnar
syngja. Organisti Lenka Mátéová. Vænst
er þátttöku fermingarbarna og foreldra
þeirra en fundur verður með þeim í Borg-
um að messu lokinni.
Landsspítali – háskólasjúkrahús: Hring-
braut | Guðsþjónusta kl. 10.30. Sr. Vigfús
Bjarni Albertsson, organisti Helgi Braga-
son.
LANGHOLTSKIRKJA: | Messa og barna-
starf kl. 11. Andri Björn Róbertsson syng-
ur einsöng. Prestur sr. Jón Helgi Þór-
arinsson. Organisti Jón Stefánsson.
Barnastarfið hefst í kirkjunni og því stýra
Rut og Steinunn. Foreldrar hvattir til að
koma með börnum sínum. Kaffisopi eftir
messuna.
LAUGARNESKIRKJA: | Kl. 11. Guðsþjón-
usta og sunnudagaskóli. Kór Laugarnes-
kirkju og Gunnar Gunnarsson organisti
þjóna. Skírnarþjónusta og sunnudags-
skóli er í höndum Hildar Eirar Bolladóttur
og hennar samstarfsfólks. Sigurbjörn Þor-
kelsson prédikar. Kl. 13 guðsþjónusta í
sal Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu.
LÁGAFELLSKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjón-
usta í Lágafellskirkju kl. 11, prestur Ragn-
heiður Jónsdóttir. Kór Lágafellssóknar
leiðir söng, organisti Jónas Þórir. Ferming-
arbörn komandi vors og foreldrar þeirra
hvött til að mæta.
Sunnudagaskóli í kirkjunni kl. 13. Umsjón
Hreiðar Örn og Jónas Þórir. Allir velkomnir.
LINDASÓKN í Kópavogi: | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli í Salaskóla kl. 11. Fé-
lagar úr Kór Lindakirkju syngja undir
stjórn Keith Reed. Kristín Garðarsdóttir
djákni prédikar. Guðmundur Karl Brynj-
arsson þjónar fyrir altari.
NESKIRKJA: | Messa og barnastarf kl.
11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar
og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í kirkj-
unni en fara síðan í safnaðarheimilið.
Sögur, söngur og leikir. Kaffi og spjall á
Torginu eftir messu.
Salt, kristið samfélag | Salt, kristið sam-
félag, Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Salt-
aðar samkomur kl. 17. Ræðumaður Sr.
Kjartan Jónsson. Mikil lofgjörð og fyr-
irbæn. Velkomin.
SELFOSSKIRKJA: | Messa í Selfosskirkju
kl. 11.15. sd. e. trin. Skírn og ferming.
Fermd verður Ríkey Hjaltadóttir, Tryggva-
götu 24, Selfossi. Léttur hádegisverður
að lokinni athöfninni. Kirkjukór Selfoss
undir stjórn Jörgs E. Sondermanns. Sókn-
arprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Sr.
Gunnar Björnsson.
SELJAKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta kl.
11. Söngur, saga, ný mynd í möppu!
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann
Borgþórsson prédikar. Kirkjukórinn leiðir
almennan söng. Organisti Jón Bjarnason.
Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Valgeir Ást-
ráðsson prédikar. Tónlist í umsjá Þorvald-
ar Halldórssonar.
SELTJARNARNESKIRKJA: | Messa kl. 11.
Sr. Arna Grétarsdóttir predikar en Arna
hefur verið skipuð prestur Íslendinga í
Noregi. Sr. Sigurður Grétar þjónar fyrir alt-
ari og Kammerkór kirkjunnar ásamt Frið-
riki Vigni organista leiða tónlistarflutning.
Léttar kaffiveitingar í boði eftir stundina.
Sunnudagaskólinn á sama tíma.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: | Messa kl. 11.
Sóknarprestur.
Vegurinn, kirkja fyrir þig | Kl. 11, sam-
koma í Veginum að Smiðjuvegi 5. Kennsla
fyrir alla aldurshópa. Eiður Einarsson
kennir, lofgjörð og fyrirbæn. Létt máltíð að
samkomu lokinni. Allir hjartanlega vel-
komnir. Kl. 19, samkoma. Högni Valsson
prédikar, lofgjörð, fyrirbænir og samfélag í
kaffisal á eftir. Allir velkomnir
VÍDALÍNSKIRKJA: | Messa kl. 11. Sr.
Friðrik Hjartar þjónar. Sunnudagaskóli á
sama tíma. Félagar úr kór Vídalínskirkju
leiða sönginn. Organisti Jóhann Baldvins-
son. Fermingarbarn les ritningarlestur, en
fermingarbörnin og foreldrarnir eru hvött
til að mæta. Molasopi í safnaðarheimilinu
eftir messu. Verum í sambandi við Guð!
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: | Sunnu-
dagaskólinn kl. 11. Skemmtileg stund fyr-
ir börn á öllum aldri. Messa kl. 13. Kór
Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks
Ólasonar. Verið velkomin!
Morgunblaðið/SverrirGrafarvogskirkja.
Orð dagsins:
Enginn kann tveimur
herrum að þjóna.
(Matt. 6)