Morgunblaðið - 15.09.2007, Side 44
44 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MUU! MUU! MUU!
MUU! MUU! MUU!
ÞÚ ÁTT AÐ
SEGJA
MJÁ!
ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ
ÉG GÆTI FENGIÐ HANN
TIL AÐ SEGJAÞAÐ
ÉG HEF
HUGSAÐ
MIKIÐ UM
ÞIG, KALLI...
EN EITT ER
ALVEG VÍST...
ÉG YRÐI FRÁBÆR
FORSETAFRÚ!
ÉG ER EKKI VISS
HVORT ÞÚ YRÐIR GÓÐUR
EÐA SLÆMUR FORSETI
ÞAÐ ER
EINS GOTT AÐ
ÞÚ HAFIR EKKI
STURTAÐ
GLÓSUNUM
MÍNUM NIÐUR!
FYRST ÞÆR ERU
SVONA MIKILVÆGAR ÞÁ
ÆTTIR ÞÚ AÐ GANGA AÐ
KRÖFUM OKKAR
KRÖFUM?!? ÉG GENG EKKI
AÐ NEINUM KRÖFUM!
OPNAÐU DYRNAR!!
MIÐAÐ
VIÐ ÞAÐ
HVAÐ HÚN
ER KOMIN
LANGT Í
SKÓLA ÞÁ
ÆTTI HÚN
AÐ VERA
TÖLUVERT
SKARPARI
ELDFLAUGA-
RÁSIN ER
TILBÚIN
BESTA LEIÐIN TIL AÐ LIFA
AF Á EYÐIEYJU ER AÐ SJÁ TIL
ÞESS AÐ MAÐUR HAFI ALLTAF
EITTHVAÐ AÐ GERA
HVERNIG
FÖRUM
VIÐ AÐ
ÞVÍ?
VIÐ GERUM ÞAÐ
SAMA OG HELGA
GERIR ALLTAF...
VIÐ ENDUR-
RÖÐUM ÖLLUM
HÚSGÖGNUNUM
Á ÉG AÐ SEGJA ÞÉR
SVOLÍTIÐ FRÁBÆRT!
GRÍMUR HEFUR EKKI
BITIÐ NÉ GELT Á
BRÉFBERA Í ÞRJÁ DAGA!
ÉG ÆTLA AÐ FARA
ÚT AÐ GANGA MEÐ
HANN Í GARÐINUM
Á EFTIR...
MMM
MMFFM
MM...
HÆ,
ÞETTA
ER
ADDA
ÉG VILDI
BARA
SEGJA
„HÆ“
MÁ ÉG EKKI
HEILSA UPP
Á MANNINN
MINN VIÐ
OG VIÐ?
HEFUR ÞÚ
MEIRI TÍMA
SEINNA
Í DAG?
HÆ ADDA...
HVAÐ
VARSTU
AÐ SPÁ?
ÉG ER
FREKAR
UPPTEKINN
EINS OG
STENDUR
MÉR FINNST ÞÚ
HRINGJA MIKLU OFTAR
Í MIG Í VINNUNA EFTIR
AÐ ÞÚ BYRJAÐIR AÐ
VINNA HEIMA
ÞETTA ER Í FJÓRÐA
SKIPTIÐ Í MORGUN!
ANSANS! GRÍMAN MÍN
FAUK Í BURTU
ÞAÐ MÁ
ENGINN
FINNA HANA
Æ,
NEI!
VÁ...
ÞETTA ER
FRÁBÆRT!
HVER ÆTLI
EIGI HANA !
dagbók|velvakandi
Íslendingar fái aðstoð
til jafns við útlendinga
VEGNA sjónvarpsfréttar 10. sept-
ember sl. um einstæða fjögurra
barna móður, en tvö barnanna eru
lasin, langar mig að kasta fram eft-
irfarandi hugleiðingu. Vegna las-
leika barnanna hefur móðirin ekki
getað farið út á almennan vinnu-
markað svo hún lætur sér nægja
það sem hún fær frá Trygg-
ingastofnun ríkisins. Hún leigir
húsnæði hjá félagsþjónustunni í
Hafnarfirði og hefur ekki getað
greitt húsaleigu. Nú finnst mér að
ráðamenn eigi að aðstoða hana á
sama hátt og þeir aðstoða útlend-
inga sem flytja hingað til lands. Þá
virðist vera til nóg af peningum, en
þegar Íslendingar eiga í hlut virð-
ist ekki vera neitt til.
Ein sár út í stjórnmálamenn.
Tómatar sem spilla
umhverfinu!
MÉR finnst það til skammar að ís-
lenska grænmetinu skuli vera
pakkað í plássfrekar plastumbúðir.
Það væri gaman (eða sorglegt) ef
einhver tæki að sér að reikna út
hversu stór ruslahaugur hefur
myndast af tómataumbúðunum
einum í sumar!
Mig langar hér með að skora á
grænmetisbændur að hætta að
pakka þessu svona rosalega inn og
leyfa okkur neytendum að velja
sjálf safaríka tómata í poka.
Jónína.
Okur á leigumarkaði
OKRIÐ á húsaleigumarkaðnum í
dag er yfirþyrmandi. Ég var að
hjálpa vinafólki að leita að íbúð á
höfuðborgarsvæðinu. Ég tek hér
sem dæmi um 50 fm kjallaraíbúð
sem var til leigu í Fossvogi. Mán-
aðarleiga átti að vera 130 þúsund
krónur og þrír mánuðir fyrirfram í
tryggingu. Eitt þokkalega stórt
herbergi er leigt í dag á um 60
þúsund krónur. En það eru ekki
allir undir sömu sökina seldir því
til er sanngjarnt fólk. Svona okur
er hins vegar orðið allt of algengt.
Ég spyr hvort ekki sé tímabært að
sett verði þak á þetta. Ég vil
gjarnan beina því til Verðlagseft-
irlitsins og Neytendasamtakanna
að gera eitthvað í málinu, því það
vantar greinilega mikið húsnæði á
leigumarkaðinn.
Óli Þór.
Enn er sótt að öryrkjum
EINA ferðina enn á að fara að
skerða greiðslur til öryrkja. Það er
ekki fallegt af stjórn landsins rífa
peninga af þeim sem minna mega
sín, svo sem hjartasjúklingum.
Eini stjórnmálamaðurinn sem ég
treysti er Jón Bjarnason og Vinstri
grænir. Ég bind vonir við að Jón
hlutist til um að rétta hlut öryrkja
og eldri borgara.
Björn Jónsson,
myndlistarkennari.
Áfengi verði aldrei selt
í matvöruverslunum
NÚ líður senn að því að Alþingi
komi saman. Það veður fróðlegt að
sjá hve margir af nýju þingmönn-
unum ætla að hafa það á stefnu-
skrá sinni að mæla með því að
áfengi verði selt í matvöruversl-
unum. Þeir voru tólf í fyrra og nýi
heilbrigðisráðherrann einn af þeim
og fremstur í flokki. Ef þetta verð-
ur keyrt í gegn held ég að kominn
sé tími til að segja sig úr þjóðfélag-
inu.
Þorbjörg.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
EKKI er alltaf tekið út með sældinni að spila golf á Íslandi. Líklega eru það
ekki nema allra hörðustu áhugamenn sem nenna að spila í roki og rigningu
eins og nú herjar á landsmenn. Eitthvað var nú veðrið skárra um daginn
þegar ljósmyndari gekk fram á þennan golfara skammt frá Korpúlfs-
stöðum þar sem hann leitaði að golfkúlu í háu grasinu. Kannski er hann
enn að leita.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Bjargvætturinn í grasinu