Morgunblaðið - 15.09.2007, Síða 46
Í flutningi Rúna er
lagið svo yndislega
„corny“ að það fer í hring og
verður skemmtilega töff og
heillandi … 54
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
TÓNLISTARMAÐURINN Svavar Knútur
Kristinsson er nýkominn heim úr mánaðar
tónleikareisu um austurhluta Ástralíu. Svav-
ar er kannski best þekktur sem söngvari
hljómsveitarinnar Hrauns en einnig hefur
hann troðið upp sem trúbador hér á landi.
„Í fyrra kynntist ég Ástralanum Pete
Uhlenbruch en hann var að ferðast um
Evrópu og kom m.a. til Íslands þar sem hann
hafði bókað eina tónleika. Ég hjálpaði honum
að bóka fleiri tónleika og bauð honum gist-
ingu. Seinasta haust kom hann svo aftur til
landsins ásamt þýskum trúbador og við fór-
um þrír í smá tónleikaferð um landið,“ segir
Svavar sem var að endurgjalda heimsókn
Petes með því að fara til Ástralíu. „Þetta var
þriggja trúbadora ferðalag því Tom Wood-
ward slóst í för með mér og Pete. Við spilum
allir mjög ólíka tónlist og segjum ólíkar sög-
ur en náum samt vel saman. Við kölluðum
túrinn Misery and Redemptions tour eftir
heimabrenndu plötunni minni sem ég seldi á
ferðalaginu.“
Þeir félagar spiluðu á fjórtán tónleikum á
þremur vikum og segir Svavar viðtökurnar
hafa verið ótrúlegar. „Við spiluðum mest-
megnis á kaffihúsum, litlum tónleikastöðum
og nokkrum pöbbum. Ástralar kunnu afskap-
lega vel að meta sögustundirnar hjá okkur.“
Hitti Brian Ritchie
Lítil Toyota-bifreið bar þá þrjá um Ástr-
alíu ásamt tónleikagræjum og ekki var verið
að spreða í hótel því þeir gistu yfirleitt hjá
vinum og kunningjum sem þeir jafnvel eign-
uðust á staðnum.
„Mig hefur alltaf langað til að fara til Tas-
maníu og fór ég þangað einn í nokkra daga
og spilaði m.a. á stað sem er með lifandi tón-
list öll kvöld, alla daga ársins. Tasmanía
finnst mér æðislegur staður og þangað stefni
ég aftur,“ segir Svavar augljóslega ánægður
með ferðina. „Ég lenti í einu skemmtilegu at-
viki, þegar ég kynntist bassaleikara Violent
Femmes, Brian Ritchie og Varuni konu hans.
Reyndar kynntumst við Ritchie fyrst á My-
space áður en ég fór, þá sagðist hann vera
shakuhachi-leikari, sem er japönsk flauta.
Hann sagðist líka hafa komið til Íslands og
spilað hér og ég tengdi ekkert hver hann
væri. Við mæltum okkur mót í Hobart í
Ástralíu og hann bauðst til að sýna mér stað-
inn og það er ekki fyrr en við höfðum spjallað
saman í smá tíma að ég fattaði hver hann
var. Svo spilaði hann undir hjá mér í tveimur
lögum á tónleikunum í Hobart á shakuhachi-
flautuna,“ segir Svavar og bætir við að hann
sé dálítið upp með sér að hafa spilað með
æskugoðinu.
Taka upp í frystihúsi
Samstarf Svavars, Toms og Pete varð til
þess að þeir ákváðu að stofna alþjóðlegt
trúbadoranet í gegnum netið. „Þetta er svo-
lítið eins og skiptinemaprógramm. Ef maður
vill fara til einhvers lands að spila hjálpar
trúbador þar manni að bóka tónleika, finna
gistingu og redda fjölmiðlaviðtölum. Það eru
tæplega tuttugu trúbadorar inni í þessu núna
og þegar það er komið almennilega á lagg-
irnar ætti það að auðvelda trúbadorum að
ferðast um heiminn með litlum tilkostnaði.“
Svavar er byrjaður að leggja grunninn að
heimsókn Pete og Toms hingað til lands
næsta sumar en þá ætla þeir félagar að
ferðast hringinn í kringum landið með tón-
leika.
Margt fleira er framundan hjá Svavari
m.a. leikur hljómsveit hans Hraun á Air-
waves í október og fer að því loknu til Seyðis-
fjarðar þar sem stefnan er að taka upp nýja
plötu í gömlu frystihúsi. „Sú plata er rökrétt
framhald af þeirri fyrstu og á að koma út
næsta vor.“
Söngvaskáld á kengúruslóðum
Ástralía Svavar Knútur á ferðalagi sínu; að leika á strætóstoppistöð, með gítarinn á tónleikum, með Brian Ritchie og auðvitað á ströndinni með Pete vini sínum.
www.myspace.com/mrknutur
www.myspace.com/theinternational-
troubadourconspiracy
sér fjórar breiðskífur og tvær EP-
plötur.
Finntroll spilar á Grand Rokk í
kvöld og um upphitun sjá Sólstafir,
Drep og Trassar. Húsið verður opn-
að 21:30 og tónleikarnir hefjast um
kl. 22:30, aldurstakmark er 20 ár
og miðaverð 1.500 kr. Á morgun
leika þeir á Gauki á Stöng, húsið
opnað kl. 18 og tónleikarnir hefjast
kl.18:30. Um upphitun sjá Severed
Crotch, Ask the Slave og Dust Cap.
Ekkert aldurstakmark er á þessa
tónleika og miðaverð er 1.500 kr.
Forsala aðgöngumiða er í Geisla-
diskabúð Valda á Vitastíg, Grand
Rokk og Hljóðhúsinu á Selfossi.
FINNSKU tröllin í hljómsveitinni
Finntroll spila í Reykjavík á tvenn-
um tónleikum í kvöld og á morgun.
Sveitin er á mikilli uppleið í metal-
heiminum og skaut mörgum eldri
og reyndari sveitum ref fyrir rass
þegar hún spilaði á Wacken Open
Air-tónlistarhátíðinni í Þýskalandi
2005.
Eitt af sérkennum Finntroll er að
hún syngur á sænsku en tónlist-
arstíllinn er þjóðlagaskotið mel-
ódískt þungarokk í þyngri kant-
inum og sækir sveitin mikið í hinn
finnska þjóðlega „humppa“-tón-
listarstíl. Sveitin, sem var stofnuð
fyrir 10 árum, 1997, hefur sent frá
Finntroll með
tvenna tónleika
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sólstafir Hita upp fyrir Finnana. Rokkarar Meðlimir Finntroll eru svolítið tröllslegir.